Morgunblaðið - 06.06.1982, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 1982
67
„Ég vil sérstaklega þakka fyrir að
nokkur þúsund letingja hafa verið
handtekin... og send í fangabúðir“
(Sjá: NASISTARNIR)
MENGUNMMMB——■
Illar fréttir iim
börn I n og blýiö
Tveir breskir vísindamenn, dr.
William Yule og dr. Richard
Landsdown, hafa komið fram með
nýjar sannanir fyrir því, að blý í
blóði barna hafi veruleg áhrif á
gáfnafar þeirra og alla hegðun.
Þeir halda því líka fram, að þau
hættumörk, sem opinberlega eru
viðurkennd, séu að engu hafandi
og benda á, að miklu minna blý-
magn komi niður á lestrarhæfni
barna, stafsetningargetu þeirra og
árangri í gáfnaprófum. Einnig er
blýið sett í samband við slæma
hegðun, einbeitingarskort og
ofurvirkni og jafnvel stundum
kennt um að börn sjúga á sér
þumalfingurinn og naga neglurn-
ar.
Að áliti stjórnvalda koma 10%
af blýinu í líkama manna frá
bensíninu, sem bílarnir brenna, og
þau segja líka, að engar sannanir
séu fyrir því, að blýmagn upp að
35 míkrógrömmum í desilítra
blóðs hafi hin minnstu áhrif.
Niðurstöður Yules og Lansdowns
eru hins vegar dregnar af rann-
sóknum þeirra á börnum með
13—32 míkrógrömm í desilítra,
166 börnum alls.
Á ráðstefnu þar sem þeir lækn-
arnir kynntu rannsóknir sínar
sögðu þeir, að 19% þessara barna
FÓLK, sem býr í iðnaðarborgvnum á
nordurhveli jarðar, hefur 500—1000
sinnum meira blý I blóði sínu en for-
feður þess og fýrri kynslóðir. Að þess-
ari niðurstöðu hefur Dr. Clair Patter-
son komist en hann er jarðeðlisfræð-
ingur að mennt og kennir við Tækni-
báskólann í Kaliforníu. Á ríðstefnunni
um skaðsemi blýsins í blóði manna,
sagði dr. Patterson, að það væri alveg
víst, að mjög Btið blýmagn gæti unnið
skemmdir á taugakerfi harna. Hann
sagði, að rannsóknir sínar befðu sýnt,
að nú færi árlega 100 sinnum meira
btý út í andrúmsloftið en á fyrri tíma-
bilum í jarðsögunni.
hefðu verið ofurvirk en aðeins
4,9% þeirra, sem minna blý höfðu
í blóðinu. Einnig kom í ljós, að
þessi börn voru eirðarlaus, áttu
erfitt með að taka eftir í kennslu-
stund, gjörn á að gleyma sér í
dagdraumum og gekk yfirleitt illa
í skóla.
Á þessari ráðstefnu var einnig
bandarískur prófessor, Herbert
Needleman að nafni, en hann hef-
ur staðið fyrir sams konar rann-
Hefur bíllinn áhrif á gáfnafar stór-
borgarbarnsins?
sóknum fyrir vestan. Hann sagði
frá því, að börnum sem ættu
heima í miðjum stórborgum, gengi
verr í gáfnaprófum en jafnöldrum
þeirra, sem byggju þar sem meng-
unin er minni. Það er heldur ekki
að undra ef trúa má þeirri fullyrð-
ingu ítalskra vísindamanna á
ráðstefnunni að ekki 10% heldur
30% af blýinu i blóði manna sé
komið úr bílabensíni.
— ANDREW VEITCH
KIRKJA
St Staninslaus dómkirkjan i Vilnius, höfuðborg
Litháen. Reist 1387, eytt þrisvar sinnum og sfð-
ast endurreist 1801.
Hundheiðinn
skaltu vera
Bandaríski trúboö-
inn Billy Graham fór
nýlega til Sovétríkj-
anna, og voru ekki
sparaöar frásagnir af
þeirri ferö. Hins vegar
gleymdist mörgum, aö
einmitt um það leyti
voru 10 ár liöin frá því
aö unglingur frá Lithá-
en aö nafni Romas Kal-
anta fyrirfór sór í mót-
mælaskyni viö ofsóknir
Rússa á hendur trúuö-
um í þessu Eystra-
saltsríki.
Þann 14. maí 1972
brenndi Kalanta sig til
bana á aöaltorginu í
Kaunas. Tilgangur
hans var aö beina at-
hygli manna aö þeim
ofsóknum, sem fólk af
rómverk-kaþólskri trú
sem og þjóðernissinn-
aö fólk er beitt, en þorri
íbúa Litháen játar fyrr-
nefnd trúarbrögö. Deil-
ur ríkis og kirkju á
þessum slóöum standa
enn, eins og fram kom í
nýlegri útgáfu leynirits-
ins Samizdat.
Kaþólska kirkjan í
Litháen gefur út meö
leynd blaö er nefnist
Chronicle. I apríl sl. var
þess minnzt aö blaö
þetta hefur komiö út
óslítiö í 10 ár, — aö
meöaltali 5 tölublöö á
ári. Þar er skýrt frá trú-
arbragöakúgun f öllum
myndum, svo og frá
andófi þeirra er berjast
fyrir borgarlegum rétt-
indum þjóöarinnar.
Blaö þetta er órækur
vottur um útgreidda
hollustu þjóöarinnar
viö hin fornu trúar-
brögö í landinu. Þar eru
fréttir frá kirkjuyfirvöld-
um á staðnum, frá-
sagnir er snerta trúmál
í öðrum lýðveldum
Sovétríkjanna og skýrl
frá ofsóknum á hendur
andófsmönnum. Einnig
er fjallað um kristin-
fræöikennslu í skólum
eöa öllu heldur vöntun
á henni og hvernig tek-
ist hefur aö standa
vörö um eina presta-
skólann í lýöveldinu, en
hann er í Kaunas. Þá
hefur blaöiö barizt
gegn því aö biskupar,
sem eru hliöhollir
stjórnvöldum, veröi
settir i embætti og hef-
ur því orðiö töluvert
ágengt í þeim efnum.
Ríkisvaldiö þar eystra
hefur beitt þessari aö-
ferð víöa til þess aö ná
tangarhaldi á málefn-
um kirkjunnar.
Vytautar Skuodis,
fyrrum guöfræöipró-
fessor í Vilníus, en
hann var dæmdur til
sjö ára refsivistar f
fangabúöum á síöasta
ári, lýsti einnig á sínum
tíma þrautskipulögöu
áróöurskerfi hins
opinbera gegn trúuöu
fólki í Litháen.
Eftir 26. flokksþing
Kommúnistaflokksins
kraföist Pravda þess,
aö skipulagöur áróöur
fyrir trúleysi yrði hafinn.
Blaöiö „Ungkommún-
istinn" skýröi um svip-
aö leyti frá því, aö mik-
iö væri um „kristilega
hjátrú" meöal æsku-
fólks, og máigagn
kommúnista í Eystlandi
hermdi nýiega, aö um
þaö bil helmingur
námsmanna yröu ekki
meö réttu kallaöir af-
dráttarlausir trúleys-
ingjar.
í apríl síöastliönum
kom miöstjórn Komm-
únistaflokksins í Lithá-
en saman til aö ræöa
„aukinn styrk æsku-
fólks í stjórnmálum og
gegn trúarbrögöum.“
Petras Griskevicius,
aöalritari flokksins,
lagöi áherzlu á hina
opinberu „ofsóknar-
stefnu" er kæmi fram í
baráttu gegn “kristi-
legri hjátrú”. Hann
gerði grein fyrir nýrri
herferö í skólum gegn
hvers kyns trúarbrögð-
um. Aö mati Lioninas
Sepetys, ritara flokks-
ins og helsta hug-
myndafræöings, er
trúleysi „órjúfanlegur
þáttur í menntum sov-
ézkra borgara“. Hann
boöaöi og aö nú yröi
þess krafizt af skólun-
um, aö þeir legöu rækt
við efnishyggju, fylgdu
fyrirmælum um trúleysi
og hertu baráttuna
gegn „trúarbragöaof-
stæki".
— PETER JAROCKI.
Sambyggöar
trésmíöavélar
ZINKEN 21
og MIA 6
til afgreiöslu
strax.
G. Þorsteinsson & Johnson h.f.
Armúla 1. — Sími 8 55 33
Til sölu
nýlegur, 4,5 lesta trillubátur. Bolur enskur úr trefjaplasti, inn-
rétting aö mestu úr viöi, 3 kojur í lúkar, vél 32 ha SAAB,
skiptiskrúfa, 3 rafknúnar handfæravindur, Simrad-dýptarmæl-
ir, talstöö, vökvaspil og vökvastýri. Tvöföld fiskilest meö ís-
geymslum í bakboröi. Rafkerfi samkvæmt fyrirmælum Sigl-
ingamálastofnunar.
Upplýsingar gefur Þorgils Gunnlaugsson í síma 96-61505.
Classix Nouveaux
La Verité
INNIHELDUR MEÐAL ANNARS TOPPLÖGIN
IS IT A DREAM
NEVER AGAIN
BECAUSE YOU’RE YOUNG
FALKINN
Suðurlandsbraut 8,
Laugavegi 24,
Austurveri,
Heildsöludreifing s: 84670.