Morgunblaðið - 01.05.1982, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 01.05.1982, Qupperneq 41
komst hann yfir að lesa hreint ótrúlegt magn bóka. Afi var ætíð þurfalítill sjálfum sér til handa, en bókarlaus gat hann ekki verið. Það er nú svo, að mér er ómögu- legt að minnast afa án þess að minnast ömmu jafnframt, svo samofin eru þau í minningunum um sumrin á Mel. Afi og amma voru ólíkrar skapgerðar, en ógleymanleg hvort á sinn hátt. Amma var stórbrotin persóna, skapmikil og skarpgreind. Hún var sístarfandi, frábær kokkur og bakari, hrífa og saumnál léku í höndunum á henni. Hún var ein- staklega natin við skepnur og jurtir þrifust hvergi betur en í ná- vist hennar, enda kom hún upp fallegum garði sunnan við bæinn á Mel og átti þar ófáar stundir við að hlúa að blómum og trjám. Hún var kröfuhörð við sjálfa sig og stundum harðneskjuleg í tali, en hendur hennar og fætur knýttir af liðagigt töluðu sínu máli um strit og þjáningar liðinnar ævi, þótt aldrei minntist hún á það einu orði. Hlýtt faðmlag hennar og tár á hvörmum er hún fagnaði okkur systkinunum á vorin sögðu meira en nokkur orð um ást hennar og hjartahlýju. Þegar ég lít til baka minnist ég ömmu gjarnan við eldhúsgluggann á Mel þar sem hún skyggir hönd fyrir augu með kaffiketilinn í annarri hendi og horfir upp á túnið. Skyldi fólkið ekki fara að koma í kaffið. Skyndi- lega er hún horfin úr glugganum og andartaki síðar skundar hún upp túnið með hrífu í hendi, beyg- ir sig niður öðru hverju og hirðir upp tuggu sem gleymst hefur. Hvert strá skal heim í tóft og ekk- ert má fara til spillis. Amma stendur mér jafn ljóslifandi fyrir hugskotssjónum nú og þegar ég var krakki á Mel. Og ég hygg að hún verði fleirum sem henni kynntust ógleymanleg. Þau eru líklega hátt á annan tuginn sumrin sem við systkinin tvö áttum á Mel hjá afa og ömmu. Ekki minnist ég þess öll þau sum- ur að afi hafi í eitt einasta skipti ávítað okkur. Hann var einstakt ljúfmenni og skipti örsjaldan skapi. Hávaxinn og grannur var hann, hvikur á fæti og einstaklega svipfallegur. Það hreint og beint skein af honum góðleikinn. Krakk- ar hændust mjög að honum og fyrstu minningar mínar frá Mel eru einmitt tengdar samfylgdinni við afa úti á túni. Ég minnist þess hvernig við eltum hann krakkarn- ir, suður í bragga, út á grund, upp á tún, fram í hvamm að sækja hestana, og aldrei amaðist hann við okkur. Eftir að við urðum full- orðin og eignuðumst sjálf börn löðuðust þau að afa eins og við höfðum gert. Langafi var góður og lumaði stundum á mola til þess að stinga upp í óþekktaranga. Þegar ég hugsa til afa og sumranna á Mel finn ég glöggt hve dýrmætar þær minningar eru mér. Það er ómetanlegt vegarnestið sem við systkinin fengum á Mel. Minn- ingarnar sem fylla hugann eru all- MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MAÍ1982 4 1 ar bjartar og maður á sér þá ósk heitasta að vera aftur orðinn barn í túninu á Mel. Það er vor og sauðburðurinn stendur sem hæst. Afi kemur léttstígur sunnan túnið og þykkt grátt hárið flaksast í vindinum. Han er snemma á fótum og kemur seint inn á kvöldin, færir þá við- burði dagsins inn í bækur, því að hver kind á sér nafn og sögu. Allt er gert af alúð og vandvirkni. Afi er einstaklega fjárglöggur og þeg- ar hann var fjármaður á Stað var til þess tekið að hann þekkti hverja kind á svipnum og skiptu þær þó hundruðum. Við krakkarn- ir öfundum afa svolítið af því hvað kindurnar eru gæfar við hann úti, þær haggast ekki þótt hann gangi til þeirra. Öðru máli gegnir um okkur og svo er sumarið komið. Grasið nær okkur í læri og það er spennandi að fara í feluleik í óslægjunni af því að það má ekki. Afi er búinn að setja aktygin á Grána og Glóa og nú heyrist gam- alkunnugt hljóðið í sláttuvélinni. Afi hottar á klárana, brosir og veifar til okkar. Slátturinn er haf- inn. Árin líða og ekkert fær stöðvað hjól tímans. Afi og amma nutu þess ríkulega síðustu árin á Mel að hafa ætíð átt góð samskipti við nágranna sina. Heimilisfólkið á Reynistað, í Geitagerði og Holtsmúla var ætíð boðið og búið að rétta gömlu hjónunum á Mel hjálparhönd. Það var ekki síst því að þakka að afa og ömmu auðnað- ist að búa svo lengi á Mel og verð- ur það seint fuliþakkað. Afi á Mel hélt allgóðri heilsu til hins síðasta. Léttleiki hans og ljúft skap hafa eflaust átt sinn þátt í því hversu vel hann hélt sér líkamlega og andlega. Þótt hann væri kominn undir nírætt minnti hann oft á strákling, svo hvikar voru hreyfingarnar og brosið kersknisfullt. Ellin náði aldrei að beygja bak afa eða herða lund hans, hún var ávallt barnsleg og hlý. Síðustu þrjú árin bjó afi að elli- og hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði og undi hag sínum vel þar. Ég get ekki látið hjá líða að þakka starfsfólki þar og heimilis- fólki öllu þann þátt sem það átti í því að gera afa dvölina þar ánægjulega. Enginn átti þó drýgri þátt í því að viðhalda lífsgleði og lífsþrótti afa þessi síðustu ár en sambýlismaður hans í Hveragerði, Stefán Isaksson, og eru öll orð um hans einstöku vináttu og hjálpfýsi harla fátækleg. Nú eru afi og amma á Mel bæði horfin sjónum að sinni. Það er lögmál lífsins sem við öll verðum að lúta. Afi verður jarðsettur í dag á Reynistað þar sem amma hvílir einnig. Það er fagurt útsýnið frá Reynistað og þar rétt sunnan við túnfótinn er Melur. Mér sýnist vera létt yfir afa nú um sumarmál þar sem hann skundar léttstígur suður Reynistaðartúnið. Guð blessi minningu hans. Kristin lokum þátt í sameiginlegu ÁtAkí A ÁRIALDRAÐRA Tii að bæta úr einni brýnustu þörf í málum aldraðra er stefnt að því, að þessi nýja hjúkrunardeild við Hrafnistu í Hafnarfirði, sem rúma mun 80—90 manns, verði tekin í notkun í lok þessa árs — árs aldraðra. Veitum öldruóum veróskuldaóan stuðning- Verum meó í happdrætti DAS Miðiermöéu 4 9 QG ) | sr irOLLO Nl' LÍKAAtSRKKT rautarholti 4, sími 22224. Pií nærð árangri í Apollo Þú borgar tvo mánuði og færð þriðja mánuðinn frían. Ef sumarfríið þitt lendir inni í þessum mánuðum þá lengist tímabilið sem því nemur. Það býður enginn betur. Opnunartími 2. maí—31. ágúst 1982 Konur Karlar Þriðjud. 12—14 16.30—20.30. Fimmtud. 9—14 16.30—20.30. Laugard. 9—14. Mánud. 12—14 16—20. Þriöjud. 12—14 16—21. Föstud. 12—14 16—20. Það er best að æfa í Apolló þar er fullkomin og snyrtileg aðstaða. Spyrjið kunningjana, ein- hver þeirra hefur örugglega æft í Apolló.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.