Morgunblaðið - 01.05.1982, Page 17

Morgunblaðið - 01.05.1982, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MAÍ1982 17 Slyrjöld eftðr pöntun EFTIR ART BUCHWALD Ég skal segja ykkur hvað ég óttast. Það verða ekki stjórnmálamenn sem hrinda af stað næstu stórstyrjöld, heldur fréttastjóri hjá einni af stóru sjónvarpsstöðvunum. Ég hef horft á hvern frétta- skýringaþáttinn á fætur öðrum um Falklandseyjamálið — og hef það á tilfinningunni að hinir ágengu frétta- menn séu að ýta ráðamönnum í viðkomandi löndum útí horn, þaðan sem þeir verður ekki undankomu auðið. Vondur draumur minn er þessi: Fréttastjórinn situr við skrifborð sitt og til hliðar við hann stendur sjónvarpstjald eitt mikið. Hann mælir til áhorfenda: Innan stundar munum við ræða við argentínska hermálaráðherrann beint frá Buenos Aires. Og hér er hann kominn. Herra Rodriques, sjáið þér einhverja aðra lausn á deilunni um Falklandseyjar, en að heyja stríð? Við Argentínumenn höfum ævinlega verið fúsir að ganga til sanngjarnra samninga. En segjum sem svo að Bretar sökkvi einu af skipum ykkar? Þá munum við bregðast við með öllum okkar hernað- arþunga. Þakka yður fyrir. Og nú bregðum við okkur til Lund- úna: Herra Person, aðstoðarutanríkisráðherra, svo sem þér heyrðuð af vörum hermálaráðherrans, þá munu Argentínumenn ráðast gegn flota ykkar með öllum þeirra hernaðarþunga. Hver verða viðbrögð Stóra-Bretlands? Ég er þess fullviss um að við séum færir um að bregðast rétt við, hvað sem uppá kemur. Ríkisstjórn hennar hátignar er áfjáð í að leysa deilu þessa frið- samlega og það vill enginn heyja stríð. En á sama tíma er heiður okkar í veði. Ef Argentínumenn reynast ófúsir að ganga til samn- inga við ykkur, munuð þið þá beita kjarnorkuvopnum til að verja heiðurinn? Ég held að hér sé hvorki staður né stund að ræða það. Hvers vegna ekki? Við viljum ekki ýta frekar undir stríðsbollaleggingar en þegar hefur verið gert. Þér verðið að fyrirgefa mér ýtnina, herra Person, en má skilja orð yðar svo að ef Argentínumenn sökkva bresku flugvélamóðurskipi, þá munið þið ekki hernema Buenos Aires? Við skulum halda öllum möguleikum opnum. Þakka yður fyrir, herra Person. Nú er sendiherra Argentínu hjá Sameinuðu þjóðunum í sambandi við okkur frá New York. Herra sendiherra, eins og þér heyrðuð, þá er sá möguleiki fyrir hendi að Bretar skjóti kjarnorkuvopn- um að borgum Argentínu, ef herliðið verður ekki kvatt frá Falklandseyjum. Hvernig munu Argentínumenn bregðast við slíkri árás? Við efumst nú um að slíkt gerist — en ef til þess kæmi, þá myndum við leita til höfuðandstæðings At- lantshafsbandalagsins að gjalda líku líkt. Þér eigið augljóslega við Sovétrikin. Hefur stjóm yðar verið í sambandi við Moskvu? Ég kæri mig ekki um að svara því á þessu stigi málsins. Þakka yður fyrir, herra sendiherra. Nú skulum við snúa okkur til stjórnarinnar hér i Wasington og ræða við Robert Dobson, aðstoðarráðherra. Herra Dobson, hefur stjórnin til taks áætlun um hvernig eigi að bregð- ast við, ef Sovétmenn láta Argentínumönnum í té kjarnorkuvopn? Við erum að vinna að friðsamlegri lausn málsins og reynum að fá málsaðila til að setjast við samningaborð. Þér svöruðuð ekki spurningu minni, herra Dobson. Ég vil fá að vita, hvort Bandarikjastjórn muni heyja stríð við Sovétríkin, ef þau koma fyrir kjarnorkuvopna- búnað á vestrænu áhrifasvæði? Ég hef ekkert um það að segja. Þakka yður fyrir, herra Dobson. Því miður er tími okkar á þrotum í kvöld. Fylgist með stöðunni í hugsan- legri Kúbudeilu níunda áratugarins á sama tíma annað kvöld. Góða nótt og sofið rótt... J.F.Á. sneri. Happdrætti fyrlr alla Ulðasal8 „ borSapantanlr , Dregiö kl. 21.30 og kl. 24.00 um 2 glæsilegar Broadway á morgun, sunnudag Útsýnarferöir. kl-16~19 Hinn óviöjafnanlegi Ómar Ragnarsson skemmtir Ferðaskrifstofan BJTSYIM Hinir síkátu félagar Þorgeir ofl Magnús koma öllum í gott skap. Dansflokkurinn JAZZ-SPORT föstudagskvöld 7. maí Kl. 19:45 Húsiö opnað — afhending ókeypis happdrættismiða. Sala bingóspjalda. Gestir boönir velkomnir með fordrykk. Allar konur fá ilmvatn „Brigitte Bardot“ frá Th. Stefánsson. Kl. 20.10 Sýnd ný kvikmynd frá Mallorca. Big Band Björns R. Einarssonar tekur á móti gestum meö fjörugri tónlist Kl. 20.30 Kvöldveröur Tízkusýning: Módelsamtökin sýna sumar tízkuna frá BLONDIE og HERRA GARÐINUM og WOUKKO- kjóla frá Heimilis iönaöinum. Heiöar Jónsson snyrtir, sýnir nýjustu snyrtingu frá Ckarlet c1 flte — módel Brynja JCSL Nordquist. S'- Matseðill Sjávarréttasalat Salad de Fruits de Mer Fylltar aligrísalundir Duxelle með blómkáli, parísarkartöflum og sósu chimay Fillet de porc farce de Duxelle pom parisienne et chaufleur, sauce chimay. Verð aöeins kr. 180. BINGÓ ,spliaö£ feröir t feröir. Ungfrú Útsýn 1982 Dómnefnd kynnir Ungfrú ÚT- SÝN 1982, sem valin hefur veriö úr hópi 30 þátttakenda, en 10 stúlkur fá auk þess vegleg verölaun. Inga Bryn- dís Jónsdóttir frá Akureyri, Ungfrú ÚTSÝN 1981 krýnir. Sumargleði — lokahóf BK'OAIDWAT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.