Morgunblaðið - 13.05.1982, Side 1
56 SÍÐUR MEÐ MYNDASÖGUBLAÐI
102. tbl. 69. árg.
FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Pólskir
bændur
minnast
afmælis
„Sveita-
samstöðu“
Varsjá, 12. mai. AP.
I>ÚSUNDIR pólskra bænda söfnuó-
ust í dag saman i Varsjá og hlýddu á
messu til að minnast þess að nú er
ár liðið frá því þeir stofnuðu cigin
verkalýðsfélag, „Sveitasamstöðu“.
Hundruð lögrcglumanna voru á
verði í Varsjá á meðan á messunni
stóð, en ekki kom til neinna
árekstra.
Fimm mánuðir eru nú liðnir frá
því að herlög voru sett í Póllandi
og var mikil spenna í Varsjá í dag
áður en messa bændanna hófst.
Leiðtogar Samstöðu, sem nú fara
margir huldu höfði, hafa hvatt til
þess að félagar í Samstöðu leggi
niður vinnu í 15 mínútur á morg-
un, fimmtudag.
Rakowski aðstoðarforsætisráð-
herra Póllands hefur ekki vísað á
bug tillögum um að fulltrúar vest-
rænna verkalýðsfélaga komi til
Póllands og geri tillögur um skip-
an mála þar eftir að herlög verða
numin úr gildi. Rakowski er nú
staddur í Vínarborg en Bruno
Kreisky kanzlari bar fram þessa
tillögu í síðasta mánuði. Rak-
owski sagðist mundu koma hug-
myndinni á framfæri við Jaruz-
elski hershöfðingja og aðra leið-
toga í Póllandi.
Talsmaður Kreiskys sagði í dag,
að Rakowski hefði gert sér ferð til
Austurríkis til þess eingöngu að
ræða við Kreisky um þessa til-
lögu.
Tekur Chernenko
við af Suslov?
Moskvu, 12. maí. Al*.
KAUÐA stjarnan, málgagn sov-
ézka hersins, birtir í dag flenni-
stóra mynd af Konstantin Chern-
enko yfir þvera forsiðuna, þar sem
hann flytur ræðu fyrir hönd
Brezhnevs forseta á herforingja-
ráðstefnu. Vestrænir stjórnarer-
indrekar í Moskvu taka þetta til
marks um að ráðamenn í Moskvu
séu að búa i haginn fyrir ('hern-
enko til að taka við hlutverki Kusl-
ovs, sem helzti hugmyndafræðing-
ur flokksins. Suslov lézt í janúar
sl.
„Biðjist fyrir,
biðjist fyrir“
- sagði páfi við komuna til Fatima
Lissahon, 12. mái. AIV
JÓHANNES Páll páfi II baðst í kvöld fyrir með þúsundum pílagrima í
Katima í Portúgal. Páfi sagði mannfjöldanum, sem var þar samankominn,
að það hafi verið hans fyrsta ósk, eftir að honum var sýnt banatilræði fyrir
ári, að koma til Fatima og þakka Mariu guðsmóður fyrir að hafa haldið
yfir sér verndarhendi.
Öryggisverðir fjarlægðu ungan spænskan prest, sem lét ófriðlega og
hrópaði ókvæðisorð gegn páfa. Maðurinn hafði hníf innan klæða og
hafði reynt að þröngva sér nálægt páfa, sem þó varð hans ekki var.
Sjá „Flytur þakkargjöf fyrir lífgjöfina i Fatima" á bls. 22.
Eanes forseti Portúgals tók á móti Jóhannesi Páli II páfa við komuna til
Portúgals. Á myndinni sést páfi veifa mannfjölda á flugvellinum.
(Símamynd \l*)
Hollenzka
stjórnin fallin
llaa^. 12. maí. Al’.
ANDRIES van Agt forsætisráð-
herra Hollands baðst i dag lausn-
ar fyrir ríkisstjórn sína, en hún
hefur verið við völd í átta mánuði.
Að stjórninni hafa staðið mið-
flokkar og vinstri flokkar og hef-
ur verið mikill ágreiningur milli
flokkanna um það, hvar niður-
skurður ríkisútgjalda eigi helzt að
koma niður. Allt er nú i óvissu um
stjórnmálaþróunina í Hollandi á
næstunni.
Brezkir hermenn ganga um borð i skemmtiferðaskipið víðfræga „Queen Elizabeth 2.“, sem lagði af stað i gær áleiðis til Falklandseyja-svæðisins með 3000
manna liðsauka við það herlið Breta sem þar er fyrir. símamvnd AP.
Stríðið við Falklandseyjar:
Tvær argentínskar or-
ustuþotur skotnar niður
Aukin bjartsýni í sáttaviðræðunum í New York
London, New Vork, Buenos Aires, 12. maí. AP.
BKESKUR tundurspillir skaut í dag niður tvær argentínskar orustuþotur
skammt undan ströndum Falklandseyja, að því er talsmaður brezka varnar-
málaráðuneytisins greindi frá. I'riðja þotan komst undan, en talið er að orustu-
þoturnar hafi verið að fylgja flutningaflugvél af Herkúles gerð til eyjanna, þar
sem hún hafi átt að kasta niður birgðum.
Areiðanlegar heimildir herma að
tundurspillirinn hafi beitt eldflaug-
um af gerðinni „Sæúlfur" og mun
þetta í fyrsta sinn sem slíkar eld-
flaugar granda flugvélum. Að sögn
Breta gerðu þoturnar árás á tund-
urspillinn innan 200 mílna mark-
anna við eyjarnar en tókst ekki að
hæfa skipið.
Ein brezk þyrla af gerðinni Sea
King fórst í dag, en fjögurra manna
áhöfn hennar var bjargað. Brezka
varnarmálaráðuneytið segir að hér
hafi verið um slys að ræða og hafi
þyrlan ekki orðið fyrir árás.
Javier Perez de Cuellar, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, lét í dag ljós nokkra bjart-
sýni um að takast megi að finna
friðsamlega lausn á Falklandseyja-
deilunni. Sagðist hann vonast til að
deiluaðilar gætu hafið beinar við-
ræður sín í milli fyrir vikulokin.
Francis Pym, utanríkisráðherra
Breta, varaði í kvöld við of mikilli
bjartsýni, en sagði að nokkur atriði
hefðu komið fram í sáttaumleitun-
um de Cuellars, sem gæfu nokkra
von um árangur.
Veður er nú sagt hið versta við
Falklandseyjar, þoka og mikill sjór.
Talsmaður varnarmálaráðuneytis-
ins í London sagði þó í dag, að flota-
deild Breta fylgdist eftir sem áður
náið með hernaðarsvæðinu „við og
milli eyjanna" og vissi nú hvar „öll
helztu“ skip argentínska flotans
væru niður komin.
Heimildir herma þó að Bretar
hafi verulegar áhyggjur af því hvar
þrír kafbátar Argentínumanna séu
staddir, en um þá hefur ekkert vitn-
ast. Er jafnvel talið að kafbátunum
sé ætlað að ráðast á birgða-og liðs-
flutningaskip Breta á siglingarleið-
inni frá Ascension-eyju, en á því
svæði geta brezku skipin litlum
vörnum við komið.
Brezka skemmtiferðaskipið
„Queen Elizabeth 2.“, sem tekið hef-
ur verið leigunámi, lét í dag úr höfn
í Southampton með þrjú þúsund
menn úr úrvalssveitum brezka
hersins innan borðs. Skipinu hefur
verið nokkuð breytt og þar sem áð-
ur voru sundlaugar hefur nú verið
komið fyrir lendingarpöllum fyrir
þyrlur. Ráðgert er að þessi liðsauki
verði notaður til að styrkja sveitir
fallhlífarhermanna og landgöngu-
liða sem þegar eru komnar á Falk-
landseyjasvæðið.
Heimildir í varnarmálaráðuneyti
Breta sögðu í dag, að brezka stjórn-
in hefði ekki útilokað möguleikann
á vopnaðri innrás á Falklandseyjar.
þrátt fyrir að eitthvað hefði miðað í
samningaviðræðunum í New York,
enda hefði Woodward flotaforingi,
yfirmaður flotans við eyjarnar, nú
allt það lið sem hann þyrfti til að
ráðast til atlögu.
Tilkynnt var í London í kvöld, að
189 argentínskir fangar sem teknir
voru höndum, í árás Breta á Suð-
ur-Georgíu, yrðu sendir til Uruguay
frá Ascension-eyju. Stjórn Uruguay
mun sjá um að koma þeim á ný
heim til Argentínu. Frakkar og Sví-
ar hafa þó óskað eftir því að einum
mannanna verði haldið eftir, en
hann hefur verið sakaður um
hryðjuverk á frönskum og sænskum
borgurum í Argentínu.