Morgunblaðið - 27.07.1982, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 27.07.1982, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 1982 Á Skálholtshátiðinni söng SkálholtakórÍM undir stjórn Glúms Gylfasonar. Skálholtskirkja þétt setin og vel það, þar sem sumir stóðu. A 3. hundrað manns á Skálholtshátíðinni Á SUNNUDAGINN er leið var Skálholtshátíð haldin, sú 20. í Skáiholtskirkju. Er Skálholtshátið um Þorláksmessu á sumri. Biskupinn yfir íslandi, Pétur Sigurgeirsson prédikaði. Sigurð- ur Pálsson vígslubiskup, Sveinbjörn Sveinbjörnsson prófast- ur og Guðmundur Ó. Ólafsson staðarprestur þjónuðu fyrir altari. Haukur Guðlaugsson söngmálastjóri lék á orgel. Jón Sigurðsson og Lárus Sveinsson léku á trompeta og Jón H. Sigurbjörnsson á flautu. Skálholtsskórinn söng undir stjórn Glúms Gylfasonar. Byrjaði hátíðin kl. 13.30 með klukkna- hringingu og organleik kl. 13.40. Messan hófst síðan með skrúðgöngu presta og biskupa við lúðraþyt úr Þorlákstíðum. Að lokinni messu var kaffi í húsakynnum Skálholtsskóla. Á 3. hundrað manns komu á hátiðina. Nær þrír tugir presta voru mættir, og þar á meðal nokkrir úr Félagi fyrrverandi sókn- arpresta. Kl. 16.30 var samkoma í kirkj- unni. Byrjaði hún með samleik á flautu og orgel. Þá flutti ræðu Gísli Sigurbjörnsson forstjóri á Grund. Sagði Gísli m.a. að menn gleymdu því gjarnan, þegar þeir væru ungir, að þeir yrðu nokkurn tíman gamlir. Yfirleitt væri sama sagan. Gamla fólkið væri fyrir hinum yngri. Almanakið segði ekki til um það, hvenær menn væru orðnir gamlir heldur væri það heilsa og þróttur, sem þær kæmi til. Á ári aldraðra, þá þyrfti að auka það, að gamla fólkið sæi sér sjálft farborða. En ekki að láta fólk vera inni á hæl- um og sjúkrahúsum. Það væri allt of dýrt. Koma þyrfti á fót í söfnuðum sjálfseignarstofnun- um, þar sem gamla fólkið sæi sem mest um sig sjálft. En með aðstoð utanfrá vitaskuld. Öryggisleysið væri verst fyrir gamla fólkið. En á þessum heim- ilum, þá gæti það haft samfélag við hvert annað og hjálpast að. Þessi heimili væru fámenn, og því líkast stóru heimili. Því liði miklu betur, ef það væri saman á svona heimilum, sem kalla mætti sólsetur. Kirkjan væri að vakna og láta sig meiru skipta al- mannaheill og margs konar fé- lagslega þjónustu. Væri það vel á ári aldraðra. „Ef Drottinn byggir ekki húsið, þá erfiða smiðirnir til einskis. Það sé yfirskriftin yfir starfsemi kirkjunnar á ári aldraðra." Að lokinni ræðu Gísla á Grund, þá söng Skálholtskórinn undir stjórn Glúms Gylfasonar. Varð kórinn að flytja sumt aftur vegna óska áheyrenda. Að loknum kórsöngnum, þá las Gylfi Jónsson, skólastjóri Skál- holtsskóla, ritningarorð og bæn var flutt. Sungu menn að lokum „Son Guðs ertu með sanni“. í framhaldi af Skálholtshátíð J)á byrjar yfirreið biskups um Ar- nesprófastsdæmi. Sagði Pétur biskup það vera ánægjuefni, að þau hjónin, ásamt syni þeirra byrji í Skálholti yfirreið sína. Skálholtskirkja væri ekki aðeins sóknarkirkja heldur væri hún þjóðarhelgidómur. Stór útsölu- rkaðurinn Kjörgarði, Laugavegi 59, kjallara, sími 28640 NÝJAR VÖRUR BÆTAST VIÐ DAGLEGA t.d. peysur — buxur — pils — skyrt- ur — kjólar — þykkir bolir — jakkar — úlpur — handklæöi og margt, margt fleira. ölumarkaðurinn KJORGARÐI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.