Morgunblaðið - 27.07.1982, Side 15

Morgunblaðið - 27.07.1982, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ1982 15 Kristinn Sigmundsson bassi: „Alveg stór- kostleg ferð“ „ÞETTA hefur verið alveg stórkost- leg ferð. Aldrei hefur borið neinn skugga á og það er nánast ótrúlegt hvað hún hefur heppnast vel að öllu leyti. Konsertarnir gengu mjög vel. Það var gaman að sjá hvað Spánverj- arnir voru hrifnir af þessu,“ sagði Kristinn Sigmundsson einsöngvari eftir söngferðalagið. Hann hefur áð- ur farið með Pólýfónkórnum í stutta ferð til Edinborgar og London en hann sagði að því væri ekki saman að jafna þeim ferðum og þessari Spánarferð. „Hún er alveg nýtt fyrir mig.“ „Mér er efst í huga þakklæti til Ingólfs fyrir að hafa fengið þetta tækifæri til að taka þátt í ferð- inni, þessari ævintýralegu ferð. Ég held maður eigi aldrei eftir að upplifa annað eins. Það var afskaplega mikil samheldni í fólki. Þetta var eins og ein stór fjöl- skylda." Það sagði einn gagnrýnandinn að þú hefðir snert af barítón í Kristinn Sigmundsson röddinni og þú fékkst mjög lof- samlega dóma. „Já, ég er í rauninni barítónn en ekki bassi og er þess vegna sam- mála þessum gagnrýnanda að vissu marki. Það er gott að fá svona krítik. Hún gefur manni vísbendingu um að maður sé á réttri leið og standist þær kröfur sem gerðar eru til söngvara á Spáni. Það rennur upp fyrir manni Ijós að maður getur sungið annars staðar en á íslandi." Hvernig þótti þér svo að syngja í þessum stóru kirkjum á Spáni? „Það var mjög gott að syngja í þeim. Ævintýri líkast. Maður hef- ur aldrei átt því að venjast að heyra í sjálfum sér löngu eftir að maður hefur lokað munninum. Það er alveg ný reynsla." Það eru ekki nema tvö ár síðan Kristinn byrjaði að syngja ein- söng. í haust fer hann í tónlistar- háskóla í Vín en fyrst fer hann til Þýskalands að syngja hlutverk Rafaels eftir Hándel. Jón Þorsteinsson Jón Þorsteinsson tenór: „Spánn heillaði mig upp úr skónum“ „ÞESSI ferð hefur verið algjört ævintýri frá upphafi til enda. Mér þótti óskaplega gaman að taka þátt í henni. Það var allt svo stórkostlegt. Þetta var bara eitt kostulegt ævin- týri frá upphafi til enda,“ sagði Jón Þorsteinsson einsöngvari eftir söng- ferð Pólýfónkórsins um Spán. Jón starfar nú við Hollensku ríkisóper- una í Amsterdam. „Pólýfónkórinn var afskaplega góður í þessari ferð eins og hann er alltaf. Eftirminnilegastir eru konsertarnir í Granada þar sem kirkjan tók 1.500 manns í sæti en á þriðja þúsund hlýddu á okkur, og í Sevilla en sú borg stendur á gömlum merg hvað tónlist snertir og þar hafa verið fluttar ýmsar frábærar óperur. Spánn heillaði mig upp úr skón- um og ég hef þegar ákveðið að vera mánuð á næsta ári á Spáni og eyða honum í að ferðast um And- alúsíu. Ég bjóst við meira ferða- mannaæði á Spáni en það var ekki til staðar, enginn æsingur og læti. Ég hef aldrei áður komið til Spán- ar og þeir fáu Spánverjar sem ég kynntist á þessu ferðalagi voru sérlega indælir, rólegir og góðir.“ Sagðist Jón ætla að halda einn konsert á Ólafsfirði og síðan fara í frí til Frakklands og hvíla sig því erfiður vetur er framundan hjá honum. pú fæið t lireinan tón úr bíltækiunum frá PhilipsogBose! Philips bílaútvörp hafa haft ofan af fyrir fjölmörgum íslenskum ökumönnum og farþegum áratugum saman enda eru þau annáluð fyrir góðan hljóm og frábæra endingu. Við bjóðum nú meira úrval Philiþs bíltækja en nokkru sinni fyrr. Allt frá einföldustu útvörpum til fullkomnustu sambyggðra steríótækja. Ef þú tengir svo Philips tækin við hina frábæru Bose magnara og hátalara færðu hljóm, sem þú átt ekki von á nema úr dýrustu stofutækjum eða bestu hljómleikahöll. Það er svo sannarlega hreinn tónn. Líttu við hjá okkur, ísetningarþjónustan er á staðnum. Philips og Bose, - tveir stórir sem standa sig! heimilistæki hf. HAFNARSTRÆTI 3 - 20455 - SÆTÚNI 8 -15655 Við fljúgum með frakt til og frá Osló 5 sinnum í viku í sumar fljúgum vift með frakt tll 13 borga 61 slnni í vtku. Osló ar *in þ«lrra. Flugfrakt trygglr hámarksnýtlngu fjármagns og haklur rýmun I lágmarkl. FLUGFRAKT

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.