Morgunblaðið - 01.05.1982, Síða 14

Morgunblaðið - 01.05.1982, Síða 14
14 MORGUNÉLAÐIÐ, LAUGARDAGUR1. MAÍ1982 Hallgrímur Helgason, Selbrekku 109, spyr: 1. Er hægt að skipta alparifsi? 2. Ég er með viðkvæmar stór- blómarósir. Hef geymt þær í dimmu húsnæði yfir veturinn þar sem hiti fer ekki yfir 5 gráð- ur. Á að hafa rætur í mold eða mosa og halda þeim rökum? Svar: 1. Alparifsi má auðveldlega skipta með því að stinga utan úr hnausnum með bitgóðri stungu- skóflu. 2. Betra er að grafa plönturnar niður úti, eða búa vel um þær á vaxtarstaðnum, þannig að tryggt sé að kal nái ekki niður til ágræðslunnar. Ef þær eru geymdar inni þarf helst að vera svalt í geymslunni, jafnvel svo kalt, að mold í geymsluílátinu nái að frjósa í mestu frostum. Sigríður Marelsdóttir, Keflavík, spyr: 1. Ég var að taka upp rósir, sem mér þóttu nokkuð ræfilslegar, en í upphafi setti ég þær niður fyrir ágræðslu. Bætti ég mold á og var komið upp að greiningu. Fóru þær þá að rækta sig fyrir ofan ágræðsluna. Getur það dregið út blómgun, en í vetur setti ég þær í plast til geymslu? Margir rækta rósir sér til yndisauka og ánægju spurt og svarad Lesendaþjonusta MORGUNBLAÐSINS fyrirhugað ræktunarland og er þá nokkurs um vert að gera það sem fyrst með vorinu, svo fræið missi ekki af vorvakanum. Ef því verður við komið er sjálfsagt að hylja fræið með jarðvegi eða troða því ofan í moldaryfirborð- ið. Annars má sá og ala lúpínur upp í gróðurreitum á sama hátt og t.d. stjúpmæður. Með því eru meiri líkur til að betri árangur náist. Eftir að plönturnar hafa 2. Það gerist mjög oft, að toppa- sprotar á greni verði fyrir ein- hverjum áföllum síðla sumars. Þarf oft ekki meira til en að fugl tylli sér á toppinn. Þetta tefur að sjálfsögðu fyrir hæðarvexti trés- ins, en nýr sproti myndar fljót- lega nýjan topp. í sjálfu sér er lítið fengið með því, að tré á þröngum húsalóðum verði mjög hávaxin enda óhyggilegt að stefna að skógrækt inn í þétt- býli. Matjurtír - tré og blóm Volgt áburd- arvatn Svar: Vísa til þess, sem rætt er um í svarinu til Hallgríms í Sel- brekku, um geymslu ágræddra rósa yfir veturinn. Ef rætur hafa myndast ofan við ágræðsluna ætti það ekki að saka eða draga úr blómgunarmöguleika. Ég ráð- legg Sigríði að gefa rósunum sín- um af og til volgt áburðarvatn á meðan vöxtur er sem örastur eða fram að mánaðamótum júní/- júlí. Nú um mánaöarmótin (apr- íl/ maí) ætti hún að klippa vöxt- inn frá síðasta sumri það mikið niður, að aðeins þrjú neðstu brum standi eftir. Þá endurnýjar hún rósirnar svo þær verða kröftugar á ný. Kristín Óskarsdóttir, Byggðarenda 31, spyr: 1. Er í lagi að taka útsæðiskart- öflur úr sama garðinum ár eftir ár? Skipta um af og til Svar: Ef sama garðiand er notað ár eftir ár fyrir kartöflur er hyggi- legt að breyta til með útsæði á nokkurra ára fresti og fá útsæði úr öðru garðstæði. Best færi þó á, að skipta um garðland fyrir kartöfiur af og til. Rækta t.d. rófur, kál eða gulrætur í garð- landinu sum árin. Sesselja Þorbjörnsdóttir, Boðagranda 7, spyr: 1. Ég er að reyna að koma mér upp gljávíðislimgerði. Ég á mik- ið af sprotum og hef geymt þá í vatni í um vikutíma. Er hægt að koma þeim til á þann hátt? 2. Ég hef ennfremur viljað reyna að koma mér upp lúpínu- breiðu. Ég á fræ af þroskaðri lúpínu frá í fyrra, sem ég hef geymt í vetur. Hvað geri ég nú? Lúpínur Svar: 1. Allur víðir myndar rætur í vatni, en ekki má dragast lengi að koma græðlingunum í mold eftir að rætur hafa sýnt sig. Best er að stinga víðisprotum beint í mold, eftir að þeir hafa verið skornir af móðurtrénu. 2. Lúpínufræi má sá beint út í Hafliði Jónsson, garðyrkjustjóri Reykjavíkurborgar, hefur tekið að sér að svara spurningum lesenda Morgunblaðsins um garðyrkju. Svörin við fyrstu spurningunum birtast í dag. I>au verða síðan birt eftir því sem spurningar berast. Lesendur geta lagt spurningar fyrir Hafliða, jafnt um ræktun matjurta sem trjárækt og blómarækt. Tekið er á móti spurningum lesenda á ritstjórn Morgunblaðsins í síma 10100 á milli kl. 11 og 12 árdegis, mánudaga til föstudaga. Hafliði Jónsson er landsþekktur garðyrkju- frömuður og hefur haft yfirumsjón með öllum ræktunar- málum borgarinnar í nær þrjá áratugi. Kæktun skjólbelta úr ýmsum trjátegundum er vinsæl Hafliði Jónsson, garðyrkjustjóri fengið eðlilega umönnun, sumar- langt i gróðurreitunum má sem best gróðursetja þær út á ber- svæði, ári eftir að sáð var til þeirra. Er þá fullnægjandi að ein planta komi á fermetra iands. Valdimar Einarsson, Kleppsvegi 96, spyr: 1. Ég er með Alaska-víði. Græðlingarnir eru um 35 sm langir. Er gott að hafa þá svo langa eða er betra að taka þá í fleiri búta? 2. Ég er með grenitré Við húsið hjá mér, líkast til um 15 ára gamalt. Undanfarin ár hefur toppurinn alltaf dottið af, þann- ig að það stækkar ekkert. Hins vegar hefur það þést mjög að neðan. Hvað get ég gert til að það haldi áfram að stækka? Græðlingar Svar: 1. Eðlilegasta lengd græðlinga er um það bil 10—15 sm, en eðli- legast er að haaf þá viðmiðun að hver græðlingur beri 5 brum. Þegar þeim er svo stungið í upp- eldisbeðið með 10—15 sm milli- bili eru þrjú brum látin hverfa í moldina og tvö höfð uppúr. í uppeldisreitum eru græðlingarn- ir hafðir í eitt eða tvö sumur áður en þeir eru gróðursettir á framtíðarvaxtarstað. Þá skal stefnt að því að planta það djúpt, að hinn upphaflegi græðlingur gangi allur í jörð. Þorgerður Jónsdóttir, Granaskjóli 5, spyr: 1. Ég ætla að fara að vinna í garðinum mínum. Hann hefur verið illa hirtur mörg undanfar- in ár. Það er mikið af mosa í honum og ennfremur sinugras. Hvað get ég gert til að fá hann í lag? Á ég að nota húsdýraáburð, eða er e.t.v. betra að nota erlend- an áburð? 2. Mig langar til að vita hvort gljávíðir sé góður í skjólbelti. Er til einhver önnur trjátegund, sem gerir sama gagn, en er ódýr- ari? Handreyting best 1. Eðlilegast er að hefjast handa strax og reyta alla sinu af gras- blettinum. Best og trúlegra fljót- legast er að framkvæma það verk á þann hátt, að handreyta allt svæðið. Þegar sinan hefur verið fjarlægð er hyggilegt að blanda saman góðri mold og sandi, sem síðan er sáldrað yfir grasflötina þannig að vel grisji í svörðinn. Dreifa þarf yfir, sem svarar 'k kg af grasfræi og 3 kg af blönduðum garðáburði á hverja 100 fermetra. Að lokum er svo þjappað t.d. með því að fótstíga eða velta tunnu yfir flötina. Svo er að bíða og sjá hver árangurinn verður og halda síðan áfram umhirðu og ræktun- arstarfinu. 2. Vissulega koma margar aðrar tegundir til greina. Bendi t.d. á björk, viðju eða Alaskavíði. Gljávíðir er ekki sérlega vind- þolinn og hentar því best þar sem skjólsælt er. Hins vegar hef- ur gljávíðir þann kost framyfir aðrar víðitegundir, að hann er sjaldan hart leikinn af skorkvik- indum. Guðný Jónasdóttir, Reynimel 36, spyr: 1. Hvað á ég að gera þegar gamiir trjástofnar eru farnir að safna á sig grænku neðst á stofninum? Undir þessari grænku eru rauðleit sár. Svar: Einfaldasta ráðið er að fara út.í garðinn með steinolíu og stjúka henni með pensli á trjástofnaná. Eftir tvo eða þrjá daga væri síð- an ágætt að endurtaka þessa hreinlætisaðgerð, en nota þá sápuvatn í stað steinolíunnar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.