Morgunblaðið - 01.05.1982, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1982
23
Nýr forseti
E1 Salvador
Hófsamur og sjálf-
stæður án fyrri
stjórnmálatengsla
ALVARO Magana, sem var kjörinn
forseti El Salvador á fimmtudag er
vel metinn hagfræðingur, menntaö-
ur í Bandaríkjunum og talinn
sjálfstæður og hófsamur í skoðun-
um. Síðustu sautján árin hefur
Magana verið bankastjóri og ekki
haft nein tengsl við stjórnmáia-
flokka landsins. Sjónarmið Magan-
as komu fram í viðtali nýlega varð-
andi nauðsynlegar aðgerðir í San
Salvador. Hann lagði þar áherzlu á
að efnahag landsins yrði að byggja
upp á ný og það myndi stuðla að
meiri almennri kyrrð á meðal íbú-
anna. Sú stjóm sem Ueki við «tti að
hafa þetta að meginmarkmiði.
Magana tekur við forsetaemb-
ættinu í kjölfar kosninganna til
stjórnlagaþingsins í marzlok. Að-
alverkefni þess er að semja nýja
stjórnarskrá og efna síðan til al-
mennra kosninga, líklega á næsta
ári. Annað verkefni stjórnlaga-
þingsins var að velja forsetann,
svo sem nú hefur verið gert.
Magana er fæddur 8. október
1925. Hann er sagður blátt áfram
í viðmóti, með napran húmor.
Hann fær og orð fyrir að vera
laginn og skörulegur stjórnandi,
ákveðinn og fylginn sér ef honum
býður svo við að horfa.
Magana hefur fátt látið hafa
eftir sér enn sem komið er um
hvaða ráðstafana eigi að grípa til
svo að kleift verði að binda enda á
borgarastyrjöldina í landinu.
Vinstrisinnar í landinu tóku ekki
þátt í kosningunum og kölluðu
þær skrípaleik, eins og fram hef-
ur komið. Herinn, kristilegir
demókratar, sem fóru með völd
fyrir kosningarnar 28. marz, og
hægrisinnar, sem hafa nú meiri-
Dr. Alvaro Magana forseti El
Salvador.
hluta á stjórnlagaþinginu, eru
allir á einu máli um að ekki eigi
að semja við vinstrimenn fyrr en
þeir hafi lagt niður vopn.
I viðtalinu við Magana sem áð-
ur var vitnað til sagði hann að
kæmist friður á í landinu myndi
það hjálpa stjórninni að sinna
verkefnum sínum, en náðun til
handa skæruliðum yrði að vera
einróma samþykkt á þinginu. Af
fimm flokkum á þinginu eru fjór-
ir hægri flokkar.
Magana er fæddur í Ahuachap-
an, bæ ekki ýkja langt frá landa-
mærum við Guatemala. Foreldr-
ar hans voru bændafólk. Hann
lauk prófi í lögum frá háskólan-
um í San Salvador, en hélt síðaij
til Chicago og nam hagfræði und-
ir handleiðslu Martin Friedmans
á árunum 1951 — 1955. Hann er
kvæntur og sex barna faðir.
Magana er þeirrar skoðunar að
almennt séu íbúar E1 Salvador
ekki flokkslega sinnaðir, heldur
sækist þeir fyrst og fremst eftir
bættum lífskjörum og friði. „Fólk
tók þátt í kosningunum vegna
þess að það vonaði að þá yrðu
breytingar — sykurverðið myndi
lækka, strætisvagnafargjöldin
lækka og launin myndu hækka,“
sagði Magana og bætti við að for-
seti landsins yrði umfram allt að
vera heiðarlegur, hagsýnn og
raunsær og síðast en ekki sízt
góður stjórnandi. Fréttaskýrend-
ur telja að Magana hafi flesta
þessa eiginleika til að bera.
Botha og Kaunda
ræðast óvænt við
KopfonU'in (ialc, Suóur Afríku, 30. apríl. AP.
P. W. BOTHA, forsætisráð-
herra Suður-Afríku, og Kenn-
eth Kaunda, Zambíuforseti,
áttu þriggja tíma „gagnlegar
viðræður“ á landamærum
Suður-Afríku og Botswana í
dag, fostudag. Þetta er einn
af fáum fundum leiðtoga
Æfingar á
Iwo Jima
Tokyo, 30. apríl. AP.
JAPANSKA rikisstjórnin heimilaði í
dag, (ostudag, landgönguæfingu
bandarískra landgönguliða á Iwo
Jima, þar sem ein blóðugasta
orrusta Kyrrahafsstriösins geisaði, i
næstu viku.
Þetta verður fyrsta landgöngu-
æfing landgönguliðanna á eynni
síðan hún var skiluð Japönum
1968. Um 800 landgönpiliðar
munu taka þátt í æfingunni.
hvíta meirihlutans í Suður-
Afríku með blökkumanna-
leiðtoga.
Birt var stutt, varkár frétta-
tilkynning um fundinn og það
benti til þess að enginn áþreif-
anlegur árangur hefði náðst.
Sagt var að leiðtogarnir hefðu
átt „hreinskilin skoðanaskipti
um ástandið í sunnanverðri
Afríku í leit þeirra að friðsaml-
egri lausn á vandamálum
heimshlutans".
Viðræður leiðtoganna fóru
fram við ílangt borð, sem var
þannig fyrir komið í byggingu á
landamærunum, að annar end-
inn var í Botswana en hinn í
Suður-Afríku og bæði Botha og
Kaunda höfðu annan fótinn í
Botswana og hinn í Suður-
Afríku.
Þetta átti að sýna að viðræð-
urnar færu fram á jafnréttis-
grundvelli.
næstu árum. Umframframleiðsla
hleðst upp, sykurneysla minnkar,
notkun gervisætuefna færist sí-
fellt í vöxt svo sem cyclamats,
saccarins og aspartame.
Afleiðingar gífurlegra verð-
sveiflna í sykri hafa m.a. verið
þær að notendur sykurs hafa ýtt
undir framleiðslu „high fructose
corn syrups" til að nota þegar verð
sykurs er hátt.
Alkóhólframleiðsla til eldsneyt-
is er vörn sykurframleiðendanna
við of lágum verðsveiflum.
Þannig hefur markaðurinn
brugðist við og verða því verð-
sveiflur mun minni á sykri á
næstu árum en verið hefur hingað
til.
Við skulum hafa það í huga að
útflutningur verður óhugsandi.
Við skulum heldur ekki gleyma
því að það eru til þjóðir sem hafa
fallvatnsorku, stuttar vegalengdir
á markað og mólassa á staðnum,
sem ekki hafa látið sér detta í hug
að framleiða hreinan krystallaðan
sykur úr „mólössum" til neyslu og
matvælaframleiðslu.
Pólitík
Ef frumvarpið verður að lögum
ásamt óhjákvæmilegum sykurlög-
um, sem örugglega verður lætt inn
seinna eigi sykurverksmiðjan að
þrífast vegna óheyrilegs kostnað-
ar, þá neyðist almenningur í land-
inu til þess að sætta sig við eftir-
farandi afleiðingar: Vöruverð til
neytenda hækkar, verðbólga
eykst, íslenskir matvælaframleið-
endur standast ekki samkeppni
erlendra aðila í verði og almenn
lífskjör rýrna.
Ef til vill er hugmyndin sú að
íslendingar neyðist til þess að
draga sig úr samstarfi vestrænna
þjóða og slíti samningum við frí-
verslunarsamtökin, EBE og
EFTA, og hverfi aftur í myrkviði
fyrri ára.
Sykurlög sem sett yrðu mundu
ganga í berhögg við gerða samn-
inga við Fríverslunarbandalagið
og EBE og stofna þannig útflutn-
ingi á fiski þangað í hættu vegna
tolla sem yrðu lagðir á af banda-
lögunum.
Þessa dagana virðast byggingar
pólitískra minnisvarða og at-
kvæðaveiðar ganga þvert yfir al-
menningsheilí.
Reykjavík 29./ 4. 1982,
Pétur Björnsson.
P.W. Botha, forsætisráðherra Suður-Afríku, og Kenneth Kaunda, forseti Zambíu, ræðast við í hjólhýsi á
landamærum S-Afríku og Botswana í gærdag. Það er Botha sem hallar sér fram á borðið vinstra mcgin
fyrir miðri mynd, en andspænis honum situr Kaunda.
Simamynd — AP
íranir hefja stórsókn
og ná mikilvægum vegi
Beirúl, 30. apríl. AP.
ÍRANSKI herinn sótti yfir Karun-fljót
í dag og náði á sitt vald mikilvægum
spottum þýðingarmikils þjóðvegar.
Þetta var liður í stórsókn, sem miðar
að þvi að hrekja herlið Iraka frá oliu-
héraðinu Khuzistan að sögn írönsku
herstjórnarinnar.
írakska herstjórnin sagði að ír-
aksher hefði hrundið nýju sókninni
með stuðningi herþotna og hélt því
fram að 2.500 íranskir hermenn
hefðu fallið í 12 tíma viðureign fót-
gönguliðs og skriðdreka í mýrlendi í
Khuzistan.
„Vigvöllurinn er þakinn líkum
óvinanna," sagði yfirmaður írakska
hersins í Khuzistan í skeyti til
Saddam Husseins forseta. „Herlið
okkar hefur hrundið atlögu óvinar-
ins og hefur kennt honum lexíu, sem
hann gleymir ekki.“
íranir kváðust hafa skotið niður
fimm írakskar herþotur síðan sókn-
in hófst á miðnætti og í Bagdad var
sagt að einni íranskri orrustuþotu
og fjórum árásarþyrlum hefði verið
grandað.
íranska fréttastofan sagði, að
„hermenn islams" hefðu náð á sitt
vald tugum ferkílómetra íransks
lands þegar þeir hröktu herlið íraka
frá stórum hlutum þjóðvegarins
Ahwaz-Khorramshar. Fréttastofan
sagði að minnst 1.000 írakar hefðu
verið teknir til fanga. íranska her-
ráðið sagði að meðal fanganna væru
fimm írakskir hershöfðingjar.
Ríkisútvarpið í Tehran og ríkis-
útvarpið í Bagdad hættu útsending-
um venjulegra dagskrárliða og út-
vörpuðu stríðstilkynningum, en á
milli voru leikin hergöngu- og ætt-
jarðarlög, sem minnti á eldmóðinn í
upphafi Persaflóastríðsins er brauzt
út 22. sept. 1980.
I írönskum bænahúsum skoruðu
predikarar á menn að bjóða sig
fram til herþjónustu og biðja fyrir
skjótum sigri í hinni nýju tilraun til
að hrekja óvininn með öllu frá
Khuzistan, aðalstríðsvettvanginum
við suðurenda víglínunnar, sem er
483 km löng.
Háttsettur kommúnistaleiðtogi
myrtur af Mafíunni á Ítalíu
Palermo, Sikiley, 30. apríl. AP.
TALIÐ er að það hafi verið menn
innan mafiunnar sem skutu og myrtu
Pio La Torre, formann kommúnista-
flokksins á Sikiley og þingmann, i
árás í dag. Bilstjóri hans lést einnig í
fyrirsátrinu. Fyrstu fregnir hermdu
að hann hefði verið skotinn niður
fyrir utan skrifstofur kommúnista-
flokksins i Palermo.
Lögreglan gaf þá skýrslu, að
fimm menn, vopnaðir skammbyss-
um, vél- og haglabyssum, hafi beð-
ið eftir hinum 54 ára gamla La
Torre er hann kom út af skrifstof-
unni. Þegar bifreið hans renndi
fyrir horn á fáfarinni götu skammt
frá skrifstofunni, dundi kúlnahríð-
in á bílnum. Loks þegar hann stað-
næmdist hlupu árásarmennirnir að
bilnum og skutu La Torre og bil-
stjórann í höfuðið. Bílstjórinn
reyndi að svara fyrir sig og dró upp
skammbyssu, en var myrtur með
haglaskoti.
Morð þessi voru framin aðeins
einum degi áður en von er á helsta
sérfræðingi lögreglunnar í glæpa-
málum til Palermo. Er honum ætl-
að að stjórna aðgerðum lögregl-
unnar í viðureign hennar við mafí-
una. Skera á upp herör gegn þess-
um glæpasamtökum, sem eiga
sterk ítök, einmitt á Sikiley.