Morgunblaðið - 17.11.1982, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 17.11.1982, Blaðsíða 16
64 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1982 Töfraflautan Tónlist Jón Ásgeirsson \ Gagnrýni þessi er rituð vegna breytinga á hlutverkaskipan og að nýr hljómsveitarstjóri hefur tekið við stjórn sýninganna. Það er þó ekki úr vegi að geta þess að undirritaður var mjög ángæður með sýninguna í heild og vill hvetja alla til að sjá þessa skemmtilegu óperu, og hlýða á óviðjafnanlega fallega tónlist Mozarts. Það er í hlutverki Papageno sem hlutverkaskiptin eru og syngur nú þetta skemmti- lega hlutverk Eiríkur Hreinn Helgason. Hann er eins og sá er fyrst fór með hlutverkið, Stein- þór Þráinsson, nemandi í Kirikur Hreinn Mark Tardue Helgason Söngskólanum í Reykajvík og er það órækur vottur um það hlut- verk sem Söngskólinn hefur markað sér og að íslenska óper- an mun í framtíðinni njóta þess er skólinn leggur faglegan grunn að. Þetta samspil óperunnar og skólans á, er tímar líða, eftir að hafa þau áhrif á söngtækni okkar Islendinga að ekki verður talað um bjartsýni, heldur veru- leika, að hér á landi starfi ópera er standi jafnfætis sams konar stofnunum erlendis. Enn sem komið er, eru flestir nemendurn- ir í kórnum en uppistaðan í flutningi óperunnar í höndum eldri og reyndari söngvara. Ein- staka nemendur hafa þó fengið tækifæri og sýnt að þeir eru á réttri leið og nokkrir jafnvel vakið sérstaka athygli. Eiríkur Hreinn Helgason syngur nú sitt fyrsta hlutverk og stendur sig frábærlega vel. Bæði leikur hans Mozart við hljóðfærið. Ófullgert olíumálverk, talið málað veturinn 1782—1783 af Joseph Lange. og söngur er góður og víst má telja að með auknu námi gætu Islendingar eignast góðan söngmann í Eiríki. Mark Tardue, er hafði á hendi stjórnæfingar, hefur nú tekið við hljómsveitar- stjórninni, sem er í raun og veru stjórn allrar sýningarinnar. Ekki verður annað merkt en að honum takist að hafa stjórn á öllu, svo sem vera ber, bæði hvað varðar samstillingu hljóm- sveitar og söngvara. Eitt atriði mætti hugleiða og það er þegar Tamino verður að skilja við Paminu og þau syngja stuttan kveðjusöng ásamt Sarastro. Þann söng hefði mátt syngja hægar, svona til að falleg stefin fengju betur notið sín. Það var sem sagt of mikill asi á þessu ofurfagra og viðkvæma atriði. Sýningin í heild er skemmtileg og lifandi og söngur og hljóðfæraleikur áferðarfallegur og á köflum glæsilegur, enda voru viðtökur áheyrenda sam- kvæmt því. Jón Ásgeirsson. Ljóða- tónleikar lagrid Stjernlof Erik Werba Ingrid Stjernlöf og Erik Werba komu fram á vegum Tónlistarfélagsins og fluttu ljóðatónlist eftir Stenhammar, Nystroem, Rangström, Debussy, Brahms, Liszt, Mahler og Dvor- ák. Sænsku tónskáldin á efn- isskránni eru frekar lítið þekkt hér á landi og væri fengur að því ef einhver sænskur söngvari léti verða af því að kynna tónlist þessara tónskálda. Ingrid Stjernlöf söng lög landa sinna fallega en um var að ræða lög er lítið reynir á, þótt laglega séu þau samin. Þrír söngvar (Chans- ons de Bilitis), eftir Debussy er hann samdi 1897, marka niður- lag á tímabili tilfinningasemi, er hann kom sér út úr með því að snúa baki við ljóðum samtíma- manna sinna og semja tónlist við ljóð eldri skálda. Innihald kveðskaparins er óraunveruleg náttúrudýrkun, full af tilbúnum táknum, eins konar falleg skrök- saga, formynd fáránleikans, sem nokkrum árum seinna drottnaði yfir allri listsköpun Evrópu. Næst var svo vikið yfir í róman- tíkina, þar sem ort er um eilífa ást, brennandi tár á kinn og silf- urtungl. Af lögunum eftir Brahms var Nótt í maí einstaklega fallega sungið. Það er eins og Franz Liszt sé að uppskera endurreisn, en hann sjálfur var viss um að honum hefði mistekist, taldi sig misheppnaðan listamann, hversu svo sem það kann að hljóma í eyrum nútímamanna. Fallegasta tónlistin á þessum tónleikum var eftir Mahler. Fjórir söngvar við ljóð eftir Friedrich Ruckert, er upphafin og falleg tónlist og var mjög vel flutt af listamönnunum. Sí- gaunasöngvarnir eftir Dvorák, voru vel fluttir en ekki með þeirri ástríðu, sem vel má gefa þessari tónlist. Ingrid Stjernlöf er vel menntuð og góð söngkona en nær þó aldrei að spenna bog- ann til fulls. Samíeiksmaður hennar, Erik Werba er mikill listamaður og var samleikur þeirra mjög góður, án þess þó að nokkurstaðar glampaði á.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.