Morgunblaðið - 27.07.1982, Page 3

Morgunblaðið - 27.07.1982, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ1982 3 Taldi eðlilegt að ráða hæfan mann af svæðinu — segir ráðherra um ráðningu vitavarðar á Galtarvita „RÁÐHERRA hefur skipunarvald í þessum málum og ég var búinn að ákveúa það, að ef hæfir menn af svæðinu sæktu um stöðuna, þá myndu þeir ganga fyrir. Það er rétt að vitamálastjóri mælti með að Stef- áni Stefánssyni yrði veitt staðan, en er ég bað hann að kanna hvort hæfir menn af svæði hefðu sótt um kom það í Ijós að tveir hefðu sótt um og hann teldi þá báða hæfa til starfsins. Því tók ég þann kost að ráða Kjart- an G. Karlsson, skipstjóra og konu hans,“ sagði Steingrímur Her- mannsson, samgönguráðherra, í samtali við Morgunblaðið er hann var spurður um ástæður veitingar stöðu vitavarðar á Galtarvita. Steingrímur sagði ennfremur, að þar sem Kjartan hefði bæði verið vélstjóri og skipstjóri í mörg ár væri hann því vel fær um vél- gæzlu og þekkti vel þær hættur, sem þarna væru í kring og væri það mjög mikilvægt. Hann teldi því eðlilegt að ráða mann af svæð- inu sem væri hæfur til starfans. Reykjavíkurborg og menntamálaráðuneyti: Viðræður um Keldnaland „VIÐ GERÐUM þeim grein fyrir stöðu málsins, og voru undirtektirn- ar þokkalegar,“ sagði Davið Oddsson borgarstjóri í samtali við Morgunblaðið, en sl. miðvikudag var haldinn fundur þar sem kaup borgarinnar á hluta Keldnalands voru rædd. Á svæðinu við Grafarvog verður næsta byggingarsvæði Reykjavíkurborgar, en hluti þess svæðis er í eigu tilraunastöðvarinnar að Keldum. Fundinn sátu af hálfu borgar- yfirvalda Davíð Oddsson borgar- stjóri, Þórður Þ. Þorbjarnarson borgarverkfræðingur og Björn Friðfinsson fjármálastjóri borg- arinnar, en af hálfu menntamála- ráðuneytisins sátu fundinn Ingvar Gíslason menntamálaráðherra, Birgir Thorlacius ráðuneytisstjóri og Árni Gunnarsson deildarstjóri. Manhattan boðið upp Skemmtistaðurinn Manhattan í Kópavogi var boðinn upp fyrir rúmri viku og sagði Ólafur St. Sigurðsson fulltrúi bæjarfógetans í Kópavogi að um 162 þúsund hefðu fengist fyrir innréttingar staðarins og annað það sem upp hefði verið boðið, en það nemur um eða innan við 10% af upp- hæð krafna í þrotabúið, að því er Ólafur taldi. Sagði Ólafur að stærstu hiutirn- ir sem upp voru boðnir hefðu verið loftræstikerfi staðarins og inn- réttingin, en hún var boðin upp í hlutum. Sagði Ólafur að margir hefðu boðið í innréttingarhlutana, en einn aðili hefði fengið þá flesta keypta. Davíð sagði að farið hefi verið yfir málið og lögð hefði verið áhersla á að það yrði að gagna hratt fyrir sig. Sagði hann að næsti fundur yrði að líkingum haldinn í byrjun ágúst. Valtýr Pétursson Valtýr sýnir í Þrastarlundi VALTÝR Pétursson listmálari opnar í dag sýningu í Þrastar- lundi. Á sýningunni eru 28 olíumál- verk, öll ný. Ber mest á mynd- um frá höfninni, en einnig eru þar landslagsmálverk. Sýning á verkum Valtýs er orðin árlegur viðburður í Þrastarlundi, þar sem þetta er níunda árið í röð, sem hann sýnir þar. Sýningin verður opin í hálf- an mánuð. Flak flugvélarinnar TF-RAF á slysstað. Ljósm. dv Hjamk-ifur Flugvél brotlenti við bæ- inn Múlakot í Fljótshlíð EINSHREYFILS flugvél TF-RAF brotlenti við bæinn Múlakot í Fljótshlíð um helgina. Tveir menn voru í flugvélinni, flugmaðurinn sem slasaðist mikið og 12 ára sonur hans sem slapp að mestu án meiðsla. Að sögn sjónarvotta var það þó mesta mildi að ekki fór verr. Slysið bar að með þeim hætti að flugmaðurinn, sem er flugvirki, var að undirbúa lendingu á flug- brautinni við Múlakot um kl. 20 á laugardag, þar sem hann ætlaði að taka skoðun á flugvél sem er þar á flugvellinum. Það var vestanátt, hann flaug undan vindi til austurs yfir brautina. Þegar hann var kominn yfir flugbrautina tekur hann krappa beygju og þegar hann er að rétta vélina af úr beygjunni skellur hún til jarðar. Flugvélin kom niður á vinstra vænginn og á nefið. Flugvélin, sem er gömul bresk herkennsluvél, er talin gjörónýt. INNLENT Þeir sem í vélinni voru fluttir á gjörgæsludeild Borgarspítalans en munu ekki vera í lífshættu. Flug- maðurinn slasaðist mikið, hann er illa brotinn á báðum ökklum, handleggsbrotinn, með skaddaða hryKRjarliði, brotin andlitsbein og mikið skorinn í andliti. Strákur- inn er hins vegar aðeins marinn og þykir það mesta mildi að hann skyldi sleppa svo vel og er því þakkað að hann var bundinn niður í sætið með axlarólum en höggið var það mikið að ólarnar slitnuðu. Viktoría ísaksen var vitni að slysinu og sagði hún svo frá í sam- tali við Mbl. í gær. „Ég var stödd í sumarbústað þarna rétt við flugbrautina og sá þegar flugvélin kom yfir skógræktargirðingu sem þarna er, tók krappa beygju og náði sér ekki út úr henni, steyptist niður og hvarf. Okkur brá að sjálfsögðu mikið og áttum við von á hinu versta, en sem betur fer sluppu þeir betur en á horfðist í fyrstu. Fyrsta hugsunin var síðan að kalla á hjálp. Eg tel það krafta- verki næst að ekki fór verr.“ Hreindýraveiðar engin hlunnindi meðan ekki má selja veiðileyfi — segir Vilhjálmur Snædal á Skjöldólfsstöðum Morgunblaðið/ Kristján Kinarsson. í sumar hafa staðið yfir framkvæmdir vió undirgang undir Vesturlandsveginn skammt ofan vió Nesti á Ártúnshöfóanum, á mótum Breiðhöfóa og nýs vegar upp á Ártúnsholtið. Af þessum sökum var lögð lykkja á veginn svo umferóin héldi áfram að rúlla, eins og ekkert hefði í skorist. Myndin sýnir verksummerki. í forgrunni er Nesti, en bifreiðarnar eru allar nema ein á leið úr bænum. „ÞAÐ ER út í hött að tala um það að hrcindýraveiðar séu einhver hlunn- indi eins og málum er háttað nú. Jökuldalshreppur hefur leyfi til að veiða 75 dýr og samsvarar það cinu dýri á bæ. Miðað við það hve erfitt er að sækja þetta er hreindýrakjötið einhver dýrasti fáanlegi matur hér á landi, það er mergurinn málsins,“ sagði Vilhjálmur Snædal á Skjöld- ólfsstöðum á Jökuldal í samtali við Morgunblaðið, en þar hafa menn óskað að fá að selja leyfi til hrein- dýraveiða, en ekki fengið. Vilhjálmur sagði ennfremur að ef tala ætti um hlunnindi væri eina leiðin að menn fengju að selja veiðileyfin í stað þess að veiða dýrin sjálfir með ærnum tilkostn- aði. Með sölu leyfanna fengjust tekjur til bænda og jafnvel tekjur til frekara eftirlits. Þá væri það ljóst að óopinber sala veiðileyfa hefði lengi viðgengizt. Það gæti hver sem er fengið einhvern til þess að veiða dýr fyrir sig og hvergi kæmi fram opinberlega hvernig slík mál væru gerð upp. Því væri það skoðun sín að nær væri að ganga hreint til verks og selja leyfin opinberlega. Þá bæri þess að geta þegar talað væri um hlunnindi að það væru á milli þrjú og fjögur þúsund dýr á landinu og þau lifðu auðvitað á landi viðkom- andi bænda. „Með því að fá að selja leyfin gæti komið til einhver hagnaður til bænda og sömuleiðis væri hægt að auka eftirlit og koma skipulagi á veiðarnar. En menn eru tregir til að breyta og líklega veldur íhaldssemi því að þetta fæst ekki í gegn,“ sagði Vilhjálmur. Líkt veðurlag áfram Á Veðurstofunni fengust þær upplýsingar hjá Trausta Jónssyni veðurfræóingi, að veðurfar yrði líkt og verið hefur. „Bleyta af öllum tegundum hér sunnanlands nema snjó- koma. Henni er ekki spáð.“ Skýjuðu fyrir norðan sums staðar. Á hádegi var hiti um 26 stig í Vopnafirði og 23 stig á Raufarhöfn. Líklega myndi eitthvað kólna fyrir norðan. Hiti yrði um 18—20 stig í stað 24—26 stiga hita, svo sem verið hefði norðaustan lands. Syðra yrðu litlar hitabreytingar. Hit- inn yrði þetta 11—13 stig.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.