Morgunblaðið - 01.05.1982, Síða 44

Morgunblaðið - 01.05.1982, Síða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MAÍ1982 Næsta álver á íslandi i Þorlákshöftt? Eftir Edgar Guðmundsson verkfrœðing Álversathugun ÁSV (Árdal-Sunndal-Verk) Um þessar mundir stendur yfir almenn óstaðbundin athugun er varðar nýtt álver á Islandi. At- hugun þessi er unnin af norska stórfyrirtækinu Ardal-Sunndal- Verk ASV í samráði við íslenska aðila. Almennt um álver Eins og alþjóð er kunnugt, ríkir nú mikil kreppa í áliðnaði, og er þar skemmst að minnast mikiis tapreksturs hjá ÍSAL og síðustu samdráttarfrétta hjá norskum ál- framleiðendum. Verðlag á áli er nú lægra en nokkru sinni fyrr. í áliðnaði, sem og öðrum iðngrein- um, skiptast hins vegar á skin og skúrir, þannig að ekki er ástæða til að láta deigan síga þótt illa horfi í bili. Þorri Islendinga er sammála um að virkja beri fall- vötn okkar og aðrar orkulindir og nýta orkuna til orkufreks iðnaðar jafnframt almennri notkun inn- anlands. Almennt um staðar- val stóriðju Eftirfarandi þættir eru trúlega mest ráöandi, þegar rætt er um staðarval stóriðju: a) Umhverfis- og mengunaráhrif. b) Félagsleg áhrif, einkum þó stærð vinnumarkaðar. c) Hafnaraðstaða. d) Byggingarland. e) Næg orka í hóflegri fjarlægð. í þeirri röðun þátta, sem að ofan greinir, felst þó engin fullyrðing um innbyrðis vægi þegar að ákvörðun dregur. Það mat verður látið öðrum eftir. Stækkun álvers í Straumsvík Þegar einu sinni er búið að byggja álver, þá hefur þegar verið fjárfest í hafnarmannvirkjum, sem venjulega er unnt að nýta bet- ur, auk þess sem ýmsir aðrir þætt- ir verða augljóslega hagkvæmari af stærðaráhrifum einum saman. Núvirði hafnarmannvirkja í Straumsvík er talið um 200 millj- ónir nýkróna, en nýting hafnar- innar er taiin aðeins um 20%, þannig að verulega má við bæta. Umtalsverð stækkun álversins í Straumsvík er því bæði eðlileg og sjálfsögð fjárfesting við eðliiegar markaðsaðstæður. Nýtt álver Ef hinsvegar er hugað að nýju álveri, þá má vafalaust draga fram ýmsa kosti við að staðsetja það einnig í Straumsvík, sem og alla stóriðju á íslandi yfirhöfuð. Ég hygg þó, að fyrir því sé nokkuð almennur vilji að dreifa stóriðju- fyrirtækjum um landið, þótt það kunni að kosta okkur nokkurt fé og fyrirhöfn fyrst í stað. Af þeim ástæðum leyfi ég mér að líta framhjá nýju álveri í Straumsvík sem möguleika, sem unnt sé að ná um sæmilegri samstöðu meðal þjóðarinnar, þegar stækkun ÍSAL er undanskilin. Straumsvík kann þó að vera inni í myndinni engu að síður, svo sem vikið verður að nán- ar hér á eftir. Hvers vegna álver í Þorlákshöfn Fyrir staðsetningu álvers í Þor- lákshöfn má færa afar sterk rök, sem eru bæði umhverfis-, félags- og tæknilegs eðlis, auk þess sem öll sanngirni mælir með Suður- landi, svo framarlega sem önnur rök vega ekki þyngra. Er þá að sjálfsögðu gert ráð fyrir, að það sé almenn ósk Sunnlendinga, að meira af þeirri orku, sem fram- leidd er í þessum landsfjórðungi, verði nýtt á sama stað. Suðurland er stærsta orkuforðabúr þjóðar- innar, eins og nú standa sakir, en óverulegur hluti orkunnar er nú nýttur í héraði. Allir landsmenn, sem sýna vilja sanngirni, hljóta því að taka undir sjónarmið Sunnlendinga í þessum efnum. Umhverfis- og félagsleg rök fyrir álveri í Þorlákshöfn Þeir sem þekkja til veðurs í Þorlákshöfn hafa ekki teljandi áhyggjur af loftmengun frá álveri á þessum slóðum, einkum þegar nútíma hreinsitækni er höfð í huga. Logn og stillur teljast þar fremur til undantekninga, svo ekki sé dýpra í árinni tekið. Af ástæðum, sem eru óviðkomandi stóriðju í'Þorlákshöfn, er nú í far- vatninu ákvörðun um brú yfir Ölf- usárósa við Óseyrarnes. Þessi brú gerir Selfoss, Eyrarbakka, Stokks- eyri, Hveragerði og Þorlákshöfn að einu samfelldu svæði í atvinnu- legu tilliti. Stærð vinnumarkaðar er því ótvírætt næg. Telja verður líklegt, að önnur félagsleg atriði, sem nauðsynleg verða talin til styrktar álveri í Þorlákshöfn, muni ekki erfið úrlausnar, og skal því hér látið staðar numið að sinni um umhverfis- og félagsleg rök. Tæknileg rök fyrir álveri í þorlákshöfn Um landgæði í Þorlákshöfn fyrir byggingu álvers þarf ekki að fjölyrða. Þau eru óumdeilanlega með því besta sem þekkist. Sama máli gegnir um lögn háspennulínu frá virkjunum á Þjórsársvæði. Hafnarmálin hafa á hinn bóginn verið talin torleysanleg innan við- unandi kostnaðarmarka. Verður því hér eingöngu fjallað um hafn- armálin, þar sem þau eru talin svo afgerandi í tæknilegu tilliti. Edgar Guðmundsson „Nú líður að því, að Staðar- valsnefnd fari að skila álits- drögum um staðsetningu ál- iðju. Ég dreg ekki í efa, að sú ágæta nefnd taki undir sjón- armið mín í þessum efnum og bendi á Þnrlákshöfn sem einn allra ákjósanlegasta staðinn fyrir nýtt álver á ís- landi, að undangenginni stækkun álversins í Straumsvík.“ Hvernig eru hafnir fyrir álver notaðar? Nú hefur álver verið rekið í mörg ár í Straumsvík og er því nærtækast að leita þar viðmiðun- ar. Árið 1980 var svo háttað um skipaferðir í Straumsvík sem hér segir vegna ÍSAL: Stór skip voru alls 4 og komu með um 145.000 tonn af súráli. Lítil skip (einkum íslensk) voru alls 73 og fluttu til landsins raf- skaut og ýmsar aðrar vörur en fluttu ál og notuð rafskaut frá landinu. Einungis 4 stór skip en 73 lítil Það sem hér skiptir máli er, að í aðeins 4 skipti af 77 eru not fyrir stórskipaaðstöðuna í Straumsvík. í öll hin 73 skiptin má komast vel af með mun minni höfn, svo sem Þorlákshöfn. Nú mætti spyrja: Hvernig að að koma þessum hundruðum þúsunda tonna af súr- áli til Þorlákshafnar? Við þessari spurningu eru að minnsta kosti þrjú svör: Leið I — akstur á súráli frá Straumsvík til Þorlákshafnar Ef miðað er við, að notaðir verði stólbílar með aftanívagni með 22 tonna hlassþunga, þá reiknast heildarflutningskostnaður 260.000 tonna af súráli, sem svarar til framleiðslu 130.000 tonna af áli á ári hverju um 2,5 milljónir doll- ara, eða um 20$ per tonn af áli. Nú er flutningskostnaður á súráli frá Ástralíu til Islands reiknaður um 60—65$ per tonn af áli, þannig að hér er um að ræða þriðjungs við- bót, eða um 1—1,5% af söluverði áls, 1.200—1.800$ per tonn. Með stærri bílum mætti ná þessum kostnaði talsvert niður. Leið II — Sigling með súrál frá Straumsvík til Þorlákshafnar og með ál og jarðefni til baka Með öflugum lestunar- og losun- arbúnaði má reikna með, að 1.500 tonna skip geti með góðu móti annað eftirtöldum flutningum milli Straumsvíkur og Þorláks- hafnar: Til Þorlákshafnar frá Straumsvík 260.000 tonn súrál. Til Straumsvíkur frá Þorláks- höfn 130.000 tonn ál og 110.000 tonn af jarðefnum. Reksturskostnaður slíks skips yrði innan við 1.000.000$ á ári, sem mundi deilast á 500.000 tonn af flutningum. Með öðrum orðum um 2$/tonn til jafnaðar. Ef allur rekstrarkostnaður skipsins yrði færður eingöngu á álið, þá næmi hann röskum 7$/tonn af áli, eða nær þrefalt minna en fyrir bif- reiðaflutninga. „Ritgerdabókin“ er komin út hjá Iðunni KITGERÐABÓKIN heitir leiöbein- ingarrit nm samningu og frágnng fraertilegra ritgerða sem Iðunn hefur gefið út. Er bókin a-tluð nemendum á öllum skólastigum. Höfundar eru Ásgeir S. Björnsson og Indriði Gísla- son. Ritgerðabókin skiptist í aðalkafl- ana áætlun, efnisgrind, skráning heimilda, efnissöfnun, ritgerðin samin, frágangur og heimildaskrá. Aftast er viðauki um frágang rit- smíða til prentunar. Ritgerðabókin er 60 bls. prentuð hjá Odda. IÐUNN RIT: Asgeir S Björnsson Indriði Gislason GERÐA Gódir gestir á Sauðárkróki SauAárkróki, 28. afríl. Á SUMARDAGINN fyrsta komu hingað til Sauðárkróks góðir gestir í boði Tónlistarskólans og Tónlistarfélagsins hér, þau Sig- fús Halidórsson tónskáld og songvararnir Elín Sigurvinsdótt- ir, Snæbjörg Snæbjarnardóttir og Friðjón G. Jónsson. Héldu þau tónleika í Safna- húsinu, og voru á efnisskránni eingöngu lög eftir Sigfús, sem annaðist undirleik með mikilli prýði. Húsfyllir var svo að í ann- an tíma hafa ekki fleiri sótt tón- leika í Safnahúsinu. Undirtektir áheyrenda voru franiúrskarandi góðar og urðu söngvararnir að syngja aukalög og að lokum sungu allir viðstaddir „Litlu flug- una“. Næstu tónleikar Tónlistar- skólans verða í fyrri hluta maí- mánaðar. Þar koma fram Manuela Wiesler flautuleikari og Helga Ingólfsdóttir sembal- leikari. Á sumardaginn fyrsta hafði Kvenfélag Sauðárkróks kaffisölu í félagsheimilinu Bifröst og rann allur hagnaður til hjúkrunar- og dvalarheimil- is aldraðra, sem hér er í bygg- ingu. Ungmennafélagið Tinda- stóll stóð fyrir víðavangshlaupi þennan dag og er það orðinn árviss viðburður á sumardag- inn fyrsta. Dr. Kristján Eldjárn hélt nýlega erindi hér í boði Safna- hússins sem hann nefndi Sumardvöl á Grænlandi fyrir 45 árum. Húsfyllir var og góð- ur rómur gerður að máli dr. Kristjáns. Um páskana hélt Ásta Pálsdóttir myndlistar- sýningu í Safnahúsinu. Ásta er fædd og uppalin hér en býr nú í

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.