Morgunblaðið - 13.11.1982, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1982
Breytingar á Mitsubishi Colt:
Er straumlínulagaðri
með nýjum framenda
Nýtt mælaborð hefur verið hannað og
hann er boðinn með sparnaðargír
MITSlIBISHI-bílar hafa náö mikl-
um vinsældum í Kvrópu á sl. fimm
árum, eða allt frá þvi, aö framleið-
endurnir fóru að leggja verulega
rækt við markaðinn í Evrópu. Sömu
sögu er í sjálfu sér að segja hér á
landi. Kkki fór að bera verulega á
MiLsubishi fyrr enn eftir 1978. Bíll-
inn sem notið hefur hvað mestra
vinsælda hér er Colt-inn, en hann
var fyrst kynntur árið 1978.
STRAUMLÍNULAGAÐRI
Bíllinn hefur verið tiltölulega
lítt breyttur allt frá því að hann
var kynntur, en með 1983, árgerð-
inni verða nokkrar breytingar á.
Má þar fyrst nefna, að bíllinn
heíur fengið nýjan framenda og
er fyrir vikið nokkru straumlínu-
lagaðri. Grillið er nýtt og ljósin
hafa verið endurhönnuð. Þau
fylla nú alveg út í rammann, en á
eldri gerðum hafa þau fallið inn í
grillið. Með þessari breytingu
minnkar loftmótstaðan nokkuð.
Þá eru nýir stuðarar á bílnum,
sem eru nokkru voldugri en þeir
eldri og þola meira hnjask.
NÝTT MÆLABORÐ
Af innvortis breytingum vekur
nýtt mælaborð mesta athygli. Því
hefur verið gjörbreytt til hins
betra. Mælarnir eru stærri en áð-
ur og betra að lesa af þeim. Þá
eru stjórntæki betur innan seil-
ingar en áður. Það vekur athygli,
að stjórnrofar fyrir ljós og þurrk-
ur hafa verið færðir úr stýrinu og
eru nú í nokkurs konar tunnum,
eða sívalningum í borðinu sjálfu.
Stýrishjólið sjálft er stílhreinna
og er eftir sem áður vel staðsett.
Þá eru stjórntæki miðstöðvarinn-
ar betur hönnuð en í eldri gerð-
um, þannig að auðveldara er að
meðhöndla þau. í bílinn er komin
tiltölulega stór kvarzklukka, sem
gott er að lesa af, en í eldri gerð-
um var lítil klukka, sem var ekki
eins skemmtileg.
FLEIRI STILLINGAR
ÁSÆTUM
Lögun sæta Colts-ins var
breytt til batnaðar á liðnu ári, en
til viðbótar er nú boðið upp á
skemmtilegra og slitsterkara
áklæði, sem auk þess er fáanlegt í
fleiri litum en áður. Þá hefur
stillimöguleikum framsætanna
verið fjölgað frá því sem áður
var.
COLT MEÐ
SPARNAÐARGÍR
Colt-inn kemur „standard“ með
4ra gira kassa, en auk þess er
bíllinn nú hoðinn með svokölluðu
„super shift", eða sparnaðargír,
sem virkar þannig að annaðhvort
er bíllinn keyrður í venjulegu
ástandi, eða þá í sparnaðargír,
sem virkar þá í öllum gírum. Þeg-
ar ekið er í sparnaðargír er snún-
ingshraði vélarinnar um 25%
minni en ella, sem sparar tölu-
vert benzín. Þá er hægt að fá
Colt-inn með 3ja gíra sjálfskipt-
ingu ef óskað er.
Sem fyrr er Colt-inn framdrif-
inn með sjálfstæða fjöðrun á
hverju hjóli. Hann er knúinn 4ra
strokka, 1.244 rúmsentimetra, 55
DIN hestafla vél, sem er eins og
áður með „silent shaft“, eða jafn-
Bílar
Sighvatur Blöndahl
vægisstöng, sem gerir vélina mun
hljóðlátari en ella. Þá má skjóta
því að, að nú býður Mitsubishi
alla línuna og þar með talinn
Colt-inn með forþjöppu eða
„turbo“, sem gerir bílana að
sjálfsögðu mun kraftmeiri en
ella.
Colt-inn er á bilinu 815—825 kg
eftir útfærslu. Heildarlengd hans
er 3.805 mm, breiddiri er 1.585
mm og hæðin er 1.345 mm. Hjól-
haf bílsins er 2.300 mm og veg-
hæð hans er 170 mm. Hámarks-
hraði er sagður á bilinu 147—152
km á klukkustund og beygjuradí-
usinn er 4,9 metrar.
Samkvæmt upplýsingum sem
fengust hjá Heklu hf., umboðsað-
ila Mitsubishi hér á landi, kostar
1983-árgerðin um 129.000 krónur
og eru bílar til á lager.
Nýtt mælaborð.
StilHmöguleikum sæU fjölgað.
Nýr Qpel Record á markaðinn:
Er talinn um 20% eyðslu
grennri en forveri hans
— vegna aukinnar straumlínulögunar og eyðslugrennri véla
íburðarmikil innrétting, sérstaklega vekja aftursætin athygli.
OPELVERKSMIÐJURNAR vest-
ur-þýzku kynntu á dögunum nýjan
endurhannaðan Opel Rekord, en
honum er ætlað að fara í samkeppni
við þarlenda millistærðarbila frá
Audi, BMW og Ford. Billinn hefur
skemmtilega linu og hefur hlotið lof
bílasérfræðinga í Evrópu, sem segja
að hann muni koma Opel aftur inn
í myndina i þessum stærðarflokki,
en á liðnum árum hefur hallað mjög
undan fæti hjá fyrirtækinu. Hins
vegar hefur Opel gengið mjög vel
siðustu 2—3 árin með minni bílana
með tilkomu nýja Kadett-bílsins og
nýja Ascona-bílsins.
VINDSTUÐULLINN
0,37 CW
Eins og með alla nýja bíla á
markaðnum í dag, er nýi Rek-
ord-inn mun straumlínulagaöri
en forveri hans og hefur bíllinn
vindstuðulinn 0,37 CW, sem er
ágætt. Aukin straumlínulögun
kemur síðan m.a. fram í minni
benzíneyðslu. Reyndar segir Opel,
að nýi Rekord-inn sé um 20%
eyðslugrennri en sá gamli, m.a.
vegna minni loftmótstöðu og
eyðslugrennri véla. Billinn er með
stærri ljósum, bæði að aftan og
framan.
MÆLABORÐ
Mælaborðið, sem er nýtt, er í
anda þess sem er í Kadett og Asc-
ona. Tiltölulega stórir mæiar og
borðið almennt fært nær öku-
manninum, þannig að stjórntæki
eru betur innan seilingar en áður.
Sérstaka athygli vekur nýstárlegt
stýrishjól.
INNRÉTTING
Innrétting nýja Rekord-bílsins
er mun íburðarmeiri en var í for-
vera hans og reyndar virðist það
stefnan í öllum nýjum bílum, að
innréttingar séu íburðarmeiri.
Það er í raun liðin tíð, að einfald-
leikinn ráði ferðinni. í sambandi
við sætin vekur það sérstaka at-
hygli hversu velformuð aftursæt-
in eru í bílnum.
VÉL
Rekord-inn kemur „Standard"
með 4 strokka, 1,8 lítra, 1.796
rúmsentimetra, 75 hestafla vél,
en samkvæmt mælingum þýzka
bílablaðsins Auto Motor und
Nýtt mælaborð með nýstárlegu
stýrishjóli.
Sport er benzíneyðsla bílsins, sé
ekið á jöfnum 90 km hrað á
klukkustund, 7,0 lítrar. Ef ekið er
á jöfnum 120 km hraða á klukku-
stund er eyðslan 9,3 lítrar og í
bæjarakstri eyðir bíllinn 11,2
lítrum benzíns á hverja 100 km.
Ennfremur verður boðið upp á
bílinn með 1,8 lítra, 1.796 rúm-
sentimetra, 90 hestafla vél, 2,0
lítra, 1.979 rúmsentimetra, 100
hestafla vél, 2,0 lítra, 1.979 rúm-
sentimetra, 110 hestafla vél og
loks 2,3 lítra dísilvél, sem er 2.260
rúmsentimetra og 65 hestafla.
Rekordinn er með sjálfstæða
fjöðrun á hverju hjóli. Hann
kemur „Standard" með 4ra gíra
kassa, en ennfremur er boðið upp
á 5 gíra kassa og sjálfskiptingu.
Bíllinn er 1.115—1.250 kg á
þyngd. Lengd bílsins er 4.652 mm,
breiddin 1.726 mm og hæðin 1.420
mm. Hjólhafið er 2.668 mm. Það
tekur bílinn 16,5 sekúndur að ná
100 km hraða á klukkustund, en
hámarkshraði er 160 km á
klukkustund með 1,8 lítra vélinni.
Með hinum vélunum er hann á
bilinu 12,0—22,5 sekúndur að ná
100 km hraða á klukkustund.
Samkvæmt upplýsingum
Bjarna Ólafssonar, deildarstjóra
Véladeildar SÍS, sem hefur um-
boð fyrir Opel, eru fyrstu bílarnir
væntanlegir hingað til lands.
Verðið verður samkvæmt bráða-
birgðaútreikningi frá 270 þúsund
krónum.