Morgunblaðið - 27.07.1982, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚLÍ 1982
37
fclk í
fréttum
Jackie Onassis oo Lee Radziwill
Systurnar Jackie Onaasis og Lee Radziwill.
+ í langan tíma sást Lee Radziwill, systir Jackie Onassis, aldrei manna á medal. Fyrir nokkru kom hún svo fram með
Jackie systur sinni í New York við eitthvert hátíðlegt ta>kifæri og útlit hennar var slíkt að sá orðrómur komst þegar á
kreik að eitthvað mikið væri að.
Lee Radziwill sem er um fimmtugt var alltaf áður fyrr glaðleg og hressileg en nú er hún orðin bæði mögur og
ellileg. Hún er meira að segja hætt að brosa. Börn hennar tvö eru orðin fullvaxta, og eiginmaðurinn sem hún
skildi við á sínum tíma, Stanislaus Radziwill prins, er dáinn. Kunnugir segja að henni finnist líf sitt innantómt
og tilgangslaust og hún hafi ekkert að lifa fyrir. Ein besta vinkona hennar sagði: „Lee hefur gefist upp. Hún er
viss um að lífið hafi henni ekki neitt meira að bjóða." Þetta viðhorf hefur greinilega sogið allan lífskraft úr Lee
Radziwill og segja kunnugir að Jackie Onassis hafi af henni þungar áhyggjur.
ARMULI4 SIMI82275
Lillian Chapin vlð kennshi.
Óstöðvandi kennslukona
+ Lillian ('hapin er 100 ára gömul bandarísk kennslukona. Hún hefur starfað við
kennslu í 80 ár og hún hefur í hyggju að eyða 20 næstu árum í kennslu líka.
Lillian Chapin kennir útlendingum ensku í Echo Park United Methodist
Church School í Los Angeles og hún telur að það sé fyrst og fremst áhugi
hennar á kennslu sem sé orsökin fyrir langlífi hennar og góðri heilsu. „Að
mínu mati jafnast ekkert starf á við kennslu að því leyti hvað það gefur
manni mikið. Það jafnast ekkert á við þá tilfinningu að eitthvað sem þú
kennir einhverri manneskju stuðli að því að gera hana hamingjusamari og
betri," segir gamla konan með unga hjartað.
Þó að Lillian sé sjálf 100 ára segir hún að það sé ekki hvað lengi maður lifir
heldur hvernig maður lifir sem skipti máli. „Ég hef aldrei neytt áfengis og ég
reyki ekki þó að ég viti að þetta lífgi upp á tilveruna hjá sumum. Það sem
gefur lífi mínu gildi er hvað ég hef gaman af því að kenna og ég er viss um að
það bætir og styrkir heilsu mína mikið. Ég læt ekkert stoppa mig í að kenna,“
segir Lillian Chapin. Og samkennarar hennar segja að hún sé eldhress og
algerlega laus við kölkun og tvímælalaust vinæslasti kennarinn í skólanum."
COSPER
A9&S COSPfk
Loksins kemst
ævi Marlene
Dietrich á
hvíta tjaldið
+ Marga kvikmyndaframleið-
endur, þar á meðal Peter Bogd-
anovich, hefur yfir árin langað til
að kvikmynda ævi Marlene I)iet-
rich, en hún hefur aldrei getað
fundið neinn handritahöfund né
neinn leikstjóra sem hún hefur
treyst til að takast þetta verk á
hendur. Hún hefur reynt að forð-
ast forvitni og áhuga almennings
og lifað hálfgerðu felulífi í París
ekki ósvipað og Greta Garbó I
Róm. „Of mikil llollywood-frægð
— of lítið einkalíf," voru hennar
eigin orð.
Marlene Dietrich
En nú hefur Marlene Diet-
rich, sem sjálf segist aðeins
vera 77 ára, þótt að vinir henn-
ar og ættingjar segi hana átt-
ræða, fundið mann sem hún
telur sig geta treyst. Hann er
Maximilian nokkur Schell.
Æviminningar sínar hefur
Marlene ritað sjálf. Bera þær
nafnið „Eldiviður". Maximilian
Schell ætlar að sviðsetja þær
fyrir sjónvarp og kvikmynd og
ætlar einnig að sjá um kvik-
myndahandritið. Marlene segir
um þetta mál: „Við ætlum að
vinna þetta saman og fá okkur
lögfræðiaðstoð við hverja ein-
ustu senu. Og ég þekki Maxi-
milian það vel að ég veit að
hann stendur við allt sem hann
segir.“
=MONROGK
Höggdeyfar
Mikilvægir fyrir bílinn þinn og
öryggi fjölskyldu þinnar.
Ný sending komin
(fflmnaust kf
Siðumula - Simi 82722
VARAHLUTIR
AUKAHLUTIR
VERKFÆRI