Morgunblaðið - 01.05.1982, Síða 40

Morgunblaðið - 01.05.1982, Síða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1982 Minning: Jón E. Jónasson bóndi á Mel Fæddur 12. febrúar 1893 Dáinn 22. apríl 1982 Að morgni sumardagsins fyrsta lést í Borgarspítalanum, tengda- faðir minn Jón Eyþór Jónasson fyrrum bóndi að Mel í Skagafirði á nítugasta aldursári. Þegar svo há- aldraður maður fær að kveðja þennan heim án langvarandi þján- inga, þá hlýtur hugur okkar er eft- ir standa að fyllast þakklæti til hans er öllu ræður. Jón var fæddur að Stóra-Gerði í Hörgárdal 12. febrúar 1893, sonur hjónanna Guðrúnar Jóhannes- dóttur og Jónasar Jónssonar er þar bjuggu. Hann átti sín fyrstu ár í Eyjafirði með foreldrum sín- um og systkinum í Stóra-Gerði og fleiri bæjum þar. Um tíu ára aldur fór hann í ' Silfrastaði í Skagafirði sem smali, þó hann hyrfi aftur til Eyjafjarð- ar skamma hríð, þá átti Skaga- fjörður eftir að verða ramminn um líf hans og störf. Hann var um tíma vinnumaður að Reynistað, en með þeim nöfn- um Jóni Sigurðssyni, bónda og alþm. að Reynistað, var náin frændsemi. Einnig var hann að Flugumýri í Blönduhlíð. Jón átti ekki kost á skólagöngu umfram það sem venjulegt var utan einn vetur á Hvanneyri. í Blönduhlíðinni kynntist hann Ingibjörgu Magnúsdóttur frá Torfmýri er síðar varð eiginkona hans og förunautur í 60 ár. Ingi- björg var skarpgreind dugnaðar- kona. Það hafa sagt mér aldnir Blöndhlíðingar að hún hafi verið með bestu kvenkostum sinnar sveitar á þeirri tíð. Hún lést 3. júlí 1979 eftir löng veikindi. Þau hjón hófu búskap að Torf- mýri árið 1919 og bjuggu þar í þrjú ár. Eitt ár voru þau á Flugu- mýri. Árið 1923 flytjast þau að Mel í Staðarhreppi. Mér er ókunn- ugt um hvað það var sem réð flutningi þeirra þangað, en hygg að þar kunni að hafa ráðið frændsemi þeirra hjóna beggja við Jón Sigurðsson á Reynistað. En þar hafði Ingibjörg einnig dvalist í æsku og notið bóklegrar tilsagnar hjá Jóni. Einnig naut hún þar til- sagnar móður hans, sem hafði starfað sem húsmæðrakennari. Á Mel bjuggu þau svo óslitið til haustsins 1973 að heilsa þeirra beggja fór að bila og hár aldur að segja til sín. Með búskapnum ann- aðist Jón póstflutninga um langt árabil úr Skagafirði að Stað í Hrútafirði. Má nærri geta að þau ferðalög á hestum að vetri til hafi oft verið erfið og kalsöm Tengdapabbi var alla tíð mjög bókh.,’.ei};ður og las mikið. Hann átti því láni að fagna að njóta þeirrar ánægju allt fram til síð- ustu stundar. Ég hygg að það sé ekki á neinn hallað, þó ég fullyrði, að hann hafi átt drýgstan þátt í að byggja upp Lestrarfélag Staðarhrepps, enda var það í hans umsjá um áratuga skeið. Þeim hjónum varð þriggja sona auðið en þeir eru: Magnús, fyrrv. fjármálaráðherra, bankastjóri Búnaðarbanka Islands, kvæntur Ingibjörgu Magnúsdóttur frá Miklholti og eiga þau tvö börn, Baldur cand. mag. rektor Kenn- araháskólans, kvæntur Jóhönnur Jóhannsdóttir, skjalaþýðanda, börn þeirra eru þrjú, og Halldór Þormar, bæjarfógeti á Siglufirði, kvæntan undirritaðri, sem eiga fjögur börn. Barnabarnabörn eru átta. Það er ekki ætlun mín með þess- um línum að gera neina úttekt á lífi tengdaföður míns, eða bera á hann oflof. Slíkt hefði ekki verið honum að skapi. Hann var maður prúður í allri framkomu og hlédrægur. Maður er átti vináttu sinna sveitunga og bar til þeirra vinarhug. Ef hann heyrði á einhvern hallað var hann líklegur til að færa það til betri vegar, eða láta ummælin framhjá sér fara. Á erfiðum stundum einkenndist framkoma hans af æðruleysi því, sem ríkt er í fari margra af hans kynslóð. Kynslóðar er ólst upp við kröpp kjör og lærði að þreyja Þorran og Góuna og bíða komu vorsins. Og það verður á þessum tímamótum veturs og sumars að löngu lífi hér er lokið. Tengdapabbi var sérstaklega barngóður og hjartahlýr og það er fyrir hönd afabarna og litlu barn- anna hans „Afa langa", sem mig langar að þakka honum. Að kvöldi dags eftir heyskap heima á Mel var hann aldrei svo þreyttur, að hann yrði ekki fyrstur til að lyfta lítilli manneskju og bera hana síð- asta spölin heim að bænum. Nokkur síðustu ár dvaldi Jón að Ási í Hveragerði. Þar eignaðist hann góða samferðamenn, sem ég vil þakka hlýju og hjálpsemi. Einnig vil ég þakka sveitungum hans í Skagafirði hlýju og tryggð. Eyfirski smalinn sem flutti í Skagafjörð unni sveit sinni mikið. Er hann var fluttur þaðan og tal- aði um sveitina þá skildi maður að hríðarbyljir og erfiðleikar voru ekki J)að, sem hann batt hugann við. I hans huga „Skein við sólu Skagafjörður“. Um leið og ég þakka honum allt, þá get ég með honum séð í huga mér sólina gylla skagfirska fjalla- hringinn. Löngu lífi er lokið. Nýtt líf, nýtt sumar er tekið við. Fyrir mér er það táknrænt að tengda- pabbi skyldi deyja inn í sumarið. Aðalheiður B. Ormsdóttir, Siglufirði. í dag verður til moldar borinn frá Reynistaðakirkju í Skagafirði Jón Jónasson bóndi frá Mel. Jón var fæddur 12. febrúar 1893 að Stóragerði í Hörgárdal. Foreldrar hans voru Guðrún Jó- hannesdóttir og Jónas Jónsson. Þau voru af eyfirskum og þing- eyskum ættum. Þegar Jón var 25 ára, kvæntist hann Ingibjörgu Magnúsdóttur frá Torfmýri í Blönduhlíð, mikilli dugnaðar- og gáfukonu. Þau hófu búskap að Torfmýri, en fluttust svo að Mel í Skagafirði. Þar bjuggu þau í 50 ár, og þar fæddust þeim synirnir þrír, sem allir eru nú þjóðkunnir menn. Þeir eru: Magnús, bankastjóri Búnaðar- bankans, Baldur, rektor Kennara- háskóla íslands, og Halldór, bæj- arfógeti á Siglufirði. Það var ekki fyrr en hjónin á Mel voru af léttasta skeiði, að ég gisti heimili þeirra fyrst. Ekki var hátt til lofts né vítt til veggja, en viðræðugleði og gestrisni hús- bændanna var einlæg og veitti mér strax öryggi og vellíðan au- fúsugestsins. Þannig var það einn- ig jafnan síðar, er fjölskyldu mína bar þar að garði, og sömu sögu munu æði margir kunna að segja, því heimilið var í þjóðbraut og öll- um opið, er þar knúðu dyra. Jón var mikill bókaunnandi og átti meira af bókum en títt var á þeim tíma. Bóklestur var honum nánast ástríða. Það mun því hafa verið honum Ijúft að hafa árum saman umsjá með bókasafni lestr- arfélags sveitar sinnar. Á yngri árum stundaði Jón oft vinnu utan heimilis, m.a. póstferð- ir um árabil. Þær voru erfiðar í þá daga og ekki heiglum hentar. Jón hafði alltaf fremur lítið bú, og aldrei heyrði ég hann hafa uppi áætlanir um að auka þar neinu við, en skepnur sínar umgekkst hann af stakri nærgætni og ræddi um þær sem vini sína. Oft hvarfl- aði það að mér, að honum myndi óljúft að gera afurðir þeirra að grundvelli lífsafkomu sinnar. Eftir að kraftar þrutii og bú- skap lauk, dvaldi Jón oft langdvöl- um á heimilum sona sinna. Þá var hann einnig nokkur sumur hjá nýju ábúendunum á Mel, þeim Salmínu og Steini Sigurðssyni. Seinustu þrjú árin var hann vist- maður að Ási í Hveragerði. Þar varð honum vel til vina sem fyrr, og þar naut hann innilega félags- skapar sambýlismanna sinna, ekki síst Stefáns Isakssonar, sem reyndist honum eins og besti bróð- ir. Jón var flestum þeim kostum búinn, sem bægja frá ömurleika ellinnar. Hann var spengilegur á velli og léttur í spori. Kímnigáfu átti hann góða og kunni vel bæði að hlusta og segja sögu. Eðlislæg hlýja og fágun í framkomu gerði hann jafnt að heimamanni í sölum höfðingja og vistarverum barna eða gamalmenna. Kröfur sjálfum sér til handa þekkti hann ekki. Jón naut þeirrar gæfu að halda óskert- um sálarkröftum til hinstu stund- ar. Með bók í hönd og bros á vör fagnaði hann heimsóknum ætt- ingja og vina. Það var alltaf bjart í návist hans. Nú er vegferðin öll. Ekki er það málmurinn rauði, sem Jón lætur eftir sig við leiðarlok. En þeir, sem þekktu hann best, munu geyma vel minninguna um hugljúfan og hjartahlýjan öðling. Guðríður Magnúsdóttir Kn þegar hinzt er allur dagur úti og upp gerð skil, og hvað sem kaupið veröld kann að virða, sem vann eg til, í slíkri ró eg kysi mér að kveða eins klökkan brag og rétta heimi að síðstu sáttarhendi um sólarlag. („Við verkalok", Stephan (i. Stephansson.) Jón Jónasson, fyrrum bóndi á Mel i Skagafirði, fæddist í Stóra- Gerði í Hörgárdal 12. febrúar 1893. Eiginkona hans var Ingi- björg Magnúsdóttir frá Torfmýri í Blönduhlíð, en þar bjuggu þau sín fyrstu búskaparár. Þau fluttust í nýbýlið Mel í Staðarhreppi árið 1923 og bjuggu þar samfleytt í hálfa öld eða fram á árið 1973, er að því kom að heilsu þeirra tók að hraka. Ingibjörg eiginkona hans lézt fyrir fáum árum, en Jón dvaldist ýmist hjá börnum þeirra eða á elliheimilinu í Hveragerði. Hann hélt sæmilegri heilsu fram undir það síðasta, en lézt í hárri elli á sumardaginn fyrsta í Borg- arspítalanum í Reykjavík, 89 ára gamall. Hugtökin tími og rúm eru af- stæð, en hvað sem vísindakenn- ingum líður er það staðreynd, að eftir því sem árin líða verða gaml- ar minningar úr Skagafirði frá barns- og unglingsárunum skýrari og ljúf kynni við líf þess tíma rifj- ast upp með auðveldum hætti. Fyrir lítt reyndan kaupstaðar- ungling frá Akureyri var það ógleymanleg reynsla og mótun að dveljast sumar eftir sumar í skagfirzku sveitalífi með vinum, frændfólki og ferfætlingum og kynnast mannlífi í sveit í hjarta Skagafjarðar, um svipað leyti og stórstyrjöld geisaði úti í hinum stóra heimi. Miðpunktur þess mannlífs var bærinn að Mel, hús- ráðendur þar, þau Ingibjörg og Jón og börn þeirra. Ekki verður sagt, að neinn stórbúskapur hafi verið rekinn á Melsbænum. Jörðin var hjáleiga í landi höfuðbólsins Reynistaðar og tengslin við Reyn- istaðarfólkið mótuðust af vinsemd og sameiginlegum áhugamálum þeirra, sem allt áttu undir veðri og vindum á þeim tíma, er tæknibylt- ing eftirstríðsáranna virtist eins og fjarlægur draumur. í minning- unni finnst manni, að þannig hafi flest tengsl fólksins verið, en eins og nú var það lenzka að segja gamansögur af einhverjum ná- grannanum, hvort sem það var um búskaparbasl eða pólitík. Torf- bærinn var mjög algengur bú- staður Skagfirðinga á þessum ár- um og á stundum er nokkuð for- vitnilegt að rifja upp í öllum þæg- indum nútímans, að ekki eru ýkja mörg ár síðan stór hluti íslend- inga, einkum til sveita, bjó við húsakynni þar sem hvorki var rafmagn, sími né vatn úr krana. Við þessar aðstæður stunduðu þau Jón og Ingibjörg á Mel sinn búskap og háðu sína lífsbaráttu í sorg og gleði í 50 ár. Komu sonum sínum þremur til náms og þroska og nutu þess í ríkum mæli á síðari árum þess æviskeiðs að fá til sín í Melsbæinn börn, barnabörn, frændur og vini — auk fjölmargra kaupamanna og kúasmala, eins og þess sem þessar línur ritar. Jón á Mel var ekki stórbóndi í venju- legum skilningi þess orðs. En hann yrkti sína jörð, stækkaði hana og ræktaði, gamli torfbær- inn vék fyrir nýjum steyptum bæ án þess til kæmu verktakar eða lífeyrissjóðir. Nýr bær var reistur með hörðum höndum hins sívinn- andi bónda með stuðningi góðra granna og fjölskyldu. Jón á Mel var kátur maður, sem ætíð sá hin- ar broslegu hliðar lífsins og hefur sá góði eðliskostur áreiðanlega komið sér vel í harðri lífsbaráttu við lítil efni. Hann hafði yndi af hestum og eru minningar þessara ára um hestamennsku og útreiðar ein- hverjar þær ljúfustu, sem geym- ast frá lífi þessara ára við Melsgil- ið. Það var skemmtileg reynsla að sjá jafnt sveitarhöfðingja sem al- múgabændur ríða um héruð, hvort sem var til að sinna innansveit- armálum eða jafnvel reka stjórn- málabaráttu þess tíma. Jón á Mel var pólitískur í bezta lagi og fylgd- ist afar vel með allri þjóðfélags- þróun og stjórnmálaferli ein- stakra manna utan og innan hér- aðs. Náin frændsemi kúasmalans frá Akureyri við húsfreyjuna, Ingibjörgu, reyndust honum vel í reynsluleysi við búskaparstörf, en á móti kom, að safnað var í ríkan reynslusjóð minninga um gott fólk, sem stritaði í sveita síns and- litis og skilaði þjóðfélaginu því margföldu, er það hafði í fátækt tekið við á fyrsta ársfjórðungi ald- arinnar. Slíkt starf verður aldrei metið með riddarakrossum eða öðrum þeim hégóma, er síðari kynslóðir hafa tekið upp og virðist síður en svo hafa orðið til að bæta þjóðarmein. Þau Ingibjörg og Jón á Mel eignuðust þrjá mannvænlega syni, sem allir hafa, hver á sínu sviði, gegnt þýðingarmiklum trúnað- arstörfum í þjóðfélaginu. Synirnir eru Baldur, cand. mag. nú rektor Kennaraháskólans, en eiginkona hans er Jóhanna Jóhannsdóttir, Magnús, bankastjóri og fyrrver- andi ráðherra og alþingismaður, kvæntur Ingibjörgu Magnúsdótt- ur, og Halldór, bæjarfógeti á Siglufirði, kvæntur Aðalheiði Ormsdóttur. Nú, þegar Jón bóndi á Mel er allur, rifjast enn einu sinni upp, að hin gamla veröld Skagafjarðar stríðsáranna er horfin, en eftir eru ljúfar minningar hjá þeim, er lifðu brot af þessu lífi. I upphafi þessara orða er síð- asta erindið í snilldarkvæði Klettafjallaskáldsins frá Skaga- firði, Við verkalok. Fegurð ljóðs- ins er slík að allar skýringar verða máttvana, en mér finnst þetta fagra ljóð eiga vel við minningu Jóns E. Jónassonar. Við verkalok hans færi ég hon- um og aðstandendum hans hinar innilegustu kveðjur og þakkir fyrir liðna tíð og ekki sízt samveru á mikilvægu mótunarskeiði ævinnar. Samúðar- og þakkar- kveðjur flyt ég frá mér og mínu fólki til allra vina hans og vanda- manna. Blessuð sé minnig Jóns á Mel. I dag berast hlýjar kveðjur norður til Skagafjarðar, þar sem hann verður jarðsettur við hlið konu sinnar í þeirri jörð, sem þau gerðu að ævistarfi sínu að yrkja. Heimir Hannesson Það var árla morguns á sumar- daginn fyrsta að afi á Mel lauk sinni lífsgöngu. Einmitt þannig hlaut það að verða. Teinréttur og hvikur á fæti með bros í augn- krókunum hvarf hann á fyrsta sumardegi til sinna vorverka í nýjum heimkynnum. Hæglátur og ljúfur fer hann nú hlýjum höndum um nýbyrjað líf og viðkvæman nýgræðing þar, eins og svo ótal mörg önnur vor á öðrum stað. Öt- ulli og gleggri liðsmaður til þeirra verka er vandfundinn. Því ber vitni stór hópur fámálla vina sem fagnað hafa kærum húsbónda við heimkomu. Jón Eyþór, eins og hann hét fulu nafni, fæddist að Stóragerði í Hörgárdal í Eyjafirði 12. febrúar árið 1893. Foreldrar hans voru hjónin Guðrún Jóhannesdóttir og Jónas Jónsson bóndi, en þau voru þingeyskra og eyfirskra ætta. Systkini átti afi fimm og eru þau öll látin. Fátækt og erfiðleikum kynntist afi ungur og systkina- hópurinn dreifðist snemma til þess að vinna öðrum. Fljótlega þótti afi liðtækur við fé og fór ungur smali til vandalausra. Var hann ekki margmáll um bernsku- ár sín og æskuár framan af, nema hvað hann sagði engin hold hafa tollað utan á sér síðan hann vand- ist á að hlaupa í kringum fé. Ekki átti það fyrir afa að liggja að setj- ast að á bernskuslóðum, því að unglingur kom hann vestur í Skagafjörð, smali að Silfrastöðum i Blönduhlíð, og varð honum drjúg dvölin í Skagafirðinum. Á Silfra- stöðum var afi í nokkur ár og átti hann margar kærar minningar þaðan. Hann leit á Silfrastaði sem heimili sitt og þar nokkru utar í Blönduhlíðinni átti heima skag- firsk bóndadóttir, sem síðar varð hans lífsförunautur. Ingibjörg Magnúsdóttir fæddist að Torfmýri í Blönduhlíð í Skaga- firði 22. ágúst 'árið 1894, dóttir hjónanna Jakobínu Gísladóttur og Magnúsar Hannessonar bónda þar. Þarna við rætur Glóðafeykis ólst amma upp ásamt þrem bræðrum og þar hófu þau afi sinn búskap árið 1919. Árið 1923 flutt- ust þau svo vestur fyrir Vötn eftir að hafa verið eitt ár á Flugumýri. þau hófu siðan búskap á Mel í Staðarhreppi og bjuggu þar óslitið til ársins 1973 eða í rétt fimmtíu ár. Amma lést sumarið 1979. Melur er í landi Reynistaðar og reyndar hjáleiga þaðan frá fornu fari. Ég hygg að óhugsandi væri í dag að lifa af búskap á jafnlítilli jörð og Melur er, en í tíð afa og ömmu voru kröfurnar til lífsins gæða minni að vöxtum en nú. Því var það að þau bjuggu sér heimili í litlum og lágreistum bæ á Mel. Búið var aldrei stórt, en þarna ólust upp synirnir þrír og komust allir til mennta. Kannski eru þeir augljósasta vitnið um kjark og framsýni einyrkjanna á Mel. í þá daga var ekki algengt að börn efnaminni foreldra nytu langrar skólagöngu og lán og styrkir til náms voru lítt þekktir. Því reyndi á dugnað og þrautseigju fjölskyld- unnar á Mel. Afi stundaði póst- ferðir í nokkur ár, fór á vertíðir og vann sem fjármaður á Reynistað til þess að drýgja tekjur heimilis- ins. Og trú ömmu á gildi menntun- ar, stöðug hvatning og ósérhlífni gerðu hið ómögulega mögulegt. Þau uppskáru iauíi erfiðis síns og framtíð sonanna var tryggð. Það má geta nærri að frístundir hafa verið fáar á fyrstu búskapar- árunum, en þó gafst ömmu tóm til þess að sinna hannyrðum og prýða heimilið fögrum útsaumi. Og ein- hvern veginn tókst afa alltaf að finna sér stund aflögu til bókalest- urs, en hann hafði umsjón með Lestrarfélagi Staðarhrepps nær öll búskaparárin á Mel. Afi og amma áttu einnig sjálf gott safn bóka og minnist ég þess sérstak- lega hve amma lét sér annt um ljóðabækurnar og tók þær oft fram, einkum ljóð Davíðs Stef- ánssonar, sem hún kunni mörg utanbókar. Bókalestur var afa hrein ástríða og á seinni árum, þegar brauðstritið var að baki.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.