Morgunblaðið - 13.11.1982, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1982
Austur-evrópsks
kafbáts leitað
við Noregsstrendur
Osló, 12. nóvember. frá Jan Krík l.auró. fréltaritara Mbl.
NOKSKI HERINN helur nú í tvo daga leitað aó kafháti, likast til frá
Austur-Evrópu. Til hans sást á miðvikudag við skerjagarðinn fyrir utan
Lrándheim, mitt á vesturströndinni.
Leitinni var reyndar hætt í
morgun, en þegar húlgarskt tank-
skip sást á svipuðum slóðum í dag
vaknaði grunur hjá yfirmönnum
hersins og ákváðu þeir að hefja
leitina á ný.
Það var sjómaður, sem varð kaf-
bátsins var í sjónauka. Fylgdist
hann með honum í hálfa klukku-
stund. Mátti sjá sjónpípu kaf-
bátsins og hluta skrokks kaf-
bátsins. Gat sjómaðurinn gefið
svo nákvæma lýsingu á því sem
fyrir augu bar, að hernaðaryfir-
völd í Noregi telja sig fullviss um
að hér hafi austur-evrópskur kaf-
bátur verið á ferð.
Aðeins voru notuð skip og bátar
til kafbátsleitarinnar á miðviku-
og fimmtudag og hefur það verið
gagnrýnt í Noregi. Herinn hefur
Tyros:
Tala lát-
inna hækkar
Tel Aviv, 12. nóvcmlKT. \l*.
TALA látinna hækkaði í dag upp í 40
manns, er hjörgunarmenn ruddu sér
leið gegnum rúsfir herbyggingar fsraels-
manna í horginni Tyros í Suður-Líhan-
on. Óttast var, að enn kynnu tugir
manna að vera grafnir undir rústunum.
Ilerstjórn jsraelsmanna tilkynnti i dag.
að 20 Israelsmenn hefðu fundizt látnir
og 14 Arabar.
Enn er allt á huldu um sprengingu
þá, sem olli því, að herbyggingin
hrundi til grunna. Er þetta eitt mesta
áfall fsraelshers, frá því að hann hélt
inn í Líbanon 6. júní sl.
yfir að ráða Orion-flugvélum bún-
um fullkomnum leitartækjum.
Með þeim hefði reynst auðvelt að
finna kafbátinn. Slík vél hefur nú
verið send á staðinn.
Slæmt veður var á þeim slóðum,
sem kafbáturinn sást, þannig að
vera kann að búlgarska tankskipið
hafi leitað vars. En það var engu
að síður skyndileg koma þess á
þetta svæði, sem varð til þess að
leit var hafin að nýju.
Sjúkdómar
og dánar-
orsök
Brezhnevs
IIÉR FER á eftir tilkynning sov-
ésku fréttastofunnar TASS um
sjúkdóma og dánarorsök Brezhn-
evs í þýðingu starfsmanna Noyosti
á íslandi:
„I læknaskýrslu um sjúkdóma
og dánarorsök Leoníd Brezhnevs
segir, að Leoníd Brezhnev, fædd-
ur 1906 hafi þjáðst af æðakölkun
í hjartaslagæð, aneurism í kvið-
arholi, æðakölkun í kransæðun-
um, æðarþrengslum samfara
óreglulegum hjartslætti og myo-
cardium í kjölfar blóðtappa.
Hjartað hætti skyndilega að
slá milli klukkan 8 og 9 þann 10.
nóvember 1982.
Sjúkdómsgreiningin hefur
verið staðfest með krufningu."
Viðtalstími borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða til viötals í
Valhöll, Háaleitisbraut 1 á laugardögum frá kl.
10—12. Er þar tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum
og ábendingum og er öllum borgarbúum boðið aö
notfæra sér viðtalstíma þessa.
Kalrín Júlfu*
Fieldtlftð Hafetein
Laugardaginn 13. nóvember verða til viðtals Katrín
jj^ Fjeldsteð og Júlíus Hafstein.
Ronald Reagan um stöðvun vígbúnaðarkapphlaupsins:
Þarf vilja beggja ef
eitthvað á að takast
Washington, 12. nóvember. AP.
RÖNALD REAGAN Bandaríkjaforseti sagdi í ræöu, sem hann flutti á blaða-
mannafundi í Washington, að hann vonaðist eftir bættum samskiptum stór-
veldanna á hinum „váíegu“ tímum, sem nú færu i hönd, eftir andlát Leonid
I. Brezhnevs, forseta Sovétríkjanna. Sagði Reagan að takmark Banda-
rikjamanna væri og myndi áfram verða leit Bandarikjamanna að friði.
meirihluti fólks í hreyfingunni
væri einlægur og gengi gott eitt
I ræðu forsetans kom einnig
fram, að George Bush, varaforseti,
myndi að öilum líkindum fara
fyrir bandarísku sendinefndinni
við útför Brezhnevs. Sagðist for-
setinn ekki geta komið því við sök-
um anna að fara sjálfur er hann
var inntur eftir því af hverju hann
færi ekki fyrir sendinefndinni.
Er forsetinn var að því spurður
hvort hann ætlaði að beita sér
fyrir því að Bandaríkjamenn
sýndu frumkvæði í slökun á þeirri
spennu, sem ríkt hefur á milli
stórveldanna, svaraði hann því til
að það hefði verið reynt af hálfu
Bandaríkjamanna eftir diplóma-
tískum leiðum, en ef menn ætluð-
ust til að sjá árangur yrðu að
koma til orð og aðgerðir. Það þarf
vilja beggja ef eitthvað á að tak-
ast.
Um friðarhreyfinguna og stöðv-
un vígbúnaðarkapphlaupsins
sagði Reagan, að augljóst væri að
„erlendir aðilar" hefðu smokrað
sér inn í friðarhreyfinguna í
Bandaríkjunum. „Við höfum næg-
ar sannanir fyrir slíku," sagði for-
setinn. Hann bætti því ennfremur
við, að hann teldi þó að mikill
til.
í ræðu forsetans kom einnig
ján sovéska stjórnarerindreka af
tuttugu og fimm að fara sem fyrst
frá ('osta Rica, samkvæmt fréttum
frá yfirvöldum í dag.
Yfirmaður, sem ekki vildi láta
nafns síns getið, sagði að stjórnin
viðurkenndi ekki skjal það sem
undirritað var í Moskvu af Max
Blanco, fyrst sendiherra Costa
Rica í Sovétríkjunum á áttunda
áratugnum. Þar er gefin heimild
fyrir því að í Costa Rica verði
fram, að þess væri e.t.v. að vænta,
að fjármagn til hermála yrði skor-
ið niður. Til þessa hefur forsetinn
skellt skollaeyrum við röddum
þeirra, sem farið hafa fram á
minnkað fjármagn til hermála.
Hefur hann til þess bent fólki á að
skera bæri niður fjárveitingu ann-
ars staðar fyrst.
starfandi tuttugu og fimm sovésk-
ir sendiráðsstarfsmenn.
Hann sagði hins vegar að
stjórnvöld viðurkenndu munnleg-
an samning er gerður var árið
1970 og takmarkar tölu sendi-
ráðsstarfsmanna við átta.
Dagblaðið La Nacion hafði síð-
an eftir Fernando Volio Jimenez,
utanríkisráðherra, að þeir sautján
starfsmenn sem eru umfram þann
samning sem Costa Rica viður-
kennir, verði beðnir um að „yfir-
gefa landið hið bráðasta".
Costa Rica:
Sautján sovéskum sendiráðs-
starfsmönnum vlsað úr landi
San José, Cosla Rica, 12. nóvember. AP.
STJORNVÖLD hafa nú beðið saut-
Símanumer innanlandsf lugs Flugleióa
Farpantanir og fargjöld 26622
Farþegaafgreiósla Reykjavíkurflugvelli og upplýsingar
um komu-og brottfarartíma flugvéla 260TI
FLUGLEIÐIR
Gott fólk hjá traustu félagi