Morgunblaðið - 15.08.1982, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. ÁGÚST 1982
23
að færa þeim mat eða annan
glaðning. Laugardagar séu mjög
erilsamir, þá fari hún út um há-
degi og komi ekki heim fyrr en á
kvöldin. Hann segist heldur ekki
muna eftir neinu aðfangadags-
kvöldi sem Anna hafi verið heima.
Hún eyði þeim kvöldum hjá sjúkl-
ingum og aðstandendum þeirra.
Anna segir að sér leiðist alltaf á
jólum í London. Jóladagur sé sér-
lega slæmur, þá hugsi hún mikið
heim og sé hálfúrill af leiðindum.
— Hvað heldur þú að þú hafir
tekið á móti mörgum sjúklingum?
Anna fer að hlæja og segist ekki
hafa hugmynd um það. Á síðasta
ári hafi hún tekið á móti 105 sjúkl-
ingum. Árið áður hafi þeir verið
99 og í ár séu komnir út 62 sjúkl-
ingar. Hver og einn dvelji í 10—14
daga. Hún segist hafa verið spurð
að því á einu sjúkrahúsinu, sem
hún kom á með sjúkling, hvort
ekki væri búið að skera alla ís-
lendinga upp.
— Hefur þetta fólk samband við
þ'g þegar það er komið heim til
Islands?
„Já margir gera það, ég hef
fengið alveg ógrynni af gjöfum og
kortum frá þessu fólki, málverk,
íslenskar ullarvörur, bækur, krist-
al, allt milli himins og jarðar. Um
hver jól fæ ég líka alveg ógrynni
af jólakortum, síðustu jól fékk ég
til dæmis 390 kort. En bestu gjaf-
irnar sem ég fæ frá þessu fólki er
að því líði vel, þá er ég ánægð, það
er besta gjöfin sem hver og einn
getur fært mér.“
Sæmd riddarakrossinum
— Fyrir þessi störf í þágu ís-
lenskra sjúklinga varst þú sæmd
riddarakrossinum ?
„Já, það kom mér virkilega á
óvart, stelpurnar voru búnar að
hringja og segja mér að það stæði
til, en ég trúði þeim ekki. Það var
ekki fyrr en ég kom til íslands og
það var hringt í mig að ég trúði
þessu. Reyndar fékk ég alveg
„sjokk“, svaf ekki dúr nóttina áður
en athöfnin fór fram, en ég er
þakklát íslensku þjóðinni fyrir
þennan virðingarvott við mig.
Samsætið sem mér var haldið sl.
laugardag gladdi mig einnig mjög
mikið. Hófið sóttu 180 manns og
ég þekkti hvern einasta sem kom.
Ég var ekki viss á nöfnunum en öll
andlitin þekkti ég. Þetta var mjög
gaman. Og mig langaði að biðja
þig að koma þakklæti til þeirra 7
manna sem stóðu að þessu sam-
sæti. Gestabókin, sem mér var
færð að gjöf eftir samsætið með
nöfnum þeirra 180 manna og
kvenna sem sóttu hófið, verður
mér ævarandi til mikillar
ánægju."
Að endingu spyr ég Önnu hvort
hún sé ekkert að hugsa um að
flytja heim
„Nei, ég er búin að búa alltof
lengi í London til að mig langi til
að flytja heim, hins vegar finnst
mér alltaf mjög gaman að koma
hingað í heimsókn, labba niður
Laugaveginn og fara í kaffi á
Hressingarskálann. En maðurinn
minn væri til með að flytja hingað
strax í dag, honum líkar svo vel
hérna."
Aðstandendur Önnu sögðu mér
að henni hefði verið flutt ljóð í
samsætinu á Hótel Sögu. Ljóðið
finnist þeim lýsa hvað best fórn-
fúsu starfi hennar. Ljóðið var gjöf
frá Katli Ólafssyni, Ingu, konu
hans, og dóttur þeirra, Jónínu.
Ljóðið er birt hér með góðfús-
legu leyfi höfundar, Jóhannesar
Jónssonar frá Asparvík.
Vid þokkum þér, Anna, þín handtökin hlý
og hjarta þíns ylríku kenndir.
Iljá mörjjum þú vonina vaktir á ný
er voru til lækninga sendir.
l'mhyKtua þín var svo hugljúr og hrein
við hrellda, vonlitla og þjáöa.
I*ú skildir svo vel okkar mannlegu mein,
þín mildi oss hvatti til dáöa.
Iliö innra er lundin af ána jyu klökk
aftur ad hitta kæra.
Meö einla-jjum huga heiöur, og þökk
af hjarta nú viljum þér færa.
Svo biöjum viö drottin aö blessa þitt starf
með birtu og sólskin í fangi.
Ilann blessi þinn dýrmæta íslendings arf
á aTinnar líknsama gangi.
Texti: Jóhanna Margrét
Einarsdóttir
Myndir: Kriatján Einarsson
• - »r
k- r r
r XT
HESTURINN 4,
OKKARM
tt 4X0. * rai mt » i
Hesturinn
okkar
kominn út
Tímarit Landssambands hesta-
manna, Hesturinn okkar, 2. tbl.
1982, er komið út. Efni blaðsins er
fjölbreytt að venju, m.a. Þar
hræra hófar hörpustrengi, eftir sr.
Sig. Hauk Guðjónsson, Um
hrossabeit, eftir Ólaf Dýrmunds-
son, ferðafrásögn af Mýrdals-
sandi, eftir Óttar Kjartansson,
Ævintýraferð til S-Afríku, eftir
Friðþjóf Þorkelsson, grein eftir
Pál A. Pálsson, yfirdýralækni, um
vönun hrossa, grein eftir Friðþjóf
Þorkelsson og Þorvald Árnason,
um sköpulag hrossa, viðtal við
Alla Arnljóts eftir Reyni Hjart-
arson o.fl.
3 ungmenni
slösuðust
Fá.skrúósfirði, 13. ágÚNt.
ALVARLEGT umferðarslys varð
utan við bæinn Kolmúla í Reyð-
arfirði aðfaranótt föstudags. Bif-
reið fór þar út af veginum og er
talin gjörónýt. Þrjú ungmenni frá
Fáskrúðsfirði voru í bifreiðinni
og voru þau öll flutt á Fjórð-
ungssjúkrahúsið á Neskaupstað.
Kr þetta annað slysið, sem verð-
ur á þessum stað á skömmum
tíma.
— Albert
Fyrirlestur
um Lúðvík II
Bavaríukonung
Englendingurinn ('hristopher
Mclntosh heldur á mánudagskvöld
kl. 20.30 fyrirlestur i Norræna hús-
inu um Lúðvík II Bavaríukonung.
Lúðvík er af mörgum kunnur af
kvikmynd, sem Visconti gerði um líf
hans. Hann var á sínum tíma vernd-
ari margra listamanna á mcðan
hann lifði. Hann fæddist 1845 og
lést 1886 við dularfullar kringum-
stæður, sem hafa orðið mörgum um-
hugsunarefni.
Christopher Mclntosh hefur
fengið aðgang að skjölum, sem til
þessa hafa ekki komið fram i
dagsljósið og byggir hann fyrir-
lestur sinn m.a. á vitneskju, sem
hann hefur aflað sér úr þeim.
Reynir hann með fyrirlestri sínum
að varpa áður óþekktu ljósi á firr-
ingu Lúðvíks og dauða.
Fyrirlesturinn er öllum opinn
og aðgangseyrir er 15 krónur.
-------------------- >
SKÓLARITVÉLAR
Monica rafritvélin er allt í senn skóla-, feróa- og
heimilisritvél, ótrúlega fyrirferóarlítil, ódýr og fáanleg í
tveimur litum.
Hálft stafabil til leióréttingar, 44 lyklar, 3
blekbandsstillingar o.m.fl. sem aðeins er á stærri geróum
*(■*“*• .•
j <"■*» o i
ritvéla.
Fullkomin viógeróa-
og varahlutaþjónusta.
L 300
MED DRIFIÁ ÖLLUM
Rúmgóður bíll sem hentar vel
við íslenskar aðstæður.
Sami undirvagn og á mitsubishi pajero.
Sama yfirbygging og á MlTSUBlSHl sendibíl
og Mini Bus.
PRISMA