Morgunblaðið - 01.05.1982, Blaðsíða 45
Með því að flytja ál og jarðefni
til baka til Straumsvíkur, má auka
svo hagræðingu í flutningum á
þessum vörum á erlendam mark-
að, að verulegum upphæðum nemi,
sem þá koma til frádráttar. Ekki
er ólíklegt, að sanngjörn viðmiðun
í flutningskostnaði á súráii og áli
milli Þorlákshafnar og Straums-
víkur með þessu fyrirkomulagi
væri 4—5$ per tonn af áli, eða
2—3 þúsundustu af söluverði áls,
sem skiptir engu máli í rekstri ál-
vers.
Leið III — í Þorlákshöfn
verði byggð skipamiðstöð
fyrir opnu hafi
(open-sea terminal)
Hér er bent á möguleika, sem
lítt hefur verið kannaður til þessa.
Um er að ræða að byggja súráls-
móttöku án ytri brimvarnarmann-
virkja, og yrði þá að sæta lagi um
veður varðandi losun. Ekkert skal
á þessu stigi fullyrt um, hvort hér
er um að ræða raunhæfan mögu-
leika, en líkurnar eru þeim mun
meiri, því stærri sem skipin eru,
sem slíka miðstöð nota. Hér þyrfti
að koma til samvinna með ÍSAL
og Straumsvíkurhöfn, sem gæti
tekið við skipum þegar ófært væri
í Þorlákshöfn. Þar sem svona
skipamiðstöðvar hafa verið byggð-
ar, hefur kostnaður oft numið um
'á hluta kostnaðar við lífhöfn með
öruggum ytri varnarmannvirkj-
um. Skipamiðstöð sem þessa væri
einnig hægt að nota til að skipa út
jarðefnum svo sem Hekluvikri.
Sameiginlegur þáttur
Þessar þrjár leiðir, sem hér
hafa verið nefndar, eiga eitt sam-
eiginlegt: Þær byggja allar á höfn-
inni í Straumsvík á einn eða ann-
an veg. Tvær jafnstórar álverk-
smiðjur nota tvöfalt meira súrál
en ein. Með öðrum orðum, það er
hægt að nota tvöfalt stærri skip
til flutninga, sem þýðir um
15—25% heildarsparnað á súráls-
flutningum einum.
Samnýting Straums-
víkurhafnar og út-
flutningur á jarðefnum
Ef hægt er að samnýta
Straumsvíkurhöfnina til útskip-
unar, þá sparast einnig verulegar
fjárhæðir vegna hagræðingar.
Jafnframt opnast nýir og hag-
stæðari möguleikar til útflutnings
á jarðefnum, möguleikar, sem
geta gert þá atvinnugrein arðbær-
ari en ella.
Aöalatriði málsins
1. Með óverulegum viðbótum má
nota núverandi Þorlákshöfn til
upp- og útskipunar á öllum ál-
vörum nema súráli með stór-
skipum.
2. Með því að nýta Straumsvík-
urhöfn betur, má ná mun meiri
hagkvæmni í súrálsflutningum
en nemur viðbótarkostnaði
vegna súrálsflutninga milli
Straumsvíkur og Þorlákshafn-
ar. Skipamiðstöð fyrir súrál í
Þorlákshöfn kann einnig að
hafa hagstæð áhrif í sömu átt.
3. Möguleikar opnast fyrir hag-
stæðan útflutning á jarðefnum
frá Suðurlandi með stórskipum.
4. Mengunaráhrif frá álveri í
Þorlákshöfn eru óveruleg, sé
borið saman við flesta aðra
staði.
5. Byggingarland fyrir álver í
Keflavík. Þetta var fyrsta
einkasýning hennar en hún
hefur tekið þátt í nokkrum
samsýningum. Á sýningunni
voru 42 vatnslitamyndir, marg-
ar tengdar æskuslóðum lista-
mannsins. Ekki verður annað
sagt en Skagfirðingar hafi tek-
ið Ástu vel, því hún seldi marg-
ar myndir og alls komu á sýn-
inguna 750 manns, sem verður
að telja góða aðsókn í 2.300
manna bæ.
Kári
AUa.YKINIiASIMINN KR:
22410
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1982
45
Þorlákshöfn er mjög ákjósan-
legt, og ef tii vill það besta sem
þekkist hérlendis.
6. Aðflutningslínur raforku frá
orkuverum á Þjórsársvæði eru
auðlagðar og mun styttri en
t.a.m. til Straumsvíkur.
7. Suðurlandsundirlendið er nægi-
lega stór atvinnumarkaður
fyrir álver.
Tillögur um áliðnað
Á grundvelli þess, sem hér hef-
ur verið ritað, má gera eftirfar-
andi tillögur:
1. Samfara stækkun álversins í
Straumsvík upp í 130.000 t/ári,
verði byggð umskipunarmið-
stöð (multi-purpose terminal) í
vestanverðri Straumsvíkur-
höfn.
2. Næsta nýja álver á íslandi
verði byggt í Þorlákshöfn og
verði Straumsvíkurhöfn notuð
beint (eða óbeint) til súráls-
flutninga útskipunar á jarðefn-
um og áli frá Suðurlandi og
fleiri þátta síðar meir.
Lokaorð
Nú líður að því, að Staðarvals-
nefnd fari að skila álitsdrögum
um staðsetningu áliðju. Ég dreg
ekki í efa, að sú ágæta nefnd taki
undir sjónarmið mín í þessum efn-
um og bendi á Þorlákshöfn sem
einn allra ákjósanlegasta staðinn
fyrir nýtt álver á íslandi, að und-
angenginni stækkun álversins í
Straumsvík. Verði Straumsvík-
urhöfn gerð að umskipunarmið-
stöð fyrir stóriðju, þá mun hún
ekki einungis nýtast fyrir ÍSAL og
álver í Þorlákshöfn, heldur einnig
fyrir stálver, jafnvel sykurverk-
smiðju, og ennfremur stóriðju við
Reykjavík og á Suðurnesjum, þar
sem í senn væri hægt að nýta raf-
orku, jarðgufu og verðmæt inn-
lend jarðefni, án þess að leggja
þurfi í milljónafjárfestingu vegna
hafnargerðar á hverjum stað.
Ekki er óhugsandi að koma
megi fleiri stöðum á landinu inn á
landakortið þegar mikilvægir
orkunýtingarkostir eru annars
vegar. Þannig getur t.a.m. höfnin
á Grundartanga þjónað stóru
svæði á Vesturlandi, jafnvel Vest-
fjörðum, höfnin á Reyðarfirði,
Austurfjörðum, og hafnir við
Eyjafjörð og á Húsavík, Norður-
landi.
Að lokum fylgir hér yfirlit um
reksturskostnað m/s Þorlákshafn-
ar, skipsins sem flytur súrál frá
Straumsvík til Þorlákshafnar og
ál og Hekluvikur til baka til
Straumsvíkur.
m/s Þorlákshöfn — Rekstrarkostnadur
1. Áætlun. M/s Þorlákshöfn fer 5 ferðir í viku, mánudaga—föstu-
daga, fram og til baka milli Þorlákshafnar og Straumsvíkur í 48
vikur á ári.
Ferðafjöldi áætlast þannig 5x48 = 240 á ári.
2. M/s Þorlákshöfn er 1.500 tonna (dw) skip með um 2.100 rúmm. =
75.000 rúmfeta rúmmál.
3. Reksturskostnaður á ársgrundvelli.
3.1 Leiga með áhöfn — 2.000$/dag í 365 daga 730.000$
3.2 Olíur - 520$/dag í 240 daga 130.000$
3.3 Ýmsir rekstrarliðir 40.000$
Samtals: 900.000$
3.4 Stjórnun og ófyrirséð 100.000$
Samtals: 1.000.000$
4. Áætlun mánudaga — föstudaga:
kl. 08—11 Á1 og Hekluvikur losað frá borði í Straumsvík,
kl. 11—12 Súrál lestað í Straumsvík,
kl. 12—19 Sigling frá Straumsvík til Þorlákshafnar,
kl. 19—22 Súrál losað í Þorlákshöfn, ál og Hekluvikur lestað
— gert að nokkru samtímis.
kl. 22—08 róleg sigling til Straumsvíkur.
Áhafnir eiga frí laugardaga og sunnudaga. Gert er ráð fyrir að
skipið verði 4 vikur á ári í árlegri klössun.
ORBYLGJUOFNARNIR BJODA ÞER UPPA
HINA ÓTRÚLEGUSTU MÖGULEIKA í MATSELD
Komdu og spjallaðu
viö okkur og við
skulum sýna þér
möguleika Toshiba
ofnanna, hversvegna
svo gott er að baka
í þeim og
hversvegna
maturinn verður
svo góður.
Mynd úr tímaritinu
Gestgjafinn
1. tbl. 1982
Dröfn matreiöir
fylltar svínakótilettur
Heimílisörbylgjuofninn ER-649 er búinn örbylgjusnúningsspegli aö ofan og stórum
snúningsdisk aö neöan — þetta þýöir miklu betri og jafnari dreifingu á örbylgjunum.
Þessi ofn er skör framar í jöfnum bakstri og góöri steikingu.
Sérfræöingur okkar í örbylgjuofnum, Dröfn H. Farestveit, hússtjórnarkennari, iæröi hjá
tilraunaeldhúsi TOSHIBA í Englandi, er yöur til reiöu varöandi hverskonar fyrirspurnir
um matreiöslu í ofnunum eöa val á hinum fjölbreyttu áhöldum sem fást hjá okkur.
Og svo þú fáir fullkomin not af TOSHIBA-ofninum þínum, býöur Dröfn þér á matreiöslu-
námskeiö án endurgjalds.
Vertu velkomin til okkar, hjá okkur færöu réttar upplýsingar um örbylgjuofna
TOSHIBA. Ofnarnir kosta frá kr. 4.510,00. Geiösluskilmálar.
■ EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
Bergstaðastræti 10 A Sími 16995.
Raf hf.
Glerárgata 26, Akureyri.