Morgunblaðið - 30.07.1982, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 1982
3
Á kortinu sést hæð yfir Skandinavíu og önnur minni yfir Grænlandi. Á
Grænlandshafi sést smá lægð sem gæti gefið vætu sunnanlands og
vestan framan af laugardegi. En síðan er reiknað með að hæðirnar nái
saman og lægðin eyðist.
Batnandi veðurhorfur
um allt land eftir því
sem líður á helgina
IIM HELGINA er búist við fremur
meinlausu veðri um allt land sam-
kvæmt þeim upplýsingum er lágu
fyrir á Veðurstofu Islands síðdegis i
gær.
Að sögn Guðmundar Haf-
steinssonar veðurfræðings er
spáð svipuðu veðri í dag á Suður-
og Vesturlandi og var í gær.
Hann sagði að útlit væri fyrir
smá vætu fyrripartinn á morgun,
en síðdegis myndi glaðna til. Á
Norður- og Austurlandi væri hins
vegar von á þurru veðri í dag og á
morgun. Spáin fyrir allt landið
væri sú að veður færi batnandi
eftir því sem liði á helgina. Held-
ur færi kóinandi, en hitastig yrði
þó í meðallagi miðað við árstíma,
þetta 10—14 gráður.
Mestra hlýinda væri að vænta
á skjólsælum stöðum á Suðaust-
ur- og Norðurlandi. Allt frá
Kirkjubæjarklaustri og austur
um og þaðan vestur til Akureyr-
ar. Á hálendinu yrði þokkalega
gott veður, sérstaklega eftir því
sem austar drægi t.d. væri veður-
útlit á Sprengisandi gott.
Deilan um mannaforráð
við ratsjána er leyst
STEINGRÍMUR Hermannsson
samgöngumálaráðherra og Ólaf-
ur Jóhannesson utanríkismála-
ráðherra hafa náð samkomulagi
þess efnis að flugmálastjóri,
Agnar Kofoed-Hansen, hafi hér-
SLYSAVARNARFÉLAGINU barst í
fyrrakvöld kl. 19.30 tilkynning frá
vélbátnum Helgu Guðrúnu B-I240,
þess efnis að báturinn væri staddur í
skerjagarði einhversstaðar hjá Mýr-
um. Mennirnir tveir sem um borð
voru, óskuðu aðstoðar vegna hafvillu
og takmarkaðra olíubirgða.
Leitarflugvél frá Landhelgisgæsl-
unni, TF-SYN, var fengin til að fara
á vettvang. Áhöfn vélarinnar sá ekki
niður vegna þoku þótt hún flygi í
aðeins 200 feta hæð. Um svipað leyti
fór Þjótur á Akranesi af stað með
björgunarsveitarmenn Slysavarnar-
félagsins. Gæslumenn fundu bátinn
við Hjörsey og tókst að leiðbeina
honum út á opið haf.
Þegar Þjótur var kominn vel áleið-
is bilaði hann og sneri við til Akra-
ness, þar sem hraðbáturinn Snari
B-1345 var fenginn til að fara á vett-
vang. Þá var og haft samband við
Sigurfara II frá Grundarfirði sem
var á leið norður um flóa. Vegna
myrkurs var hann fenginn til að
snúa við og vera bátunum til aðstoð-
ar með ratsjá, því báðir voru bátarn-
ir ratsjárlausir.
Um kl. 01.00 aðfaranótt fimmtu-
dags hafði Sigurfara tekist að leiða
Snara að Helgu Guðrúnu sem þá var
orðin olíulaus. Eftir að hafa fengið
olíu úr Sigurfara, héldu bátarnir af
eftir yfirumsjón með starfsemi
þeirri á Keflavíkurflugvelli er
lýtur að aðflugsstjórn á
Reykjavíkurflugvelli.
Hér er um það að ræða að
flugmálastjóri sjái um að ráða
stað heimleiðis. Um kl. 02.00 stöðv-
aðist vél Helgu Guðrúnar og Snari
tók hana í tog til Akraness. Eftir
minniháttar óhöpp náðu bátarnir til
hafnar kl. 5.30 í gærmorgun. Helga
Guðrún kom síðan inn til Reykjavík-
ur laust fyrir hádegi í gær. Engan
sakaði.
193 mm úrkoma
á Kvískerjum
MIKIÐ vatnsvcður gekk yfir suðaust-
urland í fvrradag. Mældist sólarhrings-
úrkoman á Kvískerjum i Suðursveit
193 mm. En þar hefur einnig mælst
mest sólarhringsúrkoma á landinu 243
mm.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem Mbl. aflaði sér á Veðurstofu ís-
lands er þetta óvanalegamikil úr-
koma miðað við árstíma. Orsökin
fyrir þessu mikla úrfelli væri að
hlýtt loft sem komið væri langa leið
sunnan úr hafi og væri búið að safna
í sig miklum raka þyrfti skyndilega
að hækka sig til að komast yfir
Vatnajökul en við lyftinguna kólnaði
það og missti við það þann raka sem
það hefði safnað í sig.
flugumferðarstjóra til starfa
við ratsjárbúnað þann á
Keflavíkurflugvelli sem
ómannaður var vegna deilna
er flugslysið í hlíðum Esju átti
sér stað á dögunum.
Þeim er fenginn verður
þessi starfi er jafnframt gert
að starfa undir stjórn flug-
málastjóra. Ráðgert er að
flugmálastjóri sendi viðkom-
andi frá Reykjavík til starfa
strax eftir helgi.
Verö á dollar
yfir 12 krónur
í fyrsta sinn
SÖLUGENGI Bandaríkjadollars
komst i fyrsta sinn yfir 12 krónur í
gærdag, þegar það var skráð 12.017
krónur. Dollarverð hefur því hækk-
að um tæplega 47% frá áramótum,
þegar gengið var skráð 8.185 krón-
ur.
Á einum mánuði hefur dollar-
verð hækkað um 3,94%, eða úr
11.562 krónum í 12.017 krónur,
sem þýðir um 1% hækkun á viku.
Það má svo skjóta því inn, að
frá því að núverandi ríkisstjórn
tók við völdum í febrúar 1980
hefur dollarverð hækkað úr 4.017
krónum í 12.017 krónur, eða um
tæplega 200%.
I júlímánuði hefur verð á Evr-
ópugjaldmiðlum hækkað nokkuð
meira en á dollar. Má nefna, að
dönsk króna hefur hækkað um
5,16%, vestur—þýzkt mark um
5,45% og sterlingspund um
5,19%.
Bátur í þoku og haf-
villu undan Mýrum
UTBÚUM HEILA
LAMBASKROKKA
Það bezta á
GRILLIÐ
GóÖ
matarkaup
Sértilboð
Svínalundir
Svínakótelettur
244,00 289,00
174,00 199,00
Nýtt hvalkjöt 27,00 Amerískt saltat, 100 gr. 8,50
Lambalifur 29,00 Lauksalat, 100 gr. 6,00
Ódýra baconiö 75,00 Rækjusalat, 100 gr. 11,50
Nýr lax 1/1 99,00 Ávaxtasalat, 100 gr. 9,00
Lax í sneiöum 138,00 Skinkusalat, 100 gr. 12,80
Rúllupylsa 40,00 Besta sviöasultan er frá Goöa,
Kjötbúðingur 46,00 bita stk. pr. kg. 98,00
Heimalöguð lifrarkæfa 68,00 Úrvals harðfiskur.
Kindahakk 38,00 Ýsa-, rikklingur og bitar.
Folaldahakk 36,00 Hangikjöt: (soðið) bitar pr.kg. 178
Kálfakótelettur 46,00 Úrbeinuð hangilæri, pr.kg. 119
Kálfahryggir italskt salat, 100 gr. 38,00 7,10 Úrbeinaöir hangi- frampartar pr.kg. 89
Grill pylsur í úrvaii.
Pantið tímanlega
Abending:
Okkar Skráö
verft verft
Nauta T-bone steik 95,00 118,00
Nauta-grillsteik 64,00 72,00
Nauta-bógsteik 64,00 72,00
Nauta-snitzel 183,00 215,00
Nauta-gullach 148,00 169,00
Nauta Roast-beef 159,00 185,00
Nautahakk 10 kg. 79,00 115,00
Nautahamborgari 8,00 10,40
Nautabuffsteik 165,00 186,00
Nauta Turn-bauti 215,00 244,00
Lambagrillsneiöar 79,00
Lambaframhryggur í B-A 69,00
Lambageiri 97,50 115,00
Lambaherrasteik 79,00 88,00
Lambarif marineruö 28,00 37,00
Svo stórar steikur sem hér er sagt
frá er ekki hægt aö steikja á venju-
legu garðgrilli heldur miklu frekar á hlóöum sem búa má til utan dyra við hús sín,
eins og þaö sem sést á meöfylgjandi mynd. Ef geyma á lambakjötið eitthvað eftir
steikingu veröur að halda því heitu í ofni, því moövolgt glóöarsteikt kjöt er ekki
sérlega spennandi.
Glóöarsteikt kjöt veröur alltaf aö vera vel heitt.
OFT ER GOTT AÐ EIGA HAUK I HORNI
Opið á föstudögum til kl. 7.
Opið í hádeginu.
Lokað í sumar á laugardögum.
Góö helgi
KJÖTMIÐSTÖÐIW Uugalæk 2.s. 86511