Morgunblaðið - 20.08.1982, Síða 26

Morgunblaðið - 20.08.1982, Síða 26
26 MORGUNBLAÐID, FÖSTUDAGUR 20. ÁGÚST 1982 Örn og Sig- uröur á al- þjóöaþing ÞING IAAF, Alþjóða frjáls- íþróttasambandsins, fer fram í Aþenu dagana 3. og 4. sept- ember nk. Örn Eiðsson, for- maður FRÍ, og Sigurður Björnsson, varaformaður, munu sækja þingið af hálfu Frjálsíþróttasambands ís- lands. IAAF, sem er eitt fjölmenn- asta alþjóðasambandið í íþróttum, aðildarþjóðir eru 162, var stofnað 1912 og er því 70 ára á þessu ári. Forseti þess er dr. Primo Nebiolo, Ítalíu. Stjarnan er efst ÚRSLITAKEPPNI 4. deildar í knattspyrnu stendur nú sem hæst. Tveir leikir fóru fram í fyrrakvöld, Ármann og Stjarnan geróu jafntefli, 2:2, og Valur, Reyóarfírði, fór með bæði stigin frá Árskóg.sströnd, þar sem þeir sigruðu Reyni, 3:2. Staðan í A-riðli er þessi: Stjarnan 2 1 1 0 5:2 3 Armann 2 110 6:3 3 Þór, Þorláksh. 2 0 0 2 1:7 0 Og í B-riðli er hún þannig: Valur, Reyðarf. 2 2 0 0 4:2 4 Leiftur, Ólafsf. 2 1 0 1 2:2 2 Reynir 2 0 0 2 3:5.0 Næstu leikir eru á morgun og leika Ármann og Þór og Reynir og Leiftur. — SH. „Fannarsbikar“ OPIN kvennakeppni í golfi, „Fannarsbikarinn", verður haldin á Grafarholtsvellinum á morgun og sunnudaginn og hefst keppnin á morgun klukk- an 10.30. Leiknar verða 36 hol- ur, 18 hvorn dag, og er um svokallaða valkeppni að ræða, þ.e.a.s. keppandi velur betra skor á hverri holu hvorn dag. Reiknuð verður 3/t forgjöf. Skráning fer fram í goifskál- anum. Minningarmót í golfi Minningarmót í golfi um Ingi- mund Árnason fer fram á golfvelli Akureyrar um helg- ina. læiknar verða 36 holur með og án forgjafar. Þátttöku þarf að tilkynna fyrir klukkan 18.00 í dag, en golfklúbbur Ak- ureyrar er aðstandandi þessa móts. Það er KEA sem gefur verðlaun. Öldungamót ÓLDUNGAKEPPNI í golfi verður haldin á Ilólmsvelii við Iæiru á morgun og hefst keppnin klukkan 10.00. Mótið er ætlað kylfingum sem eru 50 ára eða eldri. Skráning fer fram í golfskála Golfklúbbs Suðurnesja. Aberdeen áfram SKOSKA knattspyrnuliðið Aberdeen tryggði sér sæti í 1. umferð Evrópukeppni bikar- hafa í fyrrakvöld, er liðið burstaöi Sion frá Sviss, 7—0, á heimavelli sínum. Staðan í hálfleik var 4—0. Black (2), Strachan, Hewitt, Simpson, McGhee og Kennedy skoruðu mórk liðsins, en 14.000 manns horfðu ^hugfangin á. # • Björgvin hefur verid sterkur í sumar. Úrslitakeppnin í 2. flokki hefst í dag Úrslitakeppni í 2. aldursflokki ís- annars vegar, en KR og Grindavík landsmótsins í knattspyrnu hefst i dag meó tveimur leikjum. Keppnin hcldur síðan áfram á laugardaginn og lýkur á sunnudaginn. Fjögur lið hafa komist i úrslitakeppni þessa, KR, Breiðablik, Grindavík og Vík- ingur. I dag leika Víkingur og UBK Santana Tele Santana, sá er þjálfaði brasil- íska knattspyrnulandsliðið á HM á Spáni, heldur innan tíðar til Saudi Arabíu þar sem hann mun stunda þjálfunarstörf. „Sá sem býður lægri hlut verður að beygja sig og ég er engin undantekning, þvi yfirgef ég Brasiliu. Ég hef engan áhuga á því að þjálfa landsliðið áfram eftir að það var slegið út úr HM-keppninni í fjórðungsúrslitunum," sagði Sant- ana í samtali við AP. Auk þess að þjálfa félagsliðið Al Ahli Jeddha, mun Santana hins vegar. Á morgun mætast síð- an UBK og Grindavík og Víkingur og KR. Loks eigast við á sunnu- daginn KR og UBK annars vegar, en Grindavík og Víkingur hins vegar. Allir leikirnir fara fram á Smárahvammsvellinum í Kópa- vogi. til Arabíu starfa fyrir arabíska knatt- spyrnusambandið, aðstoða það við að skipuleggja mót í neðri deildunum, en knattspyrnan er í mikilli sókn í miðausturlöndum sem víðar. Aðspurður um eftir- mann sinn hjá brasilíska lands- Iiðinu sagðist Santana hafa enga hugmynd um hver myndi hreppa stöðuna. Taldi þó að sinu mati að Paolo Cesar Carpegiani ætti skilið að spreyta sig, en hann er þjálfari Flamengo, sem er heimsmeistari félagsliða í knattspyrnu. Kínverskur fimleika- þjálfari til Ármanns f HAIIST eru tæp tvö ár liðin síðan elsta íþróttafélagið i Reykjavík, Glímufélagið Ármann, flutti í eigið húsnæði við Sigtún. Við þá stórbættu aðstöðu hljóp mikill fjörkippur i fimleikadeild félagsins. Til að fylgja þessum aukna áhuga eftir og að veita sem besta þjálfun, hefur fimleikadeild Ár- manns ráðið til sín erlendan þjálf- ara næsta vetur. Fyrir lipra milligöngu sendiráðs Kínverska alþýðulýðveldisins hef- ur fengist þjálfari til starfa. Hann heitir Chen Sheng Jin og er fyrrverandi landsliðsþjálfari unglinga og fullorðinna. Hann lærði fimleikaþjálfun í heimaborg sinni, Jiangsu. Að því námi loknu nam hann við íþróttaháskólann í Peking í fjögur ár og síðan í þrjú ár til viðbótar til doktorsgráðu. Jafnframt námi æfði hann og keppti í fimleikum. M.a. varð hann þrisvar Peking-meistari. Að lokn- um keppnisferli sínum hóf hann þjálfun og m.a. þjálfaði hann fim- leikameistarann Chiao Chen Ying og fimleikakonuna Chen Xiao Zhang, en þau voru kínverskir meistarar um árabil milli 1960 og 1970, auk annars fimleikafólks. Það er mikill fengur fyrir fim- leikana á Islandi að fá svo hæfan þjálfara til að þjálfa, stjórna og skipuleggja æfingarnar. Chen Sheng Jin mun hefja þjálfun hjá fimleikadeild Ár- manns í byrjun september. Frúttatilkynning. Icelandic masters á morgun: Björgvin sigraði, í stigakeppni GSI ICELANDIC Ma-sters-mótið i golB hefst í Grafarholtinu á morgun. Mót- ið er haldið á vegum GSÍ, og rétt til þátttöku eiga 16 stigahæstu kylf- ingar úr stigamótum vetrarins. Björgvin Þorsteinsson, Golfklúbbi Akureyrar, sigraði i stigakeppninni, en 16 efstu urðu þessir: Björgvin Þorsteinss. GA 84 Sigurður Péturss. GR 80 Sveinn Sigurbergss. GK 61 Ragnar Ólafss. GR 47 Hannes Eyvindss. GR 42 Óskar Sæmundss. GR 31 Magnús Jónss. GS 28 Páll Ketilss. GS 27,33 Sigurður Hafsteinss. GR 21,33 Gylfi Garðarss. GV 21 Gylfi Kristinss. GS 17,5 Sigurður Sigurðss. GS 12,5 Magnús Birgiss. GK 11 Jón Haukur Guðlaugss. NK 8 Gunnlaugur Jóhannss. NK 7 Hilmar Björgvinss. GS 5,5 Fyrirkomulag keppninnar er þannig að leikin verður holu- keppni, einn gegn einum, án for- gjafar, og er þar um útsláttar- keppni að ræða. Hver umferð er 18 holur, og eru leiknar tvær umferð- ir á morgun. Þeir fjórir keppendur sem eftir verða eftir fyrri daginn, leika síðan á sunnudag til úrslita með sama fyrirkomulagi. Hinir 12, sem fallnir verða úr keppni, munu hinsvegar keppa innbyrðis í 18 holu höggleik. Þannig er raðað niður í fyrstu umferð að leikmað- ur nr. 1 úr stigakeppninni keppir gegn þeim nr. 16, sá sem varð nr. 2 gegn þeim fimmtánda o.s.frv. Björgvin leikur sem sagt gegn Hilmari Björgvinssyni, Siggi P. gegn Gunnlaugi Jóhannssyni og síðan koll af kolli. Fyrstu verðlaun gefa Samvinnuferðir, og er það beint flug eitthvert út í heim. Golfversl- un John Nolans gefur síðan önnur verðlaun á mótinu. I dag verður haldin í tengslum við Icelandic Masters, svokölluð AM/AM-keppni. Er þar um sveitakeppni að ræða, og eru fjórir keppendur í hverri sveit. Sveitirn- ar skipa tveir menn frá hverjum klúbbi, annar þeirra formaður klúbbsins, auk eins þátttakanda af Icelandic Masters-mótinu. Fjórði maður sveitarinnar er síðan yal- inn úr stjórn og varastjórn GSÍ. - SH. Glæsilegt heims- met í tugþraut! HINN 24 ára gamli Jiirgen Hingsen frá Vestur-Þýskalandi setti fyrir skömmu nýtt og glæsilegt heimsmet í tugþraut er hann keppti á frjáls- íþróttamóti miklu í Ulm í Þýska- landi. Hingsen hreppti 8723 stig, eða 16 stigum meira en heimsmetið sem hann sló. Það átti Bretinn Daley Thompson, sem náði árangri sínum í maí á þessu ári. Thompson fékk þá 8707 stig. Árangur Þjóðverjans var afar góður, en hann var sem hér segir í einstökum greinum: 100 metra hlaup 10,74 sekúndur, langstökk 7,85 metrar, kúluvarp 16,00 metr- ar, hástökk 2,15 metrar, 400 metra hlaup 47,65 sekúndur, 110 metra grindahlaup 14,64 sekúndur, kringlukast 44,92 metrar, stang- arstökk 4,60 metrar, spjótkast 63,10 metrar og loks 1500 metra hlaup 4:15,13 mínútur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.