Morgunblaðið - 22.07.1982, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ1982
VIÐSKIPTI
VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF
— umsjón Sighvatur Blöndahl
Svíþjóð:
Vöruskiptajöfnuður
verulega hagstæður
Viðskiptajöfnuður hins vegar neikvæður
Voruskiptajöfnuður Svía var
hagstæður fyrstu fimm mánuð-
ina á þessu ári um 2,4 millj-
arða sænskra króna, en til
samanburðar var vöru-
skiptajöfnuðurinn hagstæður
um liðlega 1,19 milljarða
sænskra króna á sama tíma ár-
ið 1981.
Útflutningur jókst um
17% frá árinu á undan og var
að verðmæti um 67,7 millj-
arðar sænskra króna, en inn-
flutningur jókst um 15% og
var að verðmæti í kringum
65,3 milljarðar sænskra
króna.
Ef magn út- og innflutn-
ings er skoðað kemur í ljós,
að útflutningur Svía jókst á
fimm fyrstu mánuðum árs-
ins um 3%, en innflutningur-
inn var nokkurn veginn sá
sami og á sama tíma fyrir
ári.
Olíuvörur vega um 20% í
heildarinnflutningi Svía
fyrstu fimm mánuði ársins,
en þetta hlutfall var liðlega
21% á sama tíma í fyrra. Þá
má geta þess, að í magni
dróst innflutningur á svart-
olíu saman um 25% á um-
ræddu tímabili.
Viðskiptajöfnuður Svía
var hins vegar óhagstæður
um liðlega 3 milljarða
sænskra króna á fyrsta
ársfjórðungi þessa árs, sam-
anborið við 4,7 milljarða
sænskra króna á sama tíma í
fyrra. Allt árið í fyrra var
viðskiptajöfnuður Svía
óhagstæður um liðlega 11
milljarða sænskra króna.
Rafmagnsveitur ríkisins:
Rekstrarhalli ársins
1981 vard um 24 millj.
RAFMAGNSVEITUR ríkisins
unnu að nýbyggingum fyrir 217,1
milljón króna á árinu 1981 og er
þaö um 49% aukning frá árinu á
undan. Hins vegar er hliðstæð
hækkun á árinu 1980 um 19,7%.
Þessar upplýsingar koma fram í
skýrslu fyrirtækisins fyrir árið
1981.
Heildaraukning orkuöflunar
eigin orkuvinnsku og aðkeyptr-
ar, var 14,9%, en var 0,4%
minnkun árið áður. Eigin orku-
vinnsla, 201 GWh skiptist þann-
ig, að 95 GWh eða 47,3% voru
frá vatnsaflsvirkjunum, 23 GWh
eða 11,4% frá varmaaflsstöðvum
og 83 GWh eða 41,3% frá
gufuaflstöð Kröflu.
Raforkusala til eigin notenda í
heildsölu og smásölu var 491
GWh en til bæjarveitna til
endursölu 139 GWh. Þá var raf-
orkusala til virkjana, þ.e. Anda-
kílsárvirkjunar, Orkubús Vest-
fjarða og Laxárvirkjunar á árinu
70 GWh. Heildarraforkusala á
árinu var því 700 GWh, sem er
11,2% aukning frá árinu áður.
Vegið meðalgildi söluverðs var
36,19 aur á kWh.
I ársskýrslunni segir, að
rekstrarhalli hafi verið 24 millj-
ónir króna á árinu. Rekstrar-
gjöld voru 317 milljónir króna,
þar með taldar afskriftir, en
tekjur hins vegar 293 milljónir
króna, án stofnfjárframlaga, en
þau voru á árinu 31 milljón
króna.
* JT
Utvegsbanki Islands:
Um 24,2 milljóna króna hagn-
aður varð af rekstrinum 1981
Yerulega dró úr útlánum til sjávarútvegs
Útlán til einstaklinga hækkuðu um 225,6%
Eigið fé jókst um 91,8 milljónir króna
ÞROUN útlána Útvegsbanka ís-
lands var óvenjuleg miðað við fyrri
ár, að því leyti, að mjög dró úr
útlánum til sjávarútvegs, en því
veldur tilflutningur á viðskiptum
til annarra banka, segir m.a. í
ársskýrslu Útvegsbanka íslands
fyrir árið 1981.
— í september sl. tók Lands-
banki íslands við rekstri útibús
Utvegsbankans á Seyðisfirði og
á haustmánuðum fóru nokkur
sjávarútvegsfyrirtæki úr við-
skiptum við aðalbankann, Kefla-
víkurútibú, ísafjarðarútibú og
Akureyrarútibú.
Heildarútlán Útvegsbankans
hækkuðu um 45,2% á árinu, en
útlán til sjávarútvegs hækkuðu
aðeins um 13,6%. Heildarútlán
innlánsstofnana jukust hins veg-
ar um 76,1%. í árslok 1980 voru
sjávarútvegslánin 59,6% af
heildarútlánum bankans, en í
árslok 1981 var hlutfallið 46,8%.
Útlán til einstaklinga hækk-
uðu mest á sl. ári, eða um 225,6%
og eru nú 14,4% af heildarútlán-
um bankans. Hafa ber það í
huga, að Útvegsbankinn hafði
gengið skemmst viðskiptabank-
anna í þá átt að sinna þörfum
einstaklinga. I árslok 1981 var
hlutdeild lána til einstaklinga í
heildarútlánum innlánsstofnana
21,7% en var síðasta áratuginn
19-21%.
Innlán Útvegsbankans þróuð-
ust á árinu 1981 eins og búizt var
við, miðað við aðstæður. Heild-
arinnlán jukust um 55,9%. Eins
og áður er getið yfirtók Lands-
bankinn útibú Útvegsbankans á
Seyðisfirði en ennfremur má
telja að nokkurt innlánsfé hafi
farið úr bankanum við flutning á
600
500
viðskiptum sjávarútvegsfyrir-
tækja úr Útvegsbankanum.
Ef þessar fjármagnstilfærslur
hefðu ekki komið til, hefðu inn-
lán Útvegsbankans trúlega náð
meðaltali innlánsstofnana í inn-
lánsaukningu, sem var 73,4% á
árinu 1981.
Á undanförnum árum hefur
Iausafjárstaða Útvegsbankans
oft verið erfið, sérstaklega fyrri
hluta ársins, í upphafi vertíðar.
Með lausafjárstöðu er átt við
sjóð, stöðu á viðskiptareikningi
bankans í Seðlabanka og gjald-
eyrisstöðu. Árið 1981 varð engin
undantekning hvað þetta varðar
og var lausafjárstaða bankans
erfið fyrstu mánuði ársins. í maí
1981 gjörbreyttist staðan til hins
betra þegar Seðlabankinn
greiddi 50 milljónir inn á
viðskiptareikning Útvegs-
bankans í Seðlabanka.
í ársbyrjun 1981 var lausa-
fjárstaðan jákvæð um 7,4 millj-
ónir króna, en í árslok var hún
hins vegar jákvæð um 41,7 millj-
ónir króna.
Á undanförnum árum hefur
það færst í vöxt, að Útvegsbank-
inn hefur tekið lán í erlendum
bönkum og endurlánað ýmsum
viðskiptamönnum sínum. Eink-
Hlutfallsleg skiptíng útlána
Útvegsbankans 31. 12. 1981.
400
300
200
100
OPINBERlR AOiL.AH
•ÍAMGÖNGUff
1977
1978
evGGINGAH OG
MANNVIHKJAGERD
um hefur verið um að ræð lán til
ýmis konar fjárfestingar. Slikar
lántökur eru háðar leyfi stjórn-
valda hverju sinni.
Um síðustu áramót nam heild-
arupphæð endurlánaðs erlends
fjármagns 344 milljónum króna,
en það er 27,2% af niðurstöðu-
tölu efnahagsreikning. Samsvar-
andi hlutfall frá árinu áður var
28,7%. Rúmlega 60% af endur-
lánuðu erlendu lánsfé fer til
sjávarútvegs, 19% til sam-
gangna, um 16% til verzlunar og
það sem eftir er dreifist á bæjar-
og sveitarfélög, byggingarverk-
taka og landbúnað.
Hagnaður bankans á árinu
1981 nam 24,2 milljónum króna
og er þá búið að afskrifa 2,3
milljónir króna af eignum hans.
Af hagnaði ársins var 16,3 millj-
ónum króna ráðstafað í vara-
sjóð, 2,8 milljónum króna í hús-
byggingarsjóð og 5,0 milljónum
króna í eftirlaunasjóð starfs-
manna. Bankinn greiddi um 7,5
milljónir króna í skatt af gjald-
eyrisverzlun.
Eigið fé jókst um 91,8 milljón-
ir króna. Er þar með talið lán frá
Seðlabankanum að fjárhæð 50
milljónir króna, sem ríkissjóður
sér um að endurgreiða á 12 árum
samkvæmt sérstakri lagaheim-
ild.
Ennfremur er meðtalið endur-
mat fasteigna og búnaðar 22,5
milljónir króna, auk hagnaðar
ársins. Miðað við niðurstöðutölu
efnahagsreiknings nemur eigin
fjárhlutfallið 10,3% í árslok
1981.
Bankastjórar Útvegsbankans
eru þeir Ármann Jakobsson,
Bjarni Guðbjörnsson og Jónas
G. Rafnar, en aðstoðarbanka-
stjórar eru þeir Ólafur Helgason
og Reynir Jónasson. í bankaráði
sitja þeir Albert Guðmundsson,
formaður, Alexander Stefáns-
son, varaformaður, Arnbjörn
Kristinsson, ritari, Garðar Sig-
urðsson og Guðmundur Karls-
son.