Morgunblaðið - 30.07.1982, Side 39
Manchester Utd. er eitt sigursælasta og
frægasta knattspyrnufélag veraldar
MANCHESTER Utd. er eitt sigursælasta knattspyrnufélag Bretlandseyja og
jafnvel þó vídar væri leitað, á því leikur enginn vafi. f tilefni af komu þessa
fræga knattspyrnufélags hingað til lands í boði Vals, væri ekki úr vegi að
renna yfir helstu þættina í sögu félagsins.
• Frank Stapleton, hinn frábæri miðherji Manchester Utd.
Félagið var stofnað árið 1878 og
árið 1885 gerðist félagið atvinnu-
mannalið. I þá daga hét það ekki
Manchester Utd., heldur hinu
fremur lágreista nafni Newton
Heath. Það nafn loddi við félagið í
24 ár, eða til ársins 1902, er stjór-
ar félagsins komu sér saman um
nafnið Manchester Utd. Fyrsti
heimavöllur félagsins hét North
Road og lék liðið á þeim slóðum
frá 1880-1893. Þá flutti félagið
sig til Monsall Road og lék þar
allar götur til 1910, er hinn heims-
kunni heimavöllur liðsins í dag,
Old Trafford, var tekinn í notkun.
Hefur félagið leikið þar síðan ef
frá eru skilin árin 1941—1949, en
það stafaði af því að heimavöllur
liðsins varð illa úti í loftárásum
Þjóðverja í síðari heimsstyrjöld-
inni. A þessum árum varð Man.
Utd. að bíta í það súra epli að
leika á heimavelli erkifjendanna
Manchester City, Main Road.
Ef rennt er yfir feril félagsins
þá fékk það inngöngu í 1. deild
árið 1892. Það gekk hins vegar
fremur illa og árið 1894 féll félagið
í 2. deild og lék þar allt til 1906. Þá
tóku við betri tímar með blómum í
haga, liðið átti sæti í 1. deild allt
frá 1906 til 1922, en féll þá aftur í
2. deild og hékk þar til 1925. 1.
deildin var aftur vettvangur fé-
lagsins frá 1925 til 1931, en þá var
enn fallið niður og dvalið í 2. deild
til ársins 1936. Var nú mikill
hringlandaháttur á félaginu, það
lék í 1. deild 1936—37 og í 2. deild
1937—38. En þá sá loks fram á
endann í hringlinu, 1938 tók liðið
aftur sæti í 1. deild og lék þar
síðan allar götur til 1974. Þá féll
stórveldið mikla með þungum
dynk niður í 2. deild og spáðu því
margir á sínum tíma að félag eins
og United myndi ekki þola dvöl í 2.
deild eftir öll velgengnisárin í 1.
deild. Félagið myndi hrynja sam-
an. En svo fór þó ekki, stoðir fé-
lagsins voru orðnar of sterkar og
eftir aðeins ársdvöl í 2. deild var
United mætt til leiks á ný í 1. deild
eftir frækinn yfirburðasigur í 2.
deild. Frá 1975 hefur Manchester
United leikið í 1. deild og þó svo að
félagið hafi ekki unnið titilinn síð-
an 1967, hefur félagið ávallt verið
í fremstu röð. Og á siðasta keppn-
istímabili hafnaði liðið í þriðja
sæti deildarinnar eftir að hafa
haft forystu um langt skeið fyrir
áramótin.
Manchester Utd. hefur unnið
marga frækna sigra á ferli sínum.
7 sinnum hefur félagið orðið Eng-
landsmeistari, síðast 1966—67, en
áður tímabilin 1907—1908,
1910-1911, 1951-1952,
1955—1956, 1956—1957 og
1964—1965. Þá hefur liðið átta
sinnum hafnað í 2. sæti deildar-
innar, 1947, 1948, 1949, 1951, 1959,
1964, 1968 og 1980. Tvisvar sinnum
hefur félagið borið sigur úr býtum
í 2. deild, árin 1936 og 1975 og
fjórum sinnum hefur félagið hafn-
að í 2. sæti þeirrar deildar. FA-
bikarinn eftirsótta hefur United
unnið fjórum sinnum, en leikið
alls átta sinnum til úrslita. Bikar-
inn vannst árin 1909,1948,1963 og
1977. í 2. sæti hafnaði félagið hins
vegar árin 1957,1958,1976 og 1979.
1976 tapaði liðið mjög óvænt 0—1
fyrir Southampton, sem þá var
ekki annað en tæplega miðlungslið
í 2. deild, en United hafði þá náð
þriðja sætinu í 1. deild. 1979 tap-
aði liðið 2—3 fyrir Arsenal í leik
sem verður lengi í minnum hafður
vegna fimm síðustu mínútnanna.
Arsenal leiddi 2—0, en tvö mörk á
síðustu mínútunum jöfnuðu leik-
inn á ótrúlegan hátt fyrir United.
Það dugði ekki til, Arsenal læddi
inn sigurmarkinu á síðustu mín-
útu leiksins og hafði bikarinn með
sér heim til Lundúna.
Deildarbikarinn hefur United
aldrei unnið og aldrei leikið til úr-
slita, en betur hefur gengið í Evr-
ópukeppnunum. í Evrópukeppni
meistaraliða hefur liðið sigrað
einu sinni og leikið auk þess fjór-
um sinnum í undanúrslitum. Sig-
urinn var auðvitað hinn frækni
4—1 sigur gegn Benfica á Wembl-
ey árið 1968. En í undanúrslitum
lék liðið árin 1957, 1958, 1966 og
1969. Þá tók liðið þátt í UEFA-
keppninni 1976—77 og sló þá út
bæði Ajax og St. Etienne áður en
Porto sló United út í þriðju um-
ferðinni. Og á næsta keppnistíma-
bili tekur liðið einnig þátt í
UEFA-keppninni.
Stærsti sigur sem United hefur
unnið í sögu sinni var 10—0 gegn
belgíska félaginu Anderlecht í
Evrópuleik árið 1957. Stærsti ósig-
ur félagsins leit dagsins ljós árið
1930, er Aston Villa vann 7—0 í 1.
deildarleik.
Manchester-liðið hefur löngum
verið frægt fyrir sóknarknatt-
spyrnu sína, ef frá eru talin nokk-
ur ár fyrir skemmstu er Dave Sex-
ton réði ríkjum. Tvisvar hefur fé-
lagið skorað yfir 100 mörk í 1.
deildarkeppninni, fyrst 103 stykki
1956—1957 og síðan aftur 103
mörk 1958—1959. Þar næsta
keppnistímabil, 1959—60, skoraði
Denis Violett 32 mörk í deildar-
keppninni og hefur enginn leik-
maður MU skorað fleiri mörk
fyrir félagið á sama keppnistíma-
bilinu. Sá leikmaður liðsins sem
flest hefur skorað mörkin yfir
ákveðið tímabil með félaginu var
Bobby Charlton, en á árunum frá
1956—1973 skoraði hann 198
mörk. Snillingurinn Charlton er
einnig sá leikmaður MÚ sem
flesta landsleikina hefur leikið, en
hann klæddist ensku landsliðs-
peysunni 106 sinnum. Charlton lék
á tímabili þessu 606 deildarleiki
með MU, fleiri en nokkur annar.
Liðið í dag er talið vera á papp-
írnum eitt það sterkasta sem MU
hefur nokkru sinni teflt fram.
Snjallir landsliðsmenn eru þar í
hverri stöðu og svo sterkur er hóp-
urinn, að margreyndir landsliðs-
menn verða að sætta sig við að
komast ekki í liðið. Eftir að Hol-
lendingurinn Arnold Muhren gekk
til liðs við félagið í sumar, sjá
margir fyrir sér sterkustu miðlínu
Bretlandseyja, Bryan Robson, Ray
Wilkins, Arnold Muhren og Steve
Coppell. Allir koma þeir hingað til
lands nema Coppell, sem á við
meiðsli að stríða. Vörnina skipa
örugglega Kevin Moran, John Gid-
man og Arthur Albiston, en hin
miðvarðarstaðan er bitbein Gord-
on McQueen og Martin Buchan.
Mike Duxbury, efnilegur ungur
leikmaður, gerir þar einnig tilkall
til, en hann getur einnig leikið
sem bakvörður eða tengiliður.
Frammi er Frank Stapleton kóng-
ur í ríki sínu, en breytingar verða
líklega á framlínunni áður en
næsta keppnistímabil hefst. Fé-
lagið losar sig líklega við Garry
Birtles og óvíst er hver tekur
stöðu hans. Félagið á tvo afar
efnilega unga framherja, Scott
McGarvey og Norman Whiteside,
en einnig hefur heyrst að félagið
hafi áhuga á því að festa kaup á
Alan Brazil hjá Ipswich. Tíminn
mun skera úr um hvað ofan á
verður.