Morgunblaðið - 13.05.1982, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MAÍ1982
Launamálaráð ríkisstarfsmanna innan BHM:
Launamunur verk- og
tæknifræðinga hjá
ríki og öðrum er 17—70%
Þróttmikið starf
íslenska Amnesty
Hrafn Bragason endurkjörinn formaður
„Launamálaráð BHM mótmælir
harðlega nýgengnum kjaradómum
um aðalkjarasamning og sérkjara-
samninga, sem fólu í sér mjög
óverulega leiðréttingu eða almennt
um 1—2%. Minna má á að samn-
ingar þessir gilda í 2 ár og ekki er
heimilt að endurskoða sérkjara-
samninga á þeim tíma,“ segir í
xamþykkt fundar launamálaráðs
rikisstarfsmanna innan Bandalags
háskólamanna.
í samþykktinni er vitnað til um-
mæla fjármálaráðherra í blöðum
11. desember sl. Þar segir hann
m.a. að launakjör opinberra
starfsmanna fari ekki eftir stöðu
ríkissjóðs hverju sinni heldur
skuli þau fyrst og fremst vera í
samræmi við það sem gerist á hin-
um almenna vinnumarkaði og að
hliðstæðar launabreytingar eigi
sér stað hjá opinberum starfs-
mönnum. Minnt er á að í lögum
standi að kjaradómur skuli gæta
þess við úrlausnir sínar að ríkis-
starfsmenn njóti sambærilegra
kjara og þeir sem vinna hliðstæð
störf hjá öðrum. Síðan segir í
samþykkt launamálaráðsins: „Það
er viðurkennd staðreynd að opin-
berir starfsmenn innan BHM
njóta ekki sambærilegra kjara og
þeir launþegar sem vinna hliðstæð
störf á hinum almenna vinnu-
markaði... Laun háskóla-
menntaðra starfsmanna bank-
anna voru skv. könnun í desember
1981 um 33% hærri en meðallaun
ríkisstarfsmanna í BHM. í apríl
1981 voru meðallaun viðskipta-
fræðinga í einkaþjónustu 64%
hærri en laun viðskiptafræðinga
sem starfa skv. samningum BHM.
Munur á launum verkfræðinga,
arkitekta og tæknifræðinga hjá
ríki og skv. samningum á almenn-
um vinnumarkaði er nú 17—70%.
Þannig tekur fjármálaráðherra
hvorki tillit til skýrra lagaákvæða
né fyrri yfirlýsinga sinna í trausti
þess að kjaradómur feti dyggilega
þá slóð. Þá eru að lokum gagn-
rýndar aðferðir kjaradóms, sagt
að svo virðist sem dómurinn kynni
sér ekki nægilega gögn né leggi
eyru við málflutningi, félögum sé
ætlaður of skammur tími.
AÐALFUNDUR fslandsdeildar
Amnesty International var haldinn
aó Kjarvalsstöóum 28. april, og var
vel sóttur. Formaður deildarinnar,
Hrafn Bragaxon, sagói í ársskýrslu
stjórnar, að starfsemi deildarinnar
hafí verið öflug á starfsárinu. Sam-
tökin hafa verió kynnt með marg-
víslegum hætti í fjölmiðlum, og
kynningarerindi hafa verið haldin í
allmörgum félögum og framhalds-
skólum.
Opinberir fundir og fundir
virkra félaga voru nokkrir á árinu
að vanda, til dæmis í tengslum við
komu erlendra gesta. Vel heppnað
námskeið var haldið á vegum
deildarinnar með þátttöku 100
manns. Samtökunum bættust
ennfremur tugir nýrra virkra fé-
laga í febrúar, og skipuðu þeir sér
í hina ýmsu starfshópa. í skýrslu
gjaldkera deildarinnar sagði að
tvö fjáröflunarverkefni hafi verið
í gangi frá því í byrjun nóvember.
Forystumenn starfshópa fluttu
einnig skýrslu um starfsemi
þeirra. Sem dæmi um afköst má
nefna skyndiaðgerðahópinn, sem í
eru u.þ.b. 50 manns. Þar lætur
nærri að skrifað sé eitt stuðn-
ingsbréf á dag. Starfsemi utan
Reykjavíkur hefur verið aukin og
hafa hópar tekið til starfa á Akra-
nesi og í Keflavík.
Stjórn deildarinnar var endur-
kjörin, en hana skipa: Hrafn
Bragason, borgardómari, formað-
ur, sr. Bernharður Guðmundsson,
varaformaður, Þorvaldur G. Ein-
arsson, lögfræðingur, gjaldkeri,
Jóhanna Jóhannesdóttir, tækni-
fræðingur, ritari, og Anna Atla-
dóttir, læknaritari, meðstjórn-
andi. I varastjórn sitja Margrét R.
Bjarnason, fréttamaður, og Frið-
rik P. Jónsson, fréttamaður.
(FrétUtilkynning.)
Hrafn Bragason
Sextán ára japönsk skólastúlka,
óskar eftir bréfasambandi við
12—13 ára pilta. Ýms áhugamál,
svosem íþróttir og matreiðsla:
Hisami Higashi,
329 Kamishirakkawa-
machi 2 chome,
Omuta City,
Fukuoka,
837 JAPAN
Sextán ára japönsk skólastúlka
með áhuga á popptónlist og íþrótt-
um:
Naofumi Ide,
1—5—5 Kunikobo,
Fuji City,
Shizuoka,
417 JAPAN
Nítján ára japönsk stúlka með
margvísleg áhugamál:
Hiromi Nishimura,
49 Tera-machi Nozato,
Himeji City,
Hyogo,
670 JAPAN
Tvítug japönsk stúlka, hefur
áhuga á íþróttum, bókalestri,
blómum, dýrum og frímerkjasöfn-
un: Kumiko Shibuya,
64—11 Oguchi,
Kitaura,
Kogota,
Toda,
Miyagi,
987 JAPAN
Geturdu ímyndað
þérmc»giin
ánM
Þá geturðu eins vel
ímyndað þér allan gang
heimsmálanna eins og
þau leggjasig t.d.ástandið
í Póllandi,síðustu fréttir
af átökum ráðamanna í
austri og vestri um eldflaugar í Evrópu,
stöðuna í olíulöndunum í Mið-Asíu, mis-
réttið í Afríku o.s.frv.
fmyndaðu þér líka hvað er að gerast
heima fyrir, hvenær sláum við næsta verð-
bólgumet, hver er staða frystiiðnaðarins,
hvað kostar ein pylsa með öllu eftir síðustu
hækkun, hvað er að gerast að tjaldabaki í
stjórnmálunum.
Svo skaltu ímynda
þér eitthvað skemmti-
legt: veistu t.d. hvaða
nýjustu kvikmyndir er
verið að sýna, hvaða
sýningar og tónleikar eru væntanleg,
hvaða íþróttaafrek voru unnin í gærkvöldi,
hvernig stjörnuspáin þín er í dag, hvað allt
forvitnilega fólkið er að aðhafast....?
Geturðu ímyndað þér morgun eða
jafnvel heilan dag án Moggans?
Óskemmtileg tilhugsun, ekki satt?
jc5Þ a.
. nV*
Meira en þú gelurimyndað þér!