Morgunblaðið - 01.05.1982, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 01.05.1982, Blaðsíða 46
AZAfZÁ'- srAB//-E: j^AK 7famT£{X/R. SKUUIM </oha ao AHoBT£\DC/# SKETC/&T EKK/ í AE//C//V//- A‘^0 AfU//D/ 6KK EE ÞE/& L\><4S./*0 Et/A/vD/ /AV Æ VölJJA/// ?___________-í mmm W%y AE/KCJK///K f/EFSr, AOET/0 EK Í/R/J/Z/í/V SVSJ///C/. HfKDT/AD ED 'A VéSÐ/ t/MHKEKF/S /CEKHAJ/&////*. - 06 OEGAR ARGEf/T/j/A •S/Kc/KAK . . . MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MAÍ1982 Spænnka knatLspyrnulandslidið. áhyggjuefnin núna síðustu vik- urnar fyrir HM? Santamaría — Mín skoðun er sú að mikilvægast sé að bæta sál- fræðilega hlið knattspyrnumann- anna. Þeir verða spenntir á taug- um og útkeyrðir eftir strangt leiktímabil. Þess vegna hefi ég valið að veita þeim hvíld, svo að þessi æsingur og spenna hjá þeim hverfi algjörlega við að þurfa að sigra „leikinn á sunnudag". Vita- skuld þýðir þetta ekki að leikmenn verði ekki ó góðri æfingu í júní, þar sem þeir munu æfa áfram, en ekki undir því álagi að verða að sigra alla sunnudagsleikina (í deildarkeppninni). Blm. — Hvernig verður lokaund- irbúningi landsliðsins háttað? Santamaría — Leikmennirnir þurfa að jafna sig líkam- og tæknilega fyrir HM. Við munum einbeita okkur að þessum tveimur atriðum. Þeir eru alls ekki nægi- lega vel undirbúnir tæknilega séð en það mun lagast. Blm. — Samt sem áður ríkir nokkur óvissa um gengi Spánar. Gæti liðið valdið aðdáendum sín- um miklum vonbrigðum? Santamaría — Okkar markmið er að verða heimsmeistarar. Við höf- um mikla möguleika, það er eng- inn vafi á því. Blm. — Skipti það máli ef HM færi ekki fram á Spáni? Santamaría — Nei það skiptir engu máli. Við eigum ungt lið, en með góða reynslu að baki þar sem það hefur leikið fjölda landsleikja. Það getur samt verið að enn vanti einhverja reynslu og meiri sam- stöðu í liðið. Ef HM yrði haldin ári seinna, þ.e.a.s. á næsta ári yrði það kjörið fyrir okkur. En leik- mennirnir munu yfirstíga alla erf- iðleika og mæta djarfir til leiks í sumar. Blm. — Hvaða leikmenn munu leika gegn Svisslendingum? Santamaría — Hugmynd mín er þessi; tefla í byrjun fram liði er gæti orðið endanlegt val fyrir HM, og sjá til á meðan á leiknum stendur með þær stöður í liðinu er enn eru óljósar. En vitaskuld fer allt eftir því hvaða leikmenn verða 100% tilbúnir til að spila. Blm. — Hvað sem því líður getum við nú þegar sagt að búið sé að velja landsliðið, sem á að leika á HM. Eða hvað? Santamaría — Það má segja að nokkrir leikmenn eigi þegar fast sæti í landsliðinu. Ég hef reynt að gefa leikmönnum næg tækifæri til þess að sýna hvað í þeim býr. í byrjun valdi ég A- og B-lið. Síðan þegar ekki reyndist unnt lengur að vera með tvö lið, hef ég haft fjöl- mennan hóp leikmanna í minni umsjá, með það í huga auðvitað að velja endanlegt landslið. Blm. — Það hefur mikið verið tal- að um að sóknin sé veiki punktur- inn í liðinu. Menn eru sammála að þar ætti Juanito að eiga sitt fasta sæti og það frá upphafi. Af hverju fær Juanito ekki grænt ljós hjá þjálfaranum? Santamaría — Við fylgjumst mjög náið með öllum leikmönnum er koma til greina. Nokkrir hafa ekki verið upp á sitt besta síðustu mánuði, hafa átt við meiðsli að stríða o.s.frv. Það er betra að vera ekkert að kalla þá saman. Þetta á ekki eingöngu við Juanito heldur fjölmarga aðra leikmenn. Blm. — í fyrstu lítur út fyrir að andstæðingar Spánar í 5. flokki verði auðveldir viðfangs (5. flokk- ur: Spánn, N-írland, Honduras og Júgóslavía), og að Spánn muni ekki eiga í neinum erfiðleikum með að komast áfram í keppninni. Hver er skoðun yðar? Santamaría — Við verðum að mæta til fyrsta leiks með sama hugarfari eins og um væri að ræða úrslitaleik. Þannig mun okkur takast að komast áfram. Blm. — Hverja teljið þér erfið- ustu mótherjana? Santamaría — Júgóslavía á alls ekki hættulegasta liðið eins og menn vilja halda fram. Það er nauðsynlegt að virða öll liðin sem við munum keppa við. Þau hafa öll sömu möguleika, þótt liðin leiki ólíka knattspyrnu. Við megum ekki gleyma að N-írland er líklegt til að koma á óvart þegar minnst varir. Blm. — Kemur það til góða að leika hérna á Spáni? Santamaría — I fyrstu, já, þar sem hvatning frá áhorfendum er mjög mikilvæg fyrir leikmenn. Við verðum samt að minnast þess að ekki hafa öll lönd er séð hafa um undirbúning og skipulag fyrir HM orðið heimsmeistarar á heima- velli. Blm. — Reyndar, en öðrum lönd- um eins og til dæmis Argentínu tókst að spila betur 1978 en t nokkurri annarri keppni. Santamaría — Argentínska liðið lék ekki eins og venja var hjá því. Liðið breytti sínum vanalega leikstíl. Hver leikmaður lék ekki fyrir sjálfan sig heldur fyrir allt liðið. Við notfærum okkur sér- kenni hvers leikmanns fyrir liðið i heild. Blm. — Af hverju er ekki meiri ljómi yfir spænskri knattspyrnu? Santamaría — í dag leikur enginn glæsilega knattspyrnu. Liðin sækja ekki fram, heldur leika varnarleik, og Spánn, eins og eðli- legt er, getur ekki siglt gegn straumnum, því að leikmennirnir leika nú orðið þannig með sinum liðum. HM í sumar: „Miklar líkur á HM-titli“ Fjölmenni á 15 ára afmæli Keilis — segir Santamaria, þjálfari Spánar með ágætum. Þátttakendur voru 65 talsins og urðu úrslit þau, að Jón K. Jónsson sigraði, Rúnar Sigursteins- son varð annar og Bergur Ásgríms- son þriðji. Síðan var afmælisveisla í golfskálanum á Hvaleyrinni og sóttu hana 130 félagsmeðlimir. Formaður Keilis, Ólafur Ágúst Þorsteinsson, flutti ávarp þar sem hann greindi frá starfsemi klúbbs- ins frá upphafi og þeim framtíðar- verkefnum að stækka golfvöllinn úr 12 holum í 18 holur á næstu tveimur árum. í tilefni afmælisins veitti formaðurinn Þorsteini Ein- arssyni fyrrverandi íþrótta- fulltrúa ríkisins gullmerki klúbbs- ins og Þorvaldi Ásgeirssyni golf- kennara silfurmerki. Nokkrum fé- lögum var einnig veitt silfurmerki fyrir unnin störf í þágu Keilis. Krá Melgu Jónsdóllur, frétUriUra Mbl. í Burgos á Spáni. SPÆNSKA landsliðið í knattspyrnu er næsta tilbúið í slaginn fyrir HM í sumar. Spánverjar eiga aóeins eftir að leika einn vinalandsleik fyrir heimsmeistarakeppnina. Sá leikur verður við Svisslendinga. (Þeim leik er reyndar nýlokið með 2—0-sigri Spánverja.) Kftir þann leik mun spænski landsliðsþjálfarinn, José Kmilio Santamaría, leggja helsta áherslu á sálfræðilegan undirbúning leikmanna. Hugmynd Santamaría er ekki sú að ofreyna spænska lands- liðið með strangri og harðri æf- ingaskrá fram að keppninni (13. júní), heldur munu leikmenn verja þeim tíma sem eftir er í tæknilegan undirbúning, fara yfir leikreglur og atriði er varða skipulag liðsins. Síðasti æfingarlandsleikur Spán- verja í knattspyrnu fyrir HM i sumar er hreint formsatriði fyrir spænska landsliðið og þjálfara þess, José Kmilio Santamaria. Kf slæmar kringumstæður og meiðsli leik- manna spilla ekki fyrir vali Santa- maría munu Spánverjar bjóða fram það lið er leika mun á HM. Santamaría er maður umdeild- ur, á jafnvel marga fjandmenn. Margir eru á þeirri skoðun að hann sé ekki hæfur sem knatt- spyrnuþjálfari spænska landslið- sins (þetta er svo sem ekkert nýtt, það verður líklega aldrei hægt að gera öllum til geðs), og er orsökin sú að Santamaría þykir skapstirð- ur og fráhrindandi. Spænskir áhugamenn um knattspyrnu kjósa fremur skapgerð Kubala, fyrrver- Santamaria, þjálfari spænska lands- liðsins. andi þjálfara landsliðsins, en nú- verandi þjálfara. Því er ekki að neita samt sem áður að Spánverjar hafa ekki farið illa út úr þeim landsleikjum, er spilaðir hafa verið undanfarna mánuði, þótt stundum hafi leik- menn sýnt ófullkomna og lélega knattspyrnu. Ef til vill eru til verri landsliðsþjálfarar en Santa- maría. Við skulum sjá hvað sjálfur þjálfari spænska landsliðsins hef- ur um málið að segja. — Það mun litlu skipta hvernig leikurinn við Svisslendinga fer. Þau úrslit hafa lítið að segja fyrir Spánverja. Andstæðingurinn í þetta skipti er það sem minnstu varðar. Það eina sem við höfum áhuga á í sambandi við þennan leik er að spænsku landsliðsmenn- irnir haldi hópinn. Leikurinn mun stuðla að meiri samstöðu meðal leikmanna." José Emilio Santa- maría fer daglega til vinnu sinnar hjá spænska knattspyrnusam- bandinu; hann fylgist vandlega með hverjum viðburði í knatt- spyrnunni er varðar leikmenn. Meðan á viðtali blm. við Santa- maría stóð var þeim síðarnefnda tilkynnt um meiðsli eins leik- manns í landsliðinu, Zamora, og að hann hefði neyðst til að yfir- gefa æfingabúðir liðs síns vegna þessa. Samstundis er tekin ákvör- ðun um nýjan leikmann í landslið- ið. Varamennirnir þurfa að vera vel undirbúnir og í góðri æfingu þegar neyðaratvik koma upp. Blm. — Spánn hefur ekki hafið undirbúning nægilega fljótt að HM í sumar. Argentína hóf sinn undirbúning með miklu fyrr. Þar er deildakeppnin ekki byrjuð enn- þá. Eru S-Ameríku-liðin betur undirbúin fyrir HM en Evrópu- liðin? Santamaría — Eins og gefur að skilja hefði það áhrif á amerísku liðin, ef heimsmeistarakeppnin færi fram í desember eða janúar, en núna hefur það áhrif á evróp- sku liðin. Blm. — Spænsku leikmennirnir munu mæta til leiks á HM eftir langt keppnistímabil. Þeir munu þarfnast hvíldar til að safna kröftum á ný. Hver eru helstu GOLFKLÚBBURINN Keilir í Hafn- síðastliðinn og í tilefni dagsins var arfirði átti 15 ára afmæli 25. apríl efnt til afmælismóts sem þótti takast Merkishafar Keilis, ásamt formanni. F.v. Ásgeir Nikulásson, Þorvaldur Ásgeirsson, Þorsteinn Einarsson, Sigurður Héðinsson, Ólafur Marteinsson, Inga Magnúsdóttir, Henning Bjarnason, Knútur Björnsson, Jón Marinósson og Ólafur Ágúst Þorsteinsson formaður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.