Morgunblaðið - 13.11.1982, Side 36

Morgunblaðið - 13.11.1982, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1982 + Eiginmaður minn og faöir okkar, EIRÍKUR JÓEL SIGURÐSSON, Aðalgötu 12, Ketlavík, lést að heimili sínu miövikudaginn 10. nóvember 1982. Stefanía Guömundadóttir og börn. t Maðurinn minn, faðir okkar og tengdafaöir, JÓNAS THORODDSEN, fyrrvarandi borgarfógeti, lézt í Landakotsspítalanum hinn 11 þ.m. Björg M. Thoroddsen, Magnús Thoroddsen, Sólveig Kr. Thoroddsen, María Thoroddsen, Örn Ingólfsson, Soffía Thoroddsen, Siguróur Kristinsson. + Elskuleg móðir okkar, ÁSA FRÍMANNSDÓTTIR, Héaleitisbraut 103, lést 11. þessa mánaðar. Valgeróur Stefánsdóttir, Haraldur Baldvinsson. + Systir okkar, JÓNFRÍDUR GUDJÓNSDÓTTIR, fyrrum húsfreyja á Hóli, Svínadal, andaðist i sjúkrahúsi Akraness miövikudaginn 10. nóvember. María Guójónsdóttir, Þóra Guójónsdóttir. + Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi, SIGURBERGUR HJALTASON, Kaplaskjólsvegi 31, verður jarösunginn frá Neskirkju mánudaginn 15. nóvember kl. 15.00. Ingveldur Guómundsdóttir, Valur Sigurbergsson, Hólmfríður Guöjónsdóttir, Örn Sigurbergsson, Kristín Jónsdóttir og barnabörn. + Útför fööur okkar, GUNNLAUGS JÓNSSONAR frá Króki, fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 15. nóvember kl. 3 e.h. Þeir, sem vilja minnast hans eru vinsamlega beönir aö láta Krabba- meinsfélagið njóta þess. Stefanía Bylgja Lima, Ólafur Gunnlaugsson. + Þökkum af alhug samúö og vinarhug viö andlát og jaröarför eigin- manns míns, fööur og bróöur, HARÐAR ÁSGEIRSSONAR, Kleppsvegi 28. Andviröi sendingar þakkarkorta hefur veriö afhent Styrktarfólagí vangefinna. Guðmunda Guðmundsdóttir, Áshildur Haröardóttir, Gunnar Ásgeirsson, Sigríður Ásgeirsdóttir, Eiríkur Ásgeirsson, Ebeneser Asgeirsson, Erla Ásgeirsdóttir, Snæbjörn Ásgeirsson. + Alúöar þakkir til allra fjær og nær er glöddu og uppörvuöu hjart- kæra fóstursystur mína og frænku, HRAFNKÖTLU EINARSDÓTTUR, bankafulltrúa, Tómasarhaga 24, i hennar löngu sjúkdómslegu. Þá eru þakkir færöar fyrir samúö og hluttekningu viö andlát hennar og útför, ber þar aö nefna sam- starfsfólk á löngum ferli í Landsbanka islands, fyrir staka vinsemd lækna og hjúkrunarliös á deiid 3A, Landspítala islands, sem báru hitann og þungann, Sigurö Björnsson yfirlækni er fyrir utan lækn- ishjálp veitti henni andlegan styrk. Ég biö algóöan Guö aö breiöa blessun sina yfir líf ykkar og störf. Fyrir hönd annarra aðstandenda, . Matthildur Jónsdóttir. Minning: Ólöf Þorleifsdótt- ir — Grundarfirði Fædd 5. febrúar 1903 Dáin 3. nóvember 1982 Þegar fregnin um andlát Ólafar ömmu okkar barst bkkur til eyrna var það sannarlega óvænt. Ekki var það vegna aldursins, því að óðum styttist í 80 ára afmælið, heldur vegna þess að hún var gædd þeim lífskrafti, að erfitt var að ímynda sér hana öðruvísi en í fullu fjöri. Hvar sem komið var saman og amma var í hópnum var glaumur og gleði, kryddað fróðleik fyrri tíma. Af frásögnum hennar frá löngu liðnum tímum mátti mikið læra og víst er um það að sá fróðleikur, sem hinir eldri geta látið okkur í té, verður seint fullþakkaður. Hitt var ekki síðra að af lífsviðhorfi hennar mátti margur maðurinn læra. Hún leit björtum augum til framtíðarinnar, óhrædd að takast á við hvað sem upp kynni að koma. Um orðna hluti var hún ekki að fást heldur leit ávallt fram á við. Oft er talað um að þegar fólk eldist verði það þröngsýnna. Þetta er ef til vill rétt, en engin regla er án undantekninga, og amma var víðsýnni en margur þótt hálfri öld yngri væri. Það má því með sanni segja að kynslóðabil væri orð sem aldrei kom á varir neins þegar um hana var rætt. Við systkinin minnumst þeirra mörgu samverustunda sem við áttum með ömmu í Nesinu, eins og Grundarfjörður var kallaður í þá daga. Eins lengi og við munum eftir okkur, eða rúm 20 ár, höfum við komið til hennar á hverjum jólum og notið gestrisni hennar og góðvildar. Þetta er orðin þvílík venja að það er erfitt að ímynda sér að nú sé henni lokið fyrir fullt og allt. Hjá Ólöfu ömmu okkar voru allir aufúsugestir enda komu margir til hennar og bar þá margt skemmtilegt á góma. Þegar við byrjuðum að vinna voru fyrstu skrefin okkar allra stigin hjá henni. Þar voru okkur mörg heil- ræði gefin, sem seint munu gleym- ast. Þegar Iangömmubörnin komu áttu þau vísan samastað hjá lang- ömmu. Fáum klukkustundum áður en hún kvaddi þennan heim lauk hún við síðasta verk sitt, að prjóna sokka á 2ja ára barnabarnabarn sitt. Þannig var með allt sem hún tók sér fyrir hendur: það varð henni til sóma og öðrum til bless- unar. Ömmu okkar sendum við öll ást- arkveðjur og innilegar þakkir fyrir samfylgdina. Drottinn blessi minningu hennar. Systkinin Hömrum Er móðir mín hringdi í mig ný- lega og tilkynnti mér lát ömmu minnar deginum áður, fylltist hugurinn alls konar hugsunum og minningum. Fyrst e.t.v. gleði og léttir að heyra, hvernig hún fékk að fara glöð og sátt við sitt eins og ævinlega, heilbrigð fram á síðasta dag, að hún var ekki ein, er kallið kom heldur var Veiga systir henn- ar, er henni þótti svo vænt um, hjá henni, hún fékk að sofna í örmum hennar. Þannig kvaddi amma þennan heim. Síðan komu í hug- ann ótal bjartar minningar frá liðnum dögum, frá árlegum sumarheimsóknum mínum til ömmu í Grundarfirði, allt frá bernsku fram á fullorðins ár og að lokum sorgin yfir því að nú væri hún farin fyrir fullt og allt, að ég ætti aldrei framar eftir að sjá hana. Eins var sárt til þess að hugsa að geta ekki verið viðstödd jarðarförina hennar, vegna búsetu erlendis. Eg vona að bréfin mín til henn- ar hafi glatt hana, mig langaði að gleðja hana meðan hún lifði og kveðja hana á þann hátt. Er ég hugsa til baka og velti því fyrir mér: Hver var amma, hvern- ig var amma? — er mér efst í huga hversu glöð og kát hún ævinlega var. Henni var gefið það að geta glaðst yfir litlu, hún var alltaf svo ánægð með sig og sltt, laus við alla öfund eða ágirnd; hún var fullkomlega ánægð með sitt. Hún var einnig óvenju lífsglöð. Ósjaldan gaf hún öðrum af gleði sinni, hún gat hlegið svo innilega og smitandi og hvað mest af eigin skyssum. Því held ég að fólk hafi oftast farið hressara og ögn ríkara af hennar fundi en það kom. Vegna þessara eiginleika sinna hændi hún fólk að sér, jafnt sitt eigið sem óskylda, yngri sem eldri. Því var hún áreiðanlega aldrei einmana eða þurfti að láta sér leiðast, enda er mér til efs, að hún hafi kunnað slíkt. Ég þori að full- yrða, að amma var hamingjusöm kona allt fram á síðasta dag, það er mér mikil huggun. Einhverju sinni las ég að nafnið Ólöf þýddi „sú, sem erfir forfeður sína“. Sennilega er nafnið manns dýrmætasta eignin sem maður á, og áreiðanlega sú persónulegasta. Ég var elsta barnabarn ömmu og hið eina, sem bar nafn hennar. Ég er stolt af því að bera nafnið hennar og vona að ég megi erfa og ávaxta hið jákvæðasta úr fari hennar: gleðina og hina innri ánægju. Með hvorutveggja í vega- nesti get ég óhrædd mætt framtíð- inni, amma var mér sannfærandi fyrirmynd í þeim efnum. Með þakklæti í huga kveð ég hana. Fari hún í friði. Ó.G.H. Ragna Olafsdóttir — Minningarorð Fædd 6. marz 1964 Dáin 31. okt. 1982 Mig setti hljóða mánudaginn 1. nóvember sl. er hringt var í mig. Ragna var dáin. Alltaf setur mann hljóðan, þegar fréttir af hörmu- legum slysum berast manni til eyrna, en það hverfur síðan frá manni aftur. En erfitt er það, þeg- ar um er að ræða vin, sérstaklega svo góðan vin sem Ragna var. Ég kynntist Rögnu fyrir fjóru og hálfu ári, þegar ég byrjaði að æfa frjálsar íþróttir með Breiða- blik. Vinátta okkar efidist þó enn meir í Danmerkurferð sem við fórum, stór og glaður hópur frá Breiðablik, sumarið 1979. Þar vor- um við mikið saman, Ragna og ég, í starfi og leik og hefur vinskapur okkar verið ósiitinn síðan. Ófáar eru þær næturnar, sem ég gisti á heimili hennar eins og títt er um vinkonur á þessum aldri og var mér alltaf jafn vel tekið af foreldrum hennar. Síðastliðið eitt og hálft ár höf- um við ekki haft eins mikil sam- skipti og áður. Ég hætti að æfa frjálsar íþróttir og Ragna fór að aðlagast meira skólasystkinum sínum í MK, þar sem hún tók mik- inn þátt í íþrótta- og félagsmálum. En alltaf var vinátta okkar jafn sterk og þegar við hittumst var hún alltaf sama glaða og hressa Ragna. Sagt er að Guð taki alltaf bezta fólkið fyrst, Ragna er ein bezta vinkona sem ég hefi eignazt. Hún var afar heilsteypt og hreinskilin og sagði hispurslaust sannleikann og skóf oft ekkert af því. Ragna skilur eftir stórt skarð, ekki bara í vinahópi heldur líka í þjóðfélaginu, sem aldrei verður fyllt. Við fáum aldrei aftur að sjá bjarta og fallega brosið hennar né heyra dillandi hláturinn. Og svo ótal margt var enn ósagt og ógert. Bið ég algóðan Guð að geyma Rögnu okkar og styrkja foreldra hennar, þau Gússý og Öla. Einnig Siggu litlu, Ástu og Steina, ömmu hennar og afa í þeirra miklu sorg. Megi minning hennar lifa. Með mínum dýpstu samúðar- kveðjum. Systa „Nágrannarnir“ í Stjörnubíói STJÖRNUBÍÓ hefur hafið sýningar á bandarísku kvikmyndinni Nágrann- arnir með John Belushi í aðalhlutverki. Handrit myndarinnar samdi Larry Gelbart eftir samnefndri sögu Thomas Bergers, sem segir frá því, hvernig koma nýrra granna hleypir óvæntu lífi og fjöri inn í tilveru þeirra, sem fyrir eru.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.