Morgunblaðið - 17.11.1982, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1982
79
Þeir Villingur og Aðalsteinn gerðu góða hluti i sumar. Sigruðu í flestöllum
kappreiðum sem þeir toku þátt í og þegar upp var staðið voru þeir aðeins
sekúndubroti frá metinu. Hvað gera þieir næsta sumar.
Bestum tíma i 150 metra skeiði náði Torfi frá Hjarðarhaga, knapi er Sigur-
björn Bárðarson.
um í 800 metrunum. Var árangur
nær undantekningalaust lélegur.
Eina undantekningin frá þessu
var á Landsmótinu á Vindheima-
melum enda eru sjö af tíu bestu
tímum sumarsins þaðan. Jafnir á
besta tíma voru þeir Cesar og Leó.
Það er skoðun undirritaðs að Ces-
ar sé einn besti átta hundruð
metra hlaupari hin seinni ár, þótt
ekki hafi hann náð því að setja
íslandsmet. En hins ber að gæta
að hann hefur fengið færri tæki-
færi en keppinautar hans. Bestum
tíma á hringvelli náði örvar frá
Hjaltastöðum.
Brokk
Athyglisverð tilraun var gerð í
sumar í þeim tilgangi að hefja
brokkið til vegs og virðingar eins
og svo oft hefur verið talað um að
þyrfti að gera. Var boðið upp á
nýja vegalengd, 300 metra, í stað
800 og 1500 metra en sú vegalengd
er að segja má dottin út. Ekki er
merkjanlegt að virðing gangteg-
undarinnar hafi aukist til muna
við þessa breytingu en það skal þó
fullyrt að ekki er hún minni. Stað-
reyndin er sú að okkur vantar
fleiri fljóta brokkara til þess að
spenna geti myndast og sjálfsagt
er ekki mikið úrval af slíkum grip-
um í hrossastofni okkar. Hugsan-
lega yrði það árangursríkt ef leit-
að yrði að kunnáttu í þjálfun og
uppbyggingu kappreiðabrokkara,
út fyrir landsteinana. Við eigum
nokkra fljóta brokkara en því hef-
ur oft hagað þannig til að þeir
hafa verið dreifðir um landið og
því sjaldan leiddir saman til
keppni. Alltaf eru raddir á lofti
um að leggja brokkið niður en þá
má benda á að meðan við höfum
það á dagskrá kappreiða ásamt
skeiði og stökki, undirstrikar það
vel fjölhæfni íslenska hestsins og
ekki hvað síst þegar góðir skeið-
hestar ná góðum tíma í brokki.
Eins og áður kemur fram var
deyfð yfir kappreiðum sumarsins
og voru nefndar tvær hugsanlegar
ástæður en sú þriðja gæti líka ver-
ið sú að þetta dagskrárfyrir-
komulag sem notað er á öllum
hestamótum sé orðið úrelt og
breytinga sé þörf. Væri ekki þjóð-
ráð að hugmyndaríkir menn færu
nú að leggja höfuðið í bleyti, finna
upp nýjar keppnisgreinar eða leiki
sem jafnvel áhorfendur gætu tekið
þátt í. Eitthvað í léttum dúr því
fólk er orðið þreytt á þessari al-
varlegu keppni eingöngu. Fækkun
hrossa í keppni gæti í sumum til-
vikum orðið til bóta svo hægt sé að
stytta dagskrá og hafa um leið
hraðari atburðarás, vel skipulagða
dagskrá og hnitmiðaða.
Athygli vakti á mörgum kapp-
reiðum sumarsins hversu strangt
var tekið á miklum hvatningum og
öðru er þótti miður í framkomu
keppenda og íhaldara. Fengu
knapar óspart áminningar og
sumir hverjir voru áminntir á
flestum kappreiðum sem þeir tóku
þátt í. Þessar áminningar eru
heldur gagnslitlar meðan ekki er
skráð á einn stað þær áminningar
sem hver knapi fær. Væri víst þörf
á því og þá hafa þetta líkt og í
fótboltanum, þannig að eftir
ákveðinn fjölda áminninga færi
viðkomandi í keppnisbann. Með
einhverjum slíkum reglum eða
lögum væri knöpum veitt meira
aðhald og finnst sumum ekki van-
þörf á.
Eftirtaldir hestar hafa náð
bestum árangri í sumar sem hér
segir:
Gildandi íslandsmet 20.10.
1982
150 metra skeið með aldursmörkum:
Börkur frá Kvíabekk. Metið sett á
Mánagrund 15.6.’80 14,2 sek.
150 metra skeið án aldursmarka:
Skjóni frá Móeiðarhvoli. Metið sett á
Vindheimamelum 1.8.’81 13,9 sek.
250 metra skeið:
Skjóni frá Móeiðarhvoli. Metið sett á
Vindheimamelum 5.8.’79 21,6 sek.
250 metra unghrossahlaup:
Don frá Hofsstöðum. Metið sett á
Vindheimamelum 5.8.’79 17,6 sek.
300 metra stökk:
Hylling frá Nýja-Bæ. Metið sett á
Mánagrund 8.8.’82 20,6 sek.
350 metra stökk:
Glóa frá Egilsstöðum. Metið sett á
Vindheimamelum 5.8.’79 23,9 sek.
400 metra stökk:
örvar frá Hjaltastöðum. Metið sett
á Mánagrund 9.8.’81 27,4 sek.
800 metra stökk:
Gnýfari frá Vestra-Fíflholti. Metið
sett á Mánagrund 9.8.’81 55,8 sek.
800 metra brokk:
Léttir frá Stórulág. Metið sett á
Fornustekkum 23.8.’78 1.23,3 mín.
250 metra skeið:
1. Villingur frá Möðruvöllum
skeiðaði á Faxaborg 1.8. á 21,7
sek.
2. Börkur frá Kvíabekk skeiðaði á
Vindheimamelum 11.7. á 22,6
sek.
3. Funi frá Seljabrekku skeiðaði á
Víðivöllum 23.5. á 23,0 sek.
4. Jón Haukur frá Tyrfingsstöðum
skeiðaði á Víðivöllum 15.5. á 23,3
sek.
5. Sproti frá Torfastöðum skeiðaði
á Vindheimamelum 11.7. á 23,3
sek.
6. Þór frá Kvíabekk skeiðaði á
Hellu 14.8. á 23,4 sek.
7. Hjörtur úr Borgarfirði skeiðaði
á Faxaborg 1.8. á 23,5 sek.
8. Snarfari frá Húsey skeiðaði á
Vindheimamelum 11.7. á 23,6
sek.
9. Skjóni frá Móeiðarhvoli skeiðaði
á Víðivöllum 23.5. á 23,7 sek.
10. Fjölnir frá Kvíabekk skeiðaði á
Víðivöllum 25.7. á 23,7 sek.
150 metra skeið:
1. Torfi frá Hjarðarhaga skeiðaði á
Vindheimamelum 11.7. á 14,7
sek.
2. Ásaþór frá Kirkjubæ skeiðaði á
Faxaborg 1.8. á 15,1 sek.
3. Freisting frá Austurkoti skeið-
aði á Víðivöllum 23.5. á 15,3 sek.
4. Fjölnir frá Kvíabekk skeiðaði á
Víðivöllum 25.7. á 15,3 sek.
5. Hvöt frá Sigmundarstöðum
skeiðaði á Faxaborg 1.8. á 15,3
sek.
6. Júpíter frá Stafholtsveggjum
skeiðaði á Hellu 14.8. á 15,5 sek.
7. Gormur frá Húsafelli skeiðaði á
Vindheimamelum 11.7. á 15,6
sek.
8. Nói frá Sigmundarstöðum skeið-
aði á Vindheimamelum 11.7. á
15,7 sek.
9. Frigg frá Kirkjubæ skeiðaði á
Víðivöllum 25.7. á 15,7 sek.
10. Baldur frá Sandhólum skeiðaði á
Hellu 14.8. á 15,8 sek.
250 metra unghrossahlaup:
1. Hylling frá Nýja-Bæ hljóp á
Vindheimamelum 11.7. á 17,7
sek.
2. Örn frá Uxahrygg hljóp á Vind-
heimamelum 11.7. á 17,9 sek.
3. Loftur frá Álftagerði hljóp á
Vindheimamelum 11.7. á 17,9
sek.
4. Brynja frá Möðrudal hljóp á
Vindheimamelum 11.7. á 18,1
sek.
5. Léttir frá Hólmi hljóp á
Vindheimamelum 11.7. á 18,3
sek.
6. Þristur frá Uxahrygg hljóp á
Vindheimamelum 11.7. á 18,5
sek.
7. Aron frá Garðshorni hljóp á
Faxaborg 1.8. á 18,6 sek.
8. Trilla frá ?? hljóp á Faxaborg
1.8. á 18,6 sek.
9. Skelfing frá Útgörðum hljóp á
Hellu 14.8. á 18,6 sek.
10. Ör frá Haugi hljóp á Murneyrum
26.6. á 18,8 sek.
300 metra stökk:
1. Hylling frá Nýja-Bæ hljóp á
Mánagrund 8.8. á 20,6 sek. Isl.
met.
2. Spóla frá Máskeldu hljóp á
Mánagrund 8.8. á 20,6 sek.
3. Tvistur frá Götu hljóp á Faxa-
borg 1.8. á 21,3 sek.
4. Gullfaxi frá Ásum hljóp á Faxa-
borg 1.8. á 21,5 sek.
5. Mannsi frá Hörgshóli hljóp á
Arnarhamri 19.6. á 21,6 sek.
350 metra stökk:
1. Spóla frá Máskeldu hljóp á Hellu
14.8. á 24,0 sek.
2. Sindri frá Ármóti hljóp á Vind-
heimamelum 11.7. á 24,2 sek.
3. Örvar frá Hjaltastöðum hljóp á
Vindheimamelum 11.7. á 24,2
sek.
4. Loka frá Útgörðum hljóp á
Vindheimamelum 11.7. á 24,3
sek.
5. Mannsi frá Hörgshóli hljóp á
Vindheimamelum 11.7. á 24,3
sek.
6. Don frá Hofsstöðum hljóp á
Hellu 14.8. á 24,3 sek.
7. Gjálp frá Höskuldsstöðum hljóp
á Hellu á 24,6 sek.
8. Gullfaxi frá Ásum hljóp á
Vindheimamelum 11.7. á 24,9
sek.
9. Tvistur frá Götu hljóp á Hellu
14.8. á 24,9 sek.
10.—11. Óli frá Neðri-Dal hljóp á
Vindheimamelum 11.7. á 25,0 sek.
10.—11. Kóngur frá Miðsitju hljóp á
Hellu 14.8. á 25,0 sek.
400 metra stökk:
1. Spóla frá Máskeldu hljóp á
Mánagrund 8.8. á 27,6 sek.
2. Hylling frá Nýja-Bæ hljóp á
Mánagrund 8.8. á 27,6 sek.
3. Don frá Hofsstöðum hljóp á
Mánagrund 8.8. á 27,8 sek.
4. Örvar frá Hjaltastöðum hljóp á
Mánagrund 8.8. á 27,9 sek.
5. Léttir frá Hólmi hljóp á Mána-
grund 8.8. á 28,0 sek.
6. Kóngur frá Miðsitju hljóp á
Mánagrund 8.8. á 28,0 sek.
800 metra stökk:
1. Cesar frá Björgum hljóp á
Vindheimamelum 11.7. á 57,5
sek.
2. Leó frá Nýja-Bæ hljóp á Vind-
heimamelum 11.7. á 57,5 sek.
3. Þróttur frá Miklabæ hljóp á
Vindheimamelum 11.7. á 59,5
sek.
4. Móri frá Brunná hljóp á Vind-
heimamelum 11.7. á 60,0 sek.
5. Þristur frá Uxahrygg hljóp á
Mánagrund 8.8. á 60,0 sek.
6. Hrímnir frá Kúfhól hljóp á
Vindheimamelum 11.7. á 60,0
sek.
7. Reykur frá Nýja-Bæ hljóp á
Vindheimamelum 11.7. á 60,6
sek.
8. Don frá Hofsstöðum hljóp á
Mánagrund 8.8. á 61,0 sek.
9. Brjánn frá Hæli hljóp á Vind-
heimamelum á 61,0 sek.
10. Örvar frá Hjaltastöðum hljóp á
Hellu 14.8. á 61,7 sek. (Besti tími
á hringvelli).
300 metra brokk:
1. Fengur frá Ysta-Hvammi brokk-
aði á Vindheimamelum 11.7. á
31,0 sek.
2. Svarri frá Vífilsdal brokkaði á
Vindhcimamelum 11.7. á 34,0
sek.
3. Burst frá Burstafelli brokkaði á
Vindheimamelum 11.7. á 34,7
sek.
4. Funi frá Jörva brokkaði á
Vindheimamelum 11.7. á 37,0
sek.
5. Hjalti frá Hjaltabakka brokkaði
á Vindheimamelum 11.7. á 37,5
sek.
6. Bastían frá Bergsstöðum brokk-
aði á Vindheimamelum 11.7. á
37,7 sek.
7. Trítill frá Skagafirði brokkaði á
Arnarhrauni 19.6. á 38,1 sek.
8. Smyrill frá ?? brokkaði á Arn-
arhamri 19.6. á 38,1 sek.
800 metra brokk:
1. Svarri frá Vífilsdal brokkaði á
Faxaborg 1.8. á 1.33,3 min.
2. Fengur frá Ysta-Hvammi brokk-
aði á Hellu 14.8. á 1.40,2 mín.
3. Trítill úr Skagafirði brokkaði á
Víðivöllum 15.5. á 1.45,2 mín.
4. Glampi frá Hofsstaðaseli brokk-
aði í Olveri 27.6. á 1.49,3 mín.
Þar sem öflun upplýsinga í af-
reksskrá sem þessa er miklum erfið-
leikum bundin kunna að leynast vill-
ur í þessari skrá. Ef svo reynist vera
eru leiðréttingar vel þegnar.
VK.
Landspítalinn:
Sýkingar-
hætta liðin
hjá
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Landspítalanum:
„Veirusýking sú, sem barst inn
á Kvennadeild Landspítalans i lok
september, virðist nú um garð
gengin. Engin ný tilfelli af sýking-
um meðal nýbura hafa gert vart
við sig sl. 4 vikur. Varúðarráðstöf-
unum, sem beitt var til að hefta
útbreiðslu veikinnar, hefur því
verið aflétt.
Nýburar hafa litla mótstöðu
gegn margskonar veikindum. Að
fenginni reynslu af þeirri veiru-
sýkingu, sem nú virðist um garð
gengin, þykir rétt að takmarka
heimsóknir til sængurkvenna og
nýbura frekar en verið hefur til
þessa. Framvegis verða heimsókn-
artímar á sængurkvennaganga
Kvennadeildar Landspítalans sem
hér segir:
Almennur heimsóknartími er
kl. 15.00-16.00.
Heimsóknartími fyrir feður er
kl. 19.30—20.30. Heimsóknir barna
innan 12 ára aldurs verða ekki
leyfðar. Undanskilin eru þó börn
sængurkvenna, en æskilegt er, að
þær heimsóknir fari fram á setu-
stofum deildarinnar.
Vonast er til, að heimsóknar-
gestir sýni þessum nýju reglum
skilning.”
Islendinga-
félag í Kansas-
borg stofnað
STOFNAÐ hefur verið íslendingafé-
lag í Kansas-borg en í borginni og
næsta nágrenni fer íslendingum og
fjölskyldum þeirra og fólki af ís-
lenzku bergi fjölgandi. Félög af
þessu tagi hafa verið stofnuð í mörg-
um bandarískum stórborgum.
í fréttatilkynningu frá samtök-
unum segir að þegar farið var að
grennslast fyrir um Islendinga og
fólk, sem rætur eigi að rekja til
landsins, hafi fjöldinn reynzt
miklu meiri en ráð hafði verið
fyrir gert.
Jafnframt segir í fréttatilkynn-
ingunni að unnið sé að spjaldskrá
yfir íslendinga á sex ríkja svæð-
inu (Missouri, Kansas, Nebraska,
Iowa, Oklahoma og Arkansas) og
allir íslendingar eða fólk af ís-
lenzku bergi brotið i þessum ríkj-
um hvatt til að setja sig í samband
við félagið af þeim sökum, en
heimilisfang félagsins er: The Ice-
landic Association in Kansas City,
Box 37, Grandview, MO 64030
U.S.A.
Á stofnfundi íslendingafélags-
ins í Kansas-borg í október var
Vigdís Aðalsteinsdóttir Taylor
kjörin forseti félagsins og J.S.
Skaptason varaforseti. Dorothy
Skaptason var kjörin ritari, Guð-
ríður (Dúa) Clemensen gjaldkeri,
Aðalsteinn Jon Taylor ritstjóri
fréttabréfs og Knútur Hauksson
fulltrúi námsmanna í stjórn.
Afhenti
trúnaðarbréf
EINAR Benediktsson, sendiherra,
afhenti þann 11. nóvember hennar
hátign Elísabetu II. Bretadrottn-
ingu trúnaðarbréf sem sendiherra
íslands í Bretlandi.
Utanríkisráðuneytið,
12. nóvember 1982.