Morgunblaðið - 30.07.1982, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 1982
„Hjartau verslunarinnar
byrjað að slá
í Kringlumýrinni
Þad hefur vakiA athygli margra hve Hús verslunarinnar hefur verið skamm-
an tíma í uppbyggingu. Framkvæmdir hófust er fyrsta skóflustungan var
tekin vorió 1976, en þær eru nú á lokastigi. Það voru arkitektarnir Ingimund-
ur Sveinsson og Einar Þ. Asgeirsson sem teiknuðu húsið.
issjóður verslunarmanna, en þeir
eru þegar byrjaðir að innrétta og
ætla að flytja inn á árinu. A
fimmtu hæð verður Félag ís-
lenskra stórkaupmanna með að-
stöðu, en þeir hafa leigt út frá sér
hluta hæðarinnar endurskoðun-
arfyrirtæki sem þegar er flutt inn.
Á sjöttu hæð verða Kaupmanna-
samtök íslands, en þeir hafa þegar
auglýst sitt gamla húsnæði á Mar-
argötunni til sölu. Verslunarráð
íslands flutti inn á sjöundu hæð
þann tólfta júlí síðastliðinn.
Verslunarmannafélag Reykjavík-
ur ætlar að flytja inn á áttundu
hæð í september komandi. VR
verður einnig með aðstöðu á ní-
undu hæð. Á tíundu hæð verður
Bílgreinasamband íslands en ell-
efta og tólfta hæð eru hugsaðar
sem mynja og handbókasafn og er
innangengt á milli hæðanna.
Þetta húsnæði verður þó fyrst um
Ohætt er að segja að verslunar-
reksturinn í landinu hafi eignast
hjartastað í Kringlumýrinni í
Keykjavík. Þar hefur á skömmum
tíma risið eitt stærsta hús landsins,
Hús verslunarinnar, fjórtán hæða
bygging, sem kemur til með að hýsa
ýmis samtök og fyrirtæki í verslana-
stétt. Þegar þetta er skrifað eru tveir
aðilar þegar fluttir inn í húsið með
starfsemi sína, Verslunarráð ís-
lands, sem hélt sinn fyrsta fram-
kvæmdastjórnarfund í húsinu þann
22. júlí síðasliðinn, og Endurskoðun-
arskrifstofa Árna Bjöms Birgissonar
og Reynis Árnasonar, en þeir hafa
fengið leigt húsnæði hjá Félagi ís-
lenskra stórkaupmanna. Aðrir aðilar
vinna að því að innrétta fyrir starf-
semi sína og má búast við að þeir
flytji rekstur sinn í húsið á næstu
mánuðum.
Það var árið 1972 að eignaraðil-
ar hússins sem eru Verslunar-
banki íslands, Lífeyrissjóður
verslunarmanna, Verslunar-
mannafélag Reykjavíkur,
Kaupmannasamtök íslands, Félag
íslenskra stórkaupmanna, Bíl-
greinasambandið og Verslunarráð
Islands ákváðu að ráðast sameig-
inlega í húsbyggingu yfir starfemi
sína. Arkitektarnir Ingimundur
Sveinsson og Einar Þ. Ásgeirsson
voru fengnir til að teikna húsið en
framkvæmdir hófust vorið 1976
þegar Hjörtur Hjartarson, for-
maður byggingarstjórnar tók
fyrstu skóflustunguna fyrir bygg-
ingunni. Húsið er rúmlega tíuþús-
und fermetrar að stærð en þeir
hlutar þess sem ekki eru í sameign
eignaraðila og er ekki notaður
undir starfsemi þeirra, eru þessa
dagana auglýst til leigu fyrir sam-
tök og einkaaðila.
Hússtjórnin hefur ákveðið að leigja út hluU af fyrstu hæðinni undir veit-
ingarekstur, mat- og kaffisölu. Ekki hefur verið ákveðið hvers kyns starfsemi
eigi að fara fram i öðru leigurými, heldur verður það vegið og metið er
leigutilboð berast.
Að sögn Þorvarðs Elíassonr, rit-
ara hússtjórnar, hefur hússtjórnin
ekki ákveðið hvers kyns starfsemi
verði rekin í leiguhúsnæðunum
heldur munu þeir vega og meta
hvert leigutilboð, utan þess að þeir
hafa gert ráð fyrir, að á fyrstu
hæð hússins verði rekinn matsöl-
ustaður eða kaffitería.
Undir húsinu er kjallari sem
ekki var gert ráð fyrir í upphafi.
Vegna jarðvegs og umhverfis varð
húsgrunnurinn dýpri en ella og
ákváðu húseigendurnir því að nýta
sér þetta annars ónýtta rými. Að
sögn Þorvarðs Elíassonar er kjall-
arinn eitt traustasta neðanjarð-
arbyrgi í landinu og gætu þeir vel
hugsað sér að leigja hann Al-
mannavörnum til afnota. Á jarð-
hæðinni verður stór bílageymsla
en það húsnæði er nú leigt Eim-
skipafélagi Islands undir vöru-
geymslur og verður þar til starf-
emi í húsinu verður komin í fullan
gang. Á fyrstu hæðinni er gert ráð
fyrir kaffiteríu sem að sögn Þor-
varðs verður hugsanlega rekið
með svipuðu sniði og matsölustað-
urinn á Hótel Esju. Verslunar-
banki íslands fær aðstöðu á fyrstu
þremur hæðunum. I upphafi hafði
bankinn áformað að flytja með
aðalbanka sinn í húsið, en vegna
þess hve byggingar í Kringlumýr-
inni eru skammt á veg komnar,
mun aðalbankinn, a.m.k. fyrst um
sinn, verða áfram í Bankastræt-
inu. Á fjórðu hæð verður Lífeyr-
Spjall við Þorvarð Elíasson um Hús verslunarinnar
Flugleiðir:
Á tólfta hundrað farþega fara nú
um Reykjavíkurflugvöll daglega
„Mikill munur á allri flugafgreiðslu síðan tölvukerfið Alex var tekið í notkun,“ sagði
______________ Andri Hrólfsson, stöðvarstjóri á Reykjavíkurflugvelli.__________________
*
Drífa Hilmarsdóttir sagðist vera bú-
in að vinna hjá fyrirtækinu í fjögur
og hálft ár. „Það er mikill munur að
vinna við bókanir nú frá því sem
áður var. Það verður þó stórt skref
fram á við þegar allir stærstu stað-
irnir úti á landi verða tengdir við
tölvukerfíð,“ sagði Drífa.
Er blaðamaður og Ijósmyndari
Morgunblaösins litu inn á afgreiðslu
innanlandsflugs Flugleiða á Reykja-
víkurflugvelli skömmu fyrir verslun-
armannahelgina var starfsfólk
önnum kafið við bókanir og aðra
flugafgreiðslu, í þeirri viðleitni að
koma farþegum áleiðis víðs vegar
um land. Nú stendur yfir mesti
annatími innanlandsflugsins, mikið
um innlent sem erlent ferðafólk,
enda hásumar og landiö í sínum feg-
ursta skrúða. Um þessar mundir
fara á tólfta hundrað manns um
Reykjavíkurflugvöll daglega, en það
er nokkuð meira en um jólahátíðina
og páska.
Við hittum fyrir þá Andra
Hrólfsson, sem tók við starfi
stöðvarstjóra á Reykjavíkurflug-
velli þann 15. júní síðastliðinn og
Þórarin Stefánsson, aðstoðar-
stöðvarstjóra. Þeir Andri og Þór-
arinn byrjuðu hjá Flugfélagi ís-
lands árið 1966 og hafa starfað við
flugið bæði fyrir og eftir samein-
ingu Loftleiða og Flugfélagsins
síðan, utan tveggja ára tímabils
sem Þórarinn starfaði hjá SAS.
Andri sagði, að það væri mikill
munur að starfa við flugafgreiðsl-
una síðan farið var að vinna allar
bókanir inn á tölvuskerma. „Tölv-
an býður upp á arðbærara flug og
gerir okkur kleift að fylgjast betur
með allri flugumferð. Afgreiðsla á
hverja símapöntun tekur kannski
eitthvað lengri tíma en áður, en
þar kemur á móti að hver farþegi
fær mun betri og fjölbreyttari
þjónustu," sagði Andri.
Árið 1976 tóku Flugleiðir í notk-
un tölvukerfi fyrir innanlands-
flugið sem Flugleiðamenn gáfu
nafnið Alex. Nafngiftin var gefin
eftir Alexander Jóhannessyni frá
Gili í Borgarsveit, Skagafirði, en
hann var einn af stofnendum
Flugfélags íslands árið 1928 og
fyrsti framkvæmdastjóri þess, frá
1928 til 1931. Að sögn þeirra
Andra og Þórarins hefur tölvu-
kerfið reynst þeim mjög vel. „Það
er þó nauðsynlegt að koma upp
útstöðvum fyrir kerfið á stærstu
áætlunarstöðunum úti á landi, en
þegar eru komnir upp skermar á
Akureyri, Egilsstöðum, Húsavík
og í Vestmannaeyjum," sagði Þór-
arinn.
„Tökum sem dæmi aðila sem
hyggur á ferð frá Reykjavík til
Akureyrar. Hann hringir í af-
greiðslu okkar á Reykjavíkur-
flugvelli, þar sem honum eru gefn-
ar upplýsingar sem birtast á
tölvuskermi. Við gefum honum
upp allt fyrirhugað flug til Akur-
eyrar þann daginn og fyrstu áætl-
anir næsta dag. A skerminum
birtast upplýsingar um lausan
sætafjölda í hverju flugi og getur
aðilinn þá pantað það far sem
honum hentar. Nú óskar hann eft-
ir bílaleigubíl og hótelherbergi
með baði á Akureyri. Við skráum
þessar óskir hans á skerminn hjá
okkur, en afgreiðslan á Akureyri
kallar síðan fram hjá sér og upp-
fyllir þær með innanbæjarsímtöl-
um. Þá hefur tölvan affeveldað
mikið afgreiðslu á hópfarþegum
og gert okkur kleift að fylgjast