Morgunblaðið - 01.05.1982, Qupperneq 48
Síminn á afgreiöslunni er
83033
Sími á ritstjórn og skrifstofu:
10100
jRlorxjxmí>Xíit>it>
LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1982
20% hækkun á strætis-
vagnafargjöldum
— 13% hækkun hjá sundstöðum
VcrAlags.stornun hcfur heimilað
Strætisvögnum Keykjavikur aA
hækka fargjöld sín frá og með deg-
inum í dag um 20%, en nú hefur
verið ákveðið að færa málefni SVK
inn í Verðlagsráð, en þau voru áður
á hendi Gjaldskrárnefndar.
Þá hefur sömuleiðis verið
ákveðið, að hækkanabeiðnir sund-
staða verði eftirleiðis teknar til
meðferðar í Verðlagsráði, sem nú
hefur heimilað sundstöðum, að
hækka gjaldskrár sínar um 13%.
Kristinn Guðmunds-
son fyrrum utanrík-
isráðherra látinn
Endanlegri afgreiðslu væntanlega frestað, en heimild gefin til áframhaldandi rannsókna
— Ljósm.: RAX. — Sjá miðsíðu aðalblaðs Mbl.
Forseti býður forseta tertu
Myndin er tekin á ársþingi SVFÍ, sem hófst i gær. Þá tilkynnti forseti SVFÍ, Gunnar Friðriksson, að hann gæfi
ekki kost á sér til endurkjörs. Þingsetninguna í gær sat frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands.
KKISTINN Guðmundsson, fyrrum
utanrikisráðherra, lést á sjúkrahúsi í
Keykjavík í gærmorgun 84 ára að
aldri. Var hann fæddur 14. október
1897 í Króki á Kauðasandi.
Kristinn Guðmundsson lauk
stúdentsprófi frá MR 1920 og las
síðan hagfræði og lög við háskól-
ana í Kiel og Berlín. Lauk hann
doktorsprófi í hagfræði í Kiel
1926. Árin 1926 til 1929 vann hann
m.a. við verslunarstörf, einka-
kennslu í Kiel og Reykjavík og síð-
an kenndi hann til ársins 1944 við
MA. Næstu níu ár var hann skatt-
stjóri á Akureyri, en tekur við
embætti utanríkisráðherra í sept-
ember 1953 og gegndi því starfi í 3
ár er hann var skipaður sendi-
herra í London og jafnframt amb-
assador í Hollandi. Starfaði hann
æ síðan í utanríkisþjónustunni og
var m.a. sendiherra í Rúmeníu,
Ungverjalandi og Búlgaríu. Þá var
Kristinn Guðmundsson bæjar-
fulltrúi á Akureyri 1950—53 og
hann sat tvisvar á Alþingi sem
varaþingmaður Eyfirðinga. Einn-
ig sat hann í skattanefnd Akur-
eyrar, bókasafnsnefnd og stjórn
Laxárvirkjunar.
Kona Kristins Guðmundssonar
var Elsa Alma Kalbow frá Berlín.
Á FUNDI iðnaðarnefndar neðri deildar Alþingis í gærmorgun lagði Páll
Pétursson, formaður þingflokks Framsóknarflokksins, fram frávísunartil-
lögu við frumvarp ríkisstjórnarinnar um kísilmálmverksmiðju á Reyðarnrði.
í tillögunni er lagt til, að málið verði tekið úr höndum iðnaðarráðherra og
það falið sjö manna þingkjörinni nefnd til nánari umfjöllunar. Þessi tillaga
Páls kom miklu róti á stjórnarliða og voru ráðherrar og fjöldi þingmanna á
stöðugum fundum i hliðarsölum Alþingis í gær.
Til harðra orðaskipta kom síðan
á þingflokksfundi Framsóknar-
flokksins síðdegis, en samkvæmt
heimildum Mbl. hefur Páll meiri-
hluta þingflokksins að baki sér í
þessu máli. í gærkvöldi var því
allt útlit fyrir að Alþingi fresti því
að taka ákvörðun um kísilmálm-
verksmiðju, en þess í stað verði
samþykkt málamiðlunartillaga
þess efnis, að athugunum verði
haldið áfram í sumar og málið síð-
an endanlega afgreitt á næsta Al-
þingi. Þingmenn, sem Mbl. ræddi
Álit fjárhags- og viðskiptanefndar neðri deildar Alþingis:
Ríkisstjórnin taki
hið fyrsta ákvörðun um
flugstöðvarbyggingu
„NEÐRI deild Alþingis telur nauðsynlegt að ný flugstöð verði byggð á
Keflavíkurflugvelli og að ríkisstjórnin taki ákvörðun um það hið fyrsta eftir
að væntanlegt nefndarálit liggur fyrir. Þar sem Alþingi hefur veitt nauðsyn-
lega heimild til lánsfjáröflunar vegna framkvæmda, geta þær hafizt þótt
frumvarp á þingskjali 83 nái ekki afgreiðslu, og tekur dcildin þvi fyrir næsta
mál á dagskrá," segir i nefndaráliti frá fjárhags- og viðskiptanefnd neðri
deildar, sem samþykkt var einróma i deildinni i gær.
I nefndarálitinu segir ennfrem-
ur: „í 6. grein fjárlaga hefur Ai-
þingi veitt heimild til 10 milljóna
króna lántöku vegna byggingar
flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli.
Ríkisstjórnin skipaði þriggja
manna nefnd allra stjórnarlið-
anna til að taka flugstöðvarmálið
til athugunar, meðal annars hönn-
un byggingarinnar og hugsanlega
áfangaskiptingu. Nefndinni var
falið að gera tillögur til ríkis-
stjórnarinnar um það, hvernig áð-
urgreind lántaka yrði nýtt, og
mun hún skila áliti á næstunni.
Kru nefndarmenn í fjárhags- og
viðskiptanefnd sammála um að
leggja til að frumvarpið komi því
til annarrar umræðu í deildinni,
svo kostur gefist á að ræða málið
fyrir þinglausnir."
IJndir nefndarálitið rita alþing-
ismennirnir Halldór Ásgrímsson,
Sighvatur Björgvinsson, Ingólfur
Guðnason, Albert Guðmundsson,
Matthías Á. Mathiesen, Matthías
Bjarnason og Guðrún Hallgríms-
dóttir, með fyrirvara.
Nefndarálitinu fylgir greinar-
gerð frá flugráði, þar sem segir
meðal annars svo: „Flugráð álítur
að brýnt sé að taka ákvörðun um
nýja flugstöð á Keflavíkurflugvelli
sem fyrst, og byggingu hennar
verði hraðað sem kostur er.“
Flugstöðvarmálið verður vænt-
anloga rætt í neðri deild á mánu-
dag.
við í gærkvöldi, töldu einsýnt að ef
Páll héldi fast við tillögu sína um
að málið verði tekið úr höndum
iðnaðarráðherra geti það haft
ófyrirsjáanlegar afleiðingar á
stjórnarsamstarfið.
Iðnaðarnefnd hefur leitað álits
ýmissa aðila, svo sem venja er í
störfum þingnefnda. Mbl. hefur
þegar skýrt frá hluta af áliti Þjóð-
hagsstofnunar og brezks fyrirtæk-
is, en Þjóðhagsstofnun telur m. a.
að staðsetning fyrirtækisins á
Reyðarfirði hafi í för með sér
meiri stofnkostnað en ef verk-
smiðjan væri reist nær þéttbýli.
Þá hefur nefndin nýverið fengið
álit Seðlabanka íslands á verk-
smiðjubyggingunni. í niðurlagi
álits bankans segir m.a., að kísil-
málmverksmiðja sé vænlegur
kostur, en þær athuganir, sem
fram hafi farið að undanförnu,
virðist ekki vera komnar á það
stig, að tímabært sé að taka
ákvörðun. Þá segir í áliti Seðla-
bankans, að svo virðist sem fjár-
mögnun verksmiðjunnar sé þáttur
sem hafi nánast verið lagður til
hliðar í skýrslu verkefnisstjórnar.
Sú málamiðlunarlausn, sem
rædd var í gær, er fólgin í því að
Alþingi veiti umboð til frekari
rannsókna og jafnvel hluta af
undirbúnings- og hönnunarstarfa
á komandi sumri. Ríkisstjórnin
fór í upphafi samningaumleitana í
gærmorgun fram á 40—50 millj-
ónir króna til þessa verkefnis, en
um kvöldmatarleytið var sú upp-
hæð, sem ríkisstjórnin taldi sig
geta komizt af með, komin niður í
20 milljónir króna.
Næsti fundur iðnaðarnefndar
neðri deildar Alþingis er á sunnu-
dag kl. 17 og var reiknað með í
gær að þar yrði reynt að ganga frá
málamiðlunartillögu.
Kuldakastið tefur
laufgun trjánna
— Þessi kuldi virkar náttúrlega
sem hcmill á þroskann, því víða er
farið að bruma á þeim runnum, sem
eru fljótir á sér, en ég held ekki að
nein hætta sé á ferðum fyrir gróður-
inn, sagði Hafliði Jónsson, garð-
yrkjustjóri Reykjavíkurborgar, er
Mbl. spurði hann hvort kuldakastið
um þossar mundir myndi hafa áhrif
á gróður.
— Ég hef oft séð það svartara
en þetta og nú stendur yfir þetta
venjubundna hret. Það tefur
eitthvað fyrir laufgun og grænk-
un, en ég held að áhrif kuldans
verði vart meiri en það. Ef fólk vill
huga að páskaliljum er kannski
rétt að hlífa þeim með einhverjum
hætti, en ég held að ekkert sé að
óttast, sagði Hafliði Jónsson að
lokunt.
LESBOK Morgunblaðsins fylgir
blaðinu ekki í dag, laugardaginn
I. maí. Lesbókin kemur næst út
laugardaginn 8. maí. Morgun-
blaðið komur ekki út á morgun,
sunnudag. Blaðið kemur næst út
á þriðjudag.
Stjórnarfrumvarp um kísilmálmverksmiðju á Reyðarfirði:
Stjórnarliði vill frávísun og
að málið sé tekið af Hjörleifi