Morgunblaðið - 13.11.1982, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1982
31
Vestfirðir:
Flugfélagið Ernir
hættir áætlunarflugi
ísafirði, 10. nóvember.
FLUGFÉLAGIÐ ERNIR á ísafirði, sem hefur haidið uppi reglubundnu
áætlunarflugi með póst og farþega til Suðureyrar, Flateyrar, Þingeyrar,
Bíldudals og Patreksfjarðar um 12 ára skeið, hætti fluginu í dag. I'essar
flugferðir hafa verið einu reglubundnu samgöngurnar milli staða á Vest-
fjörðum, að undanskildum ferðum strandferðaskipa og bila á vegum
Flugleiða á áætlunarflugvelli félagsins.
Astæðan til þess að fluginu er
hætt er sú að ekki hefur fengist
endurskoðun á 12 ára gömlum
samningi félagsins við póstmála-
yfirvöld þrátt fyrir mjög breyttar
forsendur, en póstflutningarnir
eru burðarásinn í fluginu.
I upphaflega samningnum var
gert ráð fyrir einshreyfils fjög-
urra sæta flugvél til flugsins. Sú
vél varð þó fljótlega of lítil og var
aukningunni mætt með stærri vél-
um, og hefur nú siðustu árin verið
notast við 10 sæta Islander-vél.
Það reyndist félaginu ofviða að
gera út svo stóra vél, þrátt fyrir
mikla póstflutninga, vegna þess að
gjaldið miðaðist við gömlu fjög-
urra sæta vélina, og var vélin send
úr landi í haust og er til sölu í
Bandaríkjunum. •
í byrjun júní í ár óskaði flugfé-
lagið eftir endurskoðun á samn-
ingum á grundvelli breyttra for-
sendna, og jafnframt var samn-
ingnum sagt upp með þriggja
mánaða fyrirvara. Póstyfirvöld í
Reykjavík hafa haft samband við
ráðuneyti samgöngumála vegna
málsins, en ekki fengið heimild til
hækkunar, að sögn Harðar Guð-
mundssonar framkvæmdastjóra
flugfélagsins Ernir. Sagði hann að
þeir hjá flugfélaginu hefðu vonast
til þess í lengstu lög að samgöngu-
ráðherra, sem jafnframt er þing-
maður kjördæmisins, og hans
menn sýndu skilning á nauðsyn
þess að halda gangandi þessum
einu reglubundnu samgöngum
innan Vestfjarða. Þar sem engin
formleg svör hafa borist ákvað
stjórn félagsins á fundi í gær,
þriðjudag, að hætta fluginu frá og
með miðvikudeginum 10. nóvem-
ber.
Enginn vafi er á því að stöðvun
flugsins mun hafa verulega rösk-
un og óþægindi í för með sér fyrir
Vestfirðinga því að á síðustu árum
hafa ýmsir þættir sameiginlegrar
stjórnsýslu Vestfirðinga færst til
ísafjarðar. Má þar nefna Orkubú
Vestfjarða, Fræðsluskrifstofu
Vestfjarða, Fjórðungssamband
Vestfjarða o.fl. Útgerð og fisk- •
vinnsla í fjórðungnum eiga mikil
viðskipti við ríkisbankaútibúin á
ísafirði, og áfengis- og tóbáksúts-
ala ríkisins þjóna öllu svæðinu svo
eitthvað sé nefnt.
Nú verður allur póstur, svo og
farþegar, sem þurfa að komast
milli staða á Vestfjörðum, að fara
um Reykjavík. Flugfélagið Ernir
heldur þó áfram neyðar- og leig- »
uflugi sem hingað til, en segja má
að flugfélagið sé mikilvægur þátt-
ur í heilbrigðiskerfinu hér vestra,
en það flutti á síðasta ári 133
sjúklinga í 120 flugferðum, oft við
mjög erfið skilyrði. Missir póstfl-
ugsins veikir mjög allan rekstr-
argrundvöll flugfélagsins og
vegna óvissunnar sem hér ríkir,
hefur flestum starfsmönnum fé-
lagsins verið sagt upp störfum.
Úlfar.
Flórída
FariÖ á eigin vegum til St. Pete.
Heimilislegt og tandurhreint mótel, vel staðsett. Þið er-
uð sótt og keyrð á flugvöll í Tampa.
Lítil íbúð $125 á viku eða $25 á dag. Stór íbúð $145 á
viku eða $30 á dag.
Verðið er fyrir tvo í íbúð og sjónvarp í öllum íbúðum,
hringið beint. Uppl. í Rvík 78650.
Sun Dial Motel,
Sími 813-360-0120.
SUNNY-HATIÐ
áá
í Sýningarsalnum
við Rauðagerði
laugardag og sunnudag kl. 2—5.
„ ^mí^- - 'tf -%V ; -> .
' . ____
;
■SEu*
SYNUM TOPPINN 1983
DATSUN SUNNY STATION, sjálfskiptur,
DATSUN SUNNY SEDAN, sjálfskiptur,
veröa frumsýndir þessa helgi, gerbreyttir og stórglæsilegir, meö
allskonar aukabúnaöi. Ennfremur DATSUN CHERRY 1500 sjálf-
skiptan ásamt SUBARU STATION 1800 4WD, meö háu og lágu drifi.
Bílar sem fáir geta keppt viö í ríkulegum búnaöi og verði.
TISKUSYNING SUNNUDAG KL. 3
Sýningasamtökin „Model 79“
sína lúxusfatnaö frá
PELSINUM
Kirkjuhvoli
Og auövitaö veröur heitt á könnunni
Veriö velkomin
INGVAR HELGASON Simi 33560
SÝNINGARSALURINN /RAUÐAGERÐI
bækur á tveimur árum
Nýjasta bókin: Frjáls hugsun — frelsi þjóðar
Hvöt í nútíð
og framtíð
Mannauður —
mannvirkjun
Hvöt í samvinnu viö
Landssamband sjálfstæðiskvenna
Bóksalar, bókamenn, bókin er til afgreíðslu í
Valhöll — sendum ef óskað er.
GREINAR
RITA:
Fyrstu ár
Hvatar
Ólöl Benediktsdóttir
kennari
Menntun
markmið - leiöir
Sigríöur Arinbjarnar-
dóttir kennari
Skóli Blítur
barnsskónum í
Breiöholti
Áslaug Friörikadóttir
akólaatjóri
Beasý Jóhannadóttir cand. mag.
Bók sem vekur
athygli
Einstaklingurinn
og skólakerfið
Katrín Fjeldated
lækmr
Árdia Þóróardóttir
rekstrarhagfræóingur
Leikmanns-
þankar um
kjarasamninga
Dögg Pálsdóttir
lögfræðingur