Morgunblaðið - 27.07.1982, Page 41

Morgunblaðið - 27.07.1982, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ1982 21 Franski Grand Prix: Heimamenn í f jór- um efstu sætunum FRANSKI Grand Prix kapp- aksturinn var haldinn um helgina og voru heimamenn mjög sterkir að þessu sinni. Voru Frakkar i fjórum efstu sætunum og eftir þessa keppni hefur Didier Pironi niu stiga forskot á John Watson í keppninni um heimsmeistaratitilinn. Hann er með 39 stig gegn 30 stigum Watson. Það var Rene Arnoux sem sigraði að þessu sinni, annar varð Alain Prost, Pironi þriðji og Patrick Tam- bay fjórði. Johan Watson lauk ekki keppni. Meðalhraði sigurvegarans var 201,2 km. á klst. Arnoux og Prost aka báðir á Ren- ault Turbo, en hinir Frakkarnir tveir eru báðir á Ferrari Turbo. Prost er nú í þriðja sæti í keppninni um heimsmeistaratitilinn með 25 stig en Arnoux er aðeins með 13 stig. Framkvæmdastjóri Renault-hóps- ins veifaði skilti til Arnoux með áletrun um að hann ætti að hleypa Prost fram úr og láta hann vinna, en ekki gerði hann það. Framkvæmda- stjórinn, Jean Sage, sagði á eftir að það væri mjög slæmt fyrir Renault, ef Prost missti af titlinum fyrir þessa hegðun Arnoux. Arnoux sagði aftur á móti að hann hefði gefið eftir 5—10 sek. forskot en ekki svona langt (hann var rúmlega 17 sek. á undan). Hann sagðist líka hafa fundið nokkurn titring frá framhjólunum og jafnvel haldið að hann þyrfti að stoppa hvort sem var, og þar af leið- andi hefði það getað kostað hann annað sætið ef hann hefði hægt á. Jafnt gegn Svíum LANDSLEIK íslcndinga og Svía, sem háður var í Sviþjóð í gær, lauk með jafntefli 1—1. Leikurinn var háður í 24ra stiga hita og skoraði Guðmundur Magnússon, Fylki, fyrsta mark leiksins á 17. mínútu fyrri hálfleiks með góðu skoti eftir sendingu frá Sigurði Jónssyni, ÍA, sem var fyrirliði landsliðsins. Samkvæmt skeyti frá landsliðinu, sem barst KSÍ í gær, voru íslend- ingar betri i fyrri hálfleik. Á 11. mín- útu átti Sigurður Jónsson stangar- skot og stuttu síðar annað skot, sem sleikti annað vinkilhorn marksins, fór rétt fyrir ofan. í hálfleik var staðan 1—0 fyrir ísland. Á 18. mínútu síðari hálf- leiks jöfnuðu Svíar. Mark þetta töldu íslenzku leikmennirnir mjög vafasmt, þar sem Svíinn, sem skoraði hélt markverðinum, Elíasi Friðrikssyni inni í markinu. Þá var á 32. mínútu síðari hálfleiks dæmd aukaspyrna á ísland, sem leikmenn töldu mjög vafasama. Við þann dóm k'appaði Sigurður Jónsson saman höndunum og varð fyrir vikið vísað af leikvelli. Svíar sóttu meira en íslendingar í síðari hálfleik. Sigurður Jónsson, fyrirliði landsliðsins í leiknum gegn Svíum verður í leikbanni í dag, í lands- leik gegn Finnum. í skeytinu frá leikmönnum segir að báðum aðil- um hafi þótt leikurinn illa dæmd- ur, en dómarinn var norskur. Evrópukeppnin í blaki: Þróttarar lentu aftur gegn Noregsmeisturunum NÝLEGA er búið að draga í Evrópu- keppni meistaraliða í blaki. ís- landsmeistarar Þróttar, sem nú taka þátt í keppninni i annað sinn, lentu aftur á móti Noregsmeisturunum. Það er að vísu ekki sama lið og í fyrra, nú leika Þróttarar gegn Tromsö. Fyrri leikur liðanna verður í No- regi, í byrjun nóvember, en sá seinni hér heima um miðjan sama mánuð. - SH. Góður sigur Einherja EINHERJI vann dýrmætan sigur gegn Völsungi í 2. deild íslands- mótsins í knattspyrnu um helgina. Leikurinn fór fram á Vopnafirði og urðu lokatölur hans 2—1 fyrir heimaliðið. Hetja Einherja reyndist vera varamaðurinn Helgi Ásgeirsson. Hann kom inn á í seinni hálfleik og ekki leið á löngu uns hann braut ísinn og skoraði það sem reyndist vera sigurmark Einherja. Staðan í hálfleik hafði nefnilega verið jöfn, 1—1. Völsungarnir voru sprækari framan af og urðu fyrri til að skora, en þar var að verki Olgeir Sigurðsson. Einherja- menn náðu að jafna metin fyrir leikhlé með marki Steindórs Sveinssonar og síðan kom sigur- mark varamannsins. Jafnteflin SKALLAGRÍMUR og Fylkir gerðu markalaust jafntefli er liðin mættust í 2. deild Islandsmótsins í knatt- spyrnu i Borgarnesi um helgina. Skallagrímur var betri aðilinn í fyrri hálfleik og gerði þá oft harða hrið að marki Fylkis en Fylkismenn vörðust vel og héldu hreinu marki. Hættulegustu marktækifæri hálfleiksins komu um miðjan hálf- leikinn. Þá pressuðu heimamenn stíft og fengu þrjár hornspyrnur í röð en Fylkismönnum tókst alltaf að bjarga á siðustu stundu. í þess- um hamagangi átti Björn Jónsson góðan skalla að marki Fylkis en Gunnari Baldurssyni markmanni hjá Fylki tókst að slá knöttinn yfir. Stuttu síðar átti Jón Ragnarsson skot á markið og aftur varði Gunnar vel. Á 21. mínútu komst Karl Birgis- son í gott skotfæri en Gunnari tókst enn að verja og nú með því að krækja í boltann með fótunum og síðan var hreinsað frá. Á 24. mínútu átti Ómar Sigurðsson skalla á Fylkismarkið sem smaug naumlega framhjá. Fylkismenn áttu ekki umtalsverð marktæki- færi í hálfleiknum en vörðust vel. Skallagrímur hafði frumkvæðið allan fyrri hálfleikinn og voru klaufskir að gera ekki út um leik- inn þá. Ifl Elmar Geirsson: Taugastrídið setur mark sitt á leikina í deildinni „ÞETTA hefur gengið upp og niður hjá okkur ad undanförnu, en að þessu sinni áttum við þokkalegan leik. Jafntefli hefði ekki verið ósanngjarnt, þó þeir ættu nokkur opin færi eftir að við vorum farnir að leggja meiri áherzlu á sóknina," sagði fyrirliði KA, Elmar Geirsaon, eflir leikinn. „Þá var heldur illa staðið af okkar hálfu að markinu, sem Skagamenn skoruðu og við von- uðumst eftir að ná jafntefli áður en við héldum að heiman. Úr þessu er ekki um annað að ræða en að forðast fallið eins og svo mðrg önnur lið þurfa nú að gera meðan deildin er svona í einum hnút. Þetta er því hálfgert taugastríð og hefur það sett mark sitt á leiki liðanna. Það er stutt á milli botns og topps nú og ekkert lið má við því að tapa mörgum stigum," sagði Elmar. HG Lítum nú á stöðuna i deildinni cftir leiki helgarinnar. Staðan í 1. deild Staðan í 1. deild er nú þessi: Víkingur 11 5 5 1 19- 13 15 ÍBV 11 6 1 4 15— 11 13 KR 12 3 7 2 8— 9 13 KA 12 4 4 4 10—10 12 UBK 12 5 2 5 14- 15 12 ÍA 12 4 3 5 12- 13 11 ÍBK 11 4 3 4 8- 11 11 Fram 11 3 4 4 12- 11 10 ÍBÍ 12 3 4 5 16- 19 10 Valur 12 3 3 6 9-11 9 Það var hart barist i 1. deildinni um helgina. Hér kljást þeir Njáll Eiðsson og Halldór Arason um knöttinn í leik Vals og Fram á sunnu- dagskvöldið. Sjá nánar um leikina á næstu síðum. United mætir með nær alla bestu leikmenn sína • Enski landsliðsmaðurinn Bryan Robson er einn af mörgum heims- frægum leikmönnum Manchester l!td. sem leika hér á landi í næstu viku. orðin níu Fylkismenn komu ákveðnir til leiks í seinni hálfleik og sóttu meira í byrjun hálfleiksins. En leikurinn jafnaðist aftur fljótlega en hvorugt liðið komst áleiðis gegn sterkum vörnum, og miðju- barningurinn varð sterkastur þeg- ar á leið. Gunnar Jónsson var besti mað- ur Skallagríms í þessum leik, hann virðist vera að komast í fyrra form eftir þrálát meiðsl í sumar. Guðmundur Baldursson og Kristján Guðmundsson voru bestu menn Fylkis að þessu sinni. HBj. VALSMENN hafa nú fengið nafna- lista frá Manchester United yfir þá leikmenn sem koma og leika gegn Val og KA í næstu viku. Óhætt er að segja að marga kunna og snjalla leikmenn sé á listanum að finna, enda vart við öðru að búast, og eru nær allir bestu leikmenn liðsins, en Ijóst mun vera að Steve Coppel leik- ur ekki þar sem hann á við meiðsl að stríða. Á listanum eru 17 leikmenn og gætu einhverjir átt eftir að bætast á hann, þar sem líkur eru taldar á því að liðið muni festa kaup á leikmanni eða mönnum á næstu dögum. Þeir eru á höttunum eftir Alan Brazil frá Ipswich og einhver læddi því að blm. að einnig hefðu þeir áhuga á Andy Gray frá Wolv- es, hvað svo sem satt er í því. Wolves er að reyna að selja Gray til að laga fjárhag sinn en félagið er nánast á hausnum. Eftirtaldir koma örugglega: Gary Bailey, John Gidman, Martin Buchan, Arthur Albiston, Ray Wilkins, Ashley Grimes, Mike Duxbury, Gary Birtles, Norman Whiteside, Steve Pears, Kevin Moran, Gordon McQueen, Peter Bodak, Bryan Robson, Arnold Muhren, Lou Mac- ari og Frank Stapleton. Með liðinu kemur 5 manna far- arstjórn, og í henni er meðal ann- arra Ron Atkinsson, fram- kvæmdastjóri liðsins. Hópurinn kemur til landsins á þriðjudaginn, leikur við Val daginn eftir og KA síðan á fimmtudaginn. Fer hópur- inn norður á fimmtudagsmorgun og suður aftur um kvöldið. Heim til Englands verður síðan farið á laugardeginum. Knattspyma 1

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.