Morgunblaðið - 30.07.1982, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ1982
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Framleiðslu og inn-
flutningsfyrirtæki
í Reykjavík
óskar eftir röskum starfskrafti nú þegar.
Starfiö er m.a. fólgið í móttöku pantana og
innskrift þeirra í tölvu.
Umsóknir meö nauösynlegum upþl. sendist
Mbl. fyrir 5. ágúst nk. merkt: „P — 6202“.
Deildarstjóri
Starf deildarstjóra á Feröaskrifstofu Varnar-
liösins er laust til umsóknar. Umsækjandi
hafi langa reynslu viö útgáfu flugfarseöla,
ásamt góöri enskukunnáttu.
Umsóknir sendist til ráöningaskrifstofu
Varnamáladeildar, Keflavíkurflugvelli, eigi
síöar en 12. ágúst 1982, sem veitir nánari
upplýsingar í síma 92-1973.
Laghentir starfs-
menn óskast
til vélgæslustarfa.
Umsóknir sendist Mbl. fyrir 6. ágúst merkt:
„L — 6245“.
Afgreiðslumann
vantar
Upplýsingar í versluninni ekki í síma.
Haukur og Ólafur,
Ármúla 32.
Hjúkrunar-
fræðingar
Hjúkrunarfræöinga vantar aö Fjóröungs-
sjúkrahúsinu Neskaupstaö.
Upplýsingar gefa hjúkrunarforstjóri í síma
97-7403 og forstööumaður í símum 97-7402
og 7565.
Fjóröungssjúkrahúsiö Neskaupstaö.
Blaðburðarfólk
óskast
til aö bera út Morgunblaöiö á Selfossi. Uppl.
í síma 99-1966.
KENNARAR
Kennarastöður viö Hólmavíkurskóla eru laus-
ar til umsóknar.
Meöal kennslugreina eru íslaneska í 7.—9.
bekk, stærðfræöi, raungreinar og tónmennt.
Upplýsingar veitir skólastjóri í síma 95-3123.
Offset skeyting
og Ijósmyndun
óskum eftir aö ráða vanan Ijósmyndara eða
skeytingarmann sem verkstjóra í filmu- og
plötugerö. Fjölbreytt verkefni og góöur
tækjabúnaður.
Prentsmiöjan Edda,
Smiðjuvegi 3, Kópavogi,
sími 45000.
Framtíðarstarf
Óskum eftir aö ráöa starfskraft til almennra
skrifstofustarfa. Laun samkv. launakerfi
BSRB nú 11 Ifl. Vólritunar og bókhalds-
þekking nauðsynleg. Skrifl. upþl. um mennt-
un og fyrri störf berist fyrir 9. ágúst 1982.
Rikisprentsm. Gutenberg
Síöumúia 16—18
Ræsting
Starfsmann vantar í ræstingu í Háskólabíói.
Vinnutími kl. 7—10 f.h.
Uppl. fyrir hádegi næstu daga, á skrifstofu
bíósins.
Háskólabíó.
Lausar kennara-
stöður við héraðs-
skólann á Núpi
Kennara vantar í viöskiptagreinar, ensku og
íslensku.
Upplýsingar í síma 94-8222.
Starf húsvarðar
í verbúðinni „Ásgarður" Höfn Hornafiröi, er
laust til umsóknar.
Heppilegt starf fyrir barnlaus hjón.
Alber reglusemi nauösynleg.
Upplýsingar eru gefnar í síma 97-8200.
Stjórn verbúða hf.
Höfn Hornafiröi.
Sérfræðingur í
lyflækningum
Staðgengil vantar strax fyrir lyflækni á lyf-
lækningadeild til afleysinga. Uppl. veitir
framkvæmdastjóri og læknar deildarinnar í
síma 93-2311.
Sjúkrahús Akraness.
VANTAR ÞIG VINNU
VANTAR ÞIG FÓLK 0
Þl ALGI.VSIR L'M AI.LT
LAND ÞEGAR ÞÚ ALG-
LÝSIR í MORGLNBLADIM
raðauglýsingar — raðaugiýsingar — raðauglýsingar
tilboö — útboö
Útboö
Hreppsnefnd Hvammstangahrepps óskar
eftir tilboðum í 1. hluta fyrsta áfanga viö-
byggingar viö grunnskóla Hvammstanga.
Verkiö felur í sér jarðvinnu og vinnu við frá-
rennslislagnir, undirstöðu og botnplötu að
ca. 530 fm húsi. Samkv. teikningum og verk-
lýsingu Fjarhitunar hf. og teiknistofunnar
Laugavegi 42.
Gert er ráö fyrir aö framkvæmdir hefjist 1.
september nk. og veröi lokið 1. desember
1982.
Útboðsgögn liggja frammi og verða afhent
gegn 1.000 kr. skilatryggingu á skrifstofu
Hvammstangahrepps og verkfræöistofu
Fjarhitunar hf., Borgartúni 17, Reykjavík. Til-
boöum ber aö skila á sömu staöi fyrir kl.
11.00 fimmtudaginn 19. ágúst nk., en þá
veröa tilboð opnuð aö viöstöddum bjóðend-
um.
Sveitastjóri Hvammstangahrepps,
Þórður Skúlason.
Hlutafjárútboð
Hluthafafundur í Stálfélaginu hf., haldinn í
Reykjavík 29. júní sl., samþykkti aö hækka
hlutafé félagsins í kr. 40.000.000,-. Hlutabréf
hljóða á nafn og upphæö þeirra verður 250,-,
500,-, 1.000,- og 5.000,- krónur. Hlutafjárlof-
orö eru bundin lánskjaravísitölu júnímánaöar
1982, 359 stigum. Áskriftarfrestur er til 31.
janúar 1983 og lokafrestur til aö greiða hluti
er 31. janúar 1984.
Stálbræðsla á íslandi sparar 50—60 millj. kr.
í erlendum gjaldeyri miöaö viö árlega notkun
islendinga á steypustyrktarstáli.
Stálbræðsla nýtir innlenda orku og hráefni í
formi brotajárns. Uppbygging verksmiöju
veitir 100—200 manns vinnu á annaö ár og
framtíðaratvinnu fyrir 80—100 manns.
Endurskoöuð áætlun um rekstur gefur fyrir-
heit um góöa arðsemi hlutafjár og framtíð-
armöguleika í nýjum íslenskum iðnaöi.
Um leið og viö kaupum hlut í Stálfélaginu hf.,
styrkjum viö eigin hag og framtíðaröryggi
þjóöarinnar meö öflun grundvallar bygg-
ingarefnis. Stálfélagið hf.,
Austurstræti 17,
símar 16565 og 29363.
... . . .
þjónusta
Hönnun sýningabása
Bjóöum upp á margvíslega þjónustu viö
skipulagningu sýningabása, hönnun, líkana-
smíö (1:20), leturgerð, skiltamálun og upþ-
setningu á sýningavörum.
Leggjum áherslu á nýstárlegar hugmyndir og
vandaöan frágang.
Upplýsingar í síma 24740, daglega, kl.
10—22.
Framkvæmdamenn
Tökum aö okkur hverskonar jarövinnu, upp-
gröft og fyllingar.
Höfum Bröyt-gröfur X-30 á hjólum og beltum
og X4. í erfiöri vinnu leystir Bröyt vandann.
Tómas Grétar Ólason sf„
nnP\ Funahöföa 15.
jý-Q Símar 84865 og 42565.