Morgunblaðið - 01.05.1982, Page 38

Morgunblaðið - 01.05.1982, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MAI 1982 Spá um hrun AtlantshaMaxins eftir dr. Björn Jóhannesson P i Kunningjar mínir frá því á New York-árum mínum, bræöurnir Sigurður og Gunnar Helgasynir hjá Flugleiðum, senda mér oft Ijósrit af laxagreinum sem þeir veita athygli á ferðum erlendis. Eitt slíkt ljósrit barst mér nýlega, en það er forsíðugrein í hinu kunna bandaríska dagblaði BOST- ON GLOBE frá 27. mars 1982, og ber fyrirsögnina: „Doomsday pre- dicted for the Atlantic salmon“. Þessu mætti snúa á íslensku sem: „Spá um dómsdag Atlantshafs- laxins", en það táknar að þessari •fisktegund verði brátt útrýmt. Hér er nauðsynlegt að skjóta því inn í, að samkvæmt enskri mál- venju táknar orðið „salmon" lax sem dvalist hefur samfellt í sjó tvö ár eða meir (oft nefndur „vænn“ lax á íslensku), en eins- árs-Iax-í-sjó (á íslensku „smálax") er á ensku nefndur „grilse". í um- ræddri grein mun í flestum tilvik- um átt við 2ja-ára-lax-í-sjó (væn- an lax, minnst 7—8 pund). Grein BOSTON GLOBE, sem samin er af starfsmanni blaðsins, styðst við umsagnir fjögurra kanadískra og bandarískra vís- indamanna, sem eru sammála um hættuna sem steðjar að 2ja-ára- „Þar eð verulegur hluti íslenska laxins leitar væntanlega á Græn- landsslóðir, hefur neta- veiðin þar sams konar áhrif á íslenska og kanadíska laxinn. Hlutdeild væns lax í ís- lenskum ám minnkar óhjákvæmilega af þess- um sökum jafnt og þétt, og getur að lokum horf- ið, fari svo fram langa hríð um óbreyttar neta- veiðar við Grænland.“ laxi-í-sjó, eða vænum laxi. En það sem gerir greinina sérstaklega áhugaverða, einnig fyrir laxa-lönd Evrópu, eru dæmi þar sem getið er um hin uggvænlegu áhrif úthafs- veiða á stærðardreifingu einstakl- inganna innan þeirra laxastofna sem ná að snúa heim af hafinu til að hrygna. Skal þetta atriði skýrt nokkru nánar. II. í ánni Matamek í Kanada, sem sl. 15 ár hefur þjónað sem til- raunaá og sem í dag er enn al- gjörlega ómenguð, var laxveiðin 1979 um 2g%raf því sem hún var 1967, og hafði á þessu tímabili far- ið jafnt minnkandi. Þess er ekki getið hvort smálax er tekinn með í þessar tölur, en frá því greint, að sumarið 1981 hafi 90 hundraðs- hlutar laxins sem gekk í ána verið smálax, en sumarið 1967 var sam- svarandi tala 50%. Skýring þessa er auðsæ: Netaveiðar Grænlend- inga, sem fara fram í ágúst og byrjun september, hirða aðeins 2ja-ára-lax-í-sjó eða fisk sem er eldri. Smálaxinn (eins-árs-fiskur- í-sjó) sem hvarf úr ánum til hafs fyrr um sumarið er þá enn of smá- vaxinn til að festast í netunum. Netaveiðar á þessum árstíma, ár eftir ár, minnka þannig jafnt og þétt þann hundraðshluta af væn- um laxi, sem á þess kost að snúa heim til að hrygna. Af þvi leiðir svo, að af þeim gönguseiðum sem árnar framleiða minnkar einnig jafnt og þétt sá hundraðshluti sem hefur erfðaeiginleika til að dvelj- ast í hafi samfellt tvö ár eða leng- ur. Við úthafsveiðar Grænlend- inga bætast svo „óviljandi" lax- veiðar skipa sem eru að þorsk- og síldveiðum á hafi úti. Þegar þorskveiði er bönnuð hér við land, mega bátar eigi að síður hafa alit að 15% af þorski í aflanum, og hliðstæð regla mun gilda um nefnda „óviljandi“ laxveiði. Höf- Eitdwaðfyrir pig Við leggjum áherslu á fjölbreytni í skrifborðs- stólum og vandaöa vöru. 15 ára reynsla hefur kennt okkur margt og ennþá vinnum við að því að bæta framleiðsluna og auka úrvalið. Björn Jóhannesson undur greinarinnar telur, að sjó- mennirnir gangi þannig frá veið- arfærum, að „óviljandi" afli af verðmætum laxi verði í hámarki. Loks taka netaveiðar með strönd- um fram — sem stundaðar eru í ríkum mæli af öllum laxa-löndum við norðanvert Atlantshaf öðrum en íslandi — ætíð tiltölulega meira af vænum laxi en smálaxi. III. Samanlögð áhrif nefndra út- hafs- og strandveiða valda því, að vænn lax er á hröðu undanhaldi. Og Dr. Naiman, sem staðið hefur fyrir rannsóknunum við Matam- ek-ána, ályktar svo: „Eg geri ráð fyrir því, að laxveiðin muni bíða afhroð innan fárra ára. Tveggja ára lax mun ekki sjást lengur, og um leið munu úthafsveiðarnar hrynja." Augljóst er að þegar 2ja- ára-lax-í-sjó er ekki lengur við lýði, er að fullu brostinn grund- völlur fyrir úthafsveiðar við Grænland. Þess er ennfremur get- ið í BOSTON GLOBE-greininni, að í allmörgum kanadískum ám, sem fyrr voru ágætar laxveiðiár, sé vænn lax horfinn með öllu, og orðinn mjög sjaldséður í öðrum ám. Þar eð verulegur hluti íslenska laxins leitar væntanlega á Græn- landsslóðir, hefur netaveiðin þar sams konar áhrif á íslenska og á kanadíska laxinn. Hlutdeild væns lax í íslenskum ám minnkar óhjákvæmilega af þessum sökum jafnt og þétt, og getur að lokum horfið, fari svo fram langa hríð um óbreyttar netaveiðar við Grænland. ^ IV. Færeyjaveiðarnar hafa einnig neikvæð áhrif á stærðardreifingu einstaklinga innan laxastofna, þó ekki í eins ríkum mæli og Græn- landsveiðarnar. Færeyingar veiða lax á flotlínu en ekki í net eins og Grænlendingar. A línuna veiðist lax af öllum stærðum, og um 25% aflans er raunar svo smár lax, að honum er fleygt fyrir borð. En með því færeyskir sjómenn eru að sálga 2ja-ára-laxi-í-sjó (vænum laxi) í tvisvar sinnum lengri tíma en smálaxinum, orka veiðar þeirra með líkum hætti og netaveiðin við Grænland: Vænum laxastofnum er eytt í stórum ríkari mæli en smálaxinum, og í þeim íslenskum ám þar sem áhrif Færeyjaveið- anna eru hvað mest, mun af ört dvínandi heildarveiði hundraðs- hluti væns lax minnka jafnframt. V. I sambandi við framangreindar hugleiðingar mætti geta þess, að það kostar íslenska laxá jafn mikla átu eða orku að framleiða sjógönguseiði sem skilar sér til baka sem 15 punda lax og annað seiði jafnstórt sem snýr heim sem 5 punda fiskur. Þannig orka bæði Grænlands- og Færeyjaveiðarnar þann veg að rýra stórlega náttúr- legan afrakstur af íslenskum lax- ám. Og tjónið reynist enn tilfinn- anlegra, með því að stangveiði- menn eru fúsir að greiða þeim mun meira fyrir veiðileyfi sem von er á stærri fiski. „Það verður enginn ríkur á einni nóttu“ — segir Birgir Viðar Halldórsson, eigandi Góðborgarans við Hagamel „Góðborgarinn er með stærra markaðssvæði en nokkur annar mat- sölustaður á landinu svo ekki ætti það að hafa áhrif til hins verra,“ sagði Birgir Viðar Halldórsson, eigandi Góðborgarans við Hagamel 67, sem nýverið hefur opnað aftur eftir „Breytingin hjá okkur hefur orðið umtalsverð eftir að við breyttum húsnæðinu," sagði Birgir. „Áður seldum við um 85% af okkar hamborgurum út, en á einni helgi má segja að dæmið hafi snúist við.“ í sal Góðborgarans eru sæti fyrir 36 manns og þar er m.a. stöðugt í gangi myndband, sem hægt er að horfa á alls staðar úr salnum „Við höfum bryddað upp á ýmsum nýjungum í okkar rekstri. T.d. vorum við fyrstir með bæði fisk- og roast beef- borgara og fyrir stuttu tókum við upp þá nýjung að veita fólki 11 króna afslátt gegn framvísun notaðs bíómiða. Það hefur mælst vel fyrir, þótt einn og einn hafi misskilið þetta og komið með fjölda miða og ætlað að borða ókeypis." Góðborgarinn hóf starfsemi sína í janúarlok og er því aðeins þriggja mánaða gamalt fyrir- stutta lokun vegna breytinga. tæki. „Það hefur tekið tíma að byggja staðinn upp og svo hefur það ekki gert hlutina auðveldari, að samkeppnin er orðin geysi- lega hörð. Það líður varla sú vika, að ekki sé opnaður nýr matsölustaður. Sumir hafa reynt að fara út í undirboð en gefist upp á því eftir örskamman tíma. Við erum þó eini hamborgara- staður borgarinnar, sem veitir þjónustu til borðs." — Hvað þarf mikla sölu til að hamborgarastaður af þessu tagi standi vel undir sér? „Það þarf um 3.500 borgara sölu í hverjum mánuði til að standa undir öllum kostnaði. Nú orðið kostar ekki undir 800.000 krónum að koma sér upp stað, sem slíkum. Það vill hins vegar gleymast hjá mörgum, sem fara út í svona rekstur, að hann geng- ur ekki upp nema menn leggi sig alla fram. Það verður enginn ríkur á einni nóttu,“ sagði Birgir Viðar. Úji s

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.