Morgunblaðið - 27.10.1982, Síða 14
46
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 1982
Finnsk
meðþví
bezta
sem gefst
Alvar Aalto er án efa þekktasti arkitekt sem Finnar hafa átt. Auk þess að
eiga heiðurinn af byggingum eins og Finlandia-húsinu í Helsinki og Norræna
húsinu i Reykjavík, svo nefnd séu aðeins tvö dæmi af fjölmörgum, hannaði
hann flest það sem húsbúnaði tilheyrir. Húsgögn hans hafa orðið sígild, þ.e.
þau eru framleidd áratug eftir áratug, eins og t.d. tevagninn hér á myndinni.
Eero Aarnio heitir þekktur hús-
gagnahönnuöur í Finnlandi. A
Skandinavísku húsgagnasýningunni
í fyrra vakti þessi stóll, sem kenndur
er við víkinga, sérstaka athygli.
Leðurfatnaður frá Friitala.
Finnsk hönnun og nytja-
list er med því bezta sem
gefst á heimsmælikvarða.
I»að var á árunum eftir 1950
sem finnskir listmunir fóru
að vekja athygli á alþjóða-
vettvangi og má segja að
frægðarferillinn hafi hafizt á
Tríennalnum í Mílanó, en sú
sýning var um þær mundir
talin Mekka listiðnar. l»etta
var árið 1951 og hlutu
finnskir hönnuðir fleiri verð-
laun en nokkrir aðrir. Fjöl-
miðlar ruku til og útmáluðu
Finnland scm töfraheim list-
iðnar og pantanir frá vöru-
húsum um víða veröld
streymdu inn. Hönnuðirnir
sjálfir, og þá einkum og sér í
lagi Tapio V irkkala, voru
hafnir til skýjanna — og öf-
undaðir — sem væru þeir
kvikmyndastjörnur.
I‘að þarf sterk bein til að
þola góða daga og mikinn
kraft til að endurnýja sig, en
Finnar létu ekki þetta ein-
stæða tækifæri sér úr greip-
um ganga. A fáum árum varð
framlciðsla listmuna einn af
umfangsmestu atvinnuveg-
unum og hver sýningarsigur-
inn á alþjóðavettvangi rak
annan. Finnar gátu sér sér-
stakt orð fyrir fullkomna
sýningartækni, þ.e. þeir
kunnu flestum öðrum betur
að koma mununum svo fyrir
að þeir vektu óskipta athygli.
Nöfn eins og Timo Sarpan-
eva, Marimekko, Vuokko, —
allt eru þetta nöfn sem komu
fram á þcssum fyrstu árum
blómaskeiðs finnskrar hönn-
unar, — nöfn sem enn eru í
fullu gildi.
Eftir Áslaugu Ragnars
Finnsk glergerð á sér langa sögu, og hefur úrvali sýnishorna frá ýmsum tímum verið komið fyrir í Finnska glersafninu í Riihimáki. Orkídeu-vasi Timo
Sarpaneva vakti mikla athygli á sínum tíma en hann var framleiddur á árunum 1953—1973.
Blómavasar eftir Alvar Aalto, framleiddir hjá Iittala.
Grávara telst varla til munaðar í Finnlandi. Loðdýrarækt er mikil og veðrátt-
an gerir það að verkum að margir freista þess að koma sér upp pels. Tarja
Niskanen hefur farið ótroðnar slóðir í hönnun á fatnaði úr skinnum. Kápan
á myndinni er úr blálituðum minkaskinnum sem rist eru í mjóar ræmur sem
saumaðar eru við ræmur úr leðri.