Morgunblaðið - 20.08.1982, Side 15

Morgunblaðið - 20.08.1982, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1982 15 |una yldan ingar sendu hingað menn með blómunum, til að aðstoða við upp- setningu þeirra, ásamt mönnum frá Blómavali. Þeir sendu meira að segja tvöfalda vakt, til að fylgj- ast stöðugt með þeim og það munu þeir gera sjö fyrstu dagana," segir Gunnar og heldur áfram. „Þetta hefur gengið mjög vel, við klárum þetta í kvöld. Básinn verður alveg tilbúinn í fyrramálið og það eina sem þá verður eftir, eru taeki og hráefni til demantaslípunar og til þess að smíða tréskó, en þau koma með flugvél á morgun. Fagmenn- irnir eru þegar komnir og bíða bara eftir tækjunum og hráefnun- um. Tvær dömur baða sig Að síðustu tókum við tali Guð- mund Karlsson í bás Baðstofunn- ar og spyrjum hann hvernig hafi gengið. „Alveg ljómandi vel, við verðum búnir að þessu fyrir miðnætti í kvöld. Það hefur verið góður gang- ur á þessu, enda hef ég haft góða hjálp. Við byrjuðum á mánu- dagsmorguninn og höfum unnið þetta til 10—11 á kvöldin." Hvers konar fyrirtæki er Bað- stofan? „Baðstofan er líkams- og heilsu- rækt í Breiðholtinu með gufuböð, vatnsnuddpotta og annað slíkt. Við ætlum að reyna að kynna starfsemina á sýningunni, verðum með kynningarverð og þvíumlíkt. Við erum að vona að fólk kíki og sjái hvað við höfum upp á að bjóða. Það verður vatn hér í pott- inum og tvær dömur munu baða sig í honum öðru hverju, svo eitthvað sé nefnt," sagði Guð- mundur Karisson að lokum. — hrópaði Jón Ragnarsson er ljóst var að Renaultinn var bilaður. Skipt um keppnisbíl á tveimur tímum! „Ómar, sæll, þetta er hérna á Morgunblaðinu,“ sagði blaðamaður, en svar Ómars kom strax: „Já, bless- aður, ég má ekki vera að því að tala við þig, vélin er biluð í bílnum hjá okkur. Þaö er stór spurning hvort við förum eða ekki, bless.“ Þannig komst Morgunblaðið á snoð- ir um að ekki væri allt með felldu hjá bræðrunum Ómari og Jóni Kagnarssonum vegna þátttöku þeirra í Ljóma-rall- inu, sem þeir ætluðu að taka þátt í á Renault-bíl. Er upp í Renault-umboð kom, gall við rödd Jóns Ragn- arssonar: „Kaupa bíl, kaupa bíl, við verðum bara að kaupa annan bíl.“ Með það flýttu bræðurnir sér, ásamt nokkr- um sem staddir voru á verk- stæðinu, út á plan. Omar og Jón leituðu að heppilegum BMW-bíl á söluplaninu, en áfram reyndu viðgerðarmenn að sjá út, hvað orsakaði bank er heyrðist í Renault-keppn- isbílnum margfræga. Ómar hafði skroppið í prufuakstur á bílnum og þá hafði komið í ljós hávært bank í vélinni. Pannan var rifin undan og þá kom í ljós, að eitthvað var að henni, eða svo töldu menn í fyrstu. Ómar hafði þá þegar, ásamt Jóni, fundið BMW til vara, ef ekki tækist að gera við hinn bílinn. Á tímabili var unnið í báðum bílum samtímis, en loks kom í ljós, að Renaultinn var meira bilaður en talið var. Skipaði Jón þá öllum að hefja vinnu í BMW-bílnum, sem all- an öryggisbúnað vantaði í. Á meðan hentist Jón upp í Bif- reiðaeftirlit og umskráði bíl- ana tvo. Veltigrind úr „gamla“ Renaultinum var sett í BMW-bílinn, en þó með ýms- um tilfæringum og skipt var um dempara. Vildi svo vel til að inni á lager voru til Bil- stein-gasdemparar, sem skellt var í hvelli undir bílinn. Síðan kom Ómar með dekk, sem hann hafði látið setja á felgur er fengust i umboðinu. Þegar hér var komið sögu, var aðeins rúmur klukkutimi lið- inn frá þvi að Jón heimtaði að fá að kaupa nýjan bíl. Velti- grindin skreið saman og mín- úturnar tifuðu. Bíllinn átti eftir að fara í skoðun hjá keppnisstjórn rallsins og eftir hana mátti ekki hreyfa við bíl- unum fyrr en keppnin hæfist. Jón sagði: „Þeir skulu ekki halda að þeir séu búnir að vinna, þó að málin hafi farið svona." BMW-inn, sem þeir bræður völdu, var aðeins 75 hestöfl og því sýnt að þeir ættu ekki möguleika í topp- sætin. Hinsvegar var það ódrepandi áhugi á að vera með, sem hélt öllu gangandi. Fór svo að lokum að bræðurn- ir náðu í skoðun, en fengu fjór- ar sekúndur í mínus, þar sem þeir komu örlítið of seint, en það er vegna sérstakra reglna sem gilda við rallkeppni af þessu tagi. Ómar sagði er í skoðun kom: „Þetta er stór- fínt, það eru fínar steríógræj- ur í bílnum og ágætar spólur." Jón sagði síðan: „Þetta er heimsmet, tæpir tveir tímar að útbúa rallbíl," og hló. Skal engan undra því stressið undanfarna tvo tíma hafði verið gífurlegt. Er vonandi að þeir bræður standi sig á bíln- um, sem er eini „standard"- bíll rallsins. Þegar flest var unnu itta vidgerðarmenn við það að skella í BMW-bílinn öryggisbúnaði, sem skylt er að nota f rallkeppni. Hamagangurinn var gífurlegur þegar f Ijós kom að Renault Ómars og Jóns var bilaður. Allir sem vettlingi gitu valdið aðstoðuðu við að finna út hvað að væri. Líklega settu viðgerðarmenn Renault/ BMW-umboðsins heimsmet er þeir gerðu BMW-keppnisbíl kliran fyrir rall i tveimur klukkutimura.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.