Morgunblaðið - 14.05.1982, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 14.05.1982, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. MAÍ1982 Samband byggingar- manna hefur ekki boðað verkfall — heldur einstök félög innan sambandsins í rréttatilkynninf'u, sem Mbl. barst í |>ær segir, að Samband bygginf>armanna hafi ekki boðað verkfall 18. maí nk. eins og fram hafí komið í fréttum heldur einstök félög innan sambandsins. í fréttatilkynningunni segir: Með samstarfsyfirlýsingu dags. 7. þ.m. gerðu eftirtalin félög byggingar- iðnaðarmanna með sér samkomulag um skipun sameiginlegrar nefndar til að ræða við vinnuveitendur um eftir- talin atriði: a) Leiðréttingu á skerðingu reikni- talna ákvæðisvinnu. b) Leiðréttingu á kaupmætti tíma- kaups. Stefnt skal að því, að kaup- máttur tímakaups verði ekki lak- ari en hann var með meðaltali á árinu 1974. c) Aukningu orlofsréttar. Stefnt skal að því að laugardagar falli út sem orlofsdagar og orlofsfé hækki sem því nemur. d) Endurskoðun núgildandi launa- flokkakerfis. Meginmarkmið I því sambandi verði aukið tillit til verkmenntunar iðnaðarmanna og reynslu þannig að aldursþrepum verði fjölgað. e) Öryggismál á vinnustöðum. í því efni skal stefnt að bættum aðbún- aði og aukinni fræðslu og tryggt verði að vinnuveitendur leggi sitt af mörkum I því efni en standi ekki gegn slíkri starfsemi. I því skyni að knýja á um leiðrétt- ingu varðandi þessi atriði og gerð nýrra kjarasamninga án frekari tafar hafa félögin komið sér saman um samræmdar verkfallsaðgerðir og er upphaf þeirra vinnustöðvun sú sem boðuð hefur verið þann 18. maí og þegar hefur verið skýrt frá í fjölmiðl- um. Félögin eru þessi: Trésmiðafélag Reykjavíkur, Múrarafélag Reykjavík- ur, Veggfóðrarafélag Reykjavíkur, Málarafélag Reykjavíkur, Sveinafé- lag pípulagningarmanna, Trésmiða- félag Akureyrar, Trésmiðafélag Akraness, Félag byggingariðnaðar- manna í Hafnarfirði, Félag bygg- ingariðnaðarmanna í Árnessýslu, Iðnsveinafélag Suðurnesja, Iðn- sveinafélag Fljótsdalshéraðs, Iðnaðarmannafélag Rangæinga, Byggingarmannafélagið Árvakur, Sveinafélag húsgagnasmiða, Sveina- félag bólstrara. Kim Larsen (fyrir miðju) ásamt hljómsveit sinni Jungle Dreams. Danski rokkarinn Kim Larsen væntanlegur DANSKA rokkstjarnan Kim Larsen er væntanleg hingað til lands á næstu dögum. Mun Larsen halda tvenna tónleika í Broadway dagana 21. og 22. þessa mánaöar, ásamt hljómsveit sinni, Jungle Dreams. Larsen þessi var um langt ára- ur vakið athygli vestanhafs und- bil höfuðpaur vinsælustu popphljómsveitar Dana, Gasol- in. Gaf hljómsveitin út 11 breiðskífur á meðan Larsen var í henni og seldust þær allar mjög vel. Hljómsveitin hætti síðan störfum fyrir réttum þremur ár- um. Larsen hóf þá sólóferil og til þessa hefur gæfan brosað við honum. Á Norðurlöndum hafa plötur hans selst í meira en 3 milljónum eintaka og hann hef- anfarið. Hann flutti til New York fyrir um ári síðan og hefur gefið út eina plötu á merki Epic, þekkts útgáfufyrirtækis. Með Larsen í Jungle Dreams eru fjór- ir velþekktir popparar. Kunnastur þeirra er vafalítið Joe Delia, sem unnið hefur mikið með fólki á borð við Janis Ian, Stevie Wonder, Pat Benatar og fleirum, Abe Speller, Richie Blackmore (ekki þó sá hinn eini sanni) og Dennis Espantman. Frá fundi KRFÍ meö kvenframbjóðendum fyrir Alþingiskosningarnar 1979. Fundurinn var fjölsóttur. framboðsfund á morgun Stjörnubío sýn- ir „Sá næsti“ tfTJÖRNUBÍÓ byrjar í dag sýningar á bandarískri kvikmynd, „Sá næsti“, meö Sean Uonnery og Corneliu Sharpe í aðalhlutverkum en leikstjóri er Richard Sarafian. Samkvæmt kynningu bíósins er hér um að ræða stórmynd um ástir, spillingu og hryðjuverk. I efnisyfirliti segir svo m.a.: „Leyniþjónustumenn austurs og vesturs eru áhyggjufullir. Grípa verður til örþrifaráða. Þrír leiðtog- ar arabaþjóða hafa gerst sekir um samsæri gegn OPEC, samtökum olíuframleiðenda í austri. Þeir hafa komið á fót 40 olíuhreinsunarstöðv- um- og hafa í hyggju að selja hrá- efnið hverjum þeim er þess þarfn- ast, utan allra samtaka og án leyfis annarra landa. Þessir þrír menn verða að hverfa, .öðrum til varnaðar." Vorkappreiðar Fáks á morgun Yorkappreiðar Fáks verða haldnar laugardaginn 15. maí að Yíðivöllum og hefjast þær kl. 14.30. Þetta verða fyrstu kappreiðar ársins og er fjöldi keppnishesta nokkuð á annað hundrað. Eins og kunnugt er verður landsmót hestamanna í sumar. Eins og ævinlega þegar stór mót eru framundan, þá er mikil eftir- vænting meðal hestamanna að fylgjast með einstökum keppnis- greinum. Reynt er að geta sér til hverjir séu líklegastir til að blanda sér í baráttuna um toppinn á landsmóti. Af skráningum er ljóst að óvenju mikið er af nýjum hestum í flestum keppnisgreinum. I hverri grein má þó þekkja nöfn margra þeirra sem helzt komu við sögu sl. sumar. Hvorki Skjóni né Fannar munu þó mæta til leiks í skeiðinu og er efalaust að úrslita þar verður beðið með mestri spennu. Til að auka á spennuna verður veðbanki Fáks starfræktur að venju. Þá verður forvitnilegt að sjá hvernig nýjum knöpum reiðir af, því með samþykkt síðasta árs- þings LH hækkuðu aldursmörk þeirra í 16 ár og eru þar með flest- ir helztu knapar kappreiðahrossa frá síðasta ári úr leik. (Krétlatilkynning) Haukur Dór á Kjarvalsstöðum Laugardaginn 8. maí opnaði Haukur Dór sýningu á teikningum og keramik á Kjarvalsstöðum. Haukur Dór hefur dvalið í Banda- ríkjunum sl. ár við nám og starf og er þessi sýning árangur þeirrar dvalar. Sýningu Hauks lýkur að kvöldi 23. maí. KRFÍ heldur Kvenréttindafélag íslands gengst fyrir framboðsfundi að Hótel Borg laugardaginn 15. maí nk. kl. 14.30 vegna borgarstjórnarkosninganna í Reykjavík 22. mai 1982. Tilgangur fundarins er að kynna þær konur sem í framboði eru og kynnast stefnumálum þeirra. Frummælendur eru: frá Al- þýðuflokki: Sjöfn Sigurbjörnsdótt- ir og Guðríður Þorsteinsdóttir, frá Alþýðubandalagi: Guðrún Ág- ústsdóttir og Álfheiður Ingadóttir, frá Framsóknarflokki: Gerður Steinþórsdóttir og Sigrún Magn- úsdóttir, frá Kvennaframboði í Rvík: Sigríður Dúna Krist- mundsdóttir og María Jóhanna Lárusdóttir, frá Sjálfstæðisflokki: Ingibjörg Rafnar og Katrín Fjeldsted. Að loknum framsöguræðum verða leyfðar fyrirspurnir og um- ræður, en í lok fundarins fær hver flokkur 3—5 mínútur til ráðstöf- unar í ræðustóli. Áætlað er að fundinum ljúki kl. 18.00. Öllum er heimill aðgangur með- an húsrúm leyfir. Fundurmeð frambjóðendum: Kirkjan í borginni Laugardaginn 15. maí gengst Keykjavíkurprófastsdæmi fyrir fundi með fulltrúum frambjóðenda við borgarstjórnarkosningarnar i vor. Munu oddvitar listanna flytja ávörp og síðan sitja fyrir svörum. Fundurinn er opinn öllum þeim, sem hafa áhuga á stöðu kirkjunnar í borginni og vilja fræðast um af- stöðu frambjóðendanna til hins kirkjulega starfs og þeirra menn- ingar- og líknarmála, sem kirkjan telur miklu skipta. Fundurinn hefst kl. 10 árdegis og verður í safnaðarheimili Bústaða- kirkju við Tunguveg og eru allir vel- komnir meðan húsrúm leyfir. Kjarvalstaðir: Yfírlitssýning á verkum Kurt Zier MYNDLISTA- og handíðaskóli íslands efnir nú til yfirlitssýningar í vestursal Kjarvalsstaða á verkum fyrrverandi skólastjóra síns, Kurt Zier, en hann vann að uppbyggingu Myndlista- og handíðaskólans frá stríðs- byrjun 1939 og fram til 1949 með Lúðvigi Guömundssyni stofnanda og fyrsta skólastjóra Handíðaskólans, eins og skólinn hét í þá daga. Það var Lúðvig, sem fékk Kurt Zier, þá landflótta undan ógnum nasismans til að taka að sér kennslu við skólann, en Zier hafði verið aðalkennari við Ecole Inter- nationale í Genf í myndlist og handíðum áður en hann kom hingað til lands. Eftir stríðið eða 1949 hvarf Zier aftur til Þýska- lands og gerðist þar skólastjóri Odenwald-skólans. Árið 1961 þegar Lúðvig Guðmundsson lét af störf- um sökum heilsubrests kom Kurt Zier aftur til landsins og tók við stjórn Myndlista- og handíðaskól- ans fyrir eindregin tilmæli Lúð- vigs. I ávarpsorðum sínum í sýn- ingarskrá segir Einar Hákonarson skólastjóri Myndlista- og handíða- skólans m.a.: „Kurt Zier var úrvals skólamaður og stjórnaði skóla sín- um af festu og ákveðni. Ég var einn af þeim lánsömu að vera und- ir handleiðslu hans fyrstu ár mín í listnámi. Ég minnist þess nú, að þeir grunnþættir, sem hann hélt að okkur þá, hafa orðið gott vega- nesti, enda hafa þeir lifað af allan tímann síðan, og eru enn grunn- þættir í kennslu skólans." Kurt Zier hélt aldrei sýningu á Islandi meðan hann var hér, þó hann hafi unnið ötullega að mynd- list samhliða skólastjórn og kennslu. Þær myndir, sem til sýnis eru á Kjarvalsstöðum eru valdar úr miklum fjölda verka er hann lét eftir sig en hann lést 1969. Vorið 1981 er ekkja Kúrt Zier, frú Lotta Zier, var hér í heimsókn fæddist hugmyndin að sýningunni. Lotta Zier verður við opnun sýn- ingarinnar á laugardaginn 15. maí kl. 16.00 að Kjarvalsstöðum, í vest- ursal, en menntamálaráðherra Ingvar Gíslason opnar sýninguna. Morgunblaðið náði tali af frú Lottu Zier á Kjarvalsstöðum í gær, en hún er líffræðingur að mennt og spurði hana fyrst hvernig henni hafi þótt að koma til íslands á þessum árum. „Ég var stórhrifin af að fara til íslands," sagði Lotta. „Ég kom hér mánuði á eftir Kurt, því ég ætlaði að læra í Englandi, en þá kom stríðið og ég fór beint til íslands. Kurt var geysilega fjölbreyttur listamaður. Hann var góður á mörgum sviðum listarinnar, og það háði honum held ég að hann gat ekki fest sig við neitt ákveðið. Hann vildi vera kennari, málari, leikari og tónlistarmaður og margt fleira. Þegar hann kom síðast til Þýskalands 1969 hafði hann ákveð- ið að vera bara málari og hann innréttaði vinnustofu, en dó svo skömmu seinna. En Kurt var mikill kennari. Og hann var stórhrifinn af íslandi. Alltaf þegar hann var í Þýskalandi sagði hann að sig langaði til ís- lands og þegar hann var á íslandi sagði hann að sig langaði til Þýskalands." — Hver er tilurð þessarar sýn- ingar? „Ég kom hingað til íslands í fyrra og hitti þá marga gamla nemendur Kurts og kennara við skólann og við töluðum um hitt og þetta og ég sagði þeim frá því að ég ætti mikið til af myndum eftir Kurt á heimili mínu í Þýskalandi og þeir báðu mig um að mega setja upp sýningu á verkum hans hér. Það var auðsótt mál. Kurt hafði ekki gaman af að halda sýningar á verkum sínum, því hann vildi alltaf gera betur og fullkomna þau. Það er líka af þeim sökum sem hann merkir svo fáar myndir sínar. Hann vildi alltaf gera betur,“ sagði Lotta Zier í lok- in. Á sýningunni eru 115 verk, mest blýantsteikningar og svartkrítar- teikningar, en einnig olíumálverk og vatnslitamyndir. Allar mynd- irnar eru í eigu Lottu Zier.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.