Morgunblaðið - 13.11.1982, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1982
7
Kvenfélag Karlakórs Reykjavíkur
heldur
bazar og
kökusölu
að Hallveigarstöðum í dag, laugardaginn
13.nóvember, kl. 14.00.
Stjórnin.
Hjartans þakkir til allra sem glöddu okkur á gullbrúö-
kaupsdaginn.
Sérstakar þakkir til barna, tengdabama og bamabama
sem gerðu okkur daginn ógleymanlegan.
ELSE OG AKSEL JANSEN,
NORÐURBRÚN1.
Eigum til allar tegundir af hinum þekktu
Fiskarsskærum
Stór sníöaskæri, heimilisskæri, hægri og
vinstri handa, eldhússkæri og sauma-
skæri.
Einnig v-þýzk barnaskæri fyrir föndur og í
skólann. Naglaskæri, hárskæri, zig-zag
skæri.
Bladburóarfólk
óskast!
Austurbær úthverfi
Lindargata 1—29
Lindargata 39—63.
Þingholtsstræti
Hverfisgata 63—120
Freyjugata 28—49
Klapparás
Gnoöarvogur 44—88
Hjallavegur
Heiðargerði 2—124
i Framboð um „klassíaka jafnaðarstcfnu og nýróttjckar hugmyndir’
Vilmundur og stuðningsmennj
með sériramboð til
Þjóðviljinn og stjórnmálin
Athyglisvert hefur verið að fylgjast með pólitískum fréttum í
Þjóðviljanum þessa vikuna. Þar hefur hver forsíðufréttin verið
birt á eftir annarri um það, að annarra flokka menn en þeir sem
Þjóðviljinn veitir flokkslegan stuðning séu að velta fyrir sér sér-
framboöum, þessir tveir menn eru Gunnar Thoroddsen og Vil-
mundur Gylfason. Fréttin um Gunnar var efst á forsíðu Þjóðvilj-
ans en Vilmund neðst. Hvorug fréttanna var þó staðfest heldur
kom þaö fram að um lausafregnir væri að ræða. Fjölmiölar telja
sér fært að hafa pólitísk áhrif með ýmsu móti — Þjóðviljinn er nú
byrjaður á pólitískri lausafréttamennsku og má að líkindum rekja
þá starfsemi til fjölmiðlaráðstefnu Alþýðubandalagsins um síð-
ustu helgi — eða ráða flokkspólitískir hagsmunir Alþýðubanda-
lagsins því að hugsanlegum sérframboðum Gunnars og Vilmund-
ar er hampað?
Aö komast 1
útvarpiö
(íunnar Thoroddsen,
forsætisráðhcrra, var glað-
ur yfir væntanlegri van-
trauststillögu Alþýðu-
flokksins á ríkisstjórnina
hér í blaðinu í gær: „l)m
vantraustið verða útvarps-
umræður frá Alþingi og þá
fáum við ráðherrarnir gott
tækifæri til þess að skýra
okkar viðhorf og svara
ýmsum ásökunum og leið-
rétta mishermi." Gleði for-
sætisráðherra yfir van-
traustinu og tækifærinu til
að komast í útvarpið er svo
sannarlega i hróplegu
ósamræmi við stöðu þjóð-
mála, hún hreytist að
sjálfsögðu ekkert við það
þótt stjórnmálamenn þenji
sig í þingsölum eða
munnhöggvist í útvarpinu.
Korsenda þess að breyting
verði til batnaðar er að rík-
isstjórnin fari frá, cn það
er svo sem til marks um
alvöruna sem á bak við
vantrauststillögu Alþýðu-
flokksins býr að í sama
mund og tillagan er boðuð
og samin situr formaður
flokksins á viðræðufund-
um við ráðherranefnd um
framtíð ríkisstjórnarinnar.
Er Kjartan Jóhannsson að
flvtja vantraustið til að
koma bæði sér og ráðherr-
unum í útvarpið?
Ekki er grunlaust um að
Vilmundur (iylfason sé að
velta fyrir sér sérframboði
til að komast í útvarpið.
Hann segist ekki una því
að vera hornreka í Alþýðu-
flokknum. Vilmundur llutti
að vísu ræðu fyrir flokk
sinn, Alþýðuflokkinn, i út-
varpið á dögunum þcgar
hin efnisrýra stefnura>ða
forsætisráðherra var til
umræðu, en eftir að Magn-
ús H. Magnússon var
endurkjörinn varaformað-
ur telur Vilmundur greini-
lega minni líkur en áður á
því, að hann verði í sviðs-
Ijósinu í nafni Alþýðu-
flokksins, þegar menn eru
valdir til að koma fram í
útvarpi og sjónvarpi.
I'að skyldi þó ekki fara
svo að bæði aldursforscti
Alþingis, (.unnar Thorodd-
sen, og yngsti maðurinn á
þingi, Vilmundur Gylfason,
teldu sér þann kost vænst-
an í komandi kosningum
að bjóða fram sér tií að
komast örugglega í útvarp-
ið. Athygli vakti að í vik-
unni var l'jóðviljinn með
stórpólitískar fréttir um
framtíð þeirra beggja á for-
síðu og á göngum Alþingis
hafa innanbúðarmenn í Al-
þýðuhandalaginu skýrt
mönnum frá því að (iunnar
Thoroddsen hafi nú sama
hátt á gagnvart l'jóðviljan-
um og OÍafur K. (irímsson
gagnvart síðdegisblöðun-
um áður, að hann hringi
inn pólitískar forsíöufréttir
um sjálfan sig og aöra.
Brezhnev og
útvarpið
Eins og eðlilegt er, sagði
íslenska rikisútvarpið ræki-
lega frá því að Leonid
Brezhnev, iciðtogi sovéska
kommúnistaflokksins og
forseti Sovétríkjanna, væri
látinn. Kór ekki fram hjá
neinum sem hlustuðu á
andagt morgunþula, að
Brezhnev var mikilmenni á
brott kallað. í hádegisfrétt-
um á nmmtudag létu
fréttamennirnir svo til sín
taka og fóru mjúklegum
höndum um hinn látna
leiðtoga. í hádegispistlin-
um var oftar en einu sinni
komist svo að orði, að
Kremlverjar hefðu „sent
herlið til Afganistan". Ekki
verður sagt annað en með
slíku orðalagi sé tekið
mildilega á innrás sovéska
hersins inn i Afganistan
um jólin 1979 og blóðugri
baráttu hans við afgönsku
þjóðina síðan. Orðalagið
„sent herlið til Afganistan"
er byggt á þeirri skoðun, að
Sovétmenn stundi þar ein-
hvers konar hjálpar- eða
björgunarstarf. Kaunar
mátti skilja skilgreiningu
ríkisútvarpsins á
„Brezhnev-kenningunni" á
þann veg, að þar væri um
einhverja eðlilega reglu í
samskiptum rikja að ræða,
en höfundi hennar hefði
þótt miður að hrinda henni
í framkvæmd. Kenningin
var mótuð til að „réttlæta"
innrás Varsjárbandalags-
landa í Tékkóslóvakíu í ág-
úst 196S. Hún er sannköll-
uð hcimsvaldakenning,
sem byggist á þeirri skoð-
un, að stórveldi geti hlutast
til um málefni lítils ná-
granna að eigin vild.
Kyrir kvöldfréttir út-
varpsins reyndi svo þulur
að leika Tráumerei eftir
Kobert Sehumann, en það
tókst ekki vegna þess að
hljómplatan var gölluð.
l>etta sorgarlag, Tráumer-
ei, er í miklum metum i
Sovétrikjunum og jafnan
leikið á minningarstund-
um. /Etli það hafi verið
leikið fyrir fréttir í gær í
nokkurri annarri útvarps-
stöð fyrir vestan járntjald
en hinni íslensku?
Hver skyldi ráða slíku
vali á tónlist? Kréttastof-
an?
SPARISJÓÐUR
REYKJAVÍKUR OG NÁGRENNIS
Skólavörðustíg 11. Sími 27766.101 Reykjavík. Pósthólf 457.
SÝNING
á tillögum i samkeppni um iðnhönnun
i afgreiðslusal Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis,
Skólavörðustíg 11.
Til sýnis verða allar þœr tillögur
sem hlutu verðlaun
eða sérstaka viðurkenningu dómnefndar.
Sýningin er opin í dag, laugardag, og á morgun, sunnudag, frá
kl. 14—18. Sýningunni lýkur á sunnudag 14. nóvember kl. 18.