Morgunblaðið - 01.05.1982, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MAÍ1982
t
Eiginmaöur minn,
ÞORSTEINN KRISTINSSON
fré Möörufelli i Eyjafiröi,
lést fimmtudaginn 29. apríl í Landakotsspítala.
Jenný Oddsdóttir.
t
Móðir okkar.
SIGRÍOUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
óóur Rauöaróratíg 11,
lést í Landspítalanum 29. apríl.
Börnin.
Deilt um eignar-
aðild og áhættu
t
DR. KRISTINN GUOMUNDSSON,
fyrrverandi sendiherra,
Grettisgötu 96,
lést föstudaginn 30. april.
Vilhjólmur Arnarson, Brynhildur Björnsdóttir,
Anní Hedemark.
t
Móöir okkar og tengdamóöir,
GUÐLAUG ÓLAFSDÓTTIR
frá Hagavík,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju, mánudaginn 3. maí.
Guðmundur Runólfsson,
Eyrún Erla Runólfsdóttir.
Útför eiginmanns míns, fööur og sonar,
ÞÓRARINS BJORGVINSSONAR,
Kársnesbraut 80, Kópavogi,
fer fram frá Kópavogskirkju, þriöjudaginn 4. maí kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Minningarsjóö Barb-
öru Árnason aö Kjarvalsstööum.
Sigrún Siguröardóttir,
Finnbogi Þórarinsson, Jón Garöar Þórarinsson,
Þórarinn Þórarinsson,
Sesselja Sigvaldadóttir.
t
Útför
FRIÐFINNS KRISTINSSONAR,
Álftamýri 55,
veröur gerö frá Fossvogskirkju, þriöjudaginn 4. maí kl. 10.30.
Blóm og kransar afþakkaöir.
Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á samtök sykursjúkra.
Ósk Sophusdóttir,
Kristinn Ágúst Friófinnsson, Anna Margrét Guómundsdóttir,
Friðfinnur Freyr Kristinsson,
Melkorka Mjöll Kristinsdóttir.
t
Eiginmaöur minn, faöir okkar, tenqdafaöir og afi,
ÓLAFUR ÁGÚSTSSON
frá Raufarhöfn,
Fellsmúla 11, Reykjavik,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 4. maí kl.
13.30.
Sigríöur Guðmundsdóttir,
Bergþóra Jensen, Gunnlaugur Jónsson,
Helgi Ólafsson, Stella Þorláksdóttir,
Steinunn Ólafsdóttir, Hreinn Helgason,
Elmar Ólafsson, Agnes Árnadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum inmlega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
HALLDÓRS HAFLIÐASONAR,
flugstjóra.
Ólöf Inga Klemensdóttir,
Hafliói Halldórsson, Þórunn Sveinbjarnardóttir,
Þórunn Halldórsdóttir, Jóhann Steinsson,
Hrafnhildur I. Halldórsdóttir, Halldór Þór Þórhallsson,
Sveínbjörn Haflióason, Anna Lárusdóttir,
og barnabörnin Halldór og Ólöf Inga.
Frumvarp til laga um hlutafjáraukningu íslenzka rikisins i járnblendiverk-
smiðjunni á Grundartanga, sem svarar 2,4 milljónum Bandaríkjadala, og
heimild til sjálfskuldarábyrgðar rikisins á lántöku fyrirtækisins, allt að 3,3
milljóna Bandaríkjadala, var samþykkt frá efri deild Alþingis til neðri deildar
með 17 samhljóða atkvæðum, 2 sátu hjá, 1 var fjarverandi.
— Lárus Jónsson (S), sem sat
hjá við atkvæðagreiðsluna ásamt
Guðmundi Karlssyni (S), gerði
grein fyrir hjásetu sinni, efnislega
á þessa leið: Þegar lög um járn-
blendiverksmiðju á Grundartanga
vóru samþykkt á sinni tíð hafði ég
sérstöðu, hvað varðar eignarhluta,
þ.e. áhættuþátt íslenzkra skatt-
borgara, enda lágu þá fyrir áætlan-
ir, er sýndu fram á verulegan
rekstrarhalla, a.m.k. fyrstu árin.
Ég þóttist sjá fyrir að það fjár-
magn, sem skattborgarar lögðu um
ríkissjóð til þessarar eignaraðildar,
myndi ekki skila sér fljótlega í
þjóðarbúið. Þetta hefur, því miður,
reynzt rétt. í samræmi við fyrri af-
stöðu mína sit ég því hjá nú þegar
enn bankað upp á hjá skattborj?ur-
um, varðandi fjárframlög til að
mæta rekstrarhalla og styrkja
greiðslustöðu fyrirtækisins.
— Ólafur Ragnar Grímsson
(Abi.) sagði reynsluna af járn-
blendiverksmiðjunni knýja á dyr
um endurskoðun stóriðjuáætlana,
sem uppi væru hjá öllum aðilum á
Alþingi, en hann teldi þó rétt, mið-
að við aðstæður, að samþykkja
frumvarpið.
— Stefán Jónsson (Abl.) sagði
nauðsynlegt að fylgja úr hlaði því
einsatkvæðisorði, sem krafizt væri
af þingmönnum í nafnakalli um
þetta mál, vegna sögulegs aðdrag-
anda málsins og hvers eðlis það
væri. Hann sagði Lárus talsmann
orkuiðnaðar, fyrr og síðar, og allar
grænsápubirgðir heimsins nægðu
honum ekki til að þvo hendur sínar
í þessu máli. Járnblendiverksmiðj-
an reis í tíð ríkisstjórnar Geirs
Hallgrímssonar, sagði hann, með
beinskeyttum stuðningi Alþýðu-
flokksins. Þrátt fyrir allt verður að
bjarga því sem bjargað verður og
segja já.
— Þorvaldur Garðar Krist-
jánsson (S) sagði erfiðleika víða að
finna í íslenzkum atvinnurekstri —
og ef loka ætti hvarvetna, þar sem
móti blási, yrði víða lokað. Ágrein-
ingur væri ekki um orkuiðnað, þó
skoðanir hafi verið skiptar um, hve
stóran hlut íslendingar ættu að
axla af áhættu eignaraðildar með-
an slík fyrirtæki væru að festa
rætur. En atvinnurekstur, án
áhættu, er vandfundinn hér á
landi. Og ef Ólafur og Stefán meina
eitthvað með andófi sínu gegn
orkuiðnaði, þá eru líka frumvörp og
áætlanir ráðherra þeirra og raunar
ríkisstjórnarinnar um þetta efni
marklaust hjal. Ég segi já.
— Gunnar Thoroddsen, forsæt-
isráðherra, sagði það hafa verið
innan ramma stefnu Sjálfstæðis-
flokksins að járnblendiverksmiðja
risi á Grundartanga (en hann var
þá iðnaðarráðherra er sú ákvörðun
var tekin), sem og sú eignaraðild
ríkisins, 55%, sem ofan á hafi orðið
í þingflokknum. Lárus tók afstöðu
gegn þessari eignaraðild, fylgdi
samvizku sinni þar um svo sem
honum bar. Ég gagnrýni hann ekki
fyrir það. Rekstur verksmiðjunnar
er nú í lægð og við verður að bregð-
ast svo sem aðstæður og efni segja
til um. Ég segi því já í þeirri von,
að bjartara sé framundan hjá
fyrirtækinu.
— Lárus Jónsson (S) kvaðst
hafa gert grein fyrir atkvæði sínu í
þingflokki sjálfstæðismanna, fyrir-
fram, og svo hafi verið um fíeiri,
sem höfðu sömu afstöðu. Hann
hefði í engu komið aftan að sam-
flokksmönnum sínum, hvorki þá né
endranær, enda hafi skoðanir verið
mjög skiptar um eignaráhættu.
Reynslan sýni, því miður, að óttinn
hafi ekki verið ástæðulaus, og
hyggilegra hefði verið að standa
öðru vísi að málum. Það séu engir
smáaurar sem hér sé um að tefla —
og skyldur þingmanna séu ekki sízt
gagnvart skattborgurum, sem
borgi brúsann nú, eins og ævinlega.
I>ingfréttir í stuttu máli:
Innflutningur á fóður- og sáð-
vöru frá Danmörku bannaður
Um gin- og klaufaveiki
í Danmörku
Steinþór Gestsson (S) spurði Pálma
Jónsson, landbúnaðarráðherra, í
fyrirspurnatíma á Alþingi, hvort
ráðherra hefði fyrirskipað eftirlit,
lögum samkvæmt, með innflutningi
og dreifingu á mold, húsdýraáburði
og öðru því, sem getur borið sjúk-
dóma og meindýr í plöntur. Énn-
fremur, hvort ráðherra telji ástæðu
til varnarráðstafana vegna gin— og
klaufaveikifaraldurs, sem nú geisar í
Danmörku. Steinþór vakti athygli á
því, að rannsóknir Dana bentu ekki
aðeins til þess, að slíkur sjúkdómur
geti borizt með mold eða plöntuhlut-
um, heldur og með veðri og vindum.
Pálmi Jónsson, landbúnaóarráó-
herra, sagði varnaraðgerðum beitt,
m.a. hefði hann tekið fyrir allan inn-
flutning á plöntum, fóður- og sáð-
vörum frá Danmörku.
Frumvarp um sparisjóði
Fram hefur verið lagt stjórnar-
frumvarp um sparisjóði en í dag eru
starfandi 42 slíkir hérlendis (vóru
flestir 1960 eða 63). í greinargerð er
sagt að frumvarpið feli í sér rýmkun
ákvæða varðandi stofnun sparisjóða,
enda sé ákveðin lágmarksfjárhæð
stofnfjár tiltæk. Hinsvegar verður
ekki hægt að stofna sparisjóði með
ábyrgðum (ábyrgðarmannasjóði).
Ekki er þó sú kvöð lögð á starfandi
sparisjóði að taka upp stofnfé í stað
ábyrgða. Mikilvægt nýmæli er og um
„séreignarsjóð stofnfjáreigenda",
sem myndaður verður m.a. með
hluta þeirra vaxta, sem aðalfundur
ákveður að greiða stofnfjáreigend-
um af árlegum tekjuafgangi. Hug-
myndin er að gera stofnfjáreign eft-
irsóknarverðari með því að heimila
ávöxtun hennar, þó nokkrar skorður
fylgi, segir í greinargerð með frum-
varpinu.
Stefnumörkun í landbúnaði
Fram hefur verið lögð stjórnartil-
laga um stefnumörkun í landbúnaði,
en Egill Jónsson (S) lagði fyrr á
þinginu fram tillögu um sama efni,
f.h. þingflokks sjálfstæðismanna,
svo sem frá var sagt á þingsíðu Mbl.
Samkvæmt tillögunni skal
markmið og megintilgangur í ís-
lenzkum landbúnaði vera sá að
framleiða búvöru með þeirri fjöl-
breytni, sem landkostir, veðurfar og
markaðsskilyrði Ieyfa, sem óg að
tryggja efnahagslegt sjálfstæði og
félagslegt jafnrétti bændafólks og
eigna- og umráðarétt þess á bú-
jörðum.
Norrænt menningar-
málasamstarf
Ingvar Gíslason, menntamála-
ráðherra, hefur látið dreifa meðal
þingmanna skýrslu um norrænt
samstarf á sviði menningarmála.
Efnisþættir skýrslunnar fjalla um:
skipuíag starfseminnar, norræn
menningarfjárlög, menningarsjóð
Norðurlanda sem og menningar-
samstarf, fræðslumál, vísindi, nor-
ræna menningarkynningu í Banda-
ríkjunum, hugmyndir um samstarf
um dreifingu sjónvarps- og hljóð-
varpsefnis um gervitungl o.fl.
Á samnorrænni fjárhagsáætlun
um menningarsamstarf 1983 er gert
ráð fyrir að verja (í dönskum krón-
um): til fræðslumála 15,7 m.kr, til
vísinda 39,3 m.kr, til almennra
menningarmála 26,1 m.kr., til ráð-
stöfunar hjá ráðherranefnd 7,9
m.kr., til Menningarsjóðs Norður-
landa 9,6 m.kr. og til norrænu menn-
ingarmálaskrifstofunnar 8,6 m.kr.
— eða samtals nálægt 107,5 m.kr.
Dýralæknafrum-
varpi vísað frá
FRUMVARPI til laga um dýralækna
var vísað til ríkisstjórnarinnar á fundi
efri deildar Alþingis i gær, en þá fór
fram önnur umræða um frumvarpið.
Við atkvæðagreiðslu um tillögu
þar að lútandi greiddu 12 þingmenn
atkvæði með því að málinu yrði vís-
að til ríkisstjórnar, en 6 voru á móti.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — Sími 81960