Morgunblaðið - 13.11.1982, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 13.11.1982, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1982 3 Myndlistarmenn stofna landssamtök í DAG klukkan 13.30 verður haldinn á Hótel Borg stofnfund- ur „Sambands íslenskra myndlistarmanna“, og er tilgangur- inn með stofnun sambandsins sá aö „ná undir einn hatt öllum starfandi myndlistarmönnum“ að því er Guðrún Erla Geirsdóttir sagði í samtali við Guðrún Erla sagði, að samband- inu yrði ætlað það hlutverk að gæta réttar myndlistarmanna í öllum þeim málum er upp kæmu og vinna að hag þeirra og fram- gangi listarinnar í heild. Nú eru starfandi sjö félög myndlistar- manna, Félag ísl. myndlistar- manna (FÍM), Hagsmunafélag myndlistarmanna, íslensk grafík, blaðamann Morgunblaðsins. Leirlistarfélagið, Myndhöggvara- félag íslands, Textílfélagið og Fé- lag málara. Guðrún Erla sagði að sex af þessum félögum yrðu stofn- endur sambandsins, öll nema Fé- lag málara, en hún sagði að félag- ar í því væru allir í FIM og þætti ekki eðlilegt að þeir kæmu á tvo vegu inn í hið nýja samband. Athugasemd frá Vilmundi Gylfasyni Þotusæti um borð í Herjólf MORGUNBLAÐINU barst í gær eftirfarandi athugasemd frá Vil- mundi Gylfasyni, alþingismanni: „Hr. ritstjóri, í frétt á bls. 2 í Morgunblaðinu í gær, þar sem fjallað var um þátttöku mína eða þátttöku ekki í prófkjöri Alþýðu- flokksins í Reykjavík, er dylgjað um orð mín á nýafstöðnu flokks- þingi Alþýðuflokksins. Segir „hafði Vilmundur á orði“, og síðar „Vilmundur sagði á JNNLENT flokksþinginu“. Þetta er rangt. Ég sagði enga slíka hluti, og hef hvergi sagt neitt í þessa veru. Hins vegar birtist viðtal í Helgarpóstinum fyrir þremur vikum. Þar sagði ég það sem ég vildi sagt hafa. Málið er það að enginn maður hefur í hótunum við vini sína og samherja. Menn taka hins vegar ákvarðanir, sem er allt annað mál. Að minni hyggju telst heiðar- legur málflutningur til borgara- legra verðmæta. I svona frétta- flutningi er Morgunblaðið and- hverfa alls þess, sem sæmilegt getur talist. Þessa athugasemd fyndist mér að ætti að birta á sama stað og fréttin í gær. Virðingarfyllst, Yilmundur Gylfason." Deila kennara við Snælandsskóla: „Lyktir málsins fullnægjandi“ „VIÐ ERUM ánægðir með þessar lyktir málsins, þær eru fullnægjandi af þeirri einfoldu ástæðu að réttindi koma með hálfri stöðu og þar af leiðandi er hægt að setja þá. Skólanefndin mælti með því í dag, að kennararnir yrðu settir í hálfa stöðu og eru menn sáttir við þessa lausn,“ sagði Reynir Guðsteinsson ynrkennari í Snælandsskóla við Mbl. í gær. Reynir sagði að deila kennara bil þrjár fullar stöður, og því hefði við skólann varðandi setningu í verið ákveðið að setja sjö kennara fastar stöður væru úr sögunni. í hálfa stöðu, enda fengjust rétt- Menntamálaráðuneytið hefði í indi þau sem eftir væri sótzt með gær heimilað að sett yrði í um það hálfri stöðu. Þessi mynd er ekki tekin um borð í flugvél, heldur um borð í Vestmannaeyjaskipinu Herjóin, en útgerð skipsins keypti fyrir skömmu 60 þotusæti af Flugleiðum sem sett voru í aðalsal skipsins á þeim stað scm sjónvarpstækj- um skipsins er komið fyrir. Búið er að setja sætin upp stjórnborðsmegin og er ætlunin að setja einnig upp slík þægileg sæti bakborðsmegin, en einnig eru í salnum borð og stólar fyrir þá sem kaupa sér veitingar. Hefur þessi breyting mælzt mjög vel fyrir, en myndina tók Ijósmyndari okkar í Vestmannaeyjum, Sigurgeir Jónasson. Kemur reyktur og niðurlagð- ur smásilungur á markað? HUGMYNDIR eru uppi um að koma á fót fiskmóttöku í Skagafirði sem tæki við silungi. Þar yrði tekið við silungi frá bændum, hann flokkað- ur, gert að honum og honum komið ferskum á markað. Starfshópur hefur unnið að at- hugun á nýtingu silungshlunnind- anna og markaðsöflun. Að sögn Kristjáns Finnssonar á Grjóteyri í Kjós, formanns starfshópsins, er. mikill áhugi fyrir því hjá bændum að nýta silungsvötnin en þau eru flest ofsetin að mati fiskifræð- inga. Kristján sagði að á meðan verið væri að fækka í vötnunum veiddist mikið af smáum silungi sem hingað til hefði verið lítill markaður fyrir. Stærri fiskurinn væri eftirspurður og frekar of lítið framboð af honum en hitt, en sil- ungur minni en 400 — 500 grömm væri hinsvegar ekki eins eftirsótt- ur. Því væri nú verið að gera til- raunir á vegum starfshópsins hjá 3 mismunandi aðilum í Reykjavík með að gera úr honum verðmæti og virtist reyking og niðurlagning koma vel til greina en tilraunirnar sagði Kristján að væru ekki bún- ar. SAMBAND íslenzkra auglýsinga- stofa hefur nú sent út gögn til 2.000 manna vegna þriðju fjölmiðlakönn- unarinnar, sem sambandið gengst fyrir. Er það Hagvangur, sem fram- kvæmir könnunina fyrir SÍA, og er svara vænzt í næstu viku. Samkvæmt upplýsingum Gunn- ars Steins Pálssonar hjá Auglýs- ingaþjónustunni er þetta þriðja könnunin, sem SÍA gengst fyrir. Auk markaðsathugana sagði Kristján að starfshópurinn hefði unnið að þróun veiðitækni og hefði það gengið vel og ekki ætti að stranda á þeim þætti, ef menn hefðu möguleika á að koma veið- inni í sæmilegt verð. Síðast var gerð slík könnun í marz í fyrra, en fyrsta könnunin var gerð í nóvember 1978. Nú nær könnunin til dagblaðanna, út- varps, sjónvarps og 30 tímarita. I fyrsta sinn er nú spurt um mynd- bönd og um það að hve miklu leyti fólk horfi á þau. Þá hefur lág- marksaldur þeirra sem spurður er verið lækkaður úr 16 ára aldri í 13 ára. Þriðja fjölmiðlakönnunin HEIMSBORGIN -MIÐSTÖÐ VIÐSKIPTA 0G LISTALÍFS EVRÓPU Farþegar UTSÝNAR feröast á lægstu fargjöldum, búa á völdum hótelum á beztu stööum í borginni fyrir stórlækkaö verö, t.d. CUMBERLAND á horni HYDE PARK og OXFORDSTRÆTIS — I HJARTA TÍZKU- HEIMSINS — UTSÝN hefur ein ísl. feröaskrifstofa sérsamning viö CUMBERLAND. Cumberland hótel — London í KAUPBÆTI: Tekiö á móti þér um leiö og þú kemur úr flugvél- inni á Lundúnaflugvelli. Flutningur frá og til flugvallar, innritun á hótel, dagleg aöstoö þaul- kunnugs fararstjóra meöan á dvölinni stendur. Allt svo auövelt og öruggt meö Eyrúnu farar- stjóra. Lundúnaferöin sem borgar sig. SKEMMTILEGT — ÓDÝRT — ÖRUGGT Eyrún — fararstjóri Austurstræti 17, sími 26611. Kaupvangsstræti 4, sími 22911.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.