Morgunblaðið - 01.05.1982, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 01.05.1982, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MAÍ1982 JlfaKgmtlrlfiftife Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjöm Guðmundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Að svíkja alla jafnt! AAlþýðubandalagið hefur verið forystuflokkur i ríkisstjórn og borgarstjórn allar götur síðan 1978. Það hefur allan þennan tíma farið með samningamál — gagnvart launþegum — fyrir hönd stærsta vinnuveitandans í landinu, ríkisins, og lang stærsta sveitarfélagsins, Reykjavíkurborgar. Hver eru svo kennileitin sem varða veg Alþýðubandalagsins í kjara- málum á valdaferlinum? Þau eru meðal annars: — Á undanförnum þremur valdaárum Alþýðubandalagsins hefur verðbótavísitala á laun verið skert 10 sinnum. Skerðingin nemur allt að 27% í verðbótum, enda er slagorðið frá 1978, „kaupránsstjórn", hvergi að finna á síðum Þjóðviljans. — Bandaríkjadalur hefur hækkað um 300% í íslenzkri mynt frá 1978, þar af um 150% í tíð núverandi ríkisstjórnar, en „gengisfelling" hét fyrrum á máli Þjóðviljans „kaupmáttarskerðing". — Frá haustinu 1978 hafa tekjuskattar, sem að drjúgum hluta koma frá launafólki, þyngst um 50%, miðað við tekjur þess árs sem þeir greiðast á, og skattbyrði í heild 1982 er sem svarar 20 þúsund krónum meiri á hverja 5 manna fjölskyldu en verið hefði að óbreyttum skatta- lögum 1977. — Starfsmaður hjá Reykjavíkurborg, sem hefur fyrir dag- eftir- og næturvinnu 10 þúsund krónur á mánuði telst „eiga inni“ hjá vinnuveit- andanum u.þ.b. 28 þúsund krónur í dag, miðað við kosningafyrirheitið 1978, „samningana í gildi", og ákvörðun borgarstjórnar 15. júní 1978 um „fullar verðbætur skv. ákvæðum kjarasamninga", sem var einfaldlega svikin. Hér eru aðeins tíundað örfá dæmi af mörgum. I dag segist Alþýðubandalagið vera jafnaðarmannaflokkur. Sá jöfnuð- ur hefur einkum komið fram í því, bæði í borgarstjórn og ríkisstjórn, að svíkja alla jafnt. Undirstaða lífskjara GGunnar Thoroddsen, forsætisráðherra, sagði í útvarpsumræðum, að blikur væru á lofti í íslenzkum þjóðarbúskap og brugðið gæti til beggja vona. — Undir þessi orð skal tekið. Hvað veldur? Hvorttveggja kemur til: 1) Rekstrarstaða undirstöðu- atvinnuvega hefur skekkst verulega á sl. 3 árum, m.a. vegna stjórnvalds- aðgerða á sviði skattamála, verðlagsmála og gengisstýringar sem og tilkostnaðarhækkana innanlands langt umfram verðþróun á sölumörk- uðum erlendis. 2) Utanaðkomandi vandi: hrun loðnustofns, sölutregða á skreið og harðnandi samkeppni á mörkuðum sjávarafurða. — Þjóð- hagsspá stendur til 2% rýrnunar þjóðartekna á mann 1982, viðskipta- kjör fara versnandi og hlutfall erlendrar skuldabyrði í útflutningstekj- um kemst upp í 20% á árinu. Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, benti á það í þess- um eldhúsdagsumræðum, að þrátt fyrir 60% afla- og verðmætaaukn- ingu síðan 1976 hefði verið staðið svo að málum á líðandi kjörtímabili, að ekkert hafi verið búið í haginn til að mæta sveiflum í efnahagslífi okkar. Þvert á móti hafi orðið stöðnun í þjóðarframleiðslu og þjóðar- tekjum hin síðari misserin, enda þann veg að atvinnuvegunum búið, að vöxtur þeirra og framleiðniaukning hafi verið útilokuð. Stjórnvöld hafa og hummað fram af sér að skjóta nýjum stoðum undir þjóðarbúskapinn með stórvirkjunum og orkuiðnaði. Þau hafa því reynzt dragbítar í lífs- kjarasókn þjóðarinnar og seinkað kjarabótum, sem hægt hefði verið að ná fyrr og í ríkara mæli með framsýni og framtaki. Undirstaða almennra lífskjara, hvort heldur sem einkaneyzla eða samneyzla á í hlut, er verðmætasköpunin í þjóðarbúskapnum, þjóðar- tekjurnar. Það er alvarlegasta vanrækslusynd stjórnvalda á næstliðnum árum að treysta ekki þessa undirstöðu lífskjara í landinu, heldur vega að henni. Atvinnuvegirnir væru í dag mun betur í stakk búnir til að mæta kjarakröfum, ef framsýni hefði ráðið ferð — í stað þröngsýni og hleypi- dóma Alþýðubandalagsins. 1. maí MMorgunblaðið birtir í dag, 1. maí, viðtöl við vinnandi fólk. Það er alltof sjaldan sem íslenzkir fjölmiðlar hafa bein tengsl við þá einstaklinga, sem í daglegri önn eru kjölfestan í þjóðarbúskapnum. Þá er ekki fyrst og fremst átt við forystumenn í stéttarfélögum, sem út af fyrir sig gegna nauðsynlegum störfum, heldur fólk á vinnustöðum — í kviku þjóðlífsins. Það hlýtur að vera sameiginlegt markmið íslendinga, hvar sem þeir sinna störfum í þjóðfélaginu, að efla íslenzkt atvinnulíf, atvinnuöryggi, verðmætasköpun og þjóðartekjur, sem sníða okkur lífskjararamma. I því efni róum við öll á sama báti. Það hlýtur og að vera viðurkennt forgangsverkefni að bæta hlut þeirra sem minnst bera úr býtum. Það hefur hinsvegar verið faglegri kjarabaráttu fjötur um fót að flokkspólitísk sjónarmið hafa, á stundum, ráðið meiru en góðu hófu gegnir. Þannig hefur flokkspólitískt brölt Alþýðubandalagsins í verka- lýðshreyfingunni tvímælalaust veikt faglega samstöðu og skert árangur. En til þess eru vítin að varast þau. Þá hefur á skort að heildarsamtökin, ASÍ, taki stefnumótandí afstöðu til eðlilegs launabils milli starfsgreina innan samtakanna. Þessu vöntun stefnumarkandi afstöðu hefur ekki sízt bitnað á láglaunafólki. Morgunblaðið árnar íslenzkum launþegum heilla á hátíðisdegi þeirra. Megi stétt vinna með stétt að framtíðaratvinnuöryggi og batnandi lífskjörum í landinu. Framkvæmdastofnun vill lána 3 milljónir kr. til vegar sem ekki er á vegaáætlun STJÓRN Framkvæmdastofnunar samþykkti nýverid að leita eftir heimild ríkis- stjórnarinnar til að taka 37 milljóna króna erlent lán til að veita til ýmissa framkvæmda, þar á meðal 3 milljóna króna lán til að leggja veg frá Eyrarbakka að fyrirhugaðri brú yfír Ölfusárósa. Tillaga þessi var samþykkt gegn atkvæði eins stjórnarmanna, annar sat hjá. Tillagan var að sögn stjórnarformannsins send ríkisstjórninni, en hún hefur ekki verið tekin til meðferðar þar að sögn blaðafulltrúa ríkisstjórnarinnar. Vegagerð þessi er ekki á vegaáætlun Alþingis, þar er eingöngu fjárveiting til hönnunar brúarmannvirkisins og reiknað með að á fjárlögum næsta árs verði veitt fé til undirbúningsframkvæmda. Deilur hafa verið uppi um málið og leitaði Mbl. álits stjórnar- formanns Framkvæmdastofnunar, Eggerts Haukdal, formanns fjárveitinganefndar, Geirs Gunnarssonar, en hann er einnig sá stjórnarmaður í Framkvæmdastofnun sem greiddi atkvæði gegn tillögunni, vegamálastjóra, Snæbjörns Jónassonar, og samgönguráðherra, Steingríms Hermannssonar. Eggert Haukdal stjómarformaður Framkvæmdastofnunar: Virðist fara fyrir brjóstið á mönnum sem eru á móti brúnni „VIÐ LÍTUIVI á þetU sem byggða- mál, en það virðist fara fyrir brjóst- ið á ýmsum sem eru á móti þessari brú. Auðvitað er það undir stjórn- völdum komið hvort þau sam- þykkja lántökuna, það hef ég áður tekið fram, en við eigum eftir að sjá hvort þau gera það. Komi ann- að í Ijós er það bara i takt við það sem Sunnlendingar sjá snúa að sér frá ýmsum, meðal annars hvað varðar steinullarverksmiðju og fleira,“ sagði Eggert Haukdal stjórnarformaður Framkvæmda- stofnunar, er hann var spurður um ástæðu þess að stjórnin ákvað að leita þessarar lánsheimildar. Eggert sagði aðspurður að ósk um lánveitinguna hefði borist til stjórnar stofnunarinnar frá þingmönnum Sunnlendinga og sagði síðan: „Það eru alltaf að koma óteljandi beiðnir um lán, meðal annars frá þingmönnum. Þetta er algengt í fjölda mála og það eru stöðugt að fara þarna í gegn lánveitingar til hinna og þessara framkvæmda. Þetta er lán til að leggja veginn frá Eyr- arbakka að brúnni sem stjórn stofnunarinnar samþykkti, en auðvitað er það komið undir stjórnvöldum, hvort þau þiggja þetta. Það verður bara að koma í ljós.“ Snæbjörn Jónasson vegamálastjóri: Dæmi um fjármagn sem við fáum „utan dagskrár“ „ÞETTA er dæmi um fjárhæðir sem við fáum eða fáum ekki svona „utan dagskrár“. Það er dálítið af því að við fáum peninga, venjulega að láni, — eins og mér skilst að þetta sé boðið, — á þennan hátt til ákveð- inna verkefna og almenns brúks. Þannig höfum við fengið peninga í ár bæði til Ó—veganna svokölluðu og eins til almenns brúks, og það er búið að fara í gegnum ríkisstjórn og fjárveitinganefnd. Við höfum aldrei tekið við slíku nema með heimild ráðamanna. Þessi umrædda upphæð er ekki búin að fara þá leið að því ég bezt veit,“ sagði Snæbjörn Jón- asson, vegamálastjóri, er Mbl. spurði hann álits á samþykkt stjórn- ar Framkvæmdastofnunar um að leita heimildar ríkisstjórnarinnar til 37 milljón kr. lántöku til ýmissa verkefna, þar á meðal 3 milljónum króna til lagningar vegar frá Eyr- arbakka að fyrirhugaðri Ölfusárbrú, en nokkrar deilur hafa orðið um málið, þar sem vegargerð þessi og Ölfusárbrú eru ekki á vegaáætlun Alþingis, nema sem undirbúnings- framkvæmd. Snæbjörn sagði einnig: „í lang- tímaáætlun sem unnin hefur ver- ið og ráðherra leggur fram á næstunni er gert ráð fyrir Ölfus- árbrú, en það sem Sunnlendingar eru að gera þarna er væntanlega að reyna að hraða henni meira en gert er ráð fyrir". Snæbjörn sagði að þessar þrjár milljónir króna myndu væntanlega nægja til að leggja veginn frá Eyrarbakka að brúnni, en það væri allt og sumt. Hann sagði að fjármagn væri fyrir hendi til að hanna brúna og því verki yrði lokið nú, en á næsta ári yrði fé veitt til undirbúnings- framkvæmda. „Með þessu eru þeir að reyna að flýta verki sem er á dagskrá, en ekki komið inn á vegáætlun nema sem undirbún- ingsframkvæmd," sagði hann að lokum. Geir Gunnarsson formaður fjárveitinganefndar: Alþingis að ákveða hraða framkvæmda, ekki Framkvæmdastofnunar „ÞAÐ er Alþingis að ákveöa hraða framkvæmda sem þessara. Menn geta ekki farið að stjórna þessum málum úr Framkvæmdastofnun, eins og hún sé eitthvert Alþingi yfir Alþingi. Þá finnst mér skjóta skökku við, að það sé dag hvern verið að tala um að tekið sé of mikið af erlendum lánum og síðan sam- þykki þeir hinir sömu menn tillögur í F'ramkvæmdastofnun um að óska eftir meiri lánum," sagði Geir Gunnarsson, stjórnarmaður í Fram- kvæmdastofnun og formaður fjár- veitinganefndar, er Mbl. spurði hann álits. Geir sagði einnig: „Þá vil ég leiðrétta það sem stjórnarformað- urinn hefur sagt um að þetta fjár- magn sé tekið af lánsfjárheimild- um Framkvæmdastofnunar. í fjárlögum er gert ráð fyrir 50 milljón króna lánsfjárheimildum til Byggðasjóðs og því hefur verið ráðstafað. Hér er um sérstaka til- lögu að ræða sem lögð var fram í stjórn stofnunarinnar um að leita eftir heimild hjá rikisstjórninni til að taka erlent lán að upphæð 37 milljónir króna. Þar voru með- al annars tilgreinar um 3 milljón- ir króna til þessa verkefnis, 13,5 milljónir til sveitarafvæðingar og fleira. Þessi tillaga var samþykkt, en ég greiddi atkvæði gegn henni og annar stjórnarmaður sat hjá.“ Steingrímur Hermannsson samgönguráðherra: Fylgjandi byggingu þessarar brúar, en 3 millj. kr. hrökkva skammt „ÉG ER fvlgjandi byggingu þessar- ar brúar og það er gert ráð fyrir henni í þeirri langtímaáætlun sem ég mun leggja fram næstu daga. Þessar þrjár milljónir eru eflaust vel meintar en heildarkostnaður- inn er reyndar 70 milljónir króna svo það hrekkur nú tiltölulega skammt. En ég hef ekki fengið mál þetta til meðferðar, það hefur ekki komið á mitt borð,“ sagði Stein- grímur Hermannsson samgöngu- ráðherra aðspurður um samþykkt stjórnar Framkvæmdastofnunar. Steingrímur var spurður hvernig hann myndi afgreiða þessa beiðni er hún bærist. Hann svaraði: „Ég vil ekkert um það segja. Ég veit ekki hvort þetta á að vera framlag frá stofnuninni eða lán úr ríkissjóði. Ef það er lán þá getur ríkissjóður út af fyrir sig tekið það sjálfur. Ég hef ekki séð samþykktina og get því ekkert sagt um það á þessu stigi.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.