Morgunblaðið - 14.05.1982, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. MAÍ1982
Stefna Sjálfstæðisflokks-
ins í skipulagsmálum
Á kjörtímabilinu 1970 til 1974 unnu sjálfstæðismenn að því í borgarstjórn
Reykjavikur að breyta Austurstraeti í göngueötu. Þessi mynd er tekin eftir að
tilraunir hófust vegna þeirrar ákvörðunar. I kjölfar hennar hefur yfirbragð
miðbaejarins siðan breyst. Nú vilja sjálfstæðismenn, að hraðað verði fram-
kvaemd og úrvinnslu þeirrar verðlaunasamkeppni, sem ákveðin hefur verið
um miðbaejarkvosina, þannig að þar geti hafist nauðsynleg uppbygging.
eftir Birgi Isl.
Gunnarsson.
í fyrri grein um skipulagsmál
hér í Mbl. voru raktir tveir fyrstu
kaflar í ítarlegri stefnuskrá, sem
Sjálfstæðisflokkurinn hefur sam-
þykkt um skipulagsmál. Þar var
fjallað um meginmarkmið flokks-
ins í skipulagsmálum, þar sem því
var lýst að Reykjavík hefði for-
ystuhlutverki að gegna sem höfuð-
borg landsins. Þar væri miðstöð
stjórnsýslu, atvinnulífs, menning-
ar, viðskipta- og félagslífs í land-
inu. Reykjavík þyrfti því að vera
lifandi og virk miðstöð fjölþættra
athafna og mannlífs. Síðan voru
tilgreind þau meginmarkmið, sem
hafa þyrfti að leiðarljósi í allri
skipulagsvinnu höfuðborgarinnar.
Þá var rifjað upp það sem helst
hefur verið deilt um í skipulags^
málum á þessu kjörtímabili. I
þriðja kafla stefnuskrárinnar er
fjallað um meginstefnu Sjálfstæð-
isflokksins og verður helsta efni
þeirrar stefnu rakið í þessari
grein.
Úlfarsfellssvæöið
Úlfarfellssvæðið verði næsta
byggingarsvæði í samræmi við
hugmynd aðalskipulags frá 1977
með þeim breytingum, sem leiða
af nýjum aðstæðum og breyttum
forsendum. Einnig verði horfið frá
hugmyndum um að Rauðavatns-
svæðið verði næsta byggingar-
svæði. Úlfarsfellssvæðið er mun
ódýrara í uppbyggingu og rekstri.
Veðurfar er þar heppilegra og
náttúrufar betra. Auk þess liggur
svæðið betur við núverandi byggð.
Á þessu svæði er eini raunhæfi
möguleikinn til að hægt sé að hafa
tilbúin svæði til byggingar í beinu
framhaldi af þeim svæðum, sem
nú eru í undirbúningi. Flýta þarf
samningum um Keldnaland. Jafn-
framt er nauðsynlegt að undirbúa
eignarnám á þeim svæðum, sem
borgin telur sér nauðsynleg til
bygginga, ef ekki næst samkomu-
lag við eigendur. Hér er mjög
glöggiega mörkuð sú stefna að
horfið verði frá þeim samþykkt-
um, sem vinstri meirihlutinn hef-
ur beitt sér fyrir í borgarstjórn
um, hver vera skuli næstu bygg-
ingarsvæði í borginni.
Laugardalur
Laugardalur verði vettvangur
fjölþættrar tómstundaiðju fyrir
alla borgarbúa. Hverfa þarf frá
þeim hugmyndum að taka hluta
Laugardals til byggingar, en dal-
inn þarf að skipuleggja sem mið-
stöð íþrótta og útilífs eins og
fyrirhugað hefur verið ásamt með
skrúðgarði í tengslum við garðinn,
sem fyrir er í Laugardal. Laugar-
dalur er alltof dýrmætt svæði til
að hann megi skerða með íbúðar-
byggð, eins og hugur vinstri flokk-
anna stendur til.
Sogamýrarsvæðið
Á þessu kjörtímabili hefur verið
mikill ágreiningur um svæðið við
Sogamýri, sem takmarkast af
Suðurlandsbraut, Skeiðarvogi og
Miklubraut. Sjálfstæðisflokkurinn
„Fjölga þarf íbúöum í
eldri hverfum borgar-
innar og þurfa reglur
um framkvæmd skipu-
lags aÖ örva til slíkrar
fjölgunar. Fjölga þarf
bílastæöum í eldri
hverfum meö sérstöku
átaki. Uppbygging eldri
hverfa stuðlar að því að
blása lífi í hverfin auk
þess sem þá er nýtt
margskonar aðstaða,
sem fyrir er, bæði lagnir
og leiðslur svo og stofn-
anir ...“ segir Birgir
ísl. Gunnarsson, fyrrum
borgarstjóri í Reykja-
vík, í þessari grein.
Kirgir ísl. Gunnarsson
hefur talið að varðveita eigi þetta
svæði sem útivistarsvæði og því
hafa borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins verið því mjög andvígir
að setja þar niður íbúðabyggð.
Ákvörðun um það hefur nú verið
tekin en dregist hefur að lóðaút-
hlutun fari þar fram. Ef hægt er
að snúa við eftir kosningar er
sjálfsagt að reyna að fá þessari
ákvörðun breytt. Við útfærslu
skipulagsins hefur verið skilinn
eftir sá þáttur, sem snýr að reitn-
um sem útivistarsvæði. Ef ekki er
unnt að snúa til baka með þetta
skipulag, er nauðsynlegt að leggja
áherslu á að skipulagi útivistar-
svæðisins verði lokið hið fyrsta og
að framkvæmdir við það fylgi
framkvæmdum við íbúðarbyggð-
ina.
Umferðarkerfið
Ekki hefur enn verið gerð nægj-
anleg grein fyrir því, hvernig
gatnakerfi nýrra byggðasvæða við
Rauðavatn tengist aðalgatnakerfi
höfuðborgarsvæðisins og hvaða
áhrif byggð á þessum slóðum hef-
ur á heildargatnakerfi höfuðborg-
arsvæðisins. Sennileg afleiðing
byggðar við Rauðavatn er sú, að
hin umdeilda braut niður Elliða-
árdal verði nauðsynleg gatnakerfi
borgarinnar, en skipulagsstjórn
ríkisins hefur sérstaklega bent á
það atriði. Nauðsynlegt er að um-
ferðarkerfi borgarinnar sé lagað
að nýju skipulagi jafnóðum og
teknar eru ákvarðanir um ný
byggðasvæði í borginni. Almenn-
ingsvagnakerfi þarf og ávallt að
skipuleggja sem hluta af aðal-
skipulagi. í skipulagi nýrra hverfa
þarf að sýna, hvernig viðkomandi
svæði verði þjónað af strætisvögn-
um.
Endurnýjun eldri hverfa
Skipulega þarf að byggja upp í
eldri hverfum borgarinnar með
það markmið í huga að sporna
gegn fólksflótta og auka fjöl-
breytta miðbæjarstarfsemi. Jafn-
framt þarf að gæta þess að raska
ekki svipmóti umhverfis sem rétt
er að vernda. Fjölga þarf íbúðum i
eldri hverfum borgarinnar og
þurfa reglur um framkvæmd
skipulags að örva til slíkrar fjölg-
unar. Auka þarf bílastæði í eldri
hverfum með sérstöku átaki. Upp-
bygging eldri hverfa stuðlar að því
að blása nýju lífi í hverfin auk
þess sem þá er nýtt margskonar
aðstaða, sem fyrir er, bæði lagnir
og leiðslur svo og stofnanir.
Skipulag miðbæjarins
Skipulag miðbæjarins þarf að
miða við að þar verði lifandi
miðstöð mannlífs og athafna. Þar
þróist fjölþætt viðskipti með vör-
ur og veitingar og þar verði mið-
stöð stjórnar ríkis og borgar. Á
þeirri forsendu þarf að byggja þá
verðlaunasamkeppni sem ákveðin
hefur verið um miðbæjarkvosina.
Hraða þarf framkvæmd og úr-
vinnslu þeirrar samkeppni, þannig
að á miðbæjarsvæðinu geti hafist
nauðsynleg uppbygging. Við upp-
byggingu verði þess gætt að
vernda svipmót gamla miðbæjar-
ins með því að laga nýjar bygg-
ingar að umhverfi hans. Gera þarf
sérstakt átak til að bæta úr bíla-
stæðaþörfinni í miðbænum t.d.
með byggingu sérstakra bíla-
stæðahúsa. Nauðsynlegt er að
hafa samstarf við hagsmunaaðila
á þessum svæðum.
Við endurnýjun Grjótaþorps
verði það haft að leiðarljósi að
halda heildarblæ sjálfs þorpsins
m.a. með óbreyttu gatnakerfi,
verndun ákveðinna húsa og að
nýbyggingar falli vel að umhverf-
inu. Gera þarf Grjótaþorp að lif-
andi borgarhluta, þar sem saman
fari íbúðabyggð, smágerð af at-
vinnustarfsemi, lítil veitingahús
og önnur starfsemi. Til að tryggja
framgang þessarar stefnu er
nauðsynlegt að Reykjavíkurborg
hafi áfram frumkvæði m.a. með
því að stofna sjóð, sem gæti orðið
grundvöllur endurnýjunar gam-
alla húsa svo og annarra fram^
kvæmda, sem nauðsynlegar eru. í
þessu skyni getur borgin selt hús
og lóðir, sem hún á á svæðinu og
notað andvirðið í framangreindu
skyni.
Ofskipulag
Á síðustu árum hefur það mjög
einkennt þau svæði, sem tekin
hafa verið til bygginga að þau
hafa verið ofskipulögð. Það er
skoðun okkar sjálfstæðismanna að
hverfa eigi frá þessari ofskipu-
lagningu. Nauðsynlegt er að auka
svigrúm og frelsi einstaklinga,
sem byggja yfir sig, þannig að þeir
geti ráðið sem mestu um gerð og
fyrirkomulag húsa sinna. Á þann
hátt meðal annars verði stuðlað að
fjölbreytni í gerð og mótun um-
hverfis.
Kringlumýri
Nauðsynlegt er að endurskoða
skipulag nýja miðbæjarins (fyrsta
áfanga) í Kringlumýri. Gera þarf
skipulagið einfaldara og auðveld-
ara í framkvæmd. Fjölga þarf
íbúðum á svæðinu en að öðru leyti
verði svæðið ætlað stofnunum,
verslanafyrirtækjum og ýmiss
konar þjónustustarfsemi, þar á
meðal þjónustuiðnaði.
Atvinnusvæði
Á þessu kjörtímabili hefur mikið á
það skort að nægar lóðir hafi verið
fyrir atvinnufyrirtæki í borginni.
Brýna nauðsyn ber tl að hafa jafn-
an á boðstólum lóðir fyrir at-
vinnufyrirtæki í sem flestum
greinum. Lóðir undir léttan þrifa-
legan iðnað verði í tengslum við
íbúðarhverfi eða í útjaðri þeirra,
en jafnframt verði séð fyrir svæð-
um undir þungaiðnað og orkufrek-
an iðnað, sem ekki á heima í ná-
lægð við íbúðarhverfi.
Verndun gamalla húsa
Mörkuð verði ákveðin stefna um
það hvaða hús borgin vilji vernda
í sínu rétta umhverfi svo og hvaða
hús rétt þyki að flytja í Árbæjar-
safn. Tryggt verði að eigendur
friðaðra húsa sitji við sama borð
og aðrir húseigendur. Komið verði
á fót friðunarsjóði til að auðvelda
einstaklingum og félögum kaup og
viðgerðir friðaðra húsa.
Samstarf við
nágrannasveitarfélög
Á þessu kjörtímabili fer því
fjarri að haft hafi verið nægilegt
samstarf við nágrannasveitarfé-
lögin um skipulagsmál. Skipu-
lagsstofa höfuðborgarsvæðisins
hefur að vísu tekið til starfa, en af
hálfu Reykjavíkurborgar hefur
verið mikil tregða að nota sér
þjónustu þeirrar stofnunar. Rétt
er að Skipulagsstofa höfuðborg-
arsvæðisins vinni að aðalskipulagi
ásamt undirbúningi ákveðinna
þátta skipulagsmála fyrir öll
sveitarfélögin á svæðinu. Má þar
nefna aðalumferðarkerfi, almenn-
ingsvagnakerfi svo og allar
grundvallarrannsóknir.
Hér hafa verið rakin helstu at-
riði hinnar ítarlegu stefnuskrár
Sjálfstæðisflokksins í skipulags-
málum. Sjálfstæðisflokkurinn
hefur talið nauðsynlegt nú fyrir
þessar kosningar að samþykkja
svo ítarlega stefnuskrá í þessum
mikilvæga málaflokki, þar sem
svo margt hefur farið úrskeiðis í
meðferð þessara mála á kjörtíma-
bilinu. Þess er að vænta að flokk-
urinn fái sem mestan styrk til að
framfylgja þessari ítarlegu
stefnuskrá sinni, þegar Reykvík-
ingar ganga að kjörborðinu þann
22. maí nk.
X-D DREGIÐ A MORGUN *-D
X-D
Happdrætti Sjálfstæðisflokksins.
Afgreíöslan er í Valhöll, Háaleitísbraut 1, sími 82900.
Sækjum — sendum. Geriö skil.
X-D