Morgunblaðið - 14.05.1982, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. MAÍ 1982
11
„Það má ekki jafna
Gróttuhús við jörðu“
ÞETI'A er vitavardahúsið í Gróttu,
sem skemmdarvargar mölvuðu allar
rúðurnar í um daginn og fóru inn til
aö brjóta þar og bramla. Húsið er í
umsjá vita- og hafnarmálastofnunar-
innar, sem þegar lét setja hlera fyrir
brotnu gluggana. A myndinni er
Guðjón Jónatansson, starfsmaður
Seltjarnarnesbæjar. Hann er einn
þeirra á Nesinu, sem óttast að verði
þetta gamla vitavarðahús í Gróttu
áframhaldandi vettvangur skemmd-
arverkamanna, geti svo farið að ör-
lög hússins verði hin sömu og gömlu
húsanna i Engey hér á árunum.
— Við sjáum það, sagði Guðjón,
— að Engey hefur ekki borið sitt
barr vegna þess hve kolótt hún er
eftir að húsin voru brennd. Ég er
viss um að fólki hér á Seltjarnar-
nesi og reyndar þeim sem til
þekkja myndi þykja sjónarsviptir
ef þetta gamla hús yrði jafnað við
jörðu. — Slíkt má ekki ske. Já, þá
yrði nú Gróttutangi lágkúrulegur,
jafnvel hinn reisulegi Gróttuviti
getur ekki bætt úr því. Við verðum
að vona að þetta vitavarðahús og
reyndar önnur hús í Gróttu fái að
vera í friði fyrir rustamennum.
Húsið er í senn virðingarvottur
við íslenska vitaverði, og þakklæt-
isvottur fyrir mikilvæg störf
þeirra í þágu lands og þjóðar fyrr
og síðar. Þess má að lokum geta að
Gróttutangi er friðlýst landsvæði.
Frá víðavangshlaupi Egilsstaðaskóla.
Egilsstaðir:
Fráir á fæti
Kf(ilN8(öAum, 23. apríl.
ÞAÐ VAR heldur betur uppi fótur og
fit við grunnskólann hér nú á dögun-
um er árlegt víðavangshlaup skólans
fór fram.
Víðavangshlaup hefur verið
fastur liður í skólahaldi grunn-
skólans hér síðastliðin 10 ár. Auk
þess að vera uppákoma og
skemmtun hefur víðavangshlaup-
ið verið úrtökuhlaup til að velja
keppendur fyrir skólann til þátt-
töku í víðavangshlaupi grunnskóla
á Austurlandi er ÚIA hefur efnt
til árlega og er þá keppt um veg-
legan farandbikar.
I gær, sumardaginn fyrsta, var
skólahlaup Úí A síðan haldið og að
þessu sinni á Stöðvarfirði og tóku
hlaupagikkir Egilsstaðaskóla vit-
anlega þátt í því. Enda þótt þeir
virtust fráir á fæti á heimavelli
urðu þeir þó að sætta sig við 3.
sæti í skólakeppninni. Efstir að
stigum urðu heimamenn, Stöðv-
firðingar, en Fáskrúðsfirðingar
urðu aðrir í stigaröðinni.
Ólafur
Þjónusta og stuðningur:
Hver vill gróður-
mold í garðinn sinn?
LIONS-KLÚBBURINN Muninn efn-
ir til árlegrar sölu sinnar á valinni
gróðurmold (úr Fossvogi og Sunda-
höfn) um helgina, laugardag, 15.
maí, og sunnudag, 16. raaí. Moldinni
verður ekið um allt höfuðborgar-
svæðið, frá Mosfellssveit til Hafnar-
fjarðar.
Allur ágóði rennur til hjúkrun-
arheimilis aldraðra í Kópavogi, en
þar er nú unnið að lokaáfanga.
Tekið verður á móti pöntunum í
síma: 42058, 17118 og 44731.
(FrélUtilkynniRg)
Er skrefagjaldaafslátt-
ur stjórnmálaflokkanna
löggiltur þjófnaður?
Eftir Leif
Sveinsson
lögfrœðing
í ágætri grein í Dagblaðinu &
Vísi 10. maí sl. ritar Arinbjörn
Kolbeinsson læknir um „Síma-
skref og kosningaþref". Þar leggur
hann til, að flokkarnir falli frá
85% afslættinum á skrefagjald-
inu. Gott væri að heyra frá rit-
stjórum Dagblaðsins & Vísis,
hvort þeir fylgi Arinbirni að mál-
um. Blaðið er jú frjálst og óháð
öllum stjórnmálaflokkum. Arvak-
ur hf., útgáfufélag Morgunblaðs-
ins hefur nýlega gengið frá sam-
þykktum í samræmi við nýju
hlutafélagalögin. Þar segir í grein
1.03.: „Tilgangur félagsins er að
styðja frjálst viðskipalíf og efla
heilbrigðan hugsunarhátt í öllum
þjóðfélagsmálum, og yfir höfuð
beita sér fyrir hverju því, er miðar
til sannra framfara í hvívetna ...“
Þegar þessi grein er höfð í huga,
er það furðulegt, að ritstjórar
Morgunblaðsins hafi ekki séð
ástæðu til þess að víta hinn lög-
gilta þjófnað af almannafé, sem
framkvæmdastjórar stjórnmála-
flokkanna börðu gegn um ráðu-
neyti Steingríms Hermannssonar.
Leifur Sveinsson
Að hann skuli hafa gefið út reglu-
gerðarbreytinguna undrar engan,
því alkunna er hið gamla slagorð
Framsóknarflokksins: „Við höfum
aldrei brugðist röngum málstað."
Ég starfaði við kosningar hjá
Fulltrúaráði Sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavík í aldarfjórðung. Sím-
inn var óspart notaður á kosn-
ingaskrifstofunum.
Ég fullyrði, að notkun hans var
neikvæð fyrir flokkinn. Kjósend-
urnir urðu iðulega móðgaðir, þeg-
ar verið var að stugga við þeim
snemma á kjördegi og spyrja þá,
hvort þeir ætluðu ekki að fara að
skila sér á kjörstað. Siðustu
stundir kjördagsins voru svo
venjulega notaðar til að hringja í
óvissu kjósendurna, oft með þeim
árangri, að andstæðingar, sem
áformað höfðu að sitja heima; þeir
hröktust á kjörstað undan ofur-
valdi símans. Eini stjórnmála-
flokkurinn, sem unnið hefur um-
talsverðan sigur á síðustu áratug-
um, er Alþýðuflokkurinn, sem
vann stórsigur 1978, enda átti
hann hvorki dagblað né síma, svo
orð væri á gerandi.
Kjósendur eru hættir að láta
teyma sig á kjörstað og öll síma-
nauðgun er þeim mjög á móti
skapi. — Þeim mun færri símar,
þeim mun meira fylgi.
Við sem fylgjum Sjálfstæðis-
flokknum að málum getum ekki
talið það til heilbrigðs hugsunar-
háttar að skammta sér 85% af-
slátt af skrefagjaldi. Flokksfor-
ystan verður að endurskoða af-
stöðu sína í þessu máli þegar í
stað, ef hún ætlast til þess, að
kjósendur flokksins mæti á kjör-
stað 22. maí nk.
Reykjavík, 13. maí 1982.
D
Q
<
Z
í-
<
b,
f-
05
O
o,
co
n
05
D
«
<
f-
o
oL_
1£
Frakkar og utanyfirjakkar
í úrvali - er það ekki málið?
f o . ~ w v 5 v LAUGAVEGI47 SlMI 17575 ZL
h n g v n 1'