Morgunblaðið - 18.07.1982, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. JÚLÍ1982
69
Mynd C»rl S. Junge af Poe við skriftir. f rammanum má lesa titla helstu
verka hans.
bókmenntamenn í Evrópu dáðu
Edgar Allan Poe sem snilling. Sér-
ílagi eftir að Baudelaire hafði lok-
ið við franska þýðingu sína á verk-
um Poes; sú þýðing hafði mikil
áhrif á frönsku symbólistana.
Iljóðagerð þykir Poe skara fram-
úr í því að skapa áhrifamikið
andrúmsloft með bragfræðilegum
töfrabrögðum og heillandi hrynj-
andi; einnig fyrir listilega hálf-
kveðnar vísur, sem víða koma
fyrir hjá honum. Hins vegar hefur
honum verið fundið það til foráttu
að orðaforði hans sé lítill, hann
endurtaki sig, og sé of mikill rím-
ari, taki hljóminn oft framyfir
innihaldið. Séu talin upp fáein
þekktustu ljóð Poes má byrja á Al
Aaraf, sem hann orti tvítugur.
Það þykir torlesið og fjallar um
upphafningu sálarinnar. Stíll þess
þykir heldur ekki aðgengilegur, en
ljóðið allt um margt einkennandi
fyrir Poe. To Helen orti hann
tveimur árum síðar og syrgir þar,
sem fyrr segir, Jane Stanard
látna. Þetta er eitt af bestu ljóðum
hans og ber með sér óvenjulega
ögun og hógværð. Hrafninn er án
efa frægasta ljóð Poes. Hann var á
sínum tíma sakaður um að hafa
stolið því meira eða minna, en lík-
legt þykir að hann hafi fengið
hrafninn lánaðan úr Barnaby
Rudge eftir Dickens. Poe skrifaði
sérstaka ritgerð, The Philosophy
of Composition, þar sem hann
lýsti aðferðum sínum við gerð
Hrafnsins. Síðustu ljóð hans, eins
og Ulalume, Eldorado og Annabel
Lee fjalla mörg um vonlausa leit
að hamingjunni, svo og dauðann,
sem ævinlega var Poe hugleikið
efni.
Smásögur Poes standa ljóðum
hans síst að baki. Frásagnar-
gáfa hans var einstæð og hann
vandaði ævinlega verk sín eins og
hann framast mátti. Smásögunum
er talið það fyrst til gildis, hve
samfelldar og heillegar þær eru,
svo hversu vel Poe heldur spenn-
unni, þá fyrir hin tvímælalausu og
algeru (loka)áhrif. Ennfremur
þykir stíllinn afar unninn og
hugsaður.
Sögunum er stundum skipt í
þrjá flokka: hrollvekjur, sögur um
fegurð og loks rökrænar sögur.
Eflaust hefur Poe samið hroll-
vekjur sínar, vegna þess að þær
voru örugg söluvara, en síður
vegna þess, að þær hæfðu svo
mjög skaplyndi hans og hugarfari.
Hrollvekjurnar fjalla að meira
eða minna leyti um afbrigðilega
heilastarfsemi og sjúkt hugarfar,
en þá hluti nýtti Poe einmitt
manna best til að auka á hrylling-
inn og áhrif hans. Af hrollvekjum
má nefna The Tell Tale Heart,
William Wilson og The Fall of the
House of Usher. Sú síðastnefnda
segir af taugasjúklingi sem sumir
telja nokkra sjálfsmynd af Poe!
Þær sögur sem hafa fegurð að
efni og marki, mætti margar
fremur kalla prósaljóð en smásög-
ur, svo sem Ligeia og Eleonara.
I sögum þeim sem nefndar eru
rökrænar, kemur skýr og rökræn
hugsun Poes vel í ljós. Af þessum
sögum eru kannski þekktastar The
Gold Bug, The Murders in the Rue
Morque og The Mystery of Marie
Roget. Tvær þær síðastnefndu
brydduðu fyrst uppá tækni og að-
ferðum leynilögreglusögu nútím-
ans.
Meðan Poe lifði var hann
þekktastur fyrir gagnrýni
sína. Hann var vígreifur í ritdóm-
um og hlífði engum — sakaði með-
al annars marga samtíðarhöfunda
sína um ritstuld! Ennfremur var
Poe alveg laus við þjóðskrum það
sem útbreitt var um hans daga og
dró aldrei óhæfilega taum banda-
rískra höfunda. Gagnrýni hans er
enn mikilvæg, því Poe studdist við
ýmsar reglur og lögmál í dómum
sínum.
Poe vildi leggja áhersluna á þau
heildaráhrif sem bókmenntaverk
hefði á lesandann. Þessi áhrif vildi
hann að réðu öllum búningi verks-
ins og byggingu þess; réðu lengd-
inni, tón, hrynjandi, orðaforða,
söguþræði, nöfnum á söguhetjunr.
Poe áleit fegurðina lokatakmark
listarinnar og markmið. Ljóð átti
ekki að troða einhverri tilbúinni
speki upp á lesanda sinn, það átti
að vera fegurðarverk knappt, sam-
fellt og hrynjandin var þar þung á
metum. Smásagan átti að hefjast í
fyrstu línu, ef svo má segja, og
hafa eins alger og tvímælalaus
áhrif og unnt væri, vera stutt og
mætti ekki hafa neina lausa þræði
eða enda. Verk Poes munu geyma
ótal dæmi um þessar reglur —
þær hæfa Poe, en fáum höfundum
öðrum.
Jakob F. Ásgeirsson tók saman
LEIGJENDUR MYNDBANDA
ATHUGIÐ!
Að gefnu tilefni skal það tekið fram að myndbönd merkt
sUiAor eru eingöngu til heimilis- og einkanota hér
á landi, en ekki til opinberrar birtingar svo sem skýrt er
tekið fram á öllum myndböndum frá sUÍAOf. Opinber
birting telst t.d. sýning í myndbandakerfum fjölbýlis-
húsa, verslunum, veitingahúsum, vinnustöðum, fólks-
flutningabifreiðum, skipum, flugvélum o.s.frv., hvort
sem sýnt er gegn gjaldi eður ei. Fjölföldun á efni mynd-
bandsins er með öllu óheimil, hvort sem er að hluta til
eða í heild sinni.
Brot á framanskráðu varðar lögsókn fyrir almennum
dómstólum.
sfcoioo f
Omissandi tæki
i viðskiptalíf inu
Lamer Tramieioendur hata sérhœf t sig í tœkjum fyrir viðskiptaheiminn
og henta þau vel öllum þeim sem vilja örugg og gðð vinnubrögð.
Þeir framleiða allt frá litlum talritum upp í stórar skrifstofutölvur,
sem geta geymt margskonar upplýsingar og sparað marga starfsmenn.
Lanier auðveldar, flýtir og veitir þeim öryggi, sem vilja hafa rekstur
fyrirtækja sinna sem bestan. LANIER - skrifstofutæki framtíðarinnar.
Þú heldur aö þú getir veriö án þeirra, þar til þú hefur
unnið með þeim.
óf) Radíóstofan hf.
l>órsgötu 14, símar 28377 - 11314 - 14131
8
5 •.
0