Morgunblaðið - 27.07.1982, Page 27

Morgunblaðið - 27.07.1982, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ1982 31 Hörkuspennandi og jöfn keppni var í öllum flokkum í íslands- meistarakeppninni í hjólreiðum sem fram fór um helgina. Þrátt fyrir að þeir sem lengst hjóluðu færu yfir 100 kílómetra voru það sekúndurnar sem endanlega réðu úrslitum. Úrslit urðu eftirfarandi: Karlaflokkur (17 ára og eldri). Hjól- að var Hafnarfjörður — Keflavík — Sandgerðishringurinn — Hafn- arfjörður, sem er 105 km: 1. Helgi Geirharðsson (Peugeot), 2:57,37 2. Einar Jóhannesson (Colner), 2:57,42 3. Frosti Sigurjónsson (Schauff), 3:10,58 Unglingaflokkur (15—16 ára). Hjól- að var Hafnarfjörður — Keflavík — Hafnarfjörður sem er 78 km: 1. Hilmar Skúlason (Motobecane), 2:09,35 2. Sigurgeir Vilhjálmsson (Kalk- off), 2:09,36 (sjónarm.) 3. Sigurjón Halldórsson (Colner), 2:09,36 Drengjaflokkur (13—14 ára). Hjól- að var frá Keflavík til Hafnar- fjarðar: 1. Ingólfur Einarsson (Motobec- ane), 1:10,14 2. Guðmundur Erlendsson (Moto- becane), 1:23,40 Mót kaþólskra Norðurlandamanna Kétt innan við hundrað kaþólskra manna frá Norðurlöndum og Ham- borg eru nú saman komnir i Keykja- vík á móti, sem ber heitið „Rætur og markmið". Hópur kaþólskra Islend- inga tekur einnig þátt í mótinu. Fluttir hafa verið fyrirlestrar og fjallað um efni þeirra í starfshópum. Hafa menn reynt að gera grein fyrir samhengi milli liðinnar tíðar og þeim vandamálum, sem helst steðja að kristnum mönnum á okkar tímum. Er mótið haldið í Háskóla íslands, og lýkur því á föstudaginn kemur. A laugardag var farið í ferðalag um Þingvelli, Gullfoss, Geysi og Skálholt. Naut hópurinn leiðsagnar Heimis Steinssonar á Þingvöllum. Aðalviðburður mótsins var há- messan í Kristskirkju í Landakoti á sunnudag, þar sem Frehen biskup veitti tveimur ungum mönnum djáknvígslu. Þar með voru þeir teknir í tölu þjóna kirkjunnar, og eiga þá prestvígsluna eina eftir þangað til þeir mega syngja messu. 16 prestar tóku þátt í athöfninni með biskupi og auk þeirra O’Fiaich kardináli, erkibiskup í Armagh og æðsti yfirmaður kirkjunnar á írl- andi, svo og Majdanski biskup í Stettin í Póllandi. í tilefni af mót- inu, og djáknavígslunni bárust ýmis heillaskeyti, m.a. frá Jóhannesi Páli II páfa og forseta íslands Vigdísi Finnbogadóttur. Forsetinn var viðstaddur setningarmessu mótsins ásamt Pétri Sigurgeirssyni biskupi og konu hans. Síðdegis sunnudag flutti O'Fiaich kardináli fyrirlestur um ferðir írskra munka og trúboð þeirra á miðöldum. En kardinálinn er sér- fræðingur í kirkjusögu. Gerði hann grein fyrir hinum miklu áhrifum, sem írskir munkar hafa haft á meg- inlandi Evrópu. Hvað samband þeirra við ísland snerti, sagði hann, að ekki væri unnt að efast um, að írskir munkar hefðu einnig verið á íslandi. Hefðu þá Norðurlanda- menn haft meiri áhrif á írlandi á víkingatímanum en írar á íslend- inga. Þeir hefðu margir setzt að, stofnað til borga og haft sín áhrif þar á þjóðlíf, og ekki hvað sízt á tungumálið. Enda ætti finna þar fjölda staðaheita, sem óvefengjan- lega væru af norrænum rótum runninn, svo og önnur orð jafnvel í gelísku. Halldór Laxness var einnig einn af ræðumönnum mótsins. Sagði hann af Maríusögu, þessum dýrgrip fornbókmenntanna, sem svo lítið hefur verið hirt um hér á landi. Mótið er enn ekki nema hálfnað. Að sögn Torfa Ólafssonar hefur það engu að síður borið góðan árangur. Ekki aðeins hvað varðar nærveru Andans. Heldur einnig á vettvangi mannlegra samvista og gagnlegra kynna þessa fólks frá hinum norð- lægari löndum. 20 keppendur mættu til keppni í slæmu veðri en keppnin fór þó vel fram í alla staði að sögn Guð- mundar Jakobssonar, varafor- manns Hjólreiðafélags Reykjavík- ur. Keppt var um farandbikara frá Erninum, Mílunni og Hjólreiðafé- lagi Reykjavíkur. Guðmundur vildi koma þakklæti á framfæri við lögregluna í Keflavik og Hafn- arfirði svo og Vífilfell hf. fyrir góða aðstoð. Frá djáknavígslu í Kristskirkju í Landakoti á sunnudaginn var. Ágúst Eyjólfsson prestur og Hinrik Frehen biskup standa fyrir framan vígsluþegnana, þá Hjalta Þorkelsson og Jacques Rolland. l.jósm. \k-x su-mon Kaþólska kirkjan á íslandi: Helgi Geirharðs- son Islandsmeist- ari í hjólreiðum í HiTfl QG Þiltm 0flG5iH5 •iSSjsíS? vsr só. 3<° ^ 'SS.XS hr- • 4<tH t‘ v\t a S \/x ^ o *•* S 'V.V„ s, rr>?< fikr ' "

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.