Morgunblaðið - 27.07.1982, Side 43
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ1982
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ1982
23
Víkingar nutu góðs af ein-
kennilegum vítaspyrnudómi
ÍBÍ OG Vikingur skildu jöfn í 1.
deild íslandsmóLsins í knaltspyrnu á
ísafírði á sunnudaginn, lokatölurnar
urðu 2—2 og má segja að Vikingarn-
ir hafí fengið annað stigið með góðri
aðstoð dómara leiksins sem lék sér-
stakt hlutverk í leiknum. Staðan í
hálfíeik var 2—1 fyrir ÍBÍ.
Leikurinn hófst með miklum
krafti, sótt var á báða bóga og
voru margar sóknarloturnar bæði
snarpar og hættulegar. Heimalið-
ið náði forystunni strax á 8. mín-
útu leiksins. Liðið náði þá
skemmtilegri sókn sem endaði
með því að Jón Oddsson sendi
knöttinn fyrir markið og Ámundi
.Sigmundsson skallaði glæsilega í
netið án þess að Ögmundur mark-
vörður kæmi nokk'rum vörnum
við.
En aðeins fimm mínútum síðar
jöfnuðu Víkingarnir og þar kom
dómari leiksins mjög við sögu.
Víkingar fengu hornspyrnu og er
knötturinn kom fyrir markið hljóp
Hreiðar markvörður út undir
markteigslínuna og sló knöttinn
frá. Flauta dómarans gall við og
hann benti á vítapunktinn. Var
þetta vafasamur dómur þar sem
enginn vissi hvað gerst hafði eða á
hvern var dæmt. Skýring dómar-
ans var að markvörðurinn hafi
hrint mótherja. Ómar Torfason
framkvæmdi spyrnuna, en Hreið-
ar markvörður gerði sér lítið fyrir
og varði skot hans. En dómarinn
lét þá endurtaka spyrnuna. Var
það vegna þess að Hreiðar mark-
vörður, einn leikmanna ÍBÍ og
einn Víkingur voru á hreyfingu er
Ómar spyrnti. Aftur spreytti
Ómar sig og nú skoraði hann.
Þrátt fyrir að sömu þrír hafi enn
verið á hreyfingu, dæmdi dómar-
inn að þessu sinni mark.
ÍBÍ:
Víkingur
2-2
• Ómar Torfason skoraði úr víta-
spyrnunni umdeildu.
Eftir þessi mistök má segja að
dómarinn hafi misst tök sín á
leiknum það sem eftir lifði hálf-
leiksins. Var hann langt frá því að
vera sjálfum sér samkvæmur,
enda fór lítið fyrir knattspyrnu,
en heldur meira fyrir baráttu og
hörðum návígum.
Liðin fengu þó hvort sitt mark-
tækifærið áður en blásið var til
leikhlés, Heimir Karlsson komst
einn inn fyrir vörn ÍBÍ á 31. mín-
útu, en Örnólfur Oddsson náði að
afstýra hættunni á síðustu
stundu. Heimaliðið nýtti betur
færi sitt, Jón Oddsson átti skot að
marki Víkings á 40. mínútu sem
rataði rétta leið með aðstoð Ragn-
ars Gíslasonar. Einni mínútu síð-
ar voru ísfirðingarnir mjög nærri
því að bæta marki við, Halldór
Ólafsson skallaði naumlega yfir
markið eftir fyrirgjöf Gunnars
Péturssonar.
Strax í upphafi síðari hálfleiks-
ins var ljóst að bæði liðin voru
ákveðin að leika til sigurs. Mun
meira var um samleik og góða
knattspyrnu, oft og tíðum eins og
snillingar væru á ferðinni, og
skiptust liðin á sóknarlotum.
Ögmundur markvörður Víkings
bjargaði naumlega er Halldór
Ólafsson var kominn í dauðafæri á
markteignum á 56. mínútu og á 79.
mínútu skallaði Ámundi Sig-
mundsson naumlega yfir markið.
En harka var alltaf fyrir hendi,
þannig fengu bæði Sverrir Her-
bertsson og Gunnar Gunnarsson
gul spjöld fyrir mjög grófan leik.
Tíu mínútum fyrir leikslok náðu
Víkingarnir síðan að jafna. Eftir
markspyrnu náði liðið góðri
skyndisókn sem endaði með góðu
skoti frá Heimi Karlssyni og réði
Hreiðar ekki við það. Síðustu mín-
úturnar voru heldur tíðindalitlar,
en hart var þó barist á báða bóga
og sjáanlegt að dómarinn hafði
lítil tök á leiknum.
I stuttu máli: Isafjarðarvöllur 1.
deild: ÍBÍ-Víkingur 2-2 (2-1).
Mörk IBI: Ámundi Sigmundsson
og Jón Oddsson. Mörk Víkings:
Ómar Torfason (víti) og Heimir
Karlsson. Áminningar: Sverrir
Herbertsson og Gunnar Gunn-
arsson. Áhorfendur: 450. Dómari:
Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson.
— Jens.
Valur og Fram gerðu jafntefli:
Liðin nýttu aóeins tvö
af mýmörgum færum sínum
VALUR og Fram skildu jöfn í 1.
deildinni i Laugardalnum i
sunnudagskvöldið, hvort lið skoraði
eitt mark. Fyrri hálfleikurinn var
heldur tilþrifalítill; hart var barist og
mikið hrópað en spil oft á tíðum til-
viljanakennt. í síðari hálfleiknum
hresstust bæði lið hins vegar og
fengu góð marktækifæri og hefðu
auðveldlega átt að geta skorað fleiri
mörk. Nokkur vindur blés meðan
leikurinn stóð yfír og kalt var í veðri.
Mjög lítið markvert gerðist
fyrsta hálftímann. Valsarar, sem
léku undan vindi, sóttu miklu
meira og áttu tvö góð skot. Var
Magni Pétursson að verki í fyrra
skiptið er hann skaut utarlega úr
vítateignum og virtist boltinn fara
í hönd eins Valsarans og aftur
fyrir, en þeir höfðu aðeins horn-
spyrnu upp úr krafsinu.
Njáll Eiðsson átti síðara skotið,
er hann var vel utan teigs og fór
boltinn rétt yfir. Síðustu 15 mín.
hálfleiksins voru síðan mun líf-
legri en fyrri parturinn og fengu
leikmenn þá nokkur færi.
Það besta fékk Guðmundur
Torfason er skallað hafði verið til
hans á markteiginn, en hann sóp-
aði boltanum hátt yfir markið.
Halldór Arason fékk einnig gott
færi af örstuttu færi en Brynjar
kom út og varði. Þar með eru talin
tvö Fram-færi, en Valsmenn voru
einnig skeinuhættir á stundum,
t.d. komst Þorsteinn Sigurðsson
einn langleiðina inn að markteig
en skot hans hafnaði víðs fjarri
markinu.
Valur: 4 4
Fram
Þá var Guðmundur Baldursson í
töluverðum vandræðum með skot
Hilmars Sighvatssonar. Flæktist
Guðmundur í lausum torfusnepl-
um í markteignum en náði þó að
slá boltann framhjá.
Eins og getið var í upphafi var
seinni hálfleikurinn betri en sá
fyrri. Framarar, sem nú höfðu
vindinn í bakið, tóku forystuna á
55. mín. er Viðar Þorkelsson skor-
aði með góðu skoti utan úr teig.
Boltinn barst til hans eftir að
Valsmönnum hafði mistekist að
hreinsa frá. Viðar tók boltann
niður í rólegheitum, lék aðeins
áfram og hleypti síðan af.
Framarar sóttu mun meira
fyrri part hálfleiksins og bjargaði
Brynjar Valsmarkvörður einu
sinni vel frá Halldóri Arasyni.
Stuttu seinna gerði Brynjar sig
sekan um slæm mistök er hann
henti rétt út fyrir teiginn, beint
fyrir fætur Lárusar Grétarssonar.
Lárus skaut hið snarasta á markið
en Brynjar bætti nú upp fyrir mis-
tökin með góðri markvörslu.
Framarar léku mun aftar en áð-
ur eftir að þeir höfðu náð foryst-
unni og sóttu Valsmenn mjög stíft
í nokkurn tíma áður en þeir náðu
að jafna. Jöfnunarmarkið kom á
31. mín. og var mjög vel að því
staðið. Guðmundur Þorbjörnsson
renndi inn í teiginn á Inga Björn
sem skaut á marktelgshorninu.
Guðmundur varði frá honum en
boltinn hrökk til Inga aftur.
Hann sendi fyrir markið og
Þorgrímur Þráinsson skoraði ör-
ugglega af stuttu færi. Hvort lið
um sig fékk eitt dauðafæri eftir
þetta. Magni Pétursson skallaði
rétt framhjá af markteig, og rétt
fyrir leikslok komst Halldór Ara-
son gegnum Valsvörnina en bolt-
inn rúllaði naumlega framhjá
fjærstönginni eftir skot hans.
Jafntefli verða að teljast
sanngjörn úrslit Ieiksins. Bæði lið
fengu prýðileg færi en aðeins tvö
nýttust, og eru liðin bæði í hættu í
deildinni. Valur er neðstur með 9
stig, þar sem hann missti 4 stig
vegna Aibertsmálsins, og Fram er
með 10 stig ásamt IBI.
Valsvörnin var nokkuð óörugg á
köflum í leiknum og virkaði ekki
sannfærandi. Framvörnin var aft-
ur á móti sterk, og miðvallaraspil-
arar liðsins voru einnig ákveðnir.
Sóknarleikmenn beggja liða fengu
ágæt færi en nýtingin var léleg.
í stuttu máli:
Laugardalsvöllur 1. deild Fram—
Valur 1-1 (0-0)
Mark Fram: Viðar Þorkelsson á
55. mín.
Mark Vals: Þorgrímur Þráins-
son á 76. mín.
Dómari var Þóroddur Hjaltalín.
Áhorfendur: 821.
7—SH.
• Júllus Pétur Ingólfsson á hér horkuskalla I þverslá. Eitt besta marktækifærí Sfcagauuuiua í leikauin.
Sanngjarn sigur Akurnesinga
AKURNESINGAR lögöu KA aö
velli, 1—0, í 1. deild íslandsmótsins
I knattspyrnu á Akranesi á laugadag-
inn. í leikhléi va staðan 1—0. Leik-
urinn var miðlungi vel lcikinn af
beggja hálfu og sé tekið mið af
marktækifærum var sigur Akurnes-
inga sanngjarn enda voru þeir held-
ur sterkari aðilinn. KA-mönnum
gekk erfíðlega að skapa sér mark-
tækifæri en þeir léku þokkalega úti
á veliinum. Góðir samleikskaflar
sáust hjá báðum liðum, en í siðari
hálfleik einkenndist leikur Akurnes-
inga um of af langspyrnum fram
völlinn.
Fyrsta marktækifæri leiksins
féll í skaut Akureyringum, er Jó-
hann Jakobsson stakk boltanum
laglega inn fyrir vörn Akurnes-
inga. Þar fékk Ragnar Rögn-
valdsson boltann á markteigs-
horninu einn og óvaldaður, en við-
stöðulaust skot hans fór rétt
framhjá markinu. Eftir þetta voru
marktækifærin flest Akurnesinga.
Á 4. mínútu brauzt Árni Sveins-
son laglega upp að endamörkum
og sendi boltann út í teiginn til
Sigþórs, en Aðalsteinn varði skot
hans öruggiega. Á 10. mínútu átti
Guðjón skot í stöng KA-marksins
af löngu færi, boltinn hrökk af
stönginni í Aðalstein og aftur
fyrir. Á 15. mínútu fékk Sigþór
stungu inn í vítateig KA og skor-
aði, en ýtti um leið við miðverði
KA, þannig að Guðmundur Har-
aldsson, dómari, dæmdi markið af.
Á 20. mínútu lék Elmar Geirsson á
þrjá varnarmenn í A og sendi fyrir
markið, en Davíð markvörður
greip vel inn í sendinguna og af-
stýrði hættunni. Á 27. mínútu kom
svo eina mark leiksins. Kristján
Olgeirsson náði þá boltanum af
öðrum miðverði KA rétt utan víta-
teigs, sendi hann á Sveinbjörn,
sem lék upp að endalínu og sendi
knöttinn á Sigþór, sem skoraði ör-
ugglega af stuttu færi. Á 30. mín-
útu skaut Kristján framhjá KA-
markinu úr vítateignum eftir að
hafa haft betur í baráttunni um
boltann við miðverði KA. Skömmu
síðar skallaði Gunnar Gíslason yf-
ir ÍA-markið eftir fyrirgjöf Elm-
ars. Á 40. mínútu varði Aðalsteinn
hörku skalla frá Júlíusi Ingólfs-
syni eftir fyrirgjöf Sveinbjörns
Hákonarsonar og síðasta færið í
hálfleiknum átti KA þegar Gunn-
ar skallaði yfir ÍA-markið eftir
sendingu Elmars.
í síðari hálfleik var KA sterkari
aðilinn, náði valdi á miðjunni og
var meira með boltann án þess þó
að skapa sér góð marktækifæri.
Leikur Akurnesinga einkenndist
þá af langspyrnum fram völlinn
og við það urðu tengiliðir liðsins
að mestu óvirkir. Þrátt fyrir það
áttu Akurnesingar hættulegustu
færin er þeir náðu skyndisóknum,
er KA-menn voru farnir að sækja.
Á 49. mínútu átti Gunnar skalla
að ÍA-markinu eftir sendingu
Ormars, en Davíð varði auðveld-
lega. Á 55. mínútu brauzt Guðjón
upp að endamörkum og sendi bolt-
ann fyrir KA-markið en þar var
enginn samherji á réttum stað,
svo hættunni var afstýrt. Á 57.
mínútu fékk Árni góða stungu eft-
ir laglegan samleik inn fyrir vörn
KA en skaut beint i fang Aðal-
steins. Á 60. mínútu sendi Guðjón
boltann fyrir mark KA, Júlíus
skallaði í þverslá og síðan yfir
markið í næstu tilraun. Á 68. mín-
útu varði Aðalsteinn hörkuskot
Guðjóns í horn eftir mikla rispu
Guðjóns. Á 75. mínútu komst
Kristján einn inn fyrir vörn KA,
lék á Aðalstein markvörð, en
skaut síðan framhjá úr þröngu
færi. Á 77. mínútu varði Davíð vel
hörkuskalla frá Steingrími Birg-
issyni, sem þá var nýiega kominn
inn á í stað Ragnars. KA sótti stíft
síðustu mínútur leiksins, en komst
lítt áleiðis gegn sterkum miðvörð-
um ÍA, þeim Sigurði Lárussyni og
Jóni Gunnlaugssyni.
Hjá Akurnesingum bar mest á
Sigurði Lárussyni, Jóni Gunn-
laugssyni og Árna Sveinssyni, en
að öðru leyti voru leikmenn frem-
ur jafnir að getu. Hjá KA voru það
einnig miðverðirnir, sem mest bar
á, þeir Haraldur og Erlingur, en
Elmar átti einnig góðan leik.
í stuttu máli: lslandsmótið 1.
deild. Akranesvöllur ÍA—KA 1—0
SIGURÐUR Jónsson er yngstí leik-
maður, sem leikið hefur í 1. deild
íslandsmótsins í knattspyrnu, en
hann er aðcins 15 ára, fæddur 27.
september 1966. Hann lék nú sinn
fyrsta leik með meistaraflokki ÍA á
yfírstandandi íslandsmóti og spjall-
aði blm. Mbl. við hann að leik lokn-
um.
„Það er vissulega mikill munur á
því að leika í 1. deild og 3. flokki.
Við erum með slakt lið í 3. flokkn-
um og hefur því ekki gengið sér-
lega vel þar. Það er því tilbreyting
að vera í sigurliði og það í 1. deild.
Það er mun erfiðara að leika í 1.
deildinni, þar eru leikmenn lík-
amlega sterkari og betri. Mér
fannst ég ekki standa mig neitt
sérstaklega, en er ákveðinn í að
gera betur næst,“ sagði Sigurður.
Er Sigurður var spurður álits á
leiknum og úrslitum hans, sagðist
hann ekki vilja tjá sig sérstaklega
um leikinn en sagði að það væri
alltaf sanngjarnt þegar Skaginn
MARK ÍA: Sigþór ómarsson á 27.
mínútu.
Áminning: Sveinbjörn Hákonar-
son.
Dómari: Guðmundur Haraldsson.
HG
• Sigurður Jónsson.
ynni. Þá sagðist hann stefna að
því að halda áfram í knattspyrn-
unni og reyna að ná sem lengst.
HG
(1-0).
Sigurður Jónsson:
Alltaf sanngjarnt
þegar Skaginn vinnur
Stefán varði tvær víta-
spyrnur á lokamínútunni
ÞAÐ VAR heldur betur líf í tuskunum á síðustu mínútu leiks KR og ÍBV í 1.
deildinni i knattspyrnu á laugardaginn. KR hafði 1—0 forystu frá því i fyrri
hálfleik, og er u.þ.b. þrjátíu sekúndur voru til leiksloka dæmdi mjög góður
dómari leiksins, Rafn Hjaltalín, vítaspyrnu á KR-inga. Kári Þorleifsson var
þá felldur innan teigs og ekki um annað að ræða en að dæma viti. Ómar
Jóhannsson, vítakóngur þeirra Eyjamanna, steig nú fram, og var skot hans
hið ágætasta, nokkuð fast og alveg úti við stöng. Þangað var Stefán Arnarson
markvörður KR hins vegar floginn og varði skotið. Hann var þó greinilega
kominn af stað áður en Ómar spyrnti, þannig að hann fékk að taka vítið
aftur. En í síðara skotinu tókst Ómari heldur ekki að senda knöttinn rétta
leið, því varði Stefán aftur. Skotið var slakt, stefndi rétt utan við miðju
marksins og Stefán varði örugglega. Skömmu síðar flautaði Rafn til leiks-
loka og stigin voru því i höfn hjá KR. Sigurinn var sanngjarn, liðið lék betri
knattspyrnu en ÍBV og voru KR-ingar mun ákveðnari í sóknaraðgerðum
sínum en framherjar Vestmanneyinga sem höfðu úr afskaplega litlu að moða
og ógnuðu KR markinu sjaldan. KR lék á köflum mjög skemmtilega, og þá
áttu þeir besta mann vallarins þar sem var Sæbjörn Guðmundsson, en
hann átti stórgóðan leik. Mjög teknískur leikmaður sem virtist geta platað
Vestmanneyinga upp úr skónum nánast þegar hann vildi.
KR náði forystu á 20. mínútu
leiksins. Ágúst Már Jónsson skall-
aði á markið eftir hornspyrnu,
Páll varði og hélt knettinum en
lenti með hann fyrir innan markl-
ínu. Línuvörður var mjög vel stað-
settur og dæmdi undir eins mark.
Leikurinn var nokkuð fjörugur
eftir þetta. KR-ingar voru sterkari
og spiluðu betur. Miðjumennirnir
voru sprækir, og gaman að fylgj-
ast með þeim, en sérstaklega var
Sæbjörn góður.
Þrátt fyrir gott spil var heldur
tíðindalítið uppi við mörkin.
KR-ingar fengu gott færi rétt
fyrir hlé, og var Sæbjörn þar á
ferðinni. Hann einlék inn í teig og
átti gott skot sem Páll varði vel.
Boltinn hrökk rétt út fyrir vítateig
þar sem Sigurður Indriðason tók
við honum og skaut naumlega yfir
markið.
KR-ingar drógu sig nokkuð aft-
ar á völlinn í upphafi síðari hálf-
leiks. Reyndist það bjóða hætt-
unni heim því Vestmanneyingar
sóttu miklu meira. Fljótlega komu
KR-ingar þó framar og voru betra
liðið. Þeir fengu fyrsta færi hálf-
leiksins, og var það eftir góðan
undirbúning Sæbjarnar. Hann
komst inn í teig, renndi út á Ágúst
Má, en skot hans var mjög vel var-
ið af Páli Pálmasyni.
Vestmanneyingar fengu
skömmu síðar gott færi er Viðar
Elíasson skaut rétt framhjá frá
vítateigslínu. Eins og áður sagði
höfðu framherjar IBV ekki úr
miklu að moða. Miðjumennirnir
voru alls ekki sannfærandi og lítið
var um góðar sendingar frá þeim.
Framherjarnir voru því daufir,
hengdu haus á köflum og virtust í
fýlu, en áttu síðan ágæta spretti
inn á milli.
Upp úr miðjum hálfleiknum var
Kári Þorleifsson í góðu færi er
hann fékk sendingu fyrir markið,
en var of seinn að athafna sig og
1—n
IBV I U
varnarmaður náði að hreinsa. En
KR-ingar fengu einnig færi. Eftir
langt innkast inn í teig IBV barst
knötturinn út til Magnúsar Jóns-
sonar sem skaut góðu skoti yst úr
teignum en Páll var vel á verði
sem oftar í leiknum og varði vel.
Lokamínútum leiksins hefur þeg-
ar verið lýst.
Sigur KR í leiknum var sann-
gjarn. Þeir léku betri knattspyrnu
og voru mun jafnari en ÍBV.
Miðjumenn liðsins léku allir nokk-
uð vel, vörnin gerði vel það sem
þurfti að gera. Það var nú að vísu
ekki mjög mikið þar sem fram-
línumenn ÍBV voru ekki hættu-
legir. Vörnin var sterkasti hluti
Vestmanneyjaliðsins og Páll var
góður í markinu.
SH.
• Sæbjörn Guðmundsson KR-ingur og Eyjamaðurinn eitilharði, Örn
Oskarsson, kljást um knöttinn.
Ljósni. CuAjón.
Sigur ÍBK gegn UBK
var minni en efni stóðu til
ÍBK gerði sér lítið fyrir og sigraði
Breiðablik úr Kópavogi 1—0 i 1.
deild fslandsmótsins i knattspyrnu
um helgina. Leikur liðanna var
fremur tilþrifalítill, en sigur heima-
liðsins þó sanngjarn. Liðið átti nán-
ast öll þau færi sem sáust í leiknum
og var nokkrum sinnum mjög ná-
lægt því að skora. Blikarnir gátu
varla státað af öðru en einni auka-
spyrnu sem Sigurður Grétarsson
framkvæmdi. Þorsteinn Bjarnason
markvörður brást þó vel við i erfíðri
stöðu. En litum á helstu punktana í
minnisbókinni.
Fyrri hálfleikur.
Á 12. mínútu kom fyrsta skot leiks-
ins, sem var á mark Breiðabliks,
þar var að verki Daníel Einarsson
sem skaut rétt yfir markið, en eft-
ir það skapaðist mikil pressa á
mark Breiðabliks án þess að nein
hættuleg tækifæri mynduðust.
Á 18. mínútu átti Daníel annað
skot að marki Breiðabliks en Guð-
mundur Ásgeirsson varði vel.
Á 25. mínútu kom hættulegasta
tækifæri Breiðabliksmanna til að
skora í leiknum, Sigurður Grét-
arsson tók aukaspyrnu fyrir
1:
Breiðablik og skaut föstu skoti í
varnarvegg Keflvíkinga, sem bolt-
inn hrökk af og smaug framhjá
marki þeirra.
Á 29. mínútu fékk Ragnar
Margeirsson góða sendingu inn
fyrir teig Breiðabliksmanna þar
sem hann skaut yfir úr þröngu
færi.
Á 38. mínútu brunaði Ragnar upp
völlinn og gaf góða sendingu á
Einar Ásbjörn sem skallaði fram-
hjá úr góðu færi.
Á 43. min. átti Daníel Einarsson
gott færi inn í teig Breiðabiks-
manna en markvörður þeirra
varði vel.
Síðari hálfleikur.
Á 52. mínútu átti Einar Ásbjörn
gott skot af löngu færi á mark
Breiðabliks en Guðmundur mark-
maður varði meistaralega með því
að slá boltann frá markinu og í
horn.
Á 57. mínútu komst Ingvar Guð-
mundsson einn inn fyrir vörn
Breiðabliks, en skaut klaufalega
ýfir.
Á 64. mínútu kom loks fyrsta mark
heldur lítt spennandi leiks, en þar
var að verki Ragnar Margeirsson
sem braust kröftulega í gegnum
vörn Breiðabliks eftir góða send-
ingu frá Einari Ásbrini, og skor-
aði gullfallegt mark. Eftir markið
háðu Keflvíkingar hraðasókn að
marki Breiðabliks án þess að nein
hættuleg tækifæri sköpuðust, og
það sem eftir var leiksins fór að
mestu fram á miðju vallarins án
þess að nokkuð spennandi gerðist.
Einar Ásbjörn Ólafsson var
besti maður ÍBK í leiknum, en
einnig áttu þeir Gisli Eyjólfsson
og Ragnar Margeirsson góðan dag
að þessu sinni. Hjá UBK var ekki
um eins auðugan garð að gresja,
helst að Sigurður Grétarsson og
Sigurjón Kristjánsson sýndu
spretti þó að litlu haldi kæmi gegn
sterkri vörn ÍBK.
—Vigdís.
II