Morgunblaðið - 13.11.1982, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1982
29
gangskör
Konur og kosningar
— rætt við Margréti S. Einarsdóttur, for-
mann Landssambands sjálfstæðiskvenna
Framundan eru Alþingiskosn-
ingar og hafa stjórnmálaflokk-
arnir hafið undirbúning að þeim.
Prófkjör hafa verið ákveðin og
verður prófkjör Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík í lok þessa
mánaðar.
Konur eru helmingur kjósenda
í landinu og með stöðugt aukinni
þátttöku kvenna í atvinnulífinu
gera þær enn ríkari kröfur til
þess en áður að verðmætamat
kvenna fái að njóta sín og hafa
áhrif í þjóðlífinu. Þá kröfu verð-
ur að gera til sjálfstæðismanna,
að Sjálfstæðisflokkurinn svari
kröfum nútímans og stuðli að
jafnri stöðu karla og kvenna í
trúnaðarstöðum flokksins.
Sjálfstæðisflokkurinn á að þessu
leyti sem í öðru efni að vera í
fararbroddi. Starf sjálfstæðis-
kvenna fram að prófkjöri í kjör-
dæmum landsins mun markast
Umsjón: Ásdís J. Rafnar
Erna Hauksdóttir
af baráttu fyrir konum í örugg
þingsæti á Alþingi. Umsjónar-
menn Gangskarar hvetja sjálf-
stæðismenn til að stuðla að
auknum hlut sjálfstæðiskvenna á
Alþingi með stuðningi við konur
í prófkjöri.
Margrét S. Kinarsdóttir sjúkral-
iði er formaður Landssambands
sjálfstæðiskvenna. Nokkrum
spurningum var beint til hennar
varðandi konur og stjórnmál.
Hver er staða kvenna í ábyrgð-
arstöðum innan Sjálfstæðisflokks-
ins?
„Staða kvenna í ábyrgðarstöð-
um innan stjórnmálaflokkanna
almennt er ekki ýkja mikil og
þar er Sjálfstæðisflokkurinn
engin undantekning, því miður. I
miðstjórn, málefnanefndum og
stjórnum félaga flokksins er
hlutfall kvenna enn óheyrilega
lágt. Það er þó rétt að minna á
Margrét S. Einarsdóttir
að annar af framkvæmdastjór-
um flokksins er kona.“
Hvers vegna er hlutur kvenna
ekki meiri í dag innan flokksins?
„Við slíkri spurningu er ekkert
eitt algilt svar. Hér kemur
margt til. Konur hafa gert kröf-
ur um aukið jafnrétti á sama
tíma og þær sjálfar hafa ekki
haft sig í frammi sem skyldi.
Konur verða sjálfar að vera til-
búnar til að nýta sér frelsi ein-
staklingsins og þá ábyrgð sem
því fylgir að takast á við ný
verkefni í. þjóðfélaginu.
Þó svo að jafnréttismál séu
ekkert einkamál kvenna, þá seg-
ir sig sjálft, að konur verða
sjálfviljugar að ganga fram fyrir
skjöldu og taka í auknum mæli
að sér stjórnunarstörf í atvinnu-
lífinu og á félagslegum grund-
velli. Konur þurfa að berjast
fyrir framgangi sínum jafnt og
karlar, til þess hafa þær í dag
menntun og möguleika, sem
þeim ber að nýta. Konur verða
að sýna sjálfstraust og síðast en
ekki síst ber þeim að sýna í verki
að þær beri traust til annarra
kvenna.
Það þarf dugnað, hæfni og
sterkan vilja til þess að ryðja úr
vegi fordómum og gamalli hefð,
sem rótgróið veldi karla hefur
skapað, jafnt innan stjórnmála-
flokka sem úti í þjóðlífinu al-
mennt."
Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti
flokkur þjóðarinnar. Hvernig á
hann að stuðla að auknum hlut
kvenna innan sinna vébanda?
„Þau kvenfélög sem starfa
innan flokksins verða að beita
sér markvisst fyrir aukinni
þátttöku kvenna í hinu almenna
flokksstarfi, m.a. með því að
skapa konum aðstöðu til þjálfun-
ar í stjórnunarstörfum og með
stuðningi við konur, sem sýnt
hafa vilja og getu til slíkra
starfa."
Hvers vegna eiga konur að hasla
sér völl á vettvangi stjórnmálanna,
að þínu mati?
„Stundum verður vart við
þann hugsunarhátt, að það að
sinna stjórnmálastörfum hafi
mannskemmandi áhrif á þá sem
við þau fást. Slík viðhorf eiga
ugglaust sinn þátt í tregðu
margra kvenna til stjórnmála-
þátttöku. Ég vara við slikum
hugsunarhætti. Konur eru helm-
ingur þjóðarinnar. Það er engu
síður hlutverk kvenna en karla
að móta það samfélag sem við
lifum í. Með breyttum þjóðfé-
lagsháttum hefur staða konunn-
ar breyst og hin hefðbundna
hlutverkaskipting kynjanna
raskast. Það er blátt áfram
skylda kvenna að takast á við
slíkar breytingar og koma á
framfæri sjónarmiðum sínum og
vilja.
Nú fara í hönd prófkjör og val
á lista flokksins fyrir næstu Al-
þingiskosningar. Ég vil hvetja
konur til þess að skorast ekki
undan þeirri þátttöku, heldur
sækja fram.
Jafnframt vil ég minna alla
stuðningsmenn flokksins á mik-
ilvægi þess að framboðslistar
Sjálfstæðisflokksins endurspegli
viljayfirlýsingar hans um jafna
stöðu karla og kvenna.
Það hvort konur skipa örugg
sæti á framboðslistum flokksins
fyrir næstu Alþingiskosningar
gefur haft afdrifaríkar afleið-
ingar um stöðu flokksins að
kosningum loknum. Sjálfstæðis-
flokkurinn verður að sýna í verki
að hann sé flokkur framfara,
frelsis og jafnréttis.“
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Tvítugur piltur
vanur sveitastörfum, óskar eftir
plássi. Uppl. í síma 96—71759.
Atvinna óskast
Tveir smiöir geta bætt viö sig
verkefnum, bæöi nýsmiöi og
viöhaldi
Uppl. i sima 92-3627 á kvöldin.
Lassý-hvolpar
til sölu. Uppl. i sima 92-6615.
□ Gimli 598211157 = 2
UTIVISTARFERÐIR
Sími — Símsvari 14606
Dagsferð sunnu-
daginn 14. nóv.
Kl. 13.00 Stóra-Skarösmýrarfjall.
Hressileg fjallganga, sem hefst i
Hamragili. Ef ekki gefur á fjalliö
veröur láglendisganga í Hellis-
skarö oq að Draugatjörn. Verö
kr. 150 og frílt fyrir börn til 15
ára í fylgd fulloröinna. Ekki þarf
að panta. Brottför frá BSl bens-
ínsölu. SJÁMUST.
KR-konur
Guöfinna Helgadóttir frá Virku
veröur meö jólaföndur í
KR-heimilinu 15. og 16. nóv-
ember kl. 8—11. Þátttaka til-
kynnist til Elísabetar í sima
85929.
Stjórnin.
Hjálpræðis-
herinn
Kirkjustræti 2
Miönætursamkoma í kvöld kl.
23.00.
Allir velkomnir.
Kvenfélag
Grensássóknar
heldur basar og kökusölu i dag
laugardag 13. nóvember kl.
14.00 í safnaöarheimilinu.
Stjórnin.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3
SÍMAR 11798 og 19533.
Dagsferðir sunnudag-
inn 14. nóv.:
Kl. 13.00 — Lambafell (546 m)
— Eldborgir. Létt ganga fyrir
alla fjölskylduna. Verö kr.
150.00. Fariö frá Umferöar-
miöstööinni, austanmegin. Far-
miöar viö bíl. Frítt fyrir börn í
fylgd fulloröinna.
Feröafélag íslands.
Kventélag Keflavíkur
heldur basar j Tjarnarlundl i dag
kl. 2 e.h. Margt góöra muna.
Margt góöra muna.
Nefndin.
Elím, Grettisgötu 62,
Reykjavík
Á morgun, sunnudag, veröur
sunnudagaskóli kl. 11.00 og al-
menn samkoma kl. 17.00. Veriö
velkomin.
Húsmæðrafélag
Reykjavíkur
Basarinn veröur aö Hallveigar-
stööum kl. 2 á sunnudag, gjöfum
veitt móttaka á sunnudagsmorg-
un milli kl. 10.30 og 12 á sama
staö.
Ðasarnefnd.
Krossinn
Samkoma í kvöld kl. 20 30, aö
Álfhólsvegi 32, Kópavogi.
Allir hjartanlega velkomnir.
Sálarrannsóknar-
félagiö á Selfossi
Aöalfundur veröur haldinn miö-
vikudaginn 17. nóv. í Tryggva-
skála kl. 9. Dagskrá: 1. Venjuleg
aöalfundarstörf. 2. Guömundur
Einarsson flytur erindi um
Ragnheiöi Brynjólfsdóttur og
sýnir video-upptökur.
Stjórnin.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
Félag sjálfstæðismanna í
Árbæjar- og Seláshverfi
Aðalfundur
Féfag sjálfstæöismanna i Árbæjar- og Sel-
áshverfi boöa til aöalfundar laugardaginn 13.
nóv. kl. 14.00 i félagsheimili sjálfstæö-
ismanna í Árbæjar- og Seláshverfi, Hraunbæ
102, syöri jaröhæö.
Dagskrá: Venjuleg aöalfundarstörf.
2. Lagabreytingar.
3. Önnur mál.
Gestur fundarins veröur Vilhjalmur Þ. Vil-
hjalmsson. og ræóir hann um skipulagsmál-
in.
Stiórnin.
Aðalfundur kjördæma-
ráðs Sjálfstæðisflokksins
i Vesturlandskjördæmi veröur haldinn 14. nóvember nk. aö Hólel
Borgarnesi. kl. 15.00.
Dagskrá: 1. Venjuleg aöalfundarstörf.
2. Tillaga um prófkjör.
3. Gunnar G. Schram rasðir um kjördæmamálin.
4. Önnur mál.
Seltjarnarnes
! Aöalfundur Sjálfstæöisfélags Seltirninga veröur haldinn j félagsheim-
| ilinu mánudaginn 15. nóvember kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri ræöir
bæjarmálin og svarar fyrirspurnum.
3. Önnur mál.
Stjórnin.
Kópavogur Kópavogur
Spilakvöld
Sjálfstæóisfélag Kópavogs auglýsir: Okkar vinsælu spilakvöld halda
áfram þriójudaginn 16. nóvember kl. 21.00 i Sjálfstæóishúsinu
Hamraborg 1. Allir velkomnir. Kaffiveitingar.
Stjórn S/álfstæóisfelaqs Kopavoqs
Hveragerði — Hveragerði
Sjálfstæóisfélagió Ingólfur heldur félagsund þriójudaginn 16. nóv. kl.
8.30 i felagsheimili Ölfusinga.
Dagskrá:
1. Fulltrúar félagsins i kjördæmaráói segja frá för sinni til Vest-
mannaeyja.
2. Hreppsnefndarfulltrúar felagsins sitja fyrir svörum.
3. Önnur mál.
Félgar eru hvattir til aö fjölmenna.
Stjómin.