Morgunblaðið - 14.05.1982, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. MAÍ1982
31
íslandsmótið:
Leikið á grasi
í Reykjavík
NÚ ER ákveðið að 1. deildarleikirn-
ir tveir sem leiknir verða í Reykjavík
um helgina fari fram á grasi. A
morgun, laugardag, leika Valur og
KA kl. 14.00 á hallarflötinni svoköll-
uðu fyrir framan Laugardalshöllina.
og leikur Víkings og Fram verður
háður á sunnudag kl. 20.00 á sama
stað. Er það án efa gleðiefni að ekl i
þarf að bjóða áhorfendum og knatt-
spyrnumönnum upp á það að leika á
möl í upphafi íslandsmótsins hér í
Reykjavík. Hins vegar mun leikur
Þróttar R og Skallagríms í 2. deild
sem fram fer á mánudag verða leik-
inn á Melavellinum. — ÞR
Ósannfærandi sigur
heimsmeistaranna
Argentínsku heimsmeistararnir í
knattspyrnu sigruðu Rúmena í vin-
áttulandsleik í knattspyrnu sem
fram fór í Rosario í fyrradag. Eina
mark leiksins skoraði Ramon Diaz
snemma í síðari hálfleik. Leikur
meistaranna þótti ekki lofa góðu
fyrir komandi lokakeppni HM og
má geta þess að þeir Osvaldo Ardil-
es og Mario Kempes þóttu svo slakir
að þeir voru teknir út af til þess að
hressa upp á argentinska liðið.
Ágætur tími hjá Jóni
„ÉG ER ántegður með þennan
árangur, þetta gefur mér góðar von-
ir, þar sem ég er varla byrjaður að
skerpa mig upp fyrir keppni," sagði
Jón Diðriksson, hlaupari úr UMSB, í
spjalli við Mbl. Jón hljóp þúsund
metra hlaup á 2:22,9 minútum um
síðustu helgi á frjálsíþróttamóti í
V-Þýzkalandi. Jón á íslandsmetið í
þessari grein, 2:21,1 mínútur.
„Hraðinn var frekar litill og ég
hélt mig í öðru sæti. Tók forystu
þegar 300 metrar voru í mark, en
það dugði skammt því þrír fóru fram
úr mér á beinu brautinni." Jón varð
fjórði í hlaupinu, sigurvegari varð
Harald Hudak á 2:21,7, en hann er í
hópi 5—10 beztu 1500 metra hlaup-
ara frá upphafi. Þriðji varð Ólympíu-
verðlaunahafinn Paul Wellman á
2:22„5, en i öðru s*ti var hérinn i
hlaupinu, Schmidke að nafni.
Þorvaldur jafnar metið
WIRVALDUR Þórsson, ÍR, jafnaði
eigið íslandsmet í 110 metra grinda-
hlaupi öðru sinni, er hann hljóp á
14,4 sekúndum í Los Gatos í Kali-
forníu um síðustu helgi. Stóð Þor-
valdur sig vel á mótinu, varð í öðru
sæti, en Bandaríkjamenn eru sterkir
í grindahlaup.
Þetta er í þriðja skiptið i vor, sem
Þorvaldur hleypur á 14,4 sekúndum,
og er vart við öðru að búast en hann
fari að bæta metið. Hann hefur
hlaupið á 14,2 sek., en þá var með-
vindur of mikill.
Honved varð
Evrópumeistari
EVRÓPUKEPPNI í handknattleik
er nú lokið. í keppni meistaraliða
sigraði ungverska félagið Honved.
Liðið vann St. Gallen frá Sviss ör-
ugglega í báðum leikjunum í úrslit-
unum. Empor Rostock sigraði í bik-
arkeppni Evrópu. Liðið vann Dukla
Prag sem lék gegn Þrótti samanlagt
með einu marki eftir tvo leiki,
36—35. í IHF-keppninni sigraði
þýska liðið Gummersbach eins og
skýrt hefur verið frá.
Gólf
mottur
Höfum aftur fengiö plast-
gólfmotturnar, sem krækja má
saman í stæröinni 120x60 cm.
— Heppilegar fyrir vinnustaöi,
þar sem standa þarf viö vinnu,
einnig til notkunar í böö og
búningsklefa.
Einnig væntanleg ný tegund af
gólfmottum, í stæröinni 60x60
cm. frekar til notkunar í heima-
húsum.
Sýnishorn fyrirliggjandi.
B.Sigurðsson sf.
Skemmuvegi 12, Kóp.
Sími 77716.
Laugavegi 10
sími 27788
DAG TIL AÐ
SLÁ ÞÉR Á
PLÖTUSPILARA
FRÁ AKAI MEÐ
20% VERÐLAUNA-
AFSLÆTTI *
* Miðað við
staðgreiðslu
FARÐU EKKITÆKJAVILLT
- TRYGGÐU ÞÉR M [fil IGÆÐI