Morgunblaðið - 13.05.1982, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MAÍ1982
Kópavogur:
„Leynimelur 13M
GAMANLEIKURINN „Leynimel-
ur 13“ eftir Þrídrang í nýrri leik-
gerð Guðrúnar Ásmundsdóttur
hefur legið niðri um nokkurt
aftur á fjalirnar
skeið af óviðráðanlegum ástæð-
um.
Er nú áætlað að sýna leikinn
að nýju, og verða næstu sýn-
ingar fimmtudaginn 13. maí og
laugardaginn 15. maí nk. kl.
20.30, en sú sýning verður í
tengslum við ársþing Bandalags
íslenskra leikfélaga, sem haldið
verður í Kópavogi 14.—16. maí
nk.
Með helstu hlutverk fara Sig-
urður Grétar Guðmundsson,
Einar Guðmundsson, Helga
Harðardóttir, Sigurður Jóhann-
esson, Sigríður Eyþórsdóttir og
Sólrún Yngvadóttir. Leikstjóri
er Guðrún Ásmundsdóttir,
söngtexta í leiknum samdi Jón
Hjartarson og annast Magnús
Pétursson undirleik.
Kosið í Frama
TVEIR listar eru í kjöri í kosn-
ingum til stjórnar og trúnaðar-
mannaráðs Bifreiðastjórafélags-
ins Frama í Reykjavík. Síðari
dagur kosninganna er í dag milli
klukkan 13 og 21 í skrifstofu fé-
lagsins við Fellsmúla. Síðast var
kosið í stjórn félagsins 1978.
A-listi er borinn fram af
stjórn og trúnaðarmannaráði
og í aðalstjórn er stillt upp Úlfi
Markússyni, formanni, Guð-
mundi Valdimarssyni, Ingi-
mundi Ingimundarsyni, Jó-
hannesi Guðmundssyni og
Ólafi Sveinssyni.
B-listi er borinn fram af
Styrmi Þorgeirssyni og fleir-
um. Formannsefni er Ingólfur
M. Ingóifsson, en í aðalstjórn
er enn stillt upp Agli Hjartar-
syni, Kristjáni Guðmundssyni,
Sveini Aðalsteinssyni og Óla
Ómari Ólafssyni.
Leiðrétting
í frétt Mbl. í gær um útkomu
bókarinnar „Helgi skoðar heim-
inn“ í Danmörku segir að höfund-
ur sé Njörður P. Njarðvík. Hið
rétta er, að Halldór Pétursson
teiknaði myndirnar í bókinni, en
fékk síðan Njörð til að skrifa text-
ann.
Almennir stjórn-
málafundir á
Austurlandi
Sjálfstæðismenn halda al-
menna stjórnmálafundi víðs veg-
ar um Austurland á næstu dög-
um, en að sögn Sverris Her-
mannssonar, alþingismanns,
verður fyrsti fundurinn í kvöld,
að Hótel Höfn, Höfn, Hornafirði
og hefst hann klukkan 21.00.
Síðan verður farið á hvern
fjörðinn af öðrum og upp á
Hérað á næstu dögum. Á fund-
ina munu mæta alþingismenn-
irnir Egill Jónsson, Friðrik
Sophusson, Pétur Sigurðsson
og Sverrir Hermannsson.
Séra Gunnar Gíslason
Glaumbæjar-
prestakall brátt
laust til umsóknar
SÉRA Gunnar Gíslason, prófastur í
Glaumbæ í Skagafirði, hefur fengið
lausn frá embætti frá 30. júni nk. og
hefur þá þjónað því prestakalli í
tæplega 40 ár. Síðustu fimm árin
hefur hann verið prófastur Skagfirð-
inga, en þingmaður þeirra og reynd-
ar Norðurlandskjördæmis vestra var
sr. Gunnar í nær tvo áratugi.
Glaumbæjarprestakall verður
auglýst laust til umsóknar innan
tíðar, en umsóknarfrestur um tvö
prestsembætti stendur nú yfir.
Eru það Bjarnarnesprestakall í
Skaftafellsprófastsdæmi og er
umsóknarfrestur til 10. júní og
embætti farprests og lýkur um-
sóknarfresti nú um helgina eða 15.
maí.
1
kvöld
Dansar
frá Spáni
Spænsku flam-
enco-dansararn-
ir Galon og Fer-
mandez dansa
hjá okkur í
kvöld og Bermu-
dez leikur af
mikilli snilld á
gítar gullfallega
spænska tónlist.
Hásetar
athugið
Guðmundur
Rúnar Lúð-
víksson verður
gestur okkar í
kvöld og flytur
lög af plötu
sinni „Vinna og
ráðningar".
Guðmundur sló
sannarlega í
gegn um síðustu
helgi og er boð-
inn velkominn
aftur.
Frumsýning
Kl. 21.30 kemur
Veronica fram
j fyrsta sinn á
Islandi. Þessi
sönghópur er
nýkominn úr
sigurför til
Japan þar sem
þau komu fram
m.a. í sjónvarpi
og gefin var út
með þeim LP-
plata.
Veronica hafa
átt lög í efstu
sætum vin-
sældaiista í
Evrópu, Japan
og S-Ameríku.
Þeir, sem
semja flest lög
Veronica
sömdu m.a.
lagið „Sun of
Jamaica" fyrir
Boney M, það
gefur einhverja
hugmynd um
hverskonar
tónlist er á
ferðinni,
þ.e.a.s.
skemmtileg og
létt, frá-
bærlega vel
flutt.
Vegna fjölda áskorana
Ragnar
Jörundsson
hljómlistar-
maöur í Lexía
kemur á staö-
inn og flytur
lög af hinni
nýju plötu
þeirra félaga.
Boróapantanir í síma 77500.
Tvennar prestskosn-
ingar á sunnudaginn
SUNNUDAGINN 16. maí fara fram tvennar prestskosningar; í Árnespresta-
kalli á Ströndum, en þar hefur orðið að fresta kosningum vegna veðurs.
Umsækjandi er einn: sr. Einar Jónsson í Söðulsholti. Einnig verður kosið í
Mosfellsprestakalli í Árnesprófastsdæmi. Þar eru umsækjendur tveir, þeir
séra Hörður Þ. Ásbjörnsson og Rúnar Þór Egilsson guðfræðingur.
Á annan í hvítasunnu verður
síðan kosið í Staðarprestakalli í
Isafjarðarprófastsdæmi. Þar er
einn umsækjandi, séra Kristinn
Ágúst Friðfinnsson settur prestur
þar.
Síðar verður kosið á Möðruvöll-
um í Hörgárdal, en þar sækir um
Geimstríð í
Austurbæjarblói
Austurbæjarbíó hefur byrjað
sýningar á „geimstriðsmynd" frá
Warner Bros, sem heitir Stríð
handan stjarna.
Myndin fjallar um árás her-
skás einræðisherra á hendur
friðsemdarfólkinu Akir og segir
í kynningu kvikmyndahússins,
að sú viðureign sé „tröllslegur
hildarleikur, sem lýkur með
mjög óvæntum hætti".
Meðal leikara í myndinni eru
Richard Thomas, Robert
Vaughn, John Saxon og George
Peppard.
séra Pétur Þórarinsson á Hálsi.
Ennfremur verður kosið til Mel-
staðar í Húnavatnsprófastsdæmi.
Umsækjandi þar er settur far-
prestur, séra Guðni Þór Ólafsson
sem nú þjónar í Stykkishólmi í
leyfi sóknarprestsins þar, séra
Gísla Kolbeins.
JC í Kópavogi:
Framboðsfundur I
Víghólaskóla í kvöld
JC í Kópavogi gengst fyrir fram-
boðskynningu i Víghólaskóla í kvöld,
fimmtudagskvöld, kl. 20.30, sam-
kvæmt upplýsingum sem Morgun-
blaðið fékk hjá Heimi Bergssyni.
Á fundinn mæta fulltrúar allra
flokka sem bjóða fram í Kópavogi,
og bjóst Heimir við að tveir efstu
menn hvers framboðslista mættu.
Efstu menn á lista Sjálfstæðis-
flokksins eru þeir Richard Björg-
vinsson og Bragi Mikaelsson, á lista
Framsóknarflokksins Skúli Sigur-
grímsson og Ragnar Snorri Magn-
ússon, á lista Alþýðuflokksins Guð-
mundur Oddsson og Rannveig Guð-
mundsdóttir og á lista Alþýðu-
bandalagsins Björn Ólafsson og
Heiðrún Sverrisdóttir.
Hver frambjóðandi talar í 7 mín-
útur og dregið verður um röð
þeirra. Að framsöguerindum lokn-
um verða fyrirspurnir. Fundar-
stjóri verður Reynir Þorgrímsson.
Ur fórum borgarstjórnar
1978—1982:
Glundroði
í felum
Vinstri menn höfðu um það mörg
og falleg orð 1978, að þeir ætluðu aö
koma með „nýtt andrúmsloft" og
„ferskar hugmyndir", í borgarstjórn
Reykjavíkur, ef þeir næðu þar völd-
um. í opnuviðtali í Þjóðviljanum
fyrir kosningarnar 1978 lýsti Guðrún
Helgadóttir fundum í borgarstjórn,
sem hún kallaði
„draugslega samkomu þar sem
borgarfulltrúar halda einræður i
stað þess að tala saman eins og
fólk.“ Síðan sagði Guðrún: „Enda
sést þar aldrei nokkur maður á
áheyrendapöllunum. Reykviking-
um finnst þeir ekkert erindi eiga á
fundi borgarstjórnar."
Svo einkennilega hefur til tek-
izt, að aðsókn að borgarstjórnar-
fundum hefur ekkert aukizt við
komu Guðrúnar Helgadóttur í
borgarstjórn. Ekki verður heldur
séð, að ræðu- og fundaformið hafi
mikið breytzt undir forsetastjórn
SiguHóns Péturssonar. „Einræð-
ur“ Oddu Báru hafa verið með
sama hætti og sl. tíu eða tuttugu
ár og ekki hefur orðið breyting á
hefðbundnum ræðum Kristjáns
Benediktssonar.
Viss eftirsjá er þó að því, hve
fáir Reykvíkingar hafa verið
viðstaddir til að hlýða á sumar yf-
irlýsingar vinstri manna í borgar-
stjórn. Sjón er sögu ríkari og víst
er, að fáir hefðu gleymt Guörúnu
Helgadóttur í ræðustól, þegar hún
var að ræða skrefatalninguna
frægu og sagði, að fólkið í Reykja-
vík talaði of mikið í síma og að
einkasímanotkun í Reykjavík væri
óhóflega mikil. V
Rétt er í þessu sambatldi að
rifja upp tillögu, sem Alþýðu-
bandalagið flutti í borgarstjórn,
rétt áður en það komst í meiri-
hluta þar sem m.a. stóð:
„Fundi borgarstjórnar skal ávallt
auglýsa rækilega með minnst
tveggja daga fyrirvara í fjölmiðl-
um, þar með taldir ríkisfjölmiðlar.
Almenningi skal gefinn kostur á
áskrift að fundargerðum nefnda
og ráða borgarinnar."
Hvernig skyldi standa á því, að
vinstri menn hafa gjörsamlega
misst áhugann á því að kynna
gerðir borgarstjórnar, eftir að þeir
komust þar í meirihluta? Eða
kannast nokkur við auglýsingar í
fjölmiðlum um borgarstjórnar-
fundi? Og hvað skyldu vera marg-
ir áskrifendur að fundargerðum
félagsmálaráðs borgarinnar, svo
dæmi sé nefnt.
Því var lengi spáð, að stjórn
margra vinstri flokka í Reykjavík
myndi leiða af sér glundroða í
stjórn borgarinnar. Hann hefur
auðvitað komið í Ijós, en þó ekki
allur. Það skyldi þó aldrei vera, að
áhugaleysi vinstri manna á því að
kynna fundi sína og fundargerðir
stafaði af því, að með því kæmi
allur glundroðinn fram í dagsljós-
ið.