Morgunblaðið - 13.11.1982, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1982
SJÖ AF HVERJUM TÍU FALLA
Á ÞESSU BÍLBELTAPRÓFI
umferðinni
Frá Umferðarráði
Keyndu að svara þessum spurningum með
því ad setja kross í viðeigandi reiti. Á meðan
er rétt að leggja blað yfir svörin. Þetta
krossapróf gæti orðið til þess að þú öðlaðist
nýjan skilning á bílbeltanotkun — jafnvel
bjargað lífi þínu og þinna á örlagastundu.
Rétt/Rangl
1. Það er engin þðrf á að nota bílbelti
í innanbæjarakstri. □ □
2. I alvarlegu bílslysi er betra að kastast
út úr bílnum en vera kyrr í honum. □ □
3. Ef hætta er á að kvikni í bíl eða hann
sökkvi í vatn er betra að vera ekki
með bílbelti. □ □
4. Engin þörf er fyrir farþega í aftursæti
að nota bílbelti. □ □
5. Það er engin trygging fyrir því að
bílbelti bjargi lífi manns. □ □
6. Bílbeltið sjálft getur valdið meiri
meiðslum en áreksturinn sem viðkomandi
lendir í. □ □
7. Neðra band bílbeltis ætti að liggja neðar-
lega yfir mjaðmir en ekki kviðinn. Axlarr
bandið ætti að liggja svo þétt að öxlinni
að aðeins sé hægt að koma krepptum hnefa milli
þess og axlarinnar. □ □
Sýning er að hefjast
og ég kem spenijtur
1 leikhúsi yUMFERÐAR
SVÖR:
1. RANGT. Jafnvel á aðeins 50 kílómetra hraða gæti maður kast-
ast á framrúðuna, og slasast mikið eða látið lífið ef beltið er
ekki spennt. Skyndileg stöðvun bifreiðar getur lika verið hætt-
uleg. Banaslys hafa orðið á aðeins 25 kílómetra hraða.
2. RANGT. Talið er að 8 af hverjum 10 sem kastast hafa út úr bíl
og farist hefðu komist af í bílbelti.
3. RANGT. Sértu með bílbelti er minni hætta á að þú slasist eða
missir meðvitund, og þá aukast líkur á því að þú komist
hjálparlaust út úr bílnum.
4. RANGT. Best er að allir farþegar í aftursæti séu með bílbelti.
Hætt er við að börn geti kastast á ökumann og farþega í
framsæti eða á framrúðu og mælaborð. Hætta er á að ftllorðn-
ir meiðist í andliti og höfði við að rekast á bakið á framsætinu
eða öskubakka og hurðarhúna.
5. RÉTT. En staðtölur hafa sannað gildi þeirra. Talið er að lík-
urnar á skyndilegum dauða og meiri háttar meiðslum séu
a.m.k. tvöfalt meiri og líkurnar á minni háttar meiðslum a.m.k.
helmingi meiri ef bílbelti eru ekki notuð.
6. RANGT. Séu bílbeltin í góðu lagi koma þau að tilætluðum
notum í 99 tilvikum af 100.
7. RANGT. Tvöföld. bílbelti af þessu tagi veita besta vörn sé þeim
komið þannig fyrir. Um þessi atriði þarf yfirleitt ekki að hugsa
ef rúllubelti eru í bílnum.
Eins og þið sjáið er ekkert vit í öðru en að spenna beltin.
Bridge
Arnór Ragnarsson
Suðurlandsmót
í tvímenningi
Helgina 20.—22. nóvember nk.
verður haldið Suðurlandsmót í
tvímenningi í Menntaskólanum
að Laugarvatni. Spilaður verður
Barometer-tvímenningur. Seld-
ur verður matur í mötuneyti
skólans meðan á mótinu stendur.
Svefnpokapláss verður einnig til
reiðu. Á laugardeginum kl. 10.00
f.h. verður jafnframt haldinn
stofnfundur Bridgesambands
Suðurlands.
(Fréll frá Bridgefélagi Mennlaskólan.s
á l>augarvatni.)
Bridgedeild
Skagfirðinga
Lokið er keppni í „Barometer"
með glæsilegum sigri Guðmund-
ar Þórðarsonar og Leifs Jóhann-
essonar. Hlutu þeir félagar 240
stig eftir að hafa leitt keppnina
öll kvöldin.
Bjarni Pétursson —
Ragnar Björnsson 168
Erlendur Björgvinsson—
Sveinn Sveinsson 154
Óli Andreasson —
Sigrún Pétursdóttir 146
Gísli Tryggvason —
Guðlaugur Nilsen 106
Baldur Ásgeirsson —
Magnús Halldórsson 101
Stígur Herlufsen —
Vilhjálmur Einarsson 86
Hæstu skor síðasta kvöldið
fengu:
Óli Andreason —
Sigrún Pétursdóttir
Guðmundur Þórðarson —
Leifur Jóhannesson
Erlendur Björgvinsson —
Sveinn Sveinsson
Þriðjudaginn 16. nóv. byrjar
hraðsveitarkeppni 8—10 spila-
leikir. Keppnisstjóri er Kristján
Blöndal og tekur hann á móti
skráningu í síma 40605. Spilað er
í Drangey, Síðumúla 35.
Bridgedeild
Barðstrendinga-
félagsins
Mánudaginn 8. nóvember lauk
aðaltvímenningskeppni félagsins
(5 kvöld, 20 pör). Sigurvegarar
urðu Ragnar Björnsson og Þór-
arinn Árnason. Staða 8 efstu
para endaði þannig:
Ragnar — Þórarinn 637
Ragnar — Helgi 608
Þorsteinn — Sveinbjörn 601
Sigurður — Halldór 594
Ólafur — Agnar 577
Hannes —-Jónína 572
Óli V. — Þórir 570
Viðar G. — Pétur 553
Mánudaginn 15. nóvember nk.
hefst 5 kvölda Hraðsveitar-
keppni. Þátttaka tilkynnist til
Helga Einarssonar, sími: 71980
fyrir laugardagskvöld 13. nóvem-
ber.
Bridgesamband
íslands
Nýkjörin stjórn Bridgesam-
bands íslands hefur nú skipt
með sér verkum. Forseti er
Kristófer Magnússon, varafor-
seti Jakob R. Möller, ritari Ester
Jakobsdóttir og gjaldkeri Guð-
brandur Sigurbergsson. Með-
stjórnendur eru Aðalsteinn
Jörgensen, Guðjón Guðmunds-
son og Jón Baldursson.
Um næstu áramót verður gef-
in út ný meistarastigaskrá., Þá
verða þau gullstig sem spilarar
hafa unnið sér inn fyrir mót ,á
vegum Bridgesambandsins síð-
astliðinn vetur skráð sjálfkrafa.
Bridgesambandið vill vekja at-
hygli á að það getur ekki skráð
stig fyrir Bikarkeppnina nema
sveitarforingjar þeirra sveita
sem unnu leiki tilkynni hvaða
spilarar spiluðu leikina og hvað
stóran hiuta leiksins þeir spil-
uðu. Bridgesambandið vill því
minna sveitarforingja á að skila
leikjaskýrslu til sambandsins og
einnig skora á þær sveitir sem
hafa ekki enn greitt keppnis-
gjald fyrir Bikarkeppnina að
gera það sem fyrst.
Aðrir spilarar ættu að fara að
huga að meistarastigum sínum
og senda þau til sambandsins
fyrir áramót svo meistarastiga-
skráin verði sem réttust. Skrif-
stofa sambandsins verður fram-
vegis opin mánudaga og fimmtu-
daga klukkan 16—19.
Bridgefélag V-Hún.
Hvammstanga
Nýlokið er 3ja kvölda firma-
keppni með þátttöku 44 firma,
sem jafnframt var einmenn-
ingskeppni félagsins. Úrslit
firmakeppni:
Firma — Spilari Stig
Sparisjóður V-Hún. —
Jóhannes Guðmannss. 123
Búnaðarsamb. V-Hún. —
Aðalbjörn Benediktss. 109
Félagsheimilið —
Björn Friðriksson 107
Sameinaðir verktakar —
Bragi Arason 104
Ungmennasamband V-Hún. —
Flemming Jessen 103
Hvammstangahreppur —
Einar Jónsson 103
Lyfjasalan —
Kristján Björnsson 102
Þjóðviljinn —
Karl Sigurðsson 102
Úrslit einmenningskeppni:
Stig
Kristján Björnsson 298
Jóhannes Guðmundsson 295
Aðalbjörn Benediktsson 281
Eggert Karlsson 279
Einar Jónsson 273
Örn Guðjónsson 271
Flemming Jessen 270
Meðalskor 270
Félagið þakkar firmum fyrir
þátttökuna. Næstu kvöld verður
spilaður aðaltvímenningur fé-
lagsins.
Bridgeklúbbur
Akraness
Nú er lokið fimm kvölda
hausttvímenningi klúbbsins.
Alls spiluðu 20 pör og var spilað-
ur barómeter. Eftirtalin pör
náðu yfir 100 stiga skor:
Stig
Eiríkur Jónsson &
Alfreð Viktorss. 3 k. —
Jón Alfreðsson 2 k. 226
Þórir Leifsson —
Oliver Kristóferss. 165
Hörður Jóhannesson —
Kjartan Guðmundsson 150
Guðjón Guðmundsson —
Ólafur Gr. Ólafsson 148
Guðni Jónsson —
Vigfús Sigurðsson 113
Björn Viktorsson —
Þorgeir Jósefsson 107
Næsta keppni klúbbsins verð-
ur hraðsveitakeppni. Spilaðir
verða 16 spila leikir, tveir á
hverju kvöldi. Spilastaður verð-
ur samkvæmt venju Röst og
hefst keppnin kl. 20 í kvöld,
fimmtudag 11. nóv. Spilarar eru
beðnir að mæta tímanlega.
Bridgespilurum er bent á það
að nú er Opna Hótel Akranes-
mótið orðið fullsetið og kominn
biðlisti.
Bridgefélag kvenna
Eftir 20 umferðir er staða
efstu para í barómeterkeppninni
þessi:
Stig
Halla'Bergþórsdóttir —
Kristjana Steingrímsd. 492
Nanna Ágústsdóttir —
Ragnheiður Einarsd. 339
Sigríður Pálsdóttir —
Ingibjörg Halldórsd. 336
Sigrún Pétursdóttir —
Árnína Guðlaugsdóttir 280
Ásgerður Einarsdóttir —
Rósa Þorsteinsdóttir 215
Júlíana ísebarn —
Margrét Margeirsdóttir 205