Morgunblaðið - 13.11.1982, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 13.11.1982, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1982 AF ERLENDUM VETTVANGI EFTIR GUÐMUND HALLDÓRSSON Fólk safnast saman við minnismcrkið við skipa- smíðastöðina í Gdansk, þar sem til óeirða kom í síðasta mánuði. Fortölum og hörku beitt gegn ólgunni í Póllandi l'ÁTTTAKAN í mótmælunum í Póllandi á miðvikudaginn, þegar tvö ár voru liðin síðan óháða verkalýðshreyfingin Samstaða hlaut lagalega við- urkenningu, var minni en oftast áður vegna strangra ráðstafana, sem stjórnvöld hafa gripið til að undanförnu til að kveða niður ókyrrðina í landinu. mist hefur beinlínis verið varað við hörðum aðgerð- A. um, harðar gengið fram í því að framfyigja reglum um að fólk mæti til vinnu í verksmiðj- um, eða ný lög sett til þess að hafa strangara eftirlit með al- menningi. Enn eitt ráðið, sem yfirvöld hafa gripið til í því skyni að lægja ólguna, var tilkynning sú er birt var rétt áður en efnt var til mótmælanna á miðvikudag- inn um að Jóhannes Páll páfi II komi í heimsókn til Póllands í júní á næsta ári. Pólverjum þætti vænt um að fá páfann í heimsókn, en þeim möguleika er haldið opnum að heimsókninni verði aflýst ef ekkert lát verður á ólgunni. Auk þess hefur þrýstingurinn á Samstöðu verið aukinn eins og sést á handtökum Piotr Bednar- az, leiðtoga hreyfingarinnar í Wroclaw. og 12 aðstoðarmanna hans. Þessi atburður var alvar- legt áfali fyrir Samstöðu og fylgdi í kjölfar handtöku Wlady- slaw Frasyniuk, fyrirrennara Bednaraz í fjögurra manna nefnd sem komið var á fót í apríl til að stjórna hreyfingunni. Þar að auki hefur öryggislögreglan lagt hald á leynilegar prentvél- ar, senditæki og flugmiða. Hingað til hafa yfirvöld sett það skilyrði fyrir því að páfinn fái að koma í heimsókn að inn- anlandsfriður ríki í Póllandi. Nú er það skilyrði ekki lengur nefnt, en fréttaritari AP segir augljóst að nota eigi ákvörðunina um heimsóknina sem vopn gegn Samstöðu, hvenær sem stuðn- ingsmenn hreyfingarinnar hvetja til meiriháttar aðgerða. Tilkynningin var líka notuð í fjölmiðlum ríkisstjórnarinnar til þess að leggja áherzlu á að fund- ur Jozefs Glemps erkibiskups og Jaruzelskis hershöfðingja á mánudaginn táknaði að kirkjan tæki afstöðu með stjórninni með því að leggjast gegn þátttöku í mótmælaaðgerðunum á mið- vikudaginn. Fréttaritari The New York Times benti á það í gær að sú nýja leið hefði verið farin að spyrða saman kirkjuna og yfirvöld hersins með því að leggja áherzlu á „sameiginlegar áhyggjur" og „gagnkvæmt átak“ þeirra. Yfirvöld hafa einnig gripið á þau gamalkunnu ráð að kenna utanaðkomandi öflum og „er- lendum útvarpsstöðvum" um að kynda undir ólguna. Meira hefur munað um ötult starf, sem verk- smiðjustjórar og tryggir flokksmenn hafa unnið með því að vara við afleiðingum þess að taka þátt í verkföllum og hátal- arar hafa verið óspart notaðir til að koma þessum viðvörunum til skila. Viðurlögin geta verið brottrekstur eða svipting árlegr- ar yfirgreiðslu, en auk þess er stjórnvöldum mikið hald í þeim nýju ráðstöfunum sem þau hafa gripið til. Samkvæmt nýjum lögum um „félagsleg sníkjudýr" geta yfir- völd skipað atvinnulausu fólki að vinna hver þau störf sem þau ákveða. Þannig er hægt að reka menn fyrir þátttöku í verkfalli, dæma þá „iðjuleysingja“ sam- kvæmt nýju lögunum og senda þá í vegavinnu til einhvers kuldalegs, afskekkts landshluta. Þeir sem hafa verið sviptir starfi og neita að vinna þau störf, sem yfirvöld ákveða, eiga á hættu minnst þriggja mánaða og allt að tveggja ára fangelsi. Samkvæmt nýjum lögum um vandræðaunglinga bera foreldr- ar ábyrgð á gerðum barna sinna, en yfirvöld hafa gagnrýnt ungl- inga fyrir þátttöku í mótmælum. Þá hefur verið hótað að setja verksmiðjur undir heraga, en samkvæmt lögum um slíkt eru menn dæmdir í sex ára fangelsi ef þeir neita að hlýða skipunum. Af öðrum ráðstöfunum má nefna að fólk var varað við því að það mætti ekki skrópa úr vinnu á mið'vikudaginn eða slóra, því að ella yrði hægt að saka það um að það „þættist" vinna eða það væri í verkfalli. Dreift var reglum um mætingu og skyldur til verkstjóra og þeim var skipað að undirrita yfirlýs- ingu um að þeir þekktu reglurn- ar, svo að þeir gætu ekki borið því við að þeir þekktu þær ekki, ef einhverjir verkamenn hyrfu úr vinnunni eða skrópuðu. Há- skólakennurum voru send fyrir- mæli um að fylgjast vandlega með því að stúdentar mættu í tíma á miðvikudaginn. Hingað til hafa yfirvöld ekki hikað við að bæla niður andóf, eins og þegar skipasmíðaverk- smiðjurnar í Gdansk voru settar undir heraga í síðasta mánuði og verkfallsmenn voru raunveru- lega teknir í herinn fyrir að mót- mæla banninu við starfsemi Samstöðu. Aragrúi sérþjálfaðra óeirðalögreglumanna (sem Pól- verjar kalla „Zomos") var sendur til Gdansk og annarra borga fyrir mótmælin á miðvikudag- inn. Önnur árangursrík aðferð stjórnarinnar hefur verið í því fólgin að rjúfa fjarskiptasam- band milli borga, en á þann hátt og með yfirráðum sínum yfir fjölmiðlunum hefur stjórninni tekizt að einangra andófsmenn og koma í veg fyrir að fréttir um mótmæli breiðist út. Yfirvöld beita fjölmiðlunum óspart og fréttaritari New York Times segir að bezta dæmið um það hafi verið fréttatími pólska sjónvarpsins á þriðjudagskvöld. Fyrirhuguð mótmæli daginn eft- ir voru ekki nefnd, en bent var á mörg rök gegn því að taka þátt í þeim. Nær öllum fréttatímanum var varið til þess að segja frá fundi Glemps og Jaruzelskis, m.a. með viðtölum við fólk á göt- unni, þar sem fram kom ánægja með páfaheimsóknina, fréttum um viðbrögð í ýmsum höfuð- borgum og sá boðskapur fylgdi að kirkjan og ríkið hefðu tekið höndum saman um að færa ástandið í „eðlilegt horf“. Ásak- anir komu fram um að frönsk blöð, en einkum útvarpsstöðv- arnar „Voice of America„ og „Radio Free Europe", hefðu rangtúlkað fréttir um heimsókn- ina. Klykkt var út með því að segja frá handtökum Samstöðu- manna til að vara fólk við. Enn skýrari viðvörun kom fram í sjónvarpinu kvöldið áður þegar lesin var upp tilkynning frá ríkisstjórninni, þar sem sagði að yfirvöld mundu beita öllum tiltækum ráðum til að tryggja vinnufrið og reglu. Stjórnarmálgagnið Rzeczpospol- ita hæddist að leiðtogum Sam- stöðu, sagði að þeir væru tvístíg- andi og benti á að þeir hættu við að boða til fjögurra tíma verk- falls og ákváðu í staðinn að það skyldi standa í fjóra tíma. Þessar viðvaranir og ráðstaf- anir stjórnarinnar hafa vakið ugg meðal verkamanna og því var dræmari þátttaka í mótmæl- unum en búizt hafði verið við. Pólverjar halda þó áfram að bjóða yfirvöldum byrginn. Áróð- ursspjaldi sem stjórnvöld hengdu upp og sýnir hönd brjóta glerrúðu með áletruninni „nóg“ var breytt með því að bæta orð- inu „rnorð" aftan við „nóg“. Því fer fjarri að ró sé komin á í Póllandi, þótt það sé von stjórnvalda að ástandið færist í „eðlilegt horf“, en því fylgir stöð- ugt meiri áhætta að standa fyrir andófi. Frekari mótmælaaðgerð- ir eru fyrirhugaðar í desember, á afmæli herlaganna, og um er rætt að efna til allsherjarverk- falls næsta vor. Félagsmálaráð- herra og aðstoð- armaður hans eftir Halldór Blöndal alþingismann Það var lengi vel svo hér á landi, að lögfræðingar í opinberri þjón- ustu stunduðu jöfnum höndum umfangsmikil málfærslustörf. Þetta hafði að sjálfsögðu marg- víslegan hagsmunaárekstur í för með sér. M.a. var mjög að því fundið, að það kom iðulega fyrir, að maður rak mál fyrir embætti, þar sem hann var sjálfur dómari. Þess voru líka dæmi, að dómari var vanhæfur í máli, þar sem hann hafði haft lögfræðileg af- skipti af því á fyrri stigum. Þar sannaðist hið fornkveðna, að erfitt er tveim herrum að þjóna. Vinnu- veitandinn, í þessu tilviki ríkið, naut ekki starfshæfni viðkomandi, auk þess sem stundum lék vafi á, hvort fullri vinnutímaskyldu væri skilað. Þetta ástand, tvíeðli manna í opinberu starfi, stuðlaði ekki að réttaröryggi í landinu eins og Lögmannafélagið benti ítrekað á. Þessi mál voru mikið til umræðu á sínum tíma. Hinn 10. febrúar 1971 hjó þáverandi dómsmálaráðherra, Auður Auðuns, á hnútinn, þegar hún gaf út „reglur um málflytj- endastörf manna í opinberu starfi" og eru þær enn í gildi. í 1. gr. segir svo: „Lögfræðingum, sem starfa við embætti dómara, lögreglustjóra, tollstjóra, ríkisskattstjóra, sak- sóknara ríkisins, eða í stjórnar- ráði, er óheimilt að stunda málflytjendastörf meðan þeir gegna slíkum störfum. Þetta á þó ekki við um málflytjendur, sem gegna fyrrnefndum störfum um afmarkaðan stuttan tíma eða eru falin dómarastörf í einstöku máli.“ í 3. gr. er síðan kveðið skýrt á um það, að lögfræðingum skuli „eigi heimilt að stunda málflutn- ingsstörf eftir að þeir hafi tekið við umræddum störfum, enda skuli þeir afhenda dómsmálaráðu- neyti málflutningsleyfi sitt meðan svp er ástatt". I mínum huga er enginn vafi á því, að embætti aðstoðarmanns ráðherra fellur undir þessar regl- ur og hefur Eiríkur Tómasson hdl. sama skilning, en hann gegndi um skeið embætti aðstoðarmanns dómsmálaráðherra. Aðstoðarmað- ur ráðherra hefur lögum sam- kvæmt stöðu deildarstjóra, en hverfur úr starfi jafnskjótt sem ráðherra og nýtur þá launa þrjá mánuði til viðbótar, hafi hann ekki áður verið ríkisstarfsmaður, en þá á hann rétt á að hverfa til fyrra starfs eða annars eigi lakara að föstum launum í þjónustu ríkisins. Hann er embættismaður með réttindum þeirra og skyldum. Samkvæmt þessu átti Arnmundur Bachmann rétt til þriggja mánaða launa, er hann hætti sem aðstoð- armaður ráðherra. Mér þykir nauðsynlegt að árétta þessi sjónarmið vegna greinar Arnmundar Bachmanns í Morg- unblaðinu 5. nóvember sl., vegna orðaskipta okkar Svavars Gests- sonar félagsmálaráðherra á Al- þingi, þegar rædd var fyrirspurn okkar Péturs Sigurðssonar um ríkisábyrgð á launum við gjald- þrot. Arnmundur var aðstoðar- maður félagsmálaráðherra frá 1. júní 1980 til 30. júní sl., en rak samtímis umsvifamikla málflutn- ingsstofu. Það er til marks um störf hans á þeim vettvangi, að hann var skipaður réttargæzlu- maður og verjandi í viðamiklu sakamáli á þessum tíma. Mér er sagt, að hann hafi verið lögmaður fjölmargra stéttarfélaga gegn fastri þóknun á meðan, þar á með- al Verkamannasambands íslands, sem að vísu réð sér annan lög- mann, þar sem það taldi störf hans sem aðstoðarmanns fé'lags- málaráðherra ekki samrýmast al- mennri lögfræðilegri ráðgjöf og vildi hafa óháðan lögmann i þjón- ustu sinni. Þessar staðreyndir koma ekki heim og saman við þá fullyrðingu Arnmundar, að hann hafi verið „fjarverandi frá lög- mannsstörfum" meðan hann var aðstoðarmaður ráðherra. Ég hygg, að Arnmundur Bach- mann hafi lokið framhaldsnámi í vinnurétti erlendis og hafi m.a. verið ráðinn aðstoðarmaður fé- lagsmálaráðherra til þess að vera sérfræðingur hans í þeim málum. Það hlaut hins vegar að koma í veg fyrir að hann gæti nýtzt ráðu- neytinu til fulls sem hlutlaus úr- skurðaraðili að lögmannsstofa hans og þar með hann sjálfur var aðili að því máli, sem úrskurða þurfti. Þetta sýnir Ijós'ega nauð- syn þess, að reglurnar um mál- flytjendastörf manna í opinberu starfi séu í heiðri hafðar til þess að vanhæfni komi ekki í veg fyrir, að viðkomandi ráðuneyti njóti sér- þekkingar manna í sinni þjónustu. I svari við fyrirspurn minni á Alþingi komst Svavar Gestsson félagsmálaráðherra m.a. svo að orði: „Tveir lögfræðingar í lög- fræðiskrifstofu Arnmundar Bach- mann hafa fengið greitt sem hér segir: Viðar Már Matthíasson vegna tveggja launamanna, kr. 2.646 bæði árin 1980 og 1981 og Sveinn Skúlason lögmaður vegna um það bil 50 launamanna á árun- um 1980 til 1981 kr. 63.559.“ í fylgiskjölam ríkisbókhaldsins árin 1980 og 1981 er hvorugt þetta nafn að finna, en á hinn bóginn fjöl- margar greiðslubeiðnir vegna lögmannsstarfa og kostnaðar Arnmundar Bachmann hdl., svo að ætla verður að ávísanir ríkis- féhirðis hafi verið gefnar út á hans nafn, svo og launamiðar ráðuneytisins. I því Ijósi er rétt að íhuga þessi ummæli lögmannsins í greininni 5. nóvember sl.: „Siðleysi það, sem þingmaðurinn talar um, er þá eingöngu í því fólgið að félagsmálaráðuneytið skyldi ekki neita að greiða staðgenglum Arn- mundar Bachmann lögbundna þóknun vegna starfa þeirra fyrir launþega." Vel getur þetta dugað sem svar við svohljóðandi spurningu lög- mannsins: „I hverju er hyglunin og siðleysið fólgið?" Ég vil taka það fram í þessu sambandi, að ummæL mín hér og á Alþingi á dögunum geta ekki skilist sem áfellisdómur yfir þeim lögmönnum, sem unnið hafa við innheimtu á ógreiddum launum vegna gjaldþrots atvinnurekenda. Allra síst er unnt að skilja þau sem árás á starfsmenn Arnmund- ar Bachmann hdl., enda hefur mér skilist að þeir hafi á sér gott orð og séu dugandi ungir menn í lög- mannastétt. Á hinn bóginn voru svör ráðherra varðandi greiðslu lögmannskostnaðar í sumum greinum óljós og villandi, eða hann svaraði ekki því, sem um var spurt. í því ljósi hijóta ummæli mín að vera skoðuð. Kjarni máls- ins er að sjálfsögðu sá, að launa- fólk fái laun sín greidd við gjald- þrot atvinnurekanda svo fljótt sem verða má. Félagsmálaráðu- neytinu ber á hinn bóginn skylda til að vera gagnrýnið á reikninga lögmanna sem annarra, sem ríkið hefur skipti við. Og ég kemst ekki hjá því að fara viðeigandi orðum um, að aðstoðarmaður félagsmála- ráðherra skuli reka umsvifamikla málflutningsstofu á sviði vinnu- réttar. Arnmundur Bachmann spyr: „Getur Halldór Blöndal nefnt eitt einasta dæmi þess, að krafa laun- þega hafi verið greidd í félags-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.