Morgunblaðið - 17.04.1982, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. APRÍL 1982
Argentínskír hermenn sitja að snæðingi i stöðvum þeirra í Falklands-
eyjum, sem þeir tóku herskildi 2. apríl sl. Hin opinbera fréttastofa i
Argentínu, Telam, dreifði myndinni en aðrir hafa ekki leyfi til mynda
töku á eyjunum. ap
Útlit fyrir mikil
verkföll í Noregi
fMó, 16. april. AP. J
Osló, 16. apríl. AP.
ÚTLIT er nú fyrir að til verk-
falls komi hjá 53.000 starfs-
mönnum í norskum málm-
iðnaöi frá og með mánu-
dagskvöldi nk. ef ekki tekst
að finna lausn á deilum
þeirra við atvinnurekendur
um kaup og kjör. Ef svo fer
munu þúsundir annarra
manna missa vinnuna og
hafa vinnuveitendur búið
fólk undir það.
Tilraunir sáttasemjara norska
ríkisins, Björns Haug, hafa til
þessa verið árangurslausar en
málmiðnaðarmenn krefjast 13%
launahækkunar en hafa aðeins
fengið boð um 6,5%. Um helgina
munu formenn samtakanna gera
úrslitatilraun til að komast að
samkomulagi.
Samningar við önnur verka-
lýðsfélög virðast einnig í sjálf-
heldu, t.d. við flutningaverka-
menn, ökumenn langferðabíla og
strætisvagna og flugumferðar-
stjóra. Þeir síðastnefndu hafa
boðað verkfall frá og með nk.
þriðjudegi. Samtök verkamanna í
olíuiðnaði, þeirra sem starfa á
flutninga- og farmskipum, hafa
hótað að slíta viðræðum við eig-
endur skipanna en útgerðarmenn-
irnir segja, að verkamennirnir
fari í raun fram á tvöföldun launa.
Ef málmiðnaðarmenn fara í
verkfall er búist við að aðrir komi
strax í kjölfarið, þau félög, sem
áður eru nefnd og auk þess
starfsmenn á hótelum og veitinga-
húsum og prentarar, sem gera
ekki ósmáar kröfur þó að þeir séu
betur launaðir en sambærilegar
starfsstéttir. Samningaviðræður
við starfsmenn ríkis- og bæja í
Noregi eru nú nýhafnar.
Gyðingur handtek-
inn á Rauöa torginu
Fjölmenn mótmæli
í miðborg Varsjár
Var.sjá, 16. apríl. Al*.
LÖGREGLAN í Varsjá beitti
í dag gjallarhornum til að
tvístra hópi 500 manna, sem
komu saman á „Sigurtorg-
inu“ í borginni til að minnast
þess, að fjórir mánuðir voru
liðnir frá því aö 9 námu-
verkamenn létu lífið í átök-
um við hermenn.
Lögreglan þurfti aðeins að
Sendiherra Frakka, Louis Dela-
mare, var myrtur í september í
fyrra, enginn hefur lýst ábyrgð-
inni á hendur sér. Þá hafa líbönsk
yfirvöld upplýst, að núverandi
sendiherra hafi haft samband við
þau vegna morðhótana.
Tveir sendiráds-
starfsmenn myrtir
Ib irút, Líhanon, 16. apríl. Al*.
FRANSKIIR sendiráðsstarfsmaður og kona hans voru myrt í íbúð þeirra i
vesturhluta Líbanon í gærkvöld. Hefur morðunum verið lýst af talsmanni
sendiráðsins sem „hreinni og klárri hryðjuverkastarfsemi".
Sendiráðsstarfsmaðurinn, Guy
Cavallo, og kona hans, Caroline,
sem var ólétt, voru skotin í höfuð-
ið. Hjónin áttu von á gestum til
kvöldverðar. Þykir það sjálfsögð
venja að fá blóm send á undan
slíkum heimsóknum. Virðist svo
sem morðingjarnir hafi villt á sér
heimildir undir því yfirskini að
þeir væru að koma með blóm.
Uppljóst varð um morðin er
gestirnir sáu blóðslóð á ganginum.
Enginn virðist hafa orðið var við
morðingjana né heyrt skothvelli.
Cavallo var einn fárra starfs-
manna sendiráðsins, sem ekki var
viðriðinn stjórnmálatengsl af
neinu tagi og þótti mjög hlédræg-
ur.
Síamstvíbur-
ar aðskildir
IVking, 16. apríl. Al*.
SÍAMSTVÍBIJRAR voru í dag að-
skildir á sjúkrahúsi í Shanghai. Voru
þeir fastir saman á bringu. Var að-
eins ein lifur í þeim, óeðlilega stór.
Skurðaðgerðin heppnaðist vel
og eru síamstvíburarnir sagðir úr
allri hættu eftir fjögurra stunda
langa aðgerð. Tvíburarnir fæddust
1. mars.sh ogihafA d&fnað'eðlilégá1"
síðan. .muáol (>& mttenöl. ðánio>l
nota gjallarhornin einu sinni.
Mótmælendurnir lögðust á
hnén og báðust fyrir í stutta
stund áður en þeir fóru hver í
sína áttina.
Þá gerðu kennarar og nem-
endur hlé á skólastörfum í 15
mínútur á meðan þeir skrifuðu
undir skjöl þar sem mótmælt
var afsögn vinsæls rektors við
háskólann í Varsjá.
Yfirvöld í Póllandi hafa
ákveðið að skerða ferðafrelsi
landsmanna til mikilla muna í
samanburði við það sem tíðk-
aðist í fyrra. Verða ekki einu
sinni leyfðar hópferðir út úr
landinu. Þá hafa yfirvöld sagt,
að aðeins 400 manns fái leyfi
til að fylgja knattspyrnu-
landsliði Pólverja til Spánar,
þar sem úrslitakeppni heims-
meistarakeppninnar í knatt-
spyrnu hefst eftir tvo mánuði. í
þessum hópi verða mestmegnis
íþróttamenn, þjálfarar, læknar
og aðrir er tengjast íþróttum.
Moskvu, 16. apríl. Al*.
ÁTJÁN ára gamall Gyðingur
var í gær handtekinn og
fangelsaður fyrir að hlekkja
sig við járngirðingu á Rauða
torginu og flagga kröfu-
spjaldi þar sem á var letrað,
bæði á ensku og rússnesku.
„Leyfið mér að flytja til Isra-
el.“
Mikhail Tsivin hefur áður mót-
mælt því að fá ekki brottflutn-
ingsleyfi þar sem hann býr í Len-
íngrad.
Fljótlega eftir að hann hlekkj-
aði sig fastan á Rauða torginu
kom einkennisklæddur lögreglu-
þjónn aðvífandi, braut skiltið og
sióð fyrir Tsivin, svo handjárnin
sæjust ekki. Skömmu síðar kom
annar lögregluþjónn og klippti á
hlekkina með vírklippum.
Hópur 50 Sovétmanna, auk
nokkurra útlendinga og frétta-
manns urðu vitni að atburði þess-
um. Tsivin fékk 10 daga fangels-
isdóm fyrir fyrri mótmæli sín í
Leníngrad.
Tala þeirra Gyðinga, sem fá að
flytjast úr landi, fer stöðugt lækk-
andi. Árið 1979 fengu 51.320 að yf-
irgefa landið, árið eftir voru þeir
21.471 og í fyrra var talan komin
niður í 9.249.
140 ára gam-
all Tanzaníu-
búi látinn
Dar Ks-Salaam. Tanzaníu, 16. apríl. Al*.
BÓNDI, sem talinn er hafa
verið 140 ára gamall, lést í
morgun eftir skamma legu
vegna veikinda. Þúsundir
fólks flykktust til fæðingar-
bæjar hans til að votta hinum
látna virðingu sína. Kingam-
kono, en svo hét sá gamli,
sagðist eitt sinn hafa verið
kvæntur og hafa eignast 5
börn.
Mugabe skipar
hvíta ráðherra
Salisburv, 16. apríl. Al*.
ROBERT Mugabe.forsætisráðherra
í Zimbabwe, hefur gert breytingar á
stjórn sinni og bætt við fimm nýjum
ráðherrum, tveimur hvítum mönnum
og þremur svörtum úr flokki Joshua
Nkomos, Zapu-samtökunum. Var
þetta tilkynnt kvöldinu áður en
Zimbabwe-búar minnast tveggja ára
sjálfstæðis landsins.
Ríkisstjórnina í Zimbabwe
skipa nú 30 ráðherrar og er þetta í
þriðja sinn, sem Mugabe gerir á
henni breytingar. Að sögn hans er
ástæðan nú sú, að hann vill koma
til móts við þá menn úr flokki
Nkomos, sem „af einhug vilja
leggja sitt af mörkum í þágu þjóð-
arinnar" og einnig, að hvítir menn
eigi sína fulltrúa.
Hvítu ráðherrarnir gegndu áður
líkum embættum í minnihluta-
stjórn Ian Smiths en í síðasta
mánuði sögðu þeir skilið við flokk
hans og ljáðu Mugabe liðsinni sitt.
Hvítir menn í Zimbabwe, sem eru
190.000 talsins á móti 7,4 milljón-
um svartra, hafa 20 sæti af 100 á
þingi.
Múmían, sem fannst í aprílmánuði fyrir tveimur árum í Norðvesturhluta kínverska héraðsins Sinkiang, hefur nú
fengið nýja aldursgreiningu. Segja sérfræðingar hana vera 3.200 ára gamia. Múmían hefur varðveist ótrúlega
vgl þegar tekið er ,tijljt til þess að eagar, ráðstafanir virðast hafa verið gerðar i öndverðu til að hún geymdist inisg
•nul ,;bnul.'.Rninnme S j'ilnroi.) liió iólsd nfne ócd n.i iiili‘>b
.luóii iHed /tu^i aT
16 létust í
árás skæru-
liða SWAPO
Sudur-ATriku, 16. apríl. Al'.
A.M.K. SEXTÁN menn létust í ein-
hverri hörðustu árás sem um getur af
þcirra hálfu, á landbúnaðarsvæði
hvítra í Suður-Afriku. Þrátt fyrir mik-
inn skotbardaga sækja þeir stöðugt
lengra inn í landið. Talið er að þeir
séu um 100 talsins.
Að því er haft er eftir öryggis-
vörðum, létust 10 skæruliðar og 6
hermenn í árásinni, sem staðið hef-
ur linnulítið undanfarna daga. Lét-
ust hermennirnir allir er hand-
sprengja lenti á bifreið, sem þeir
voru í. Hafa ekki jafnmargir her-
menn Tátist í einni ácás ýa,np.Jt, ,t(Vfj,9,
ár. 1