Morgunblaðið - 30.07.1982, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 1982
Ljótim. Mbl. GuAjón.
Mesta umferðarhelgi
ársins fer í hönd
Ver.slunarinannahelgin er fram-
undan, en hún er mesta ferúahelgi
ársins. í tilefni af því hafa lögreglan
og llmferðarráð mikinn viðbúnaA. I
þaA minnsta sex vegalögreglubílar
verða á ferðinni víðs vegar um land-
ið og sérstakt umferðarútvarp verður
starfrækt.
A meðfylgjandi myndum, má
annars vegar sjá Óla H. Þórðar-
son, framkvæmdastjóra Umferð-
arráðs, Óskar Ólason, yfirlög-
regluþjón og Gunnar Kára
Magnússon, sem sér um umferðar-
útvarpið, ásamt bílstjórum vega-
lögreglubílanna; og hins vegar
lögreglumann, sem stöðvað hefur
bíl á Vesturlandsvegi og afhendir
bílstjóra hans aðvörun frá Um-
ferðarráði þess efnis að
áfengi og akstur fari ekki saman,
en lögreglan byrjaði að gera slíkt í
gær og mun halda áfram um helg-
ina. Úm leið benti lögreglan á
nauðsyn notkunar bílbelta.
LjÓHm. Mbl. OI.K.M.
24 félög í SSÍ hafa
sagt upp samningum
„Guð hjálpi þessari þjóð ef sjómenn
eiga að vinna eftir daglaunakerfinu,“
— segir Óskar Vigfússon
Sjómannasamband íslands hefur
skorað á aðildarfélögin að segja upp
kjarasamningum við Landsamband
íslenskra útvegsmanna frá og með 1.
september næstkomandi. í gær-
kvöldi höfðu 24 af 34 aðildarfélögum
SSÍ sagt samningunum upp, en til
þess að þeir verði úr gildi hinn 1.
september nk. þarf í síðasta lagi að
segja þeim upp á morgun. Óskar
Vigfússon, formaður Sjómannasam-
bandsins, sagði í gærkvöldi, að sjó-
menn ætluðu að tryggja sig fyrir því,
að ekki yrði ráðist á hlut þeirra einu
sinni enn af ríkisvaldinu, en að und-
anfornu hefur mikið verið rætt um
að fiskverð verði hækkað um 6 til
8% til styrktar útgerðinni, og að
þessari hækkun verði haldið utan
skipta, þannig að hún færi beint til
útgerðar.
Að sögn Óskars, þá hafa aðild-
arfélög Sjómannasambandsins
fylgst vel með gangi mála að und-
anförnu og sagðist hann ekki vita
annað en að öll félögin myndu
segja samningunum upp nú fyrir
mánaðarmótin, en uppsagnar-
frestur er einn mánuður.
„Það er fráleitt ef ríkisstjórnin
ætlar sér að leysa vanda útgerðar-
innar með því að ganga á hlut sjó-
rnanna," sagði Óskar. „í hvert sinn
sem ríkisstjórnin á við hluta-
skiptakjörin og færir öðrum aðil-
anum eitthvað, það er sjómönnum
eða útgerðarmönnum, þá er verið
að ráðskast með hlutaskiptakjör-
in, en slíku fylgir mikil röskun.
Svona lagað leiðir til þess, að
hlutaskiptakjörin líða undir lok.
Guð hjálpi þessari þjóð ef sjó-
menn eiga að fara að stunda sjó-
inn eftir daglaunakerfinu," sagði
Óskar.
Nígeríumenn ætla að
kaupa skreið áfram
Hafa ákveðið sama verð í ár og 1983 og var í fyrra
„ÞAÐ HAFA verið gefin út nokkur
leyfi, smá að vísu, til nokkurra þeirra
aðila, sem áttu útistandandi við-
skiptaskuldbindingar, þegar lokun
markaðarins átti sér stað. Þetta kem-
ur í framhaldi ákvörðunar rikisstjórn-
ar Nígeríu, að halda óbreyttu verði á
skreið til ársloka 1983, frá því sem
var á síðasta ári,“ sagði Magnús G.
Friðgeirsson, hjá Sambandi íslenzkra
samvinnufélaga, í samtali við Mbl.,
en hann er nýkominn úr för til Níg-
eríu.
„Það má því segja, að tveir hlutir
af þremur séu komnir. Þeir eru
búnir að ákvarða verðið út þetta ár
og næsta og þeir eru byrjaðir að
bæta þeim aðilum, sem urðu
fyrir skakkaföllum við lokun mark-
aðarins. Þriðja atriðið er svo, að
þeir gefi út einhverjar leikreglur
um hvernig þeir hyggist standa að
leyfisveitingum, í hversu miklum
mæli og hvernig," sagði Magnús.
Magnús sagði aðspurður, að
þessar ákvarðanir væru ákveðin
vísbending um, að Nígeríumenn
ætluðu sér að kaupa áfram skreið.
Togaraútgerðin fær fyrirgreiðslu í bönkunum:
„Óvenjulegt að viðskiptabank-
arnir fjármagni taprekstur“
segir Kristján Ragnarsson formaður LÍÚ
FJÖLMARGIR togaraútgerðarmenn
í landinu fengu bráðabirgðafyrir-
greiðslu í viðskiptabönkunum í gær
og kemur þessi fyrirgreiðsla í veg
fyrir að fjöldi togara stöðvist. Sam-
kvæmt þeim upplýsingum, sem
Morgunblaðið hefur aflað sér, þá
veittu bankarnir útgerðunum þessa
lánafyrirgreiðslu samkvæmt beiðni
Steingríms Hermannssonar sjávar-
útvegsráðherra og munu bankarnir
ætla að veita togaraútgerðinni að-
stoð, þar til efnahagsráðstafanir rik-
isstjórnarinnar hafa séð dagsins
Ijós.
„Mér er kunnugt um, að í dag hafa
menn fengið fyrirgreiðslu í við-
skiptabönkunum, sem nemur 300 til
500 þúsund krónum á skip og er
þetta einskonar fyrsta hjálp í því
skyni að hægt sé að halda rekstri
togaranna áfram," sagði Kristján
Ragnarsson formaður Landsam-
bands ísl. útvegsmanna þegar Morg-
unblaðið innti hann eftir þessari að-
stoð til togaranna.
„Það er óvenjulegt að viðskipta-
bankarnir taki að sér að fjármagna
taprekstur og hafa forráðamenn
bankanna oftar en einu sinni lýst sig
andvíga því. Þess vegna ætla ég að
þeir viti eitthvað um fyrirhugaðar
efnahagsaðgerðir og að þeir treysti
því að einhverjar bætur komi til út-
gerðarinnar, því lánsfé kemur út-
gerðinni ekki til hjálpar, nema þá til
að forðast stöðvun í skamman tíma,“
sagði Kristján ennfremur.
„Menn taka þetta lánsfé í trausti
þess, að einhver fyrirgreiðsla komi
af hálfu ríkisins. Þessi fyrirgreiðsla
er bundin við það og það er staðfest
af hálfu bankanna, að þeir muni
halda togurunum gangandi þar til
efnahagsaðgerðirnar sjá dagsins
ljós. Annars er það svo, að menn eru
orðnir býsna langeygðir eftir þeim
úrræðum, sem sjávarútvegsráðherra
er búinn að boða nú í fimm vikur,“
sagði Kristján.
Efni blaðsins helgað
verzlun og viðskiptum
í Morgunblaðinu í dag er stór hluti efnisins helgaður verzlun og
viðskiptum í tilefni verzlunarmannahelgarinnar og er það fyrri hluti
blaðsins með því efni sérstaklega. En síðari hlutinn verður í laugar-
dagsblaðinu. Hér er um að ræða viðtöl og greinar við fólk í verzlun og
þjónustu frá ýmsum stöðum á landinu, en einnig eru í blaðinu í dag
ýmsar upplýsingar varðandi skemmtanir, umferð og annað, sem
getur komið lesendum blaðsins að góðum notum um verzlunar-
mannahelgina.
Ef þeir hefðu ekki ætlað það
hefðu þeir ekki þurft að ákvarða
neitt verð. Þá byrja þeir á réttum
enda. Þeir byrja á því að bæta þeim
upp, sem urðu fyrir skakkaföllum
og síðan ætla þeir að veita ákveðin
leyfi. Við vitum hins vegar ekki
hversu víðtæk þau leyfi verða og
hvort þau nægja til að dekka það
magn, sem við þurfum að koma frá
okkur," sagði Magnús.
Á síðasta ári var verðið fyrir
svokallaða A-skreið 287 doilarar
fyrir 45 kg pakkningu og 225 doli-
arar fyrir samskonar pakkningu af
B-skreið.
„Það má óneitanlega gera ráð
fyrir, að þessi viðskipti gangi ekki
eins greiðlega fyrir sig og áður. Það
getur aldrei orðið þegar vara er á
leyfi,“ sagði Magnús G. Friðgeirs-
son ennfremur.
Árni Sigfósaon
Fulltrúaráð
sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavík:
Þrír Nóbelsverðlaunahaf-
ar gista ísland í ágústlok
ÞRÍR Nóbelsverðlaunahafar i lækn-
isfræði eru væntanlegir til íslands
seinnipart ágústmánaðar, á XVII
þing norrænna lífeðlisfræðinga um
lífeðlis- og lyfjafræði, sem haldið
verður hér á landi dagana 29.—31.
ágúst. Þetta eru þeir Sir Andrew
Huxley, sem hlaut ásamt öðrum Nób-
elsverðlaunin í læknisfræði 1963
fyrir uppgötvanir varðandi þær jóna-
hreyfingar sem liggja að baki örvun
og hömlun í himnu taugafruma; Ulf
von Euler, sem hlaut ásamt öðrum
Nóbelsverðlaunin i læknisfræði 1970
fyrir uppgötvanir varðandi taugaboð-
efni, geymslu þeirra, losun og niður-
brot; og Torsten Wiesel, sem ásamt
öðrum hlaut verðlaunin síðastliðið
ár, fyrir rannsóknir á sjónskyni. Þeir
munu allir flytja fyrirlestra á þinginu
og taka virkan þátt í störfum þess.
Alls eru væntanlegir á þingið
250 erlendir gestir, bæði frá hinum
Norðurlöndunum og víðs vegar að
úr heiminum, en þing sem þetta er
haldið á þriggja ára fresti og nú í
fyrsta skipti á íslandi. Á þinginu
verður fjallað um ýmislegt það
sem efst ber í lífeðlis- og lyfjafræði
í nútímanum, og má gera ráð fyrir
að ýmislegt komi þar fram, sem
hefur ekki áður litið dagsins Ijós í
þessum fræðum. Forseti þingsins
er prófessor Jóhann Axelsson og
verndari þess forseti íslands, Vig-
dís Finnbogadóttir.
Nánar verður sagt frá þinginu
og gestum þess síðar í Morgun-
blaðinu.
Árni Sigfússon
ráðinn fram-
kvæmdastjóri
ÁRNI Sigfússon hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri Fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, frá
I. ágúst að telja. Tillaga þar að lútandi
var samþykkt samhljóða á stjórnar-
fundi í Fulltrúaráðinu, sem haldinn
var á þriðjudag.
Undanfarna mánuði hefur Árni
verið framkvæmdastjóri Sambands
ungra sjálfstæðismanna, en hann
lætur af því starfi um leið og hann
tekur við hinu nýja. Árni Sigfússon
er 26 ára gamall, kennari að mennt.
Hann starfaði sem blaðamaður á
Vísi um nokkurn tíma. Hann hefur
setið í stjórn Heimdallar og er nú
formaður félagsins.